Þjóðviljinn - 01.05.1985, Blaðsíða 4
LEFÐARI
Barátta undir maísól
í árdaga íslenskrar verklýðshreyfingar var
barist fyrir meiri menntun launafólksins og búið í
haginn fyrir komandi kynslóðir. Menningarbar-
átta verklýðshreyfingarinnar skilaði af sér mikl-
um árangri, sem við njótum góðs af í dag. Þessi
barátta var öðrum þræði hugsjónabarátta; í
bókmenntum okkar og stjórnmálalífi átti jafnað-
arhugsjónin, samtakatrúin og félagshyggjan
traustar rætur.
Andstæður auðvaldsjDjóðfélagsins, hið gífur-
lega ríkidæmi á aðra hönd og örbirgðin á hina
voru á mótunarskeiði kapitalismans mun skarp-
ari en í dag. Andstæðurnar hafa breyst; við
höfum fyrir sjónum okkar hin vígvæddu velferð-
arríki í norðri á aðra síðu, - og sveltandi meiri-
hluta mannkyns í suðrinu á hina.
Á íslandi hafa andstæðurnar dofnað með
skárri dreifingu arðsins og aukinni hagsæld
þjóðarinnar. Það þýðir hins vegar ekki að réttlát-
lega sé skipt. öðru nær. Á undanförnum tveim
árum hafa atvinnurekendur með dyggri aðstoð
fjandsamlegs ríkisvalds hirt til sín stærri hlut af
vinnu fólksins en áður. Verklýðshreyfing og
stjórnarandstaða hafa enn ekki komið þeim
vörnum við að dugi.
Sá funi réttlátrar réði vegna misréttis, og hug-
sjónaglóðir sósialismans, sem settu svip sinn á
verkýðsbaráttuna hér áður og fyrr, hafa kulnað
um stund.
Auðvaldið íslenska hefur eignast hlutdeild í
hugmyndafræði í nýjum búningi sem hefur haft
ískyggilega mikil áhrif á þjóðlífið síðustu árin.
Kaldhömruð og mannfjandsamleg frjálshyggj -
an hefur ráðið ferðinni í ýmsum valdastofnun-
um. Sú bábilja hefur meira að segja orðið að
stefnu, að hægt sé að reka jafnaðarstefnu uppí
kjöltunni á hinu fjandsamlega atvinnurekenda-
valdi og ríkisvaldi. „Svo eru ágjörn augu/
auðugs manns og brjóst/sem grimmt helvítis
gin,“ segir í Heimsósóma Skáld-Sveins. Og
réttlætið verður aldrei sótt með elskusemi til
þeirra sem einatt nærast af óréttlætinu. Hins
vegar er það eðli klókra valdsmanna að
smjaðra fyrir þeim sem þeir kúga. Sjá, þeir
koma til yðar í sauðarklæðum, en hið innra eru
þeir glefsandi vargar.
Þó nýfrjálshyggjan komi nú fram sem ný hug-
myndafræði undir formerkjum „vísindalegs“
yfirbragðs, - þá fer því fjarri að hún sé ný af
nálinni. Hér er búið að finna arðrán og kúgun
nýtt nafn,- og hugmyndafræðin á að vera til
réttlætingar. Svo er einnig að sjá að margir
kannist við þá lífssýn sem markaðsriddararnir
keppast nú við að gera að „hagfræði" sinni og
alþjóðar. Árni Björnsson yfirlæknirá Landspítal-
anum segir í blaðagrein í gær, að árásir frjáls-
hyggjunnar á velferðarþjónustuna sé „nýfas-
ismi með hagfræðibragði". Þannig sjá margir
hvaða hættur eru fólgnar í þessari heimssýn
ríka fólksins.
Nú hefur syrt að um nokkurra missera skeið í
málefnum íslensks launafólks. Því hefur verið
sýnd óvirðing, mannréttindi hafa verið afnumin
og kaupmáttur umsaminna launa hefur rýrnað
um meira en fjórðung á tveggja ára tímabili. Það
er nú kominn tími til að snúa vörn í sókn.
Mikil árgæska er nú til lands og sjávar. Þegar
á síðasta ári jókst þjóðarframleiðsla og spáð er
áframhaldandi vexti í ár. Ýmsir nýir kostir hafa
nú komið fram í okkar atvinnulífi og mörg teikn á
lofti um að dýmætir landvinningar séu í sjón-
máli.
Það er kominn tími til að endurlífga hreyfingu
um þær hugsjónir sem hleyptu íslenskri verk-
lýðshreyfingu af stokkunum; breytt skiptahlut-
föll launafólki í vil, samstöðu, baráttu fyrir sósíal-
isma, jafnrétti, þjóðfrelsi og síðast en ekki síst
meira lýðræði.
Þjóðviljinn styður heilshugar þá verklýðs-
hreyfingu sem berst af einurð gegn atvinnu-
rekendavaldinu, sem vill endurheimta
kaupmáttinn, sporna við frjálshyggjunni og
andæfa gegn því fjandsamlega ríkisvaldi sem
við búum við. Þjóðviljinn hvetur allt launafólk og
samtök þess á þessum baráttudegi, 1. maí, að
bindast samtökum um að hnekkja atvinnurek-
endavaldinu og byggja upp valddreift lýðræðis-
legt þjóðfélag á íslandi - þjóðfélag bræðralags-
ins. Það er maísólin okkar, - okkar einingar-
bands. -óg
KUPPT OG SKORIÐ
Áunnln énæmlshgkhm (AIDS);
Allt mannkyni§/ hættu
g) * " -J——•»» eru
:Fréttabæklun
; sjónvarpsins
m eru 9.608 ,
þ&r af i
18 veg-
irflga-
f blóði
Ui 5001
MaiyÁ
Vf
•*";D88on og dr. Haraldur
■» er viðtal við þá: .Aðeina
m tima hvenaer AIDS
vl8M, á bls. 4B í blað-
Pre^rétt Mor^uxibJpO^,.1. * 1 matl láekna. A hinn bj
inn gétur allt þetta fólk bugaj
lega 8mitað aðra og á þann h
flýtt mjðg fyrir útbreiðslu
fcrðiamáium. og á aomum avmðom
í Aírflm einakorðaat útbreifiala
AIDS siður en svo við homma.
Nýleg rannsókn á einu svssði i
Afrfltu leiddi í Ijós að um 6% al-
mennings hafa mótefni AIDÖ-
wimnrnr i bióði EÍnu, Og U2B 80%
vaendiskvcnna. Ov útbraiAalan bar
um sióðir v«klur óbug. 1 Zaire til
dsemis eru greind Qðgnr tUfaUi af
AIDS á dag að mfllahali, aðaltaga
hjá fólki með eðUIoga kynhadsb.
t
unnar. óttast aérfrseðingar
AIDS-faraldur verði í stórborgun^
Vefltnrlanda áður en langt um llð-
ur, og þá tjnt i San Frandaco og
New York, þar aém AIDS er þegar
«Wig áberandi. Tala m*nn nm að
binir 11 þúaund AJDS-fljókiingar,
flflm vitað er nm i hcbninum (dag.
iugum|
aUtt I
lugardags og
Eins og menn vita eru þeir á
Morgunblaðinu afar ánægðir
með blað sitt. Þeir láta þess getið
við hvert tækifæri (og reyndar án
þess að tækifæri bjóðist líka) að
blaðið sé eitt hið ágætasta í heimi.
Fullt af umburðarlyndi, mann-
viti, menningaráhuga, rökvísi og
öðrum blaðadyggðum. Ef að
Morgunblaðsmenn láta svo lítið
að bera sig saman við önnur blöð,
þá verða þeir að fara langt og
velta vandlega fyrir sér helstu
stórblöðum álfunnar. Gott ef
þeir voru ekki eitt sinn á þeim
buxum að miða við Le Monde í
Paris, en urðu frá að hverfa, þeg-
ar því var að þeim hvíslað, að fullt
færi af laumukommum á Le
Monde. Var þá sá kostur tekinn
að líkja Morgunblaðinu við
geysiábyrgt og gulltryggt borgar-
ablað í Sviss, Neue Zuricher
Zeitung. Og þar við situr - hvað
sem Þjóðviljamenn segja og
önnur niðurrifsöfl í samfélaginu.
Vansælir menn
En þótt skömm sé frá að segja,
þá hefur hið hátimbraða sjálfsálit
Morgunblaðsins ekki fært þeim
sálarró og geðprýði sem þar
starfa. Öðru nær. Innanstokks-
menn sýnast vakna þar á hverjum
morgni grautfúlir og óttaslegnir
yfir því að ábyrgðarlausir menn
og öfundsjúkir séu að rógbera þá
og efast um þeirra ágæti. Snýst
þessi sálarkröm einatt upp í
undarlega frekju og oflátungs-
hátt, sem birtist í þeirri áráttu að
Morgunblaðið er sýknt og heilagt
að segja öðrum fjölmiðlum fyrir
verkum. Ekki síst ríkisfjölmiðl-
um. Því fer fjarri að látið sé við
það sitja að Morgunblaðið sé að
amast við skoðunum, sem því eru
ekki að skapi. Það er svosem ekki
nema mannlegt. En tilætlunar-
semin og fyrirskipanaáráttan
gengur miklu lengra. Morgun-
blaðið vill helst taka sér vald til að
segja öðrum fjölmiðlum fyrir um
orðalag, um skilning hugtaka,
um hlutföll í fréttaflutningi, um
það sem gleyma skal og um það
hvað er þarft að leggja áherslu á.
í öllum þessum efnum skal
mönnum skylt að fara að fordæmi
Morgunblaðsins. Annars skulu
þeir einokunarríkiskommúnistar
heita og laumuerindrekar Gúl-
agsins. Allt minnir þetta dálítið á
guðfeðrasiðferðið í mafíunni: Ef
þú sýnir mér ekki virðingu, el-
skan mín, þá verður þú drepinn!
Ég geri þér tilboð sem þú getur
ekki hafnað....
Söguleg
fyrirsögn
Allra mest verður viðkvæmnin
þó þegar efast er um ágæti sjálfs
Morgunblaðsins. Einhver hug-
djarfur maður á NT gerðist svo
djarfur um daginn að minna á
langa og skemmtilega og alloft
grátbroslega málfarssögu Morg-
unblaðsins. Fjólupabbar urðu
feiknarlega reiðir, illkvittnir
menn segja það hafi hrikt í
stjórnarsamstarfinu við þessi
ósköp, en það mun ofmælt. Þetta
upphlaup hjá NT var þó ekkert
hjá því sem nú er upp komið:
Fréttastofa Sjónvarpsins leyfði
sér þá ósvinnu um helgina, að
skilja ekki réttum og auðmjúkum
skilningi aðalfyrirsögn á forsíðu
Morgunblaðsins síðastliðinn
sunnudag.
Fréttin fjallaði um ískyggilega
útbreiðslu banvæns smitsjúk-
dóms, AIDS, og þar stóð „Allt
mannkynið er í hættu”. Fréttin
undir fyrirsögninni var byggð á
samtali við íslenska lækna sem
voru á ráðstefnu um sjúkdóm
þennan og svo á frásögnum er-
lendra blaða af ráðstefnunni.
Sjónvarpið talaði við annan
lækninn sem á ráðstefnunni var
og kom þar fram að Morgunblað-
ið færi með ýkjur, gengi of langt
með svo glannalegri fyrirsögn.
Þetta verður svo til þess, að
Morgunblaðið skrifar heilan
leiðara í gær undir fyrirsögninni
,JFréttabæklun sjónvarpsins”, og
er svo yfir sig hneykslað á
„kommisörum á ríkisfréttastofu
sjónvarpsins” (einokunar-
kommarnir semsagt) að það
þurfti að stækka leiðarapláss
blaðsins um meira en þriðjung.
Til að fyrir komist útskýringar
blaðsins á því að Morgunblaðið
hafi ekki notað samtal sitt við
læknana tvo „til að auka á ótta
eða ýkja ástandið”. Til að mar-
gtyggja það, að AIDS sé að
sönnu skæður sjúkdómur, sem
■ enginn hefur reyndar efast um.
Og þó fyrst og fremst til þess að
hella úr koppum reiði sinnar yfir
sjónvarpsmenn fyrir að þeir
skuli, með því að spyrja lækni að
því hvort Morgunblaðið gangi
ekki of langt í fyrirsögn sinni,
leyfa sér að gefa það í skyn að
Morgunblaðið geti dottið í æsi-
blaðamennsku. Leiðarinn ber
fram þá ásökun á fréttastofu
sjónvarps að vinnubrögð hennar
séu afleit auk þess sem hún vilji
„nota afl sjónvarpsins og einok-
un til að koma höggi á eina kepp-
inaut sinn hér á landi.”
Alvöru-
mál
Þetta er, eins og sjá má, mikið
mál og erfitt og mun vafalaust
draga langan dilk á eftir sér. Það
versta af öllu er náttúrlega það,
að enn skuli sú ósvífni við gang-
ast, að til sé einhver fjölmiðla-
aðili í landinu sem getur talist
keppinautur svo ágæts og eigin-
lega heilags blaðs og Morgun-
blaðsins í útbreiðslu og frétta-
flutningi. Lesendum leiðarans
má ljóst vera, að eina leiðin út úr
þessum ógöngum er að leggja
sjónvarpsstarfsemina undir
Morgunblaðið. Enda verður það
gert.
-ÁB.
DiðmnuiNN
Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis
og verkalýöshreyfingar
Útgefandí: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Össur Skarphóðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fréttastjóri: Valþór Hlööversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón
Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson,
Víðir Sigurðsson (íþróttir).
Ljósmyndir: Einar Ólason, Einar Karlsson.
Utllt og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbreiðslustjóri: Sigríður Pótursdóttir.
Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Augiýsingar: Anna Guðjónsdóttir, Ásdís Kristinsdóttir,
Hreiðar Sigtryggsson.
Afgreiðslustjóri: Ðaldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Sfmavarsla: Margrót Guðmundsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmæöur: Bergljót Guöjónsdóttir, Ólöf Húnfjörö.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síöumúla 6, Reykjavík, simi 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 30 kr.
Sunnudagsverð: 35 kr.
- Áskriftarverð á mánuði: 330 kr.
Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum
fra kl. 9 til 12, beinn sími: 81663.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINNÍ Mi&vlkudagur 1. maf 1985