Þjóðviljinn - 06.03.1985, Síða 5
Suðurnes
Óttinn við atvinnuleysið
Óánœgja með kaup og kjör það sem fólk talar mest um, sögðu þingmenn
Alþýðubandalagsins sem heimsóttu vinnustaði þar syðra í gœr
Um leið og netið er riðið ræðir þing-
maður Alþýðubandalagsins f
Reykjaneskjördæmi við starfmann
Netaverkstæðis Suðumesja. Ljósm.
S.dór
Skúli Alexandersson messaryfir við-
skiptavini í Samkaupi.
Geir Gunnarsson og Oddbergur
Eiríksson dreifa AB fróttum.
í gærkvöldi gengust alþingismenn Alþýðubandalagsins fyrir al-
mennum stjórnmálafundi í Stapa í Njarðvíkum. Fyrr um daginn fóru
þeir Geir Gunnarsson, Svavar Gestsson og Skúli Alexandersson á
Qölmarga vinnustaði og ræddu við fólk. Þeir sögðu það áberandi hvað
óttinn við vaxandi atvinnuieysi á Suðurnesjum væri ofarlega í huga
fólks þar syðra. Mikill samdráttur í útgerð hefur orðið til þess að
atvinna hefur minnkað mjög, einkum hjá konum sem unnu í fiskverkun
hverskonar.
Þá er bullandi óánægja hjá fólki með kaup og kjör. Nær allir sem
rætt var við höfðu orð á því hvað kaupmáttur færi ört minnkandi. Þeir
sjómenn sem rætt var við lýstu yfir óánægju með nýgerða kjarasamn-
inga sjómanna. Þá komu erfiðieikar ungs fólks sem stendur í húsbygg-
ingu mjög til umræðu víða.
Skúli Alexandersson sagði að margar konur á Suðumesjum hefðu
verið þar iengi atvinnulausar, að nú færi að koma að því að þær misstu
atvinnuleysisbæturnar í 3 mánuði. Að sjálfsögðu veldur þetta því að
nagandi ótti grefur um sig hjá mörgum.
Þessi vandamál öll komu uppá yfirborðið þegar þeir Geir, Svavar og
Skúli ræddu við fólk hjá Fiskverkun Jóns Karlssonar í Njarðvík,
Sjúkrahúsi Keflavíkur, Holtaskóla, ísmati, Skreiðarskemmu SÍS, Hit-
aveitu Suðumesja, Netaverkstæði Suðurnesja, Samkaupi, Verkalýðs-
og sjómannafélagi Keflavíkur, svo nokkrir vinnustaðir séu nefndir.
Hér á síðunni fylgja svo nokkrar myndir sem teknar vom suðurfrá í
gær.
- S.dór
Kjaramálin rædd á Netaverkstæði Suðurnesja. Ljósm. S.dór.
Miðvikudagur 6. mars 1985 ÞJÓÐVIUINN - S(ÐA 5