Þjóðviljinn - 01.05.1985, Page 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
HIÖDVIUINN
MlðvlkudaQur 1. maí 1985 97. tölublað 50. órgangur
Húsnœðisvandinn
Lausn a minnsta vandanum
Björn Ólafssonfrá húsnœðismálahópnum: Efþetta er hluti aflausninni er frumvarpið ílagi
en efþetta er heildarlausnin þá erþetta hneyksli
Ef þetta frumvarp forsætisráð-
herra um greiðslujöfnun fyrir
húsbyggjendur er aðeins hluti af
heildarlausn, þá er það í lagi. En
ef þetta er allt sem fyrir húsbyggj-
endur á að gera, er frumvarpið
hneyksli. Þetta sagði Björn Ólafs-
son verkfræðingur einn af tals-
mönnum áhugamannahópsins
um húsnæðismál sem stofnaður
var í vetur.
Björn benti á að lán Húsnæð-
ismálastofnunar væri lang-
minnsta vandamálið fyrir hús-
byggjendur, enda væru þau lán á
langbestu kjörum sem fáanleg
væru fyrir húsbyggjendur. Og ef
það er orðið heils árs greiðslumis-
gengi hjá fólki á þessum lánum,
þá geta menn rétt ímyndað sér
hvernig ástandið er gagnvart öðr-
um lánum. Vandamál fólks eru
einmitt varðandi þau lán.
Ég trúi ekki öðru fyrr en ég tek
á, en að þetta sé aðeins hluti
lausnar á vanda húsbyggjenda.
Og stjórnvöld verða að fara að
koma með heildarlausnina, því
fólk er gersamlega komið í þrot.
Forsætisráðherra lofaði okkur í
húsnæðishópnum að við fengjum
að fylgjast með því hvernig vand-
inn yrði leystur og ég vonast til
þess að við fáum að ræða við for-
sætisráðherra nú í vikunni, sagði
Björn Ólafsson.
Ásmundur Stefánsson forseti
ASÍ sem átti samráðsfundi með
forsætisráðherra um þetta mál,
hefur látið hafa eftir sér að hann
líti á þetta sem skref en ekki sem
heildarlausn.
- S.dór.
Hríflu-
Jónas
100 éra
Ljósmyndasýning og
minnisvarði
í dag, 1. maí eru 100 ár liðin frá
fæðingu Jónasar Jónssonar frá
Hriflu. Af því tilefni verður opn-
uð ljósmyndasýning um Jónas,
ævi hans og störf í Hamragörðum
Hávallagötu 24 og mun hún
standa frá 1. -12. maí. Opnunar-
tíminn erfrákl. 14-22 þann 1. maí
og um helgar en kl. 16-20 á virk-
um dögum. Ljósmyndasafnið
hefur annast uppsetningu sýning-
arinnar en Skjalasafn Sambands-
ins mun hafa með umsjón hennar
að gera.
Þá mun í dag afhjúpaður minn-
isvarði um Jónas Jónsson frá
Hriflu og er hann á svæðinu á
milli Landsbókasafnsins og Arn-
arhvols. Brjóstmyndin er eftir
Einar Jónsson myndhöggvara en
minnisvarðinn og umhverfi hans
er eftir Steinþór Sigurðsson
listmálara. Athöfnin fer fram í
dag kl. 10.00. - v.
Brjóstmynd af Jónasi frá Hriflu verður afhjúpuð í dag en 100 ár eru nú liðin fráfaeðingu þessa umdeilda stjórnmálamanns, sem stofnaði Alþýðuflokkinn/ASI
árið 1916. Ljósm.: E.OI.
Seðlabankahöllin
600 fermetrar í afgang
Hugmyndirað leigjaplássið út. Hagnaður bankans 111 miljónir ásl. ári
Hagnaður af rekstri Seðlabank-
ans nam 111 miljónum á sl.
