Þjóðviljinn - 01.05.1985, Síða 15
ÍÞRÓTTIR
Tveir við
Noreg
Leikið um sæti ÍA-
keppninni
Islenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik leikur tvo leiki við Norð-
menn hér á landi á föstudag og laugar-
dag. Þjóðirnar bítast um laust sæti í
A-heimsmeistarakeppninni og leika
báða leiki sína hér á landi.
Viðar Símonarson landsliðsþjálfari
hefur valið 16 stúlkur fyrir leikina og
eru þær eftirtaldar, landsleikir fylgja
með:
Markverðir:
Kolbrún Jóhannsdóttir, KR................28
Halla Geirsdóttir, FH...................11
Fjóla Þórisdóttir, FH.....................0
Aðrir leikmenn:
Ema Lúðvíksdóttir, Val...................37
Guðrún Kristjánsdóttir, Val...............2
Magnea Friðriksdóttir, Val...............14
Kristbjörg Magnúsdóttir, KR...............0
Kristín Pétursdóttir, FH.................14
Sigrún Blomsterberg, Fram................22
Soffía Hreinsdóttir, Val.................1
AnnaM. Guðjónsdóttir, Stjörnunni..........0
Kristjana Aradóttir, FH..................35
Kristín Arnþórsdóttir, Val................3
MargrétTheodórsdóttir, FH................32
Arndís Aradóttir, FH.....................1
Erla Rafnsdóttir, Fram...................33
Til vara eru Jóna Bjarnadóttir,
Víkingi, Sigurbjörg Sigþórsdóttir,
KR og Katrín Fredriksen, Val.
Leikið verður í Digranesi í Kópavogi
á föstudagskvöldið og í Seljaskóla á
laugardaginn.
-HrG.
Knattspyrna
Jafntefli
Vals og KR
Guðmundur Guðmundsson fyrirliði Víkings lyftir bikarnum - og ánægjan skín úr andlitum félaga hans. Mynd: E. Öl.
Víkingar
Unnu á reynslunni
Bikarmeistarar eftir sigur á FH, 25-21. Frábœr markvarsla
Mörk Víkings: Þorbergur 9 (3v), Viggó 4,
Karl 4, Hilmar 3, Guðmundur 2, Steinar 2
og Einar 1.
Mörk FH: Kristján 9 (3v), Jón Erling 4,
Hans Guðmundsson 3, Þorgils Ottar
Mathiesen 2, Sveinn 1, Guðjón Arnason 1
og Guðjón Guðmundsson 1 (1).
Gunnar Kjartansson og
Rögnvaldur Erlingsson dæmdu
þokkalega.
-VS
Valur og KR gerðu jafntefli, 2-2, í
Reykjavíkurmótinu í meistaraflokki
kvenna í fyrrakvöld. Guðrún Sæm-
undsdóttir og Eva Þórðardóttir
skoruðu fyrir Val en Björg Kristín
Sigþórsdóttir og Ragnheiður Sæm-
undsdóttir fyrir KR. Tveir aðrir leikir
eru búnir í mótinu - Víkingur vann
Fram 3-1 og Valur sigraði Víking 4-0.
ÍR og Fvlkir hættu þátttöku.
-HrG.
Framarar
Trausti
hættur
Trausti Baldvinsson landsliðs-
bakvörður í knattspyrnu er hætt-
ur að æfa með Framliðinu, vegna
mikillar vinnu. Það er því nokkuð
Ijóst að hann muni ekki leika með
liðinu í 1. deildinni í sumar.
- VS
„Það er reynslan sem færði
okkur bikarinn. FH-ingar eru í
betra úthaldi og æfingu en við en
þeir voru hræddir, við þekkjum
svona þýðingarmikla leiki betur
og sýndum að við erum ekki með
síðra lið en Islandsmeistararnir
þó okkur hafl gengið brösuglega í
1. deildinni í vetur,“ sagði Þor-
bergur Aðalsteinsson landsliðs-
maður úr Víkingi eftir bikarsig-
urinn á FH í gærkvöldi. Þetta var
kveðjuleikur Þorbergs sem leikur
með Saab í Svíþjóð næsta vetur.
„Það var ekki hægt að kveðja
öðruvísi,“ sagði Þorbergur.
Viggó Sigurðsson kvaddi líka -
fyrir fullt og allt. „Það er
draumur að enda svona, við lék-
um eins og við getum best. FH-
ingar brotnuðu niður undir lok
fyrri hálfleiks og markvarsla
Kristjáns Sigmundssonar var síð-
an grunnurinn að sigri okkar. Ég
get hætt með góðri samvisku, við
eigum mikið af efnilegum leik-
mönnum,“ sagði Viggó.
Fyrri hálfleikur var hnífjafn,
Víkingar með undirtökin fram-
anaf en FH seinni hlutann - þar
til Víkingar gerðu þrjú mörk á
lokamínútunni og komust í 12-
10. Þeir gerðu síðan fyrstu þrjú
mörk síðari hálfleiks og létu for-
ystuna ekki af hendi, héldu FH í
öruggri fjarlægð. Kristján lagði
sitt af mörkum til þess með stór-
brotinni markvörslu - hápunkt-
urinn kom þegarstaðan var 20-15
og hann varði tvö vítaköst með
nokkurra sekúndna millibili. FH
komst aldrei nær en 21-18 - Vík-
ingar svöruðu með tveimur
mörkum og lokatölurnar urðu
síðan 25-21.
