Þjóðviljinn - 03.05.1985, Blaðsíða 13
Glœtan rakst á þessa stuttu og hnitmiðuðu grein um
Wham! dúettinn í ,/Eskunni“ og þótti sjálfsagt að láta
fleiri njóta þess að lesa um þessa 2 fríðu pilta - keppi-
nauta Duran-Duran. Veskú!
Upphaf Wham! dúettsins má
rekja til20. janúar 1963. Þá fædd-
ist Andrew Ridgeley, annar
helmingur Wham! Hinn helming-
urinn, George Michael, fæddist
hálfu ári síðar, nánar tiltekið 25.
júní.
Það var þó ekki fyrr en 1979
sem tvímenningamir byrjuðu að
syngja, spila og semja saman.
1981 var sjálfstraust þeirra orðið
það mikið að þeir hljóðrituðu
nokkur frumsamin lög á eigin
kostnað. Þeir sendu öllum helstu
plötufyrirtækjum Bretlands
upptökumar. Þeir fengu lagið
„Wham Rap!“ gefið út. Það „sló í
gegn“. í kjölfarið fylgdu nokkur
önnur lög sem öll komust á „topp
10“ í heimalandinu, Englandi.
Breiðskífan „Fantastic“ kom svo
á markaðinn sumarið 1983 og
tryggði Wham! í sessi.
Ibyrjun sungu Wham! félags-
leg vandamál, svo sem ofbeldi og
starfsleiða. Nú syngja þeir hins
vegar eingöngu um ástina. Fyrir
það og fleira þurfa Wham sífellt
að svara.
„Við emm sagðir flytja væmið
smábarnapopp og við emm sak-
aðir um að vera pólitískar
gungur“ segir George Michael og
er mikið niðri fyrir. „Þeir hávæm
Wham! andstæðingar sem halda
þessu fram eru daufdumbir. Þeir
heyra aðeins í smástelpunum sem
öskra á tónleikum okkar en þeir
vilja ekkert vita af fullorðna fólk-
inu sem kom lagi okkar „Young
guns“ í þriðja sæti vinsældalist-
ans. Og þótt við séum hættir að
semja söngva á borð við „Bad
boys“ þá þýðir það ekki að við
höfum lokað augunum fyrir því
sem miður fer í þjóðfélaginu.
Þegar kolunámamenn eru í verk-
falli eða kjarnorkuandstæðingar
þurfa á okkur að halda þá liggjum
við ekki á liði okkar eins og dæm-
in sanna. Sé málstaðurinn þess
virði erum við reiðubúnir að
koma fram á stuðningshljóm-
leikum hvenær sem er og hvar
sem er“.
Við þetta mætti bæta því, að
það er varasamt að setja öll lög
Wham! undir einn hatt. Þótt yfir-
leitt sé um lauflétt popp að ræða
þá kennir þar jafnframt margra
annarra grasa. Þess vegna mætti
alveg eins skipta Wham! lögun-
um upp í fönk, diskó, „Motown“,
„rap“, „jitterbug“, sál og suður-
amerískan stíl.
Stuðmenn vinsælastir
trti
VEGAVINNUSKURAR
TIL SÖLU
Til sölu eru ýmsar gerðir af vegavinnuskúrum og eru þeir til
sýnis við áhaldahús Vegagerðar ríkisins, samkvæmt eftir-
farandi skrá:
Húsavík
Akureyri
Akureyri
Númer: Gerð: Stærð m2: Stað
AE1-61 Eldhús á hjólum 20
AE1-60 Eldhús á hjólum 12
SF2-68 Forstofa 7
AF1-69 Forstofa 7
AF2-69 Forstofa 7
AS1-74 Snyrting 12
AS2-77 Snyrting 12
AV1-61 íbúðarskúr 12
TV1-62 fbúðarskúr 10
SV1-63 íbúðarskúr 10
AE2-62 (búðarskúr á hjólum 19
AI1-63 íbúðarskúr 12
AI2-63 íbúðarskúr 12
AI2-65 (búðarskúr 12
AI2-66 (búðarskúr 12
LE1-76 Eldhús á hjólum +
anddyri 22
RI2-66 íbúðarskúr, 4ra manna 12
011-60 (búðarskúr, 4ra manna 12
I5-64 Ráðskonuskúr 12
Gera skal tilboð í skúrana í því ástandi sem þeir eru og
skulu kaupendur taka við þeim á sýningarstað.
(tilboðum skal tilgreina númer þeirra skúra, sem boðið er í
(sjá skrá).
Tilboð skulu berast skrifstofu Innkaupastofnunar ríkisins,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík, eigi síðar en kl. 11:00 f.h.
fimmtudaginn 16. maí n.k., merkt: „Útboð nr. 3124/85 -
Vinnuskúrar"; og verða þau þá opnuð í viðurvist viðstaddra
bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
m Félagsstarf aldraðra
'I' Reykjavík
Yfirlits- og sölusýningar.
Eins og undanfarin ár verða yfirlits- og sölusýningar á
þeim handavinnumunum sem unnir hafa verið í fé-
lagsstarfinu í vetur. Sýningarnar verða nú að Norður-
brún 1 og Lönguhiíð 3, laugardaginn 11. maí, sunnu-
daginn 12. maí og mánudaginn 13. maí frá kl. 13-18
alla dagana.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
á Rásinni
Stuðmenn reyndust eiga vin-
sælasta íslenska lagið á fyrsta
fjórðungi ársins 1985. Sú varð út-
koman, er stigin voru talin saman
á vinsældalistum Rásar tvö frá 28.
desember 1984 til 3. apríl 1985.
Vinsælasta íslenska lagið varð
Búkalú úr Stuðmannakvikmynd-
inni Hvítir mávar.
í öðru sæti við þennan stig-
aútreikning varð lagið Húsið og
ég (Mér finnst rigningin góð)
með hljómsveitinni Grafík. Sama
hljómsveit átti einnig þriðja
vinsælasta lagið á fyrsta ársfjórð-
ungi. Það nefnist 16.
Alls komust níu íslensk lög á
vinsældalista Rásar tvö á fyrsta
fjórðungi ársins. Þrjú voru flutt
af Stuðmönnum, þrjú af Grafík,
Laddi söng tvö og eitt var með
hljómsveitinni Sonus Futurae.
Hljómsveitin Duran Duran
reyndist eiga lang vinsælasta er-
lenda lagið. Það var Save A Pray-
er, þriggja ára gamalt lag, sem
aðdáendurnir virðast hafa tekið
sérstöku ástfóstri við. í öðru sæti
varð Wham-dúettinn með lagið
Everything She Wants og enska
hljómsveitin King í þriðja sæti
,með Love And Pride.
Vinsældalisti Rásar tvö er unn-
inn á hverjum fimmtudegi um
síma. Á tímabilinu fjögur til sjö
gefst hlustendum kostur á að
hringja í síma 687 123 og segja
þeim, sem fyrir svörum verða,
hver þrjú uppáhalds lögin þá
stundina eru. Tíu stigahæstu lög-
in eru síðan leikin á
fimmtudagskvöldum milli klukk-
an átta og níu. Tuttugu til þrjátíu
þau vinsælustu heyrast á sunnu-
dögum milli klukkan fjögur og
sex.
Vinsœldalisti28. desember 1984-3. apríl
1985
1. SAVE A PRAYER.........................Duran Duran
2. EVERYTHING SHE WANTS.......................Wham!
3. LOVE AND PRIDE..............................King
4. THE MOMENT OF TRUTH.....................Survivor
5. SOLID............................Ashford & Simpson
6. SEXCRIME (1984).......................Eurythmics
7. BÚKALÚ..................................Stuðmenn
8. ONE NIGHTIN BANGKOK...................MurrayHead
9. THISIS NOT AMERICA.....DavidBowie/PatMetheny Group
10. HÚSIÐ OG ÉG (Mér finnst rigningin góð)... Grafík
11. YOU SPIN ME ROUND (Like A Record)...Dead Or Alive
12. FOREVER YOUNG.........................Alphaville
13. IWANTTO KNOWWHATLOVEIS.................Foreigner
14. KAO-BANG...............................Indochina
15. LASTCHRISTMAS..............................Wham!
16. HEARTBEAT..................................Wham!
17. SHOUT...............................Tears For Fears
18. 16........................................Grafík
19. IKNOW HIM SO WELL........Elaine Paige/Barbara Dickson
20. DO THEY KNOW IT‘S CHRISTMAS?.............Band Aid
21. THINGS CAN ONLY GETBETTER........... HowardJones
22. SOME LIKEIT HOT...................The Power Station
23. LOVEISLOVE...........................CultureClub
24. EASY LOVER...................Phil Collins/Philip Bailey
25. MATERIALGIRL............................ Madonna
Samkoma - tónleikar
í tilefni þess að 40 ár eru liðin frá því sigur vannst í
síðari heimsstyrjöldinni á herjum nasista í Evrópu,
efnir félagið MÍR, Menningartengsl (slands og Ráð-
stjórnarríkjanna, til samkomu og tónleika í Gamla bíói
sunnudaginn 5. maí kl. 15.
Ávörp flytja: EVGENÍ A. KOSARÉV, sendiherra so-
vétríkjanna á (slandi, og MARGRÉT GUÐNADÓTTIR
prófessor, en að þeim loknum hefjasttónleikar LJÚD-
MILU ZYKINU, þjóðlistamapns Sovétríkjanna, og
þjóðlagasveitarinnar „ROSSÍA" undir stjórn Viktors
Gridin.
Kynnir verður JÓN MÚLI ÁRNASON.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
MÍR.
Þri&Judagur 30. aprí! 1985 ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 13