Þjóðviljinn - 03.05.1985, Side 17

Þjóðviljinn - 03.05.1985, Side 17
Álafoss- kórinn Annað kvöld, laugardag, kl. 20 heldur Álafosskórinn ár- lega vortónleika sína undir stjórn Páls HelgasonaráMaí- dögum í Mosfellssveit Á efnisskránni eru einkum al- þýðutónlist frá eftirstríðsárunum og síðari árum, lög á borð við „We’ll meet again“, „Chanson d’amour“ ofl. Flest þessara laga krefjast undirleiks og hefur kór- inn fengið nokkra tónlistarmenn til liðs við sig. Kórstjórinn, Páll Helgason, leikur á píanó, Hans Jensson á tenórsaxófón, Guðjón Ingi Sigurðsson á trommur og Gunnar Gíslason á bassa. Á tónleikunum mun Kjarna- kórinn einnig syngja nokkur lög undir stjórn Lárusar Sveins- sonar. í hléi verður veitt kaffi og meðlæti og efnt til tískusýningar. Að loknum tónleikunum mun hljómsveit kórsins leika fyrir dansi. - ÞH Burtfarar- tónleikar Á morgun, laugardag, og á þriðjudag heldurTónlistar- skólinn í Reykjavíktvenna burtfarartónleika og verða þeir báðir í sal skólans að Skipholti 33. Þeir fyrri verða á morgun kl. 15 en þá syngur Hrafnhildur Guð- mundsdóttir mezzó-sópran lög eftir Purcell, Schubert, Mahler, Poulenc og Granados við undir- leik Önnu Guðnýjar Guðmunds- dóttur píanóleikara. Þeir síðari verða á þriðjudag kl. 20.30 en þá leikur Björn Da- víð Kristjánsson á flautu verk eftir Bach, Varése, Chaminade, Bonneau og Hindemith. Elfa Lilja Gísladóttir leikur með Birni á píanó. - ÞH Símon og Siegfried Gítarleikararnir Símon H. ívarsson og Siegfried Kobilza eru nú komnir til Norðurlands á yfir- reið sinni um landið. í kvöld kl. 20.30 verða þeir í félagsheimilinu á Raufarhöfn og á morgun, laug- ardag, leika þeir í Húsavíkur- kirkju kl. 17. Á.sunnudag kl. 20.30 leika þeir í sal Menntaskól- ans á Akureyri, á mánudag kl. 21 í félagsheimilinu á Ólafsfirði, á þriðjudag verða þeir í Hrísey og á miðvikudag kl. 20.30 í Safnahús- inu á Sauðárkróki. _ ÞH Einsöngur í Njarðvíkum Á morgun, laugardag, kl. 15 halda Sigurður Pétur Braga- son baritónsöngvari og Þóra Fríða Samúelsdóttir píanó- leