Þjóðviljinn - 17.02.1985, Síða 18
BRIDGE
LAUSAR STOÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa hjá
HEILSUVERNDARSTÖÐ REYKJAVÍKUR. Starfskjör sam-
kvæmt kjarasamningum.
• Hjúkrunarfræðingar við barnadeild, heimahjúkrun,
heilsugæslu í skólum og einnig á kvöldvaktir í heimahjúkr-
un.
• Sjúkraliðar við heimahjúkrun, bæði heilarstöðurog
hlutastörf.
• Deildarmeinatæknir í háltt starf.
• Sjúkraþjálfari við heimahjúkrun.
• Skrifstofumaður í hálft starf við húð- og kynsjúkdóma-
deild.
Upplýsingar veita hjúkrunarforstjóri og framkvæmdastjóri
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur í síma 22400.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum umsóknar-
eyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00 mánudaginn 25.
febrúar 1985.
!?I IAUSAR STÖEHJR HJÁ
T REYKJAVÍKURBORG
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa.
Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Deildarstjóri mælastöðvar ( innlagnadeild Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. Rafmagns-Jæknifræði- eða verkfræði-
menntun áskilin.
• Rafmagnseftirlitsmaður í innlagnadeild Rafmagnsveitu
Reykjavíkur. Iðnfræðingsmenntun áskilin.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri R.R. í síma 686222.
Umsóknum skal skila til starfsmannastjóra Reykjavíkur-
borgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum umsóknar-
eyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00 föstudaginn 22.
febrúar.
Norrænir styrkir til þýðingar
og útgáfu Norðurlandabókmennta.
Fyrri úthlutun 1985 'á styrkjum til útgáfu norrænna bók-
mennta í þýðingu af einu Norðurlandamáli á annað fer fram
á fundi úthlutunarnefndar í vor. Frestur til að skila umsókn-
um ertil 1. apríl n.k. Tilskilin umsóknareyðublöð og nánari
upplýsingar fást í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
101 Reykjavík, en umsóknir ber að senda til Nabolandslitt-
eraturgruppen, Nordisk Ministerrád, Sekretariatet for nor-
disk kulturelt samarbejde, Snaregade 10, DK-1205 Köben-
havn K.
Menntamálaráðuneytið, 13. febrúar 1985
Sumarferð til
Tékkóslóvakíu
Tékknesk-íslenska félagið gengst fyrir skemmti- og
kynnisferð 16. ágúst til 1. september í sumar.
Tékkneskumælandi fararstjóri.
Viku hringferð - vika í Prag
Áætlaður farareyrir 35.000,- kr. á mann auk skotsilf-
urs.
Upplýsingar veitir Helgi Daníelsson hjá Samvinnu-
ferðum-Landsýn, í síma 91-27077 og 91-28899.
Hafið samband sem fyrst!
Stjórn TÍF
VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR/
HAGFRÆÐINGUR
Vinnumálasamband Samvinnufélaga óskar eftir að
ráða viðskipta- eða hagfræðing.
Starfssvið hans er ýmist hagdeildarverkefni og þátt-
taka í samningagerðum.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist starfsmannastjóra Sambandsins, Lindargötu
9a, Reykjavík, er veitir frekari upplýsingar um starfið.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar n.k.
VINNUMÁLASAMBAND SAMVINNUFÉLAGANNA
Heimilisaðstoð
Okkur bráðvantar konu til að koma heim og gæta 21/2
árs stelpu + eitt húsverk eftir hádegi. Erum staðsett í
Nýja miðbænum. Upplýsingar í síma 81699 á daginn,
78757 á kvöldin.
Stórmót ó Akureyri
í gærkvöldi hófst á Akureyri
Opið Miriningarmót Bridgefé-
lags Akureyrar um þá Mikael
Jónsson og Angantý Jóhannsson.
Þegar síðast var vitað stefndi í
þátttöku 70 para. Það þýðir, að
þetta verður önnur stærsta tví-
menningskeppni sem haldin hef-
ur verið hér á landi, aðeins und-
anrásirnar fyrir íslandsmótið í
tvímenning í fyrra er stærra (yfir
90 pör). Þetta gildir um síðustu
15-20 ár.
Spilað verður í 5x14 para
riðlum og komast 22 efstu pörin í
úrslit, sem verða með barometer-
sniði. Spiluð verða 3 spil milli
para í úrslitum, allir v/alla. Alls
verða því spiluð yfir 140 spil, fyrir
þá sem komast í úrslit.
Úrslitakeppnin hefst eftir
kvöldmat í kvöld. Spilað er í
Síðuskóla og keppnisstjórar eru
Ólafur Lárusson og Albert Krist-
insson.
Vegleg verðlaun eru í boði
fyrir 5 efstu pörin, verðlaunafé að
upphæð kr. 40.000, auk eignabik-
ara. Spilað er um silfurstig.
Bridgehátíðin 1985
Skráningu í tvímennings-
keppnina lýkur mánudaginn 25.
febrúar n.k. og í Opna Flugleiða-
mótið (sveitakeppnina) miðviku-
daginn 6. mars kl. 17.
Fjöldi erlendra spilara mun
sækja mótið heim, einsog fram
hefur komið í fréttum, þar á með-
al pólska landsliðið (nv.olympíu-
meistarar), sveit frá London
skipuð þeim Zia Mahoumed,
Rob Sheean o.fl. Einnig fjöldi
spilara frá Danmörku og sveit frá
ÚSA, skipuð Steve Sion, Alan
Cogin o.fl.
íslandsmót kvenna
og yngri spilara
í vikunni voru 10 sveitir
skráðar til leiks í kvennaflokki og
8 í yngri flokki spilara, til þátt-
töku í íslandsmótinu. Það hefst
n.k. föstudgskvöld í Menning-
armiðstöðinni v/Gerðuberg í
Breiðholti kl. 19.30.
Þetta er undankeppni í báðum
flokkum, og spila allir v/alla.
Fjórar efstu sveitirnar úr hvorum
flokki komast síðan í úrslita-
keppnina, sem verður háð helg-
ina á eftir í Félagsheimili Skag-
firðinga v/Síðumúla, Drangey. í
úrslitakeppninni verður útslátt-
arfyrirkomulag, þannig að sigur-
vegararnir á laugardeginum í
hvorum flokki, munu eigast við á
sunnudeginum.
Frá Bridgedeild
Skagfirðinga
Þar kom að því, að sveit Magn-
úsarTorfasonar missti forystuna í
aðal-sveitakeppni félagsins. Þeir
töpuðu sínum fyrsta leik í 10. um-
ferð, og er þá aðeins ein sveit sem
ekki hefur tapað leik í mótinu,
sveit Guðrúnar Hinriksdóttur.
Röð efstu sveita er:
stig
1. Sv. Guðrúnar Hinriksd. 215
2. Sv. MagnúsarTorfasonar 211
3. Sv. GíslaStefánss. 199
4. Sv. Hjálmrs Pálssonar 167
5. Sv. Óla Andreassonar 157
6. Sv. Jóns Hermannssonar 156
7. Sv. Sigmars Jónssonar 154
8. Sv. Leifs Jóhannessonar 153
9. Sv. Agnars Kristinss. 153
10. Sv. Guðmundar Thorsteinss. 152
Á þriðjudaginn eigast við m.a.
sveitir Guðrúnar-Magnúsar og
Gísla-Magnúsar.
Frá Bridgeklúbbi
hjóna
42 pör taka þátt í Butier-
tvímenningskeppni klúbbsins og
er spilað í 3x14 para riðlum. Eftir
5 umferðir (2 kvöld) er staða
efstu para þessi:
1. Dröfn Guðmundsd.-
Einar Sigurðsson 81
2. Hanna Gabríelsd.-
Ingólfur Helgason 76
3. Margrét Margeirsd.-
Gissur Gissurarson 74
4. Árnína Guðlaugsd.-
Bragi Erlendsson 73
5. Ágústa Jónsdóttir-
Kristinn Óskarsson 73
6. Guðrún Reynisd.-
Ragnar Þorsteinsson 69
7. Gróa Eiðsdóttir-
Júlíus Snorrason 69
8. Ólöf Jónsdóttir-
Gísli Hafliðason 65
Næstu umferðir verða spilaðar .
nk. þriðjudag í Hreyfilshúsinu.
Brotalamir eða
tímaskekkjur?
í keppnisreglugerð fyrir ís-
landsmót segir: „Spilara er ó-
heimilt án leyfis að taka þátt í
úrtökumóti á öðru svæði en hann
er skráður aðalfélagi í. Spilari
sem óskar eftir að taka þátt í úr-
tökumóti á öðru svæði en hann
tilheyrir (?), þarf samþykki
stjórnar þess svæðis, sem hann
ætlar að keppa á, fyrir þátttöku
sinni. Stjórn svæðasambands er
skylt að veita slíkt samþykkti, að
því tilskildu að spilari spili ekki á
öðru svæði í hliðstæðu móti í
sömu keppnisgrein".
Svo mörg eru þau orð. Sam-
kvæmt þessu getur hver sem er
farið hvert sem er, til að öðlast
þátttökurétt til íslandsmóts í
sveitakeppni. Sem dæmi, getur
sveit Jóns Baldurssonar skroppið
til ísafjarðar og nælt sér í réttinn
þar (Vestfirðingar eiga eina sveit
til fsíandsmóts) án þess að heima-
menn hafi nokkuð um það að
segja.
Til útskýringar á „rétti“ hvers
svæðis (,,kvóta“) til þátttökurétts
á íslandsmóti í sveitakeppni, skal
tekið fram að hvert félag á
landinu (þau eru 45 í dag) greiðir
ákveðið spilagjald af hverjum
spilara á hverju kvöldi sem spilað
er í viðkomandi félagi. Þessi upp-
hæð er í dag kr. 15 á haus, sem
rennur til Bridgesambands ís-
lands. Félögin eiga síðan að
standa skil á þessum greiðslum
tvisvar á ári, 15. janúar og 15. júlí
ár hvert. Eftir þeim tölum, er síð-
an fundin út reikningstala, þar
sem þessum 45 félögum' er skipt
niður á svæði (eftir kjördæmum),
að undangengnum skilum frá að-
ildarfélögunum innan BSÍ. (Þau
félög sem ekki greiða þessi gjöld
á réttum tíma, falla út hjá við-
komandi svæði og getur þar af
leiðandi valdið því að svæðið í
heild sinni missi (mögulega) út
sveitir. Eftir þessari reglu, er 16
sveitum skipt niður á svæðin 8, þó
þannig að hvert svæði fær lág-
mark alltaf eina sveit. Til við-
bótar þessum 16 sveitum, eru
aðrar 7 sveitir sem veljast til við-
bótar á svæðin, eftir frammistöðu
fyrra árs (8 sveitir keppa ætíð til
úrslita) og 24. sveitin eru fs-
landsmeistarar fyrra árs, sem
komast beint í undanúrslit.
Sem dæmi þessu til útskýringar
skal tekið t.d. Austurland. Þar
eru starfandi ein 6 félög, flest
hver frekar lítil. Þau fá því eina
sveit samkvæmt reglu 1. (félaga-
gjald - lágmarksþátttaka hvers
svæðis). Á síðasta ári komst ein
sveit þaðan í 8 sveita úrslit, og
samkvæmt reglu 2. (uppbótar-
sæti) fær því svæðið aðra sveit til.
Samtals tvær sveitir. Hefði sveit
þaðan þar að auki sigrað íslands-
mótið, hefði sú sveit einnig bæst
við, þannig að svæðið fengi þrjár
sveitir inn.
Ég vona, að sem flestir hafi náð
þessum útskýringum mínum á
framkvæmdinni á núverandi ís-
landsmóti í sveitakeppni (fyrir-
komulagi).