Víkingar bera titilinn Bikar-
meistari í handknattleik 1985
með sóma. Þeir voru betra liðið í
gærkvöldi - allir léku vel - Krist-
ján ótrúlegur, Þorbergur kraft-
mikill og með glæsimörk, Viggó
drjúgur, Karl Þráinsson sýndi
snilldartakta, Hilmar Sigurgísla-
son var ómetanlegur í seinni hálf-
leik þegar Þorbergur og Viggó
voru teknir úr umferð, Guð-
Tæknideild KSÍ gekkst fyrir C-stigs þjálfaranámskeiði um síðustu helgi og komust þar mun færri að en vildu. A
námskeiðinu leikgreindu þátttakendur m.a. leik milli drengja- og unglingalandsliðsins á gervigrasinu og smellti E.ÓI.
þessari mynd af hluta þeirra. Guðmundur Ólafsson tækninefndarmaður er lengst til vinstri en á myndinni eru m.a. Bjarni
Jóhannsson þjálfari Þróttar Neskaupstað, Vignir Baldursson þjálfari Austra, Gunnar Gíslason landsliðsmaður úr KR
(með reifaðan fót) og Sigurbjartur Guðmundsson aðstoðarþjálfari (K.
mundur Guðmundsson, Steinar
Birgisson og Einar Jóhannesson
skiluðu allir sínu og vel það. Liðs-
heildin góð og viljinn til að sigra
fleytti Víkingum langt. Það var
sem allir vildu sigra fyrir Þorberg
og Viggó - kveðja þá með eftir-
minnilegum leik.
FH náði aldrei að rífa sig í þann
bikarham sem til þarf við svona
aðstæður. Margir laglegir hlutir
sáust þó, einkum til Kristjáns
Arasonar, sem þarna kvaddi FH
og íslenskan handknattleik,
a.m.k. um sinn, ásamt Sveini
Bragasyni, og Jóns Erlings Ragn-
arssonar. Aðrir voru mistækir og
markvaslan var lítil þar til undir
lokin. En þó bikarinn skilaði sér
ekki í Hafnarfjörð geta FH-ingar
verið sáttir við uppskeruna í vet-
ur. Það er erfitt að gera mikið
betur.
Ovænt!
Wales-Spánn 3-0
Walesbúar unnu óvæntan yfir-
burðasigur á Spánverjum, 3-0, í
undankeppni HM í knattspyrnu í
gærkvöldi. Ian Rush skoraði rétt fyrir
lok fyrri hálfleiks, Mark Hughes bætti
öðru marki við um miðjan seinni hálf-
leik og Rush innsiglaði sigurinn með
sínu öðru marki. Staðan í 7. riðli er þá
þessi:
Wales................. 5 3 0 2 6-5 6
Skotland................4 2 0 2 6-3 4
Spánn...................4 2 0 2 5-6 4
Island..................3 1 0 2 2-5 2
Öll lið hafa tapað jafnmörgum stig-
um og ísland á því enn jafna mögu-
leika á við hin liðin um að komast í
úrslitakeppnina í Mexíkó.
-VS
Knattspyrna
Stórieikur
þýskra í Prag
Öruggir til Mexíkó eftir 5-1 sigur
Frá Jóni H. Garðarssyni fréttamanni
Þjóðviljans í V.Þýskalandi:
Vestur-Þjóðverjar sýndu einhvern
sinn besta landsleik í áraraðir í gær
þegar þeir burstuðu Tékka 5-1 í Prag í
undankeppni HM í knattspvrnu. Frá-
bær úrslit á útivelli og V.Þjóðverjar
eru nú nánast búnir að tryggja sér
sæti í úrslitakeppninni í Mexíkó.
Fyrri hálfleikur var stórkostlega
leikinn af hálfu vestur-þýska liðsins
og strax á 8. mínútu skallaði bakvörð-
urinn Berthold í mark Tékka. Pierre
Littbarski skoraði með skoti af 20 m
færi á 22. mínútu, Lothar Mattháus
með viðstöðulausu skoti á 36. rnínútu
og Mathias Herget gerði fjórða mark-
ið og það fallegasta á 43. mín - beint
úr aukaspyrnu í blávinkilinn. Staðan
0-4 í hálfleik!
V.Þjóðverjar slökuðu á klónni eftir
hlé en misstu aldrei tökin á leiknum
og Rudi Völler átti snemma skot í slá
af 25 m færi. Klaus Allofs kom inná
sem varamaður á 70. mín. og á 83.
mín. fylgdi hann vel þegar markvörð-
ur Tékka varði skot frá Völler og
skoraði fimmta markið. Griga náði
loks að koma heimaliðinu, sem var
eingöngu skipað leikmönnum frá
Prag, á blað þremur mínútum fyrir
leikslok.
Herget lék á miðjunni, ekki í sinni
vanalegu stöðu sem miðvörður, og
átti frábæran leik - var bestur ásamt
Littbarski og Jacobs sem lék sem mið-
vörður. Liðið var þannig skipað:
Schumacher - Berthold, Brehme,
K.H. Förster, Jacobs-Herget, Matt-
háus, Magath, Rahn - Littbarski,
Völler. Staðan í 2. riðli er nú þessi:
V.Þýskaland.........5 5 0 0 18-4 10
Portúgal............5 3 0 2 8-7 6
Svíþjóð.............4 2 0 2 7-4 4
Tékkóslóvakía.......4 112 6-7 3
Malta..............6 0 1 5 3-20 1
Tvö efstu iiðin komast beint í lok-
akeppnina í Mexfkó.
Miðvikudagur 1. maí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 15