Þjóðviljinn - 01.05.1985, Side 14
MINNING
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í
styrkingu Vesturlandsvegar í Mýrasýslu.
Magn ca. 19.000 m3, lengd 9,3 km).
Verki skal lokið 30. júní 1985.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í
Reykjavík (aðalgjaldkera) og í Borgarnesi frá og með
2. maí n.k.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann
20. maí 1985.
Vegamálastjóri.
OPIÐ HÚS
1. maí
Að lokinni 1. maí göngunni
verður opið hús hjá VR í
Húsi Verzlunarinnar 9. hæð
fyrir félagsmenn og
fjölskyldur þeirra.
Kaffiveitingar, félagsmenn eru
hvattir til að líta inn.
Verið velkomin.
Stjórn Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
Norræni
heilunarskólinn
(Skandinavisk healarskole)
Norræni heilunarskólinn heldur kynningarkvöld föstu-
daginn 3. maí kl. 20.00 í Félagsheimili knattspyrnufé-
lagsins Vals.
Norræni heilunarskólinn gefur öllum, sem áhuga hafa
á hinni andlegu hlið mannlegs lífs, kost á að öðlast
þekkingu og þroska hæfileika sína á þessu sviði.
Sagt verður frá stofnun skólans í Danmörku og hér á
landi, starfi hans og markmiðum.
Fyrirspurnum svarað um hvað námið, hvað heilun er
o.fl.
Allir velkomnir.
Tæknistjóri
flugrekstrar
Staða tæknistjóra flugrekstrar hjá Landhelgisgæslu
íslands er laus til umsóknar.
Starfið felst í því að stjórna og hafa umsjón með við-
haldi, skoðunum, viðgerðum og breytingum loftfara
Landhelgisgæslu og Landgræðslu ríkisins.
Æskilegt er að viðkomandi hafi mikla reynslu í viðhaldi
loftfara, sé flugvirki, flugtæknifræðingur eða flugverk-
fræðingur að mennt og geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknum um starfið skal skila til Landhelgisgæslu
íslands, Seljavegi 32 fyrir 15. maí nk.
Félagið STOÐ
heldur félagsfund 8. maí kl. 20.30 að Hótel Hofi.
Mætið öll!
Ath.: skráning nýrra félaga fer fram eftir fundinn.
1. maí merki
1. maí merkjum er dreift til sölufólks á
Hlemmi frá kl. 11 í dag.
Góö sölulaun.
1. maí nefndin.
Sigurður AUi Guðmundsson
Fœddur 3. mars 1948 - Dáinn 22. apríl 1985
Mig langar í fáum orðum að
minnast vinar okkar, Sigurðar
Atla Gunnarssonar, sem lést í
Borgarspítalanum 22. apnl sl., og
jarðsunginn verður nú í dag kl.
15, frá Neskirkju.
Sigurður Atli fæddist 3. mars
1948, sonur hjónanna Sigurðar
Gunnarssonar kennara og Jó-
hönnu Þorvaldsdóttur, sem ætt-
uð var af Barðaströnd. Jóhanna
lést fyrir fáum árum, aðeins 53
ára að aldri, úr sama sjúkdómi og
nú lagði son hennar að velli, að-
eins 37 ára.
Sigurður Atli var tæknifræð-
ingur að mennt, og réðist sem
slíkur til Seyðisfjarðarkaupstað-
ar vorið 1978. Kynni okkar hóf-
ust á fyrsta degi dvalar hans hér á
Seyðisfirði, þar sem í minn hlut
kom að taka móti honum er hann
kom til bæjarins. Var hann
heimilisvinur að Garðarsvegi 6,
frá þeim tíma, og ávallt aufúsu-
gestur. Ekki þurfti löng kynni við
Sigurð Atla, til að finna að þarna/
fór maður góðum gáfum gæddur. I
Áhugamál hans voru ótal mörg,
enda var alltaf ánægjulegt að sitja
með honum kvöldstund og kryfja
málin. Var nokkurn veginn sama
um hvað var rætt, alltaf kunni
hann skil á hlutunum. Auk
tækniáhuga- og þekkingar, stóð
hugur Sigurðar Átla mjög til alls
sem að náttúruvísindum sneri.
Enda var hann áskrifandi að
margs konar ritum þar um.
Ákveðnar stjómmálaskoðanir
hafði hann, en lét þó aldrei
blindast. Veit ég að hjarta hans
sló réttum megin í þeim efnum.
Trúi ég að ekki hefði verið
auðvelt að hræða hann frá sjálf-
um sér á þeim sviðum, eins og
stundum vill verða. Til þess var
hann of staðfastur. í æsku og
fram á unglinsár, var Sigurður
Atli tíðum í sveit á sumrin, hjá
afa sínum og ömmu, Þorvaldi
Bjamasyni og Ólöfu Dagbjarts-
dóttur, að Gröf á Rauðasandi í
Barðastrandarsýslu. Minntist
hann þeirra oft, er sveitina bar á
góma, enda mat hann þau mikils.
Þorvaldur lést fvrir fáum árum,
en Ólöf amma hans lifir enn í
hárri elli, fyrir vestan.
Ekki gat ég fundið hvor honurrf'
var kærari, Barðaströndin eða
Vesturbærinn í Reykjavík, þar
sem, hann ólst upp í hópi kátra
félaga, svo sem, meðal annarra,
Vilmundi Gylfasyni og Hrafni
Gunnlaugssyni, sem hann oft
minntist á, þegar bernsku og
bemskubrek bar á góma. Þar og
þá mun hann hafa eingöngu
gengið undir nafninu Atli.