Hafi svo verið, bið ég lesanda
um að líta á byrjunina á þessari
grein og hugleiða, eru þetta
brotalamir eða einfaldar tíma-
skekkjur, sem þarna eru að ger-
ast?
Ef þú ert spilari í Reykjavík og
spilar reglulega í þínu félagi einu
sinni í viku, keppnisárið út í gegn,
hefurðu borgað til Bridgesam-
bands íslands spilaskatt að upp-
hæð kr. 450 ca. Sú upphæð er
síðan notuð til að finna út, hvað
margar sveitir Reykjavík á að fá
til íslandsmóts. Því fleiri spilarar,
því fleiri krónur, ekki satt? Og
því fleiri sveitir einnig, ekki satt?
Síðan er það blessaður sakleys-
inginn í Hafnarfirði, sem einnig
spilar reglulega einu sinni í viku
og borgar sömu upphæð til BSÍ.
En hans svæði er mun minna,
færri krónur, færri spilarar
o.s.frv. Og þar kemur að því, að
ljóst er hvað svæðin fá margar
sveitir. Reykjavík kannski 10 og
Reykjanes kannski 3. Bæði svæð-
in efna til úrtökumóts. Reykja-
víkursvæðið er spilalega séð mjög
öflugt, Reykjanessvæðið frekar
veikt. Og þegar úrtökumótið
hefst, kemur í ljós, að kannski 20
reykvískar sveitir keppa í
Reykjavík um réttinn til Islands-
móts, en hinsvegar á Reykjanes-
svæðinu keppa 7 sveitir þaðan og
3 úr Reykjavík. Og svo „óheppi-
lega“ vill til, að þessar þrjár
„reykvísku" sveitir á Reykjanesi
enda í þremur efstu sætunum,
þeim eflaust til mikillar gleði. En
hvað hugsa þá þeir sem eftir sátu,
sá saklausi úr Hafnrfirði og sá
grunlausi úr Kópavogi?
Því miður bæði fyrir bridge-
hreyfinguna í landinu og spilar-
ana sjálfaeru þessir atburðir að
gerast í dag. Og allt saman að
sjálfsögðu löglegt, samanber
grein 1.1. Almenn ákvæði í
keppnisreglum fyrir íslandsmót,
sem þið lásuð í upphafi þessarar
greinar.
Og hugsar nú hver sitt.
Frá Bridgedeild
Barðstrendinga-
félagsins
Staðan í Aðalsveitakeppni fé-
lagsins eftir 10 umferðir er nú
þannig:
stig
1. Sv. Gunnlaugs Þorsteinss. 170
2. Sv. Viðars Guðmundss. 145
3. Sv. Ragnars Þorsteinss. 133
4. Sv. Friðjóns Margeirss. 128
5. Sv. Sigurðar ísakssonar 127
6. Sv. Þóris Bjarnasonar 96
7. Sv. Sigurðar Kristjánss. 95
11. og 12. umferð verða spilað-
ar mánudaginn 11. febrúar og
hefst keppni kl. 19.30. Spilað er í
Síðumúla 25.
Mánudaginn 25. febrúar hefst
Barometerkeppni félagsins. Þátt-
taka tilkynnist til Helga Einars-
sonar sími 71980 og Sigurðar
Kristjánssonar sími 81904 fyrir
20. febrúar. Keppnisstjóri verður
Hermann Lárusson.
Frá Bridgeklúbb
Akraness
Fjórða umferð í Akranesmót-
inu í tvímenningskeppni var spil-
uð fimmtudaginn 7. febrúar s.l.
Efstu pör eftir fjórðu umferð
eru þessi:
stig
1. Oliver Kristóferss.-
Þórir Leifsson 312
2. Jón Alfreðsson-
Eiríkur Jónsson 307
3. Guðjón Guðmundss.-
ÓlafurG.ÓIafsson 193
4. Alfreð Kristjánss.-
Haukur Þórisson 164
5. Vigfús Sigurðsson-
Þórður Elíasson 107
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. febrúar 1984