Þjóðviljinn - 01.05.1985, Síða 2

Þjóðviljinn - 01.05.1985, Síða 2
FRETTIR Vextir Vaxtafrelsið misheppnaðist Jóhannes Nordal: Þörfá leiðbeininngu Seðlabankans. 5% lœkkun vaxta. Seðlabankinn lœkkar sparisjóðsvexti um2%. Leiðir tilfrekari vaxtalœkkana á óverðtryggðum lánum. Overðtryggðir útlánsvextir munu að líkindum lækka um 5% á næstu vikum að áliti Seðla- bankans. Nokkrir bankar hafa þegar ákveðið 2% vaxtalækkun sem tekur gildi nú í dag og Seðla- bankinn hefur ákveðið að lækka sparisjóðsvexti um 2% sem aftur mun leiða til frekari vaxtalækk- ana hinn 11. maí nk. Þetta kom fram á ársfundi Seðlabankans sem haldinn var í gær. Jóhannes Nordal sagði á fund- inum að vaxtalækkanir virtust orðnar tímabærar en verðlags- þróun myndi ráða frekari þróun þessara mála næstu mánuði. Seðlabankastjóri sagði að þrátt fyrir tilraunir með frjálsa vaxta- ákvörðun viðskiptabankanna vantaði enn margt á að skilyrði hefði skapast til raunverulegrar markaðsmyndunar vaxta og „því yrði enn um skeið þörf leiðsagnar Seðlabankans, bæði að því er varðar vaxtastefnuna í heild og til þess að koma í veg fyrir öfgar í vaxtamálum og óhóflegt bil á milli útláns og innlánsvaxta". Ræddi hann um auglýsingastríð bankanna í vaxtamálum og sagði ekki að furða þótt vart yrði „ým- issa barnasjúkdóma og öfga á meðan innlánsstofnanir væru að koma fótunum fyrir sig á eigin spýtur eftir að hafa ekki þekkt annað en miðstýringu og forsjá annarra um vaxtabreytingar". -lg- Leiftursókn gegn lífskjörum Línuritið sýnir hækkun kauptaxta frá 1982, hækkun ráðstöfunartekna einstak- linga á mann og hækkun framfærslukostnaðar á sama tíma. Línuritið sýnir okkur þessar þjóðfélags- legu staðreyndir: 1. Vara sem 1982 kostaði 100 krónur kostar í dag 305 krónur. 2. Kauptaxtinn sem þú býrð viö hefur á sama tíma hækkað úr 100 kr. í 217 kr. Það vantar því 92 krónur upp á sama kaupmáttinn og var 1982. Þeir sem lifa á töxtunum einum hafa orðið fyrir þessari kjaraskerð- ingu. Þeir eru: Aldraðir og öryrkjar, atvinnulausir, fólk í fiskvinnu (þó bónus sé meðtalinn), stærstur hluti annars láglaunafólks. Með öðrum orðum meirihluti launamanna. 3. Þeir sem hafa fengið yfir- borganir hafa ekki orðið fyrir eins mikilli kjaraskerð- ingu. Þá vantar samt að meðaltali 52 krónur til þess að greiða framfærslukost- naðinn sem 1982 var 100 kr. en er nú 305 kr. BSRB Vilja breytingar á launastiga Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hefur óskað eftir við- ræðum um breytingar á launa- stiga gildandi kjarasamnings en launaliðirnir eru uppsegjanlegir frá 1. september nk. Segir í frétt frá BSRB að eftir dóm Kjara- dóms hafi verulegt misræmi skapast í launakjörum meðal ríkisstarfsmanna sem nauðsyn- legt sé að fá leiðréttingu á. Haraldur Steinþórsson fram- kvæmdastjóri BSRB sagði í sam- tali við Þjóðviljann í gær að sem dæmi mætti nefna að hjá BSRB væri 3.5% munur á milli launa- flokka og annað eins á milli starfsaldursþrepa. Að auki væru mismunandi ákvæði í aðal- og sérkjarasamningi um tilfærslur í launum miðað við starfsaldur. Hjá BHM væri hins vegar 3% munur á milli launaflokka, 4.5% á milli þrepa og öðruvísi ákvæði um starfsaldurshækkanir. „Þessi mismunur í uppbyggingu launa- stiganna skapar misræmi sem við töldum nauðsynlegt að hefja við- ræður um“, sagði Haraldur. í frétt BSRB segir ennfremur að komi til breytinga á launa- kjörum ríkisstarfsmanna innan BSRB þá væri það verkefni að- alsamninganefndar bandalagsins svo og einstakra aðildarfélaga sem hvert um sig hafa gert sér- kjarasamninga. - v. Hún velur sér aldeilis daginn flokksklíkan í Framsóknar- flokknum fyrir uppsagnirnar! Ljósmyndasýningin Síðasti sýningardagur Alþjóðlega fréttaljósmynda- sýningin og sýning íslenskra blaðaljósmyndara í sýningarsal ASÍ við Grensásveg lýkur í kvöld kl. 22. Sýningin flytur norður á Akur- eyri og verður sett upp í Menntaskólanum. Hún verður þar fram til 6. maí n.k. Ármúlaskólinn Kennt á 1. maí Kennt verður í Ármúlaskólan- um í Reykjavík fyrir hádegi í dag. Er það gert til þess að vinna upp tapið sem varð á kennslu í verk- fallinu í vetur. Þjóðviljinn hafði samband við nokkra aðra fjölbrauta- og menntaskóla, en svo virðist sem Ármúlaskólinn sé eini skólinn í Reykjavík þar sem kennt er á 1. maí. Kennslu er nú lokið í flestum menntaskólunum á höfuðborgarsvæðinu og próf að hefjast. - ólg. Æskulýðsfylkingin Krefjumst barattu Við höfnum samráðsmakki verkalýðsforystunnar og atvinnu- rekenda og krefjumst baráttu fyrir betri kjörum,“ segir í ávarpi frá Æskulýðsfylkingunni í Reykjavík sem verður dreift á rit- lingi í dag 1. maí. Avarpið hefst með áskorun: „Á baráttudegi verkalýðsins 1. maí 1985 skorar Æskulýðsfylking Alþýðubandalagsins á allt ungt vinnandi fólk að taka forystuna í baráttunni gegn ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknar- flokks“. Og því lýkur með orðun- um: „Þetta verður aðeins gert með því að hinn almenni félags- maður taki þátt í mótun kröfu- gerðar verkalýðshreyfingarinnar og verði virkur þar í baráttunni fyrir betri kjörum“. -óg BORGARNESDAGAR j LAUCARDALSHÖU 2.-5. MAf VORUSÝNING MYNDUSTARSÝNING „TÍSKUSÝNINGAR TOLVUKNATTSPYRNA GOLFVÖLLUR OG LEIKIR SONGUR OG TÓNLIST SKEMMTUN OG FRÓÐLEIKUR FYRIR ALLA OPIÐ FIMMTUDAG KL. 19-22 FÖSTUDAG LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 13-22

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.