Þjóðviljinn - 21.04.1985, Blaðsíða 17
LEIÐARAOPNA
Hjörleifur Kvaran forstjóri ísfilm. Tilbúnir í sjónvarpið.
nefnilega allir voldugustu fjöl-
miðlar í landinu og þeir eru allir
af hægri kantinum. Því óttast
margir hvar í flokki sem þeir
standa að með ísfilm sé stóri
bróðirinn í uppsiglingu; ein alls-
herjarmötun fyrir hönd stór-
auðvaldsins. Þetta flýti fyrir því
borgarríki a la Singapore sem ís-
lenskir kaupahéðnar vilja í
landinu. Hverjir ættu að hafa
fjárhagslegt bolmagn til að veita
útvarps- og sjónvarpsstöðvum
þessa fjölmiðlarisa samkeppni?
Við skulum nú líta á þá sem
standa að ísfilm og rifja upp
nokkur hagsmunatengsl þeirra á
milli.
Stjórn
samsteypunnar
Indriði G. Þorsteinsson er
stjórnarformaður ísfilm hf. Hann
situr í stjórninni fyrir hönd fyrir-
tækisins Haust sf (sem áður hét
ísfilm). Þá eru í stjórninni fyrir
Almenna bókafélagið Kristján
Jóhannsson, SÍS-Kjartan P.
Kjartansson, Árvakur/Morgun-
blaðið Haraldur Sveinsson, fyrir
Reykjavíkurborg Björn L. Hall-
dórsson og fyrir Frjálsa fjölmiðl-
un Hörður Einarsson.
í varastjórn eiga sæti fyrir Al-
menna bókafélagið Gylfi Þ.
Gíslason, SÍS Jón Sigurðsson
skólastjóri Bifrastar og fyrrv. rit-
stjóri Tímans, Reykjavíkurborg
Hjörleifur Kvaran forstjóri, Ár-
vakur Björn Bjarnason aðstoð-
arritstjóri Morgunblaðsins,
Frjálsa fjölmiðlun Sveinn R.
Eyjólfsson og fyrir Haust sf Á-
gúst Guðmundsson.
Árvakur hf
Árvakur hf sem gefur út Morg-
unblaðið var stofnað um útgáf-
una árið 1919. Fyrirtækið hefur
alla tíð verið í eigu nokkurra
voldugra ætta í íslensku fjármála-
lífi og Sjálfstæðisflokknum. í
kynningarblaði um Morgunblað-
ið sem kom út í byrjun apríl segir
svo:
„í stjórn Árvakurs hf sitja allir
fulltrúar helstu eigenda Morgun-
blaðsins. Stjórnarformaður er
Geir Hallgrímsson. Varaformað-
ur er Gunnar Hansson, ritari
Bergur G. Gíslason en með-
stjórnendur Leifur Sveinsson og
Ólafur O. Johnson. í varastjórn
eiga sæti: Björn Thors, Brynjólf-
ur Bjarnason og Hjötur Hjartar-
son. Árvakur rekur Morgunblað-
ið, prentsmiðjuna og fyrirtækið
Myndamót er að hálfu leyti eign
Árvakurs.
Frjóls fjölmiðlun -
líka í flokknum
Frjáls fjölmiðlun hf er sam-
steypa Dagblaðsins hf,
Reykjaprents hf sem gaf út Vísi
sáluga auk nokkurra einstak-
linga. Samsteypan sér um útgáfu
DV, Vikunnar og Úrvals. Þá er
fyrirtækið Videoson, sem sá um
ólöglegar sjónvarpssendingar um
kapal í Breiðholti og hluta Kópa-
vogs einnig tilheyrandi sam-
steypunni. Sterkastir í sam-
steypunni Frjáls fjölmiðlun
munu nú vera þeir Sveinn R.
Eyjólfsson „hinn íslenski Sprin-
ger“, Jónas Kristjánsson ritstjóri
og Hörður Einarsson. Sá síð-
astnefndi er kominn frá
Reykjaprenti Vísisútgáfunni.
Meðal eigenda Frjálsar fjöl-
miðlunar er einnig Indriði G.
Þorsteinsson sem skrifaði hina
landskunnu dálka í DV undir
heitinu Svarthöfði. Fyrirtækið
Videoson á þráð, „kapal“ sem
nær um Breiðholtið og hluta að
Kópavogi. Hins vegar er talið lík-
legt að Reykjavíkurborg sé með í
samsteypunni til að fjármagna
kapalkerfi fyrir alla borgina.
Heildsalar í Reykjavík eru meðal
voldugra eigenda að þessari út-
gáfu svosem þeir Ingimundur
Sigfússon í Heklu (Volkswagen
bifreiðar) og Þórir Jónsson í
Ford-umboðinu. Flestir eru þess-
ir menn valdamiklir í Sjálfstæðis-
flokknum. Meðal þeirra er einnig
nýkjörinn miðstjórnarmaður í
Sjálfstæðisflokknum, Björn Þór-
hallsson varaforseti ASÍ.
Ekki sakar að geta þess að Ind-
riði G. Þorsteinsson er líka fyrr-
verandi ritstjóri Tímans og í út-
gáfuráði Almenna bókafélagsins.
Jónas Kristjánsson var eitt sinn
fréttastjóri Tímans í tíð Indriða.
Alltumlykjandi
Davíð Oddsson borgarstjóri
sem tók ákvörðun um þátttöku
borgarinnar í ísfilm án þess að
umræða hefði farið fram um mál-
ið, er heldur ekki ókunnur öðrum
aðstandendum. Þannig var hann
þingfréttaritari Morgunblaðsins
sem Arvakur gefur út og um tíma
einnig starfsmaður Almenna
bókafélagsins.
Stjórnarformaður Árvakurs er
Geir Hallgrímsson utanríkisráð-
herra. Hann er þar fulltrúi fyrir
fjármagnið frá H.Ben og co. Og
það fyrirtæki teygir anga sína í
fjölmörg fyrirtæki svosem Shell
og Sameinaða verktaka, sem eru
aðiljar að fslenskum aðalverk-
tökum.
Leifur Sveinsson í stjórn Ár-
vakurs er bróðir Haraldar fram-
kvæmdastjóra og er hann for-
stjóri Völundar hf. Bergur G.
Gíslason stjórnarmaður í Ár-
vakri er sonur Garðars Gísla-
sonar og er framkvæmdastjóri
þess fyrirtækis, hann var um
skeið stjórnarformaður Flugfé-
lags íslands og á sæti í stjórn Flug-
leiða. Hann er mágur Halldórs
H. Jónssonar sem stundum er
nefndur forstjóri íslands (stjórn-
arformaður Eimskips og fsals og
hefur átt sæti ma. sæti í stjórnum
eftirtalinna fyrirtækja sem tengj-
ast með ýmsum öðrum hætti:
Garðar Gíslason hf, Steypustöð-
in hf, íslenskir aðalverktakar hf,
Shell á íslandi, Flugleiðir,
Flugfélagið og mörgum, mörgum
fleiri).
Brynjólfur Bjarnason fyrrver-
andi framkvæmdastjóri Almenna
bókafélagsins er stjórnarmaður í
Árvakri. Hann varð forstjóri
BÚR eftir valdastöðu Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík. Ólafur
O. Johnson í stjórn Árvakurs er
forstjóri O. Johnson og Kaaber,
stjórnarmaður Heimilistækja hf,
Dranga hf, Geysis hf, Flugleiða
hf og fleiri fyrirtækja.
Frjóls
skoðanamyndun?
Það lætur að líkum einsog sést
á þessari upptalningu hér fyrir
ofan, að fjölmiðlarisi sem á ættir
að rekja til allra helstu fjölmiðla-
og fjármagnseigenda á íslandi
býr yfir gífurlegu valdi. Enn er
ekki komið í ljós hvernig því valdi
verður beitt.
ísfilm hefur á líftíma sínum að-
eins komið nálægt kvikmynda-
gerð með því að fjármagna þá
góðu mynd Gullsand að 40%.
Hitt er ljóst, að ef illa fer einsog
svo oft þarsem margar krónur
koma saman, þá á þessi fjölmiðl-
arisi möguleika á að kyrkja lýðr-
æðislega málefnaumfjöllun á ís-
landi. Það gæti gerst ef alþingi
gáir ekki að sér við afgreiðslu
frumvarps til útvarpslaga, - og ef
það setur ekki frekari skorður við
hringmyndum. í því ljósi er und-
arlegt að sjá fyrirtæki kennt við
samvinnuhreyfinguna í þessum
selskap. Máske er það einmitt
vegna ótta við löggjöf um hring-
myndun?
Það er óneitanlega dálítið
kaldhæðnislegt ef þrengt verður
um frjálsa skoðanamyndun í
landinu í nafni „frjálss" útvarps.
-óg
Hjólin
farin að
snúast
ó fullu
Hjörleifur Kvaran forstjóri ísfiim
tekinn tali
Hjólin eru farin að snúast
að fullu, sagði Hjörleifur
Kvaran forstjóri ísfilm hf. þeg-
ar Þjóðviljinn leit við ó stöð-
inni ó Laugavegi 28 f Reykja-
vík. Við leituðum fregna af
starfseminni:
- Þegar í upphafi þessa sam-
starfs var byrjað að kanna mynd-
bandagerð, auglýsinga- og
fræðslumyndir. Við leituðum til-
boða erlendis í tæki til slíkrar
framleiðslu en fengum þá tilboð
um að kaupa tæki og aðstöðu fs-
myndar og stjórnin tók því boði.
