Þjóðviljinn - 01.05.1985, Qupperneq 5
Alþingi
Felld verði niður
gjöld af 600 bflum
Guðrún Helgadóttir og Svavar Gestsson leggja til aðfelld verði niður
gjöld afóOO bílum tilfatlaðra ístað 550 áður. Jafngildirll
launaaukum bankastjóra ríkisbankanna
Guðrún Helgadóttir og
Svavar Gestsson hafa flutt
frumvarp til laga um breytingu
á tollskrá, þar sem þau leggja
til að felld verði niður gjöld af
allt að 600 bifreiðum „fyrir fólk
sem er svo mikið fatlað að það
á erfitt með að fara ferða sinna
án farartækis" eins og segir
orðrétt í frumvarpinu.
Með frumvarpinu fylgir svo-
hljóðandi greinargerð:
í núgildandi lögum um tollskrá
er heimilað að lækka eða fella
niður gjöld af allt að 550 fólks-
bifreiðum fyrir þá sem á bifreið
þuifa nauðsynlega að halda
vegna fötlunar. Með þessu frum-
Range Rover, eftirsóttur gæðabíll og rándýr. Bankastjóri sem kann sæmilega að ávaxta sitt pund á góða möguleika á að
eignast slikan bíl á þriggja ára fresti, fyrir launaaukann einan. Það sýnist því varla ofrausn að fella niður 100,000 kr. gjöld
af 50 bílum til viðbótar fyrir fatlaða, ekki síst í Ijósi þess að nokkrir tugir eru nú á biðlista.
varpi er lagt til að fjölga þeim í
600, eða um 50 bifreiðar.
Á síðustu árum hefur tolla-
lögum verið breytt verulega að
því er tekur til tollaívilnana vegna
bifreiða fatlaðra. Á síðasta þingi
voru samþykkt lög um fulla nið-
urgreiðslu aðflutningsgjalda af
allt að 40 bifreiðum þeirra sem
við mesta fötlun búa, og áður
hafði endumýjunartími verið
rýmkaður.
Hins vegar eru nú á biðlista
eftir síðustu úthlutun nokkrir
tugir fatlaðs fólks sem allan rétt
átti á lækkun aðflutningsgjalda af
bifreið og þurfti þess nauðsyn-
lega með, en ekki var unnt að
sinna umsóknum þess þar sem
leyfin vom aðeins 550. Áukning
um 50 leyfi er talin leysa vanda
margra þeirra sem mest þurfa
þess með.
Við síðustu úthlutun í febrúar
s.l. nam lækkunin 84.000 kr. fyrir
hverja bifreið auk niðurfellingar
söluskatts. Mun láta nærri að alls
væri upphæðin 100.000 kr. á
hverja bifreið. Kostnaður við
þessa aukningu nemur því u.þ.b.
5 milj. kr. og fer næsta úthlutun
fram í febrúar 1986.
Til samanburðar má benda á
að hér er um að ræða jafnvirði 11
launaauka til bankastjóra til bif-
reiðakaupa, en um 20 banka-
stjórar njóta nú þeirra fríðinda.
hágé
Skúlagatan
Heikostnaðuiinn
nemur 50 miljónum
Meirihlutinn enn andvígur samkeppni um byggð
í Skuggahverfi
Borgarstjórn
Meiri
byggð
við
Lágmúla
Meirihluti borgarstjórnar hef-
ur samþykkt að úthluta lóðum til
Saga-film og fleiri aðila á græna
svæðinu milli Lágmúla og
Kringlumýrarbrautar. Minni-
hlutinn greiddi atkvæði gegn til-
lögunni í skipulagsnefnd og um-
hverfismálaráði, m.a. með þeim
rökum að þegar hefði verið
gengið of nærri grænum svæðum í
kringum þessar miklu umferðar-
götur, Suðurlandsbraut og
Kringlumýrarbraut.
f borgarstjórn bókuðu fulltrú-
ar Kvennaframboðs mótmæli við
því að svæðið skyldi tekið til skip-
ulagningar án þess að ákvörðun
um það væri tekin í skipulags-
nefnd eða borgarráði, og bentu á
að engin haldbær rök væru fyrir
nauðsyn þess að taka svæðið til
bygginga.
Herkostnaður borgarinnar
við að koma fyrir allri þeirri
byggð sem fyrirhuguð er á
Skúlagötureitnum nemur
a.m.k. 50 miljónum króna.
Þetta kom fram í svari við skrif-
legri fyrirspurn Sigurjóns Pét-
urssonar fyrir skemmstu.
Þar sem byggingarnassinn
rúmast engan veginn á þeim lóð-
um sem upphaflega var ætlunin
að byggja meðfram Skúlagötu
eru nú uppi hugmyndir um að
stækka byggingareitinn til
norðurs, út yfir núverandi stæði
Skúlagötu og byggja nýja húsa-
götu þar fyrir norðan. Þetta kost-
ar m.a. um 30 þúsund rúmmetra
fyllingu í sjó fram.
Samkvæmt upplýsingum sem
Sigurjóni voru afhentar er áætl-
aður kostnaður við landfylling-
una 6-18 miljónir króna, allt eftir
því hversu hratt landaukinn er
byggður. Lögð er mikil áhersla á
að hraða framkvæmdum á þess-
um stað og sagði Sigurjón því trú-
legt að talan 18 miijónir væri nær
sanni.
Endurstofnverð núverandi
Skúlagötu er 17 miljónir króna,
en hún mun hverfa undir byggð
skv. framangreindum tillögum.
Ný húsagata sem koma á í hennar
stað mun kosta 10 miljónir. Þá
verður að flytja Sætúnið utar á
kafla og verður af því talsverður
kostnaður. Til skipulagsvinnunn-
ar er ætlað 3,5 miljónum á þessu
ári.
í tilefni þessara upplýsinga og
þess að ákveðið hefur verið að
fresta töku gatnagerðargjalda af
eignarlóðum, sem taka átti gildi
1. janúar n.k. endurfluttu borg-
arfulltrúar Alþýðubandalagsins
tillögu um samkeppni um skipu-
lag nýrrar byggðar við Skúiagötu.
í greinargerð er bent á að í sam-
keppni muni væntanlega koma
fram einfaldari lausnir og ódýrari
á byggingu þessa svæðis og þær
fjárveitingar sem ætlaðar eru í
skipulagsvinnuna í ár, myndu
duga fyrir kostnaði við sam-
keppni. Sjálfstæðisflokkurinn
felldi tillöguna.
Mlðvikudagur 1. maí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Spurt um.....
...tryggingar
fyrir lánum
Fiskveiðasjóðs
Guðmundur Einarsson (BJ)
spyr sjávarútvegsráðherra hvort
Fiskveiðasjóður hafi nægar
tryggingar fyrir veðlánum til svo-
kallaðra uppboðstogara. Ef svo
er ekki, telur ráðherra að stjórn
og forstjóri Fiskveiðasjóðs hafi
sinnt skyldum sínum?
... flótta háskóla-
menntaðra úr
þjónustu ríkisins
Guðrún Helgadóttir (AB) spyr
forsætisráðherra hvernig ríkis-
stjórnin hyggist bregðast við
fyrirsjáanlegum flótta háskóla-
menntaðra manna úr þjónustu
ríkisins, eftir að niðurstaða kjara-
dóms liggur nú fyrir í máli
launamálaráðs ríkisstarfsmanna
innan Bandalags háskólamanna
gegn fjármálaráðherra.
...málefni Kísil-
málmvinnslunnar
Guðmundur Einarsson (BJ)
spyr iðnaðarráðherra:
1. Hve miklu fé hefur verið varið
til rekstrar skrifstofu Kísil-
málmvinnslunnar hf. frá upp-
hafi, þar með talinn kostnaður
af viðræðum við hugsanlega
erlenda meðeigendur?
2. Hver er núverandi starfs-
mannafjöldi Kísilmálmvinnsl-
unnar hf.?
3. Hver er áætlaður rekstrar-
kostnaður Kísilmálmvinnsl-
unnar hf. árið 1985?
... tryggingar fyrir
lánum opinberra
lánasjóða
Guðmundur Einarsson (BJ)
spyr viðskiptaráðherra:
Telur ráðherra ástæðu til að
fram fari opinber rannsókn á út-
lánum opinberra lánasjóða og
ríkisbanka til að ganga úr skugga
um að allar lánveitingar séu með
fullnægjandi tryggingum?
...lögverndun
á starfsheiti
og starfsréttindum
kennara
Hjörleifur Guttormsson spyr
menntamálaráðherra:
„Hvenær er að vænta stjórnar-
frumvarps um lögverndun á
starfsheiti og starfsréttindum
kennara?"
...almannafrið
Stefán Benediktsson (BJ spyr
dómsmálaráðherra:
Hvers vegna er 7. gr. laga nr.
45 frá 15. júní 1926, um almanna-
frið á helgidög .. þjóðkirkjunn-
ar, ekki framfylgt gagnvart starf-
semi Ríkisútvarps-Sjónvarps
með sama hætti og gagnvart starf-
semi kvikmyndahúsa?