ári en árið 1983 var halli á rekstr-
arreikningi uppá 95 miljónir.
Tekjur umfram vaxtagjöld hjá
Seðlabankanum á sl. ári voru 1
miljarður og 87 miljónir sem er
tvöfalt meira en frá árinu á
undan. Kostnaður við rekstur
bankans fyrir utan bygginga-
kostnað var 145 miljónir sem er
34% hækkun frá fyrra ári.
Kostnaður vegna nýbyggingar
bankans á sl. ári var um 109 milj-
ónir samkvæmt reikningum
bankans. Jónas Rafnar formaður
bankaráðs upplýsti á ársfundi
bankans í gær að skrifstofurýmið
í nýbyggingunni við Arnarhól
yrði nokkuð stærra en bankinn
hefði þörf fyrir og væntanlega
yrði um 500-600 ferm. afgangs til
útleigu. Til greina kæmi að leigja
Þjóðhagsstofnun ásamt öðrum
ótilgreindum þetta ónýtta pláss í
nýbyggingunni, en eins og
mönnum er eflaust kunnugt er
Þjóðhagsstofnun nýlega búin að
koma sér fynr í nýjum hýsakynn-
um Framkvæmdastofnunar við
Rauðarárstíg.
-Ig-
Grímsey
Eina vonin er að fá
keyptan kvóta
Prír stœrstu bátarnir búnir með þorskkvóta sinn
Húsavík
Mokafli
Aflabrögð á Húsavík hafa ver-
ið með eindæmum góð undan-
farna daga, jafnt hjá stærri sem
minni bátum. Á sunnudaginn
kom togarinn Kolbeinsey úr túr
með 160 tonn og var uppistaðan
karfi. Á mánudag kom svo Júlíus
Hafstein inn með 35 tonn af
rækju. Minni bátar hafa fiskað
afar vel og má nefna sem dæmi að
30 tonna snurvabátur kom inn til
Húsavíkur á mánudag með 14
tonn. Hefur verið unnið öll kvöld
í frystihúsum á Húsavík og virðist
næg vinna framundan.
- AB.
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá á
dögunum eru stóru bátarnir 3
í Grímsey búnir með þorskkvóta
sinn og blasir við þeim stöðvun
það sem eftir er ársins og
minnkandi atvinna í landi. For-
ráðamenn í Grímsey hafa verið
að reyna að fá sjávarútvegsráðu-
neytið til að liðka til fyrir þeim.
Það eina sem ráðuneytið getur er
að fá keyptan kvóta til handa
Grímseyingum og verður allt
reynt til þess að það megi takast.
Þetta sagði Hannes Guð-
mundsson í Grímsey, en hann fór
ásamt öðrum til Akureyrar á dög-
unum til fundar við sjávarútvegs-
ráðherra. Hannes sagðist von-
góður um að takast myndi að fá
keyptan kvóta, þá helst af rækj-
ubátum, sem eiga þorskkvóta og
ætla ekki að nota hann.
- S.dór.
Laxveiðar
Laxinn
mánuði
fyrr en
vanalega
Vart við lax víða við
ströndina
Vart hefur orðið við lax víða
við ströndina og er hann um það
bil mánuði fyrr á ferðinni en í
venjulegu árferði. Finnur Garð-
arsson fiskifræðingur hjá
Veiðimálastofnun sagði að gott
árferði réði hér mestu um. Þegar
svona vel áraði færu gönguseiði
fyrr niður úr ánum en ella og lax-
inn í hafinu rennur á lyktar-
slóðina og kemur því fyrr uppað
ströndinni en vanalega.
Vanalega gengur laxinn uppí
árnar síðast í maí en að þessu
sinni má búast við að hann gangi
upp fyrr að sögn Finns Garðars-
sonar. Þá má geta þess að fiski-
fræðingar segjast eiga von á mikl-
um laxi og góðri laxveiði í sumar.
- S.dór.