Þjóðviljinn - 17.02.1985, Side 10
Atucha kjarnorkuverið í Argentínu.
VERÐA 17
Framhald af bls. 9
sprengjum til að geta svarað í
sömu mynt.
Árið 1977 höfðu stjórnvöld í
Suður-Afríku ákveðið að gera til-
raun með kjarnorkusprengju í
Kalahari eyðimörkinni. Mótmæli
á Vesturlöndum komu í veg fyrir
þessa tilraun en tveimur árum
síðar gáfu eftirlitshnettir til
kynna að Suður-Afríka hefði
sprengt tilraunasprengju. Vís-
indamenn og sérfræðingar frá ís-
rael og Taiwan hafa starfað í
kjarnorkuverum í Suður-Afríku.
Þessi samvinna hefur sannfært
marga andstæðinga Suður-
Afríku um að verið sé að tryggja
framleiðslu á kjarnorkusprengju
„hvíta mannsins" í Afríku.
Shaga;ri fyrrum forseti Nígeríu
sagði á ieiðtogafundi Afríkuríkja
1983 að ríki blökkumanna yrðu
að svara í sömu mynt. Hins vegar
hefur þau skort bæði fjármagn og
tæknikunnáttu. Líbýa er eina
landið í Afríku sem komið er í
biðsal kjarnorkuveldanna en það
tilheyrir fremur átakaveröld Ára-
baheimsins.
Mið-Austurlönd
Mesta átakasvæðið á síðari
árum hefur verið fyrir botni Mið-
jarðarhafs. Flestar spásagnir um
nýja heimsstyrjöld rekja upphaf-
ið til spennunnar milli ísrael og
Arabaríkja eða milli Arabaríkja
innbyrðis. Það sýnir því vel hætt-
urnar sem tengjast fjölgun kjarn-
orkuveldanna að í hópi hinna tólf
nýju eru fjögur Arabaríki: Líbýa,
Egyptaland, fran og írak. Sé ís-
rael talið með yrði því nærri
þriðjungur kjarnorkuveldanna í
Mið-Austurlöndum. Það hefur
oft verið efnt í minni púður-
tunnu.
Árið 1970 reyndi Kadhafi að
kaupa kjarnorkusprengju frá
Kína en verslunin mistókst. So-
vétmenn hafa gert samning um
byggingu kjarnorkuvera í Líbýu
og sagt hefur verið að Kadhafi
hafi gert samninga við Pakistan
um kjarnorkuáætlun. Fyrir
tveimur árum hélt AP fréttastof-
an því fram að Líbýa væri búin að
smíða grófgerðar kjarnorku-
sprengjur, fimm talsins, en skorti
enn tækni til að geta beitt þeim í
hernaði. Aðrir drógu þessa full-
yrðingu í efa.
Stríðið milli íran og írak hefur
magnað umræður um kjarnorku-
vopnagetu þeirra í náinni fram-
tíð. Arið 1983 fullyrti Jane’s Den-
fence Weekly að Iran gæti eignast
kjarnorkuvopn innan tveggja ára
en aðrir sérfræðingar telja það of
skamman tíma. Þýsk fyrirtæki
hafa aðstoðað frani við að full-
gera kjamorkuver og er talið að
mikið skorti á að eftirliti sé þar
fullnægt.
ísrael tók hins vegar að sér að
seinka kjarnorkuvopnaáætlun ír-
aka með því að gera sprengjuárás
á Osirak kjarnorkuverið sem
Frakkar vom að reisa. Sérfræð-
ingar í ísrael fullyrtu að uranmrn
úr þessu kjarnorkuveri hefði dug-
að til að framleiða tvær Hiros-
hima sprengjur. Á síðustu árum
hafa auk Frakka bæði Sovétríkin
og Saudi Arabía boðið írökum
aðstoð við að efla kjarnorkuáætl-
unina.
Þótt Egyptaland hafi staðfest
NPT og þar með afsalað sér form-
lega réttinum til að smíða kjarn-
orkusprengjur hefur vakið at-
hygli hve kappsamlega hefur ver-
ið unnið þar að uppbyggingu
kjarnorkuvera. Reiknað er með
að átta kjarnorkuver verði í Eg-
yp alandi um næstu aldamót. Eg-
yptar hafa því tæknigetu til að
verða kjarnorkuveldi. Það er
bara spurning hvort þeir taka
ákvörðun um að eignast sjálfar
sprengjurnar.
Asía
Þegar Kína varð kjarnorku-
veldi voru freistingarnar færðar
inn í nýja heimshluta. Indland og
Pakistan tóku mið af breyttum
aðstæðum og Taiwan og Suður-
Kórea fylgdu í kjölfarið. Á næsta
áratug gætu alls fimm ríki í Asíu
talist til kjarnorkusprengju-
klúbbsins. Indverjar sprengdu
tilraunasprengju árið 1974 og það
er ekkert leyndarmál að þeir
gætu nú framleitt kjarnorku-
sprengju á skömmum tíma. Pak-
istan hefur einnig á síðari árum
öðlast tæknigetu til að búa til
kjarnorkusprengjur og fengið til
þess beina og óbeina aðstoð frá
Kína og Bandaríkjunum. Sumir
telja að Pakistan gæti framleitt
um 12 kjarnorkusprengjur á
næstu 3-5 árum. Næsta ár munu
Bandaríkin svo afhenda Pakistan
40 F-16 sprengjuflugvélar og þá
gætu Pakistanir hafið sprengjutil-
raunir. Slík þróun gæti knúið Ind-
verja til að hefja einnig fram-
leiðslu á helvopnunum. Spennan
milli Indlands og Pakistan getur
því orðið drifkraftur í þessari þró-
un, sérstaklega ef Pakistan held-
ur áfram að styðja skæruliða-
sveitir Sikha sem ógna
stjórnvöldum í Delhi.
Suður-Kórea og Taiwan eru
háþróuð tæknilega og hafa bæði
kjarnorkuver og hernaðartæki
sem nauðsynleg eru til að gerast
raunveruleg kjarnorkuveldi.
Suður-Kórea hefur hótað að
koma sér upp sprengjuforða en
Taiwan hefur farið sér hægar
vegna hins flókna sambands við
Bandaríkin og Kína. Bandaríkin
munu þó geta haft afgerandi áhrif
á það hvort Suður-Kórea og Ta-
iwan verða kjarnorkuveldi.
Suður-Ameríka
Fyrir fimm árum fullyrti Castro
Maderos flotaforingi að Argent-
ína gæti hæglega búið til kjarn-
orkusprengjur. Þegar herfor-
ingjastjórninni var steypt lét hinn
nýi forseti, Raul Alfonsin, rann-
saka hvort herinn hefði smíðað
kjarnorkusprengjur á laun. Svo
reyndist ekki vera og hefur nú-
verandi stjórn Argentínu lýst yfir
að hún muni ekki framleiða
kjarnorkuvopn. Stjórnarfarið í
landinu er hins vegar ekki
stöðugt og grunur um að Bretar
hafi siglt kjamorkukafbátum til
Falklandseyja í stríðinu fræga
gæti skapað freistingar. Argent-
ína verði að búa sig undir að svara
í sömu mynt.
Herinn í Brasilíu hefur stjórn-
að kjarnorkuáætluninni í landinu
og lagt mikið kapp á að smíða
eldflaugar sem gætu borið kjarn-
orkuvopn. Mikið hefur skort á að
fullnægjandi alþjóðlegt eftirlit
væri með kjarnorkuverunum í
Brasilíu. Margir telja að herinn í
Brasilíu sé langt á veg kominn
með að undirbúa framleiðslu á
kjarnorkuvopnum. Valdabarátta
og efnahagserfiðleikar í Suður-
Ameríku geti svo skapað sam-
keppni milli Argentínu og Brasil-
íu um að gera framleiðslu á kjarn-
orkuverum að útflutningsgrein til
annarra ríkja í þessum heims-
hluta. Fleiri Suður-Ameríku ríki
gætu því bæst í klúbbinn á næstu
öld.
10 ór eru
stuttur tími
Áður fyrr var talið ólíklegt að
kjarnorkuveldum myndi fjölga í
næstu framtíð. Vandamálið væri
bundið við ríkin fimm. Nú erljóst
að þróunin hefur orðið mun
hraðari. Tólf önnur ríki eru ýmist
komin að þröskuldinum eða-
innfyrir hann. Á næstu tíu árum
gætu kjarnorkuveldin orðið 17
talsins og enn fleiri bæst við upp
úr aldamótum. Þá yrði bilið milli
beitingar venjulegra vopna og
kjarnorkuvopna orðið ótrúlega
stutt. Kapphlaupið komið út um
víðan völl.
Sá tími sem mannkynið hefur
til að ná tökum á gjörningagaldri
kjarnorkuvopnahættunnar er því
óðum að styttast. Eini samning-
urinn um takmörkun á útbreiðslu
kjarnorkuvopna, NPT, rennur út
árið 1995. Tíu ár eru ekki langur
tími. Samanburður við íslenska
atburðarás sýnir hve hratt flýgur
stund. Geir Hallgrímsson varð
forsætisráðherra fyrir ellefu
árum. Þorsteinn Pálsson formað-
ur Sjálfstæðisflokksins fyrir einu
ári. Bilið þarna á milli er
jafnlengd þess tíma sem
stjórnvöld heimsbyggðarinnar
hafa til að ná tökum á helvopnun-
um sem ógna gervöllu lífi
mannkyns. Sá tími mun líða fljótt
og enn sem komið er hefur tor-
tímingarhættan betur í kapp-
hlaupinu.
Ólafur Ragnar
Rœtt við
Guðrúnu Janusdóttur
hótelstjóra
Hótel ísafjöröur hefur veriö
nokkuð í fréttum undanfarin ár
vegna erfiðleika í rekstri. ísíð-
asta mánuði átti blaðamaður
Þjóðviljans þess kost að gista
í hótelinu í nokkrar nætur og
getur vitnað um það að öll
þjónusta á því ertil fyrirmynd-
ar. Starfsfólkið er allt af vilja
gerttil að látagestum líðavel
og greiða fyrir þeim á alla lund
og maturinn er einstaklega
góður. Ung og hressileg
kona, Guðrún Janusdóttir, er
hótelstjóri og hún var tekin tali
um hótelreksturinn og spurð
hvernig gengi.
- Fjárhagsbyrðin var orðin svo
erfið að hótelið var komið undir
hamarinn en það var jafnframt
ljóst að það varð að halda rekstr-
I inum áfram þó að eigendurnir
I gætu ekki staðið fyrir honum. Því
röst, og var að láta mig dreyma
um að reka Edduhótel eitt sumar
eða svo. Þeir buðu mér svo þetta
starf með sólarhringsfyrirvara og
það verður ekki aftur snúið. Ég
hugsaði með mér á flugvellinum
hvað ég væri eiginlega komin út í.
En hér hef ég mætt mikilli velvild
og það hefur auðveldað mér
starfið. Annars er ég
Vestfirðingur sjálf, kem frá Flat-
eyri.
Grundvöllur fyrir
heils árs Hótel
- Hversu stórt er hótelið?
- í því er 31 tveggja manna her-
bergi svo að hér geta gist 62. Á
sumrin breytist aðstaðan því að
þá tökum við yfir heimavist
Menntaskólans og getum tekið á
móti minni fundum og dæmi eru
til þess að menn hafi komið beint
frá útlöndum hingað til slíkra
varð það úr að Ferðaskrifstofa
ríkisins tók yfir reksturinn 1. apríl
á síðasta ári og mun reka hótelið
þar til eigendurnir treysta sér til
að gera það á nýjan leik. Þetta er
ekki einsdæmi því að það sama
gerðist t.d. í Borgarnesi.
- Hverjir eru eigendur?
- ísafjarðarbær á 69% í hótel-
inu en aðrir eigendur eru einstak-
lingar og fyrirtæki.
-Hvað veldurþvíaðþú erthót-
elstjóri?
- Ég vann á geðdeild Landspít-
alans áður en ég kom hingað og
var með hugmyndir um að breyta
svolítið til. Ég var vel kunnug
hótelrekstri fyrr á árum,var í Bif-
funda. En með heimavistinni eru
gistirými fyrir 140 manns.
- Og hvernig gengur svo rekst-
urinn?
- Hann gengur vonum framar.
Ég held að það hafi þegar sýnt sig
að hér er grundvöllur fyrir heils
árs hótel. Fullt var hjá okkur í allt
sumar og fram í nóvember og það
sem af er vetri hefur nýtingin ver-
ið all þokkaleg.
- Kemur fólk hingað til að
borða um helgar?
- Það hefur minnkað mjög
mikið eftir tilkomu vínveitinga-
hússins Dokkunnar hér inni í
Firði en hins vegar er hótelið
mikill einkasamkvæmisstaður
fyrir ísfirðinga. Hér eru haldin
þorrablót og árshátíðir.
- Er skuldahali hótelsins mjög
langur?
- Já, hann er langur og ég efast
um að reksturinn geti staðið
undir fjármagnskostnaði af hon-
um. Þar verður að koma aðstoð
til.
Vestfirðir eiga
framtíðina
fyrir sér
- Telurðu að ísafjörður eigi
framtíð fyrir sér sem ferðamanna-
staður?
- Já, ég er mjög bjartsýn á að
ísafjörður og reyndar Vestfirðir í
heild eigi framtíð fyrir sér í þeim
efnum en það þarf að byggja
margt upp til þess að svo geti orð-
ið. Það þarf til dæmis að huga
betur að tjaldstæðum. Hér er
hægt að bjóða upp á ýmislegt svo
sem bátsferðir að ógleymdum
póstferðum með Flugfélaginu
Örnum. Það er óskaplega sjarm-
erandi að fljúga hér inn á milli
fjallanna og lenda á þessum litlu
flugvöllum. Þar finnst mér að
fólk fái mikið fyrir peningana en
slíkt tveggja tíma póstflug kostar
aðeins 830 krónur. Flugfélagið
tekur líka að sér leiguflug. Þetta
eru möguleikar sem ekki hafa
verið nýttir sem skyldi. Svo er hér
afbragðs fallegt og gott skíðaland
á veturna og veðursæld er mikil á
Seljalandsdal. En ef við ætlum að
fá skíðafólk til að koma hingað
verður að bjóða upp á fleira en
bara skíðalandið. Það þarf að
vera meira um að vera við þurf-
um að eiga okkar Sjalla líka.
- Er búið að fullgera þetta hót-
el?
- Nei, okkur vantar t.d. til-
finnanlega meiri salarkynni. Þá
væri hægt að gera átak til að fá
hingað fleiri ráðstefnur. Alls
konar samtök eru að halda ráð-
stefnur úti um land en ísafjörður
hefur ekki haft nógu góða að-
stöðu til að fá slíkar ráðstefnur.
Einkalífinu
fórnað
- Svo að vikið sé að sjálfri þér
aftur. Var það góð undirstaða að
koma beint af geðdeildinni íþetta
starf?
- Það má segja að það hafi ver-
ið ágæt undirstaða. Maður fórnar
gersamlega einkalífinu því að
vinnutíminn er aldrei minni en
16-18 tímar á dag, amk. yfir
sumartímann. Maður er a!lt frá
því að vera sendill til hótelstjóra
og sér svo um bókhaldið líka.
Þetta gengur ekki nema maður
vasist meira eða minna í öllu.
- Er mikill drykkjuskapur í
kringum hótelið?
- Nei, við erum eini matsölu-
staðurinn svo að við getum ekki
setið uppi með fólk sem er bara
að drekka. Við seljum einungis
vín með matnum og á laugardags-
og sunnudagskvöldum veitum
við einnig sterka drykki. Ætlunin
er að hafa bar opinn upp á 5. hæð
en fjárveitingar eru þannig að
það hefur ekki verið kleift ennþá.
-GFr
Menntaskólinn á ísafirði
Björn Teitsson skólameisíari
á ísafirði segir frá
skólastarfinu fyrir vestan
í samtali við Þjóðviljann
Skólahaldið gengur vel
„ Ég hef ekki áhuga á því að
vekja upp deilur á ný í þessum
Nýlega hafa Menntaskólanum á isafirði áskotnast 7 tölvur sem notaðar verða við kennslu. Hér er Björn Teitsson skólameistari við
þessar tölvur en í baksýn er Guðjón Glafsson enskukennari. Ljósm.: GFr
efnum og lít svo á að þetta sé
liðið mál. Skólinn stendur jafn
réttur á eftir, í honum eru held-
ur fleiri nemendur en voru í
fyrravetur og góður andi í
kennarahópnum. Skólahald í
vetur hefur gengið ágætlega
nema töf varð vegna verk-
fallsins eins og í öðrum
skólum“. Það er Björn Teits-
son skólameistari í
Menntaskólanum á ísafirði
sem svaraði þessu til er
blaðamaður Þjóðviljans, sem
varáferðá ísafirði íjanúar,
innti hann eftirdeilum þeim
sem urðu í skólanum í fyrra.
- En hvernig gekk að fá kenn-
ara að skólanum eftir að hópur
þeirra hœtti?
- Ekki verr en stundum áður.
Það hefur verið vandamál við
skólann frá upphafi að kennara-
skipti hafa verið í örasta lagi.
Samt er það ekki að öllu leyti
slæmt að fá unga kennara að
skólanum því að þeir koma oft
ferskir frá námi með nýjar hug-
myndir. En það vegur svo á móti
að vissa festu vantar í sjálfan
kennarahópinn. Nær helmingur
kennara hélt áfram störfum í
haust og slík kennaraskipti eru
ekki einsdæmi. Hávaðinn út af
þessu varð meiri út á við en inn á
við og mér virðist skólinn ekki
ætla að hljóta varanlegan skaða
af þessu upphlaupi.
Samtenging
iðnskóla og
menntaskóla
- Þið eruð komin hérna í nýtt og
glœsilegt húsnœði?
- Já, við fluttum inn fyrir ári
síðan og þá var enn verið að vinna
við bygginguna og margt er búið
að gera síðan. Ég og fleiri töldum
samt rétt af ýmsum ástæðum að
hraða flutningum.
- Nú er neðri hœðin enn hálf-
köruð. Þarf skólinn allt þetta
húsnæði?
- í raun og veru þarf skólinn
ekki á því að halda en hugmyndin
er sú að bókleg kennsla við Iðn-
skólann verði í húsinu og það hef-
ur reyndar lengi verið í deiglunni
að þessir tveir skólar samtengist
frekar en þegar er orðið.
- Er eitthvað í veginum fyrirþví
að það geti gerst?
- Það er dálítið flókið mál fjár-
hagslega því að sveitarfélögin
eiga iðnskólana á móti ríkinu.
Miklu einfaldara er að stofna
menntabraut við iðnskóla sem
eru fyrir eins og gerst hefur víða
svo sem í Keflavík, Vestmanna-
eyjum, á Akranesi og Sauðár-
króki. En það hefur aldrei gerst
að iðnskóli og menntaskóli hafi
verið sameinaðir.
- Verður stefnt að því að
menntaskólinn verði fjölbrauta-
skóli?
- Ég er ekki frá því að svo verði
í framtíðinni. Ef menntaskólinn
og iðnskólinn eru lagðir saman
eru álíka margar brautir í þeim og
við suma fjölbrautaskólana.
Töluvert samstarf er milli þessara
tveggja skóla og sameiginleg
kennsla að nokkru leyti.
Fjölgun
í skólanum
- Hversu margir nemendur eru
í menntaskólanum?
- Þeir eru um 170, þar af um 30
í öldungadeild.
- Hefur verið mikil aðsókn í
öldungadeildina?
- Hún hefur verið nokkur.
Flestir nemendurnir eru konur og
líklega um þrítugt að meðaltali.
Það er svipað og í öðrum öld-
ungadeildum.
- Það hefur flogið fyrir að nem-
endur hafi sótt frá skólanum.
- Ég tel að svo sé ekki. Aðsókn
í 1. bekk í fyrra var eins og úrslit
grunnskólaprófa gáfu tilefni til.
Nemendur skiluðu sér nær allir
og eldri nemendur hafa ekki sótt
burt í sérstökum mæli. Það hefur
fjölgað í skólanum ef eitthvað er.
- Hvaðan koma nemendurnir?
- Um 80-85% koma af Vest-
fjörðum og um helmingur þeirra
er frá ísafirði. Á árunum 1975-
1980 voru mjög víða stofnaðir
skólar sem útskrifa stúdenta svo
að það er minna um það en áður
að hingað sæki nemendur úr fjar-
lægum landshlutum. Ekki er útlit
fyrir mikla fólksfjölgun á Vest-
fjörðum í náinni framtíð svo að
ég sé ekki fram á að skólinn geti
stækkað mikið á næstu árum. Það
fara að vísu heldur fleiri í nám nú
en áður en samgönguvandamál á
Vestfjörðum bitna líka dálítið á
skólanum.
- Er heimavistin fullnýtt?
- Hún er nokkum veginn
fullnýtt vegna þess að iðn-
skólanemendur búa þar líka og
þeim hefur farið heldur fjölgandi
á vistinni.
Við göngum að lokum með
Birni um hið nýja skólahús og
það verður að segjast eins og er
að það er ákaflega glæsilegt og
vinnuaðstaða kennara og nem-
enda öll til fyrirmyndar.
-GFr
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. febrúar 1984
Sunnudagur 17. febrúar 1984 RJÓÐVILJINN - SÍÐA 11