Þjóðviljinn - 17.02.1985, Síða 13
Lucy Irvine gengur til veiða við strönd
Tuin.
Mengele er enn
í Paraguay
lllræmdurstríðsglæpamaöur,
Josef Mengele, lifir enn í þorpi
einu í Paraguay, að því er
breska blaðið Sunday Times
hermir. Mengele þessi varð
frægurfyrirhrottalegartil-
rauniráGyðingumí
Auschwitzfangabúðunum og
hefur lengi verið efstur á blaði
yfir ófundna stjórnendur
dauðabúðanna.
Stroessner, einræðisherra
Paraguay, heldur því fram, að
Mengele hafi ekki sést í Paraguay
síðan 1979. Aðrar heimildir
kunna að segja frá því, að hann
hafi sést fyrir nokkrum mánuðum
í þorpinu Volendam, skammt frá
landamærum Brasilíu. Það þorp
er byggt mennónítum, sérkenni-
legum söfnuði manna af þýskum
ættum, sem lifa af landsins gæð-
um og hafa lítið samband við um-
heiminn.
Þá er og frá því skýrt, að Meng-
ele hafi sést ekki alls fyrir löngu í
námunda við sumarhöll Stro-
essners forseta.
Skötuhjú
voru eitt
ór á
eyðieyju
Erhoegtaðleika
Róbinsib Krúsó á
okkaröld
Skötuhjúnokkurtóku sérfyrir
hendur að dvelja ár saman á
eyðieyju lítilli og óvistlegri
norðurafÁstralíu. Þaðvar
breskurblaðamaður, Gerald
Kingsland, sem átti hugmynd-
ina, og hann valdi sér Lucy
Irvine, 24 ára gamla, úr hópi
fimmtíu umsækjenda um starf
„frú Róbinson Krúsó".
Sambúð þeirra varð storma-
söm.
Þau Gerald Kingsland og Lucy
Irvine urðu að gifta sig áður en
áströlsk yfirvöld leyfðu þeim af-
not af eyðieynni, en Lucy vildi
gjarna,að þaðhjónaband yrði að-
eins formlegt. Svo fór þó, að með
þeim Róbinsonhjónum tókust
allmiklar ástir, en hvort um sig
hefur sína sögu að segja af fram-
vindu þeirra.
Þau tóku mjög lítið af
nauðsynjum með sér - tjald,
sveðju, veiðarfæri til að veiða
fisk, dálítið af þurrkuðum ávöxt-
um og svo auðvitað te. Lífið var
erfitt - fæða einhæf og stundum
af skornum skammti. Alein voru
þau ekki. Ástralskir frumbyggjar
frá nálægri eyju komu þeim
stundum til hjálpar. Stundum
flaug póstþyrla yfir og kastaði
niður nauðsynjum sem um var
beðið.
Lucy Irvine hefur skrifað bók
um ár þetta sem heitir „Eva og
herra Robinson" og hefur hún
selst mikið. Gerald Kingsland
kemur svo innan skamms með
aðra. Þeim ber að sögn mikið á
milli. Lucy Irvine leggur mesta
áherslu á, að þessi tími á eynni
Tuin hafi reynst henni dýrmætur
vegna þess að þar hafi hún komist
að því „hvar takmörk mín eru“.
Kingsland mun svo að sínu leyti
gera sitt til að rífa niður allt hið
„stórkostlega" í lýsingu sambýlis-
konu sinnar - en hún hefur á lak-
ari stundum kallað hann „latan
og fáfróðan gamlan bjána“.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
Þaðer
auðvelt...
... að kippa með sér einni þvotta-
vél, þurrkara, ísskáp, frystikistu,
kaffivél, saumavél eða svo sem
hverju sem er, því að í Rafbúðinni
geta viðskiptin gengið hratt fyrir
sig.
Það er auðvelt... að versla við
okkur, því að við viljum að kaupin
séu hverjum manni léttbær. Og
eigirðu krítarkort, þá geta þau ekki
talist íþyngjandi.
hnf-
^ SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMI 681910
OCTAVO 09.30