Eins og við mátti búast af
manni með svo mörg áhugamál,
lét hann sér ekki nægja eingöngu
störf á landi. Hugur hans stóð
einnig til farmennsku. Auðnaðist
honum að nokkm leyti að svala
farmannseðli sínu. Minnist ég
þess, að einu sinni á starfsferli
sínum hér á Seyðisfírði fékk hann
leyfí í nokkurn tíma, til að fara í
siglingar á farskipi. Nú síðast,
meðan þrek entist, starfaði Sig-
urður Átli hjá Innkaupastofnun
ríkisins.
Já, margt kemur fram í hug-
ann, þegar þessa prúða drengs er
minnst. Engan þekki ég sem bar
jafn gott skynbragð á vandaðar
kvikmyndir, enda hafði hann
næman skilning á listrænum og
sálrænum boðskap þeirra, og
hafði lag á að opna augu félaga
sinna, til að nema hann.
Þegar áhugamál Sigurðar Atla
em nefnd, er ekki hægt að kom-
ast hjá að minnast skákar, sem
hann hafði mikla ánægju af.
Enda var hann nokkuð lesinn í
þeim fræðum. Eignaðist hann
nokkra góða félaga hér á Seyðis-
fírði, í gegn um það áhugamál
sitt.
Upp úr áramótum 1982,
kenndi hann sjúkdóms þess sem
hann hefur nú lotið í lægra haldi
fyrir. Barðist hann mjög hetju-
lega gegn honum, og sýndi þar
aðdáanlegt þrek, uns yfír lauk.
Vissi hann þó áreiðanlega manna
best að hverju stefndi. Var mér
kunnugt um, frá heimsókn minni
til hans í nóvember sl., á heimili
systur hans og mágs að Hæða-
byggð 2, þar sem hann naut góðr-
ar aðhlynningar í veikindum sín-
um, að hann gerði sér vonir um
að standast baráttuna fram á árið
1986. Hafði hann þá í huga að
verða vitni að heimsviðburði
þeim sem aðeins verður á 76 ára
fresti. Það er þegar halastjarnan,
sem kennd er við Halley, fer fram
hjá hnetti okkar. Þessi von Sig-
urðar Atla sýnir vel þann áhuga
sem hann hafði á öllu sem mark-
vert var, og lýsir honum því vel.
Hann kunni vel að greina hismi
frá kjarna.
Oft furðaði ég mig á því,
hversu brennandi áhuga hann
hafði á öllu því sem fór fram hér á
Seyðisfirði, eftir dvölina hér.
Innti hann eftir hinum ólíkleg-
ustu atvikum, smáum og stórum.
Einkum þó verklegum fram-
kvæmdum sem á döfinni voru í
það og það skiptið. Sýndi það vel
hug hans til staðarins.
Sigurður Atli bar ekki tilfinn-
ingar sínar utan á sér. Þó gat hann
ekki leynt hug sínum til systur-
sona sinna, Jóns Gunnars 12 ára,
Ásmundar 10 ára og nafna síns
Atla, sem er aðeins 4 ára. Var
augljóst að þeir voru honum
mjög kærir. Fylgdist hann vel
með þroska þeirra, meðan hann
dvaldi hér. Var von hans sú, eftir
að*hann tók hinn banvæna sjúk-
dóm, að hann héldi út það lengi,
að nafni sinn, Atli, fengi munað
sig, er hann væri allur.
I einu af okkar síðasta símtali,
sem mig minnir að hafa verið 3.
mars, á 37. afmælisdegi hans,
hafði hann á orði að heimsækja
okkur á Seyðisfjörð, þegar vor-
aði og hlýnaði í veðri, ef- „lyfja-
kúramir", sem hann reglulega
þurfti að þola, gengju vel. Ekki
rættust allar þessar vonir hans.
Engu að síður veit ég að við
munum skynja nærveru hans. Já
- hver veit nema hann sé búinn að
„koma auga á“ halastjörnu Hall-
eys, sem við hér verðum að bíða
eftir að líta okkar „efniSaugum" í
heilt ár.
Fjölskyldan að Garðarsvegi 6
þakkar af alhug kynni við góðan
dreng, og óskar horium farar-
heilla til framandi stranda, vit-
andi að:
Þar bíða vinir í varpa
sem von er á gesti.
Við vottum jafnframt föður
hans, systur og öðrum aðstand-
endum okkar dýpstu samúð.
Þótt mannanna þekking
sé markað svið,
svo mœlt vér ei geiminn fáum,
til Ijóssins að sannleika
leitum við,
svo langt sem með huganum
sjáum.
Hver veit þá er þeirri lýkur leit,
hve langt vér að endingu náum.
Þ.G.
Jóhann Sveinbjörnsson
Seyðisfirði
MIÐ-AMERÍKA og KARABÍSKA HAFIÐ ertímarit um Rómönsku AmeríkU
og stöðu þjóðfrelsisbaráttunnar í þeim heimshluta. Styrkið samstöðu-
hreyfinguna á íslandi - GERIST ÁSKRIFENDUR.
NAFN:.......................................SÍMI: ..............
HEIMILI: ......................................................
BÆJARFÉLAG: ...................................................
Ársáskrift (3-4 tbl.) kostar 200 krónur.
El Salvador-nefndin, Pósthólf 1032, 121 Rvík.