Þetta gerðist fyrir tveim mánuð-
um og við yfirtókum þá starfsemi
sem ísmynd hafði áður með
höndum. Hér vinna 8 til 10
manns núna og við framleiðum
auglýsingar og fræðsluefni.
Tilbúnir í sjónvarp
og hljóðvarp
- Tæknilega stöndum við
jrannig, að með tiltölulega litlum
tilkostnaði og viðbótartækjum
gætum við hafið sendingar sjón-
varpsefnis. Auðvitað höfum við
verið að skoða þann möguleika.
- Jú hljóðvarp er einnig inní
þessari mynd. Það er augljóst að
hægt væri að nýta mannafla mjög
vel í tvíhliða starfsemi, hljóð-
varps og sjónvarps. En það er
ljóst að enginn fer að fjárfesta í
slíkum viðbótartækjabúnaði eða
þess háttar fyrr en vitað er hver
verða afdrif útvarpslagafrum-
varpsins á alþingi.
- Einsog frumvarpið lítur út
eftir aðra umræðu þá á að heimila
sjónvarpsrekstur sem verður
fjármagnaður einungis með
auglýsingum og þá sent út þráð-
laust, - hinn kosturinn sem gef-
inn er upp er að senda geislann
beislaðan í kapli og selja áskriftir.
Ég er þeirrar skoðunar að til að
geta verið með gott efni þurfi að
heimila bæði auglýsingar og á-
skriftir og senda geislann beislað-
an. Ástæðan er einfaldlega sú, að
vandað erlent efni er mjög dýrt
og innlend dágskrárgerð er enn
dýrari. Þröngir kostir slíks rekstr-
ar kemur óhjákvæmilega niður á
gæðunum. Við myndum einnig
vera með fréttir og fréttatengt
efni sem sömuleiðis þarf að hafa
góðan rekstrargrundvöll.
Þyrstir í
afþreyingarefni
- íslenskir neytendur nota
mjög mikið myndbönd og mynd-
bandaleigurnar. Sú þensla sýnir
að þá þyrstir í afþreyingarefni og
að það er markaður fyrir aðra
sjónvarpsstöð.
Og gæðin?
- Sjónvarpsstöð yrði undir eft-
irliti almennings, sem vídeó-
markaðurinn er ekki, og sjón-
varpsstöð hefur þannig meiri
skyldur og kvaðir gagnvart not-
endum.
Ertu ekki hræddur um að
auglýsingamarkaðurinn sé orð-
inn mettaður hér á landi, hann sé
of lítill fyrir viðbótarsjónvarps-
stöð?
- Nei ég er ekki hræddur um
það. Ég bendi á að þegar íslenska
sjónvarpið hóf starfsemi sína
þoldi auglýsingamarkaðurinn al-
veg þá viðbót og ég bendi líka á,
að þegar gervihnattarsjónvarp
kemst á laggirnar þá flæða
auglýsingarnar þar yfir líka.
En heldur þú að ekki komi til
greina að hin voldugu fyrirtæki
sem standa beint og óbeint að ís-
film hafi m.a. ákveðið þessa sam-
steypu með það fyrir augum að
draga úr auglýsingum annars
staðar?
- Nei því fer fjarri. Það myndi
koma beint niður á þessum aðilj-
um sjálfum sem gefa út aðra fjöl-
miðla.
En þú heldur ekki að notendur
komi þá til með að greiða hærra
vöruverð fyrir vöru og þjónustu
með auknum álögum vegna
auglýsinga?
- Nei, það held ég að verði ekki
raunin fremur en áður hér á
landi. Ég held að þetta dreifist;
auglýsingarnar verði einfaldlega
viðbót.
Nú ert þú Sjálfstæðismaður
eins og svo margir aðstandenda
ísfilms. Þar safnast saman fjár-
sterk fyrirtæki, íslenska stórkap-
ítalið. Ertu ekkert hræddur um
að fjölmiðlum hins „stóra
bróður“ sé að halda innreið sína.
Hefurðu aldrei efasemdir?
- Nei, ég hef aldrei haft neinar
efasemdir varðandi þetta atriði.
Menn verða að gera sér grein
fyrir að við lifum á þeirri fjöl-
miðlaöld, þar sem við getum átt
von á gervihnöttum erlendis frá
innan skamms. Það var nauðsyn-
legt að mínu mati að koma á inn-
lendri samkeppni hérlendri til að
mæta þessu. Til þess þurfti mikið
fjármagn og þessir aðiljar gátu
þetta. Ég er heldur hvergi
smeykur um þessi fyrirtæki.
Þú ert ekki einu sinni hræddur
við „einokunarhringinn SÍS“,
sem þið Sjálfstæðismenn voruð
að álykta um á landsfundi?
- Nei, ef ég væri það hefði ég
ekki farið að vinna hérna. Ég ber
fyllsta traust til þessara aðilja,
sagði forstjóri ísfilm að lokum.
-óg
Sunnudagur 21. apríl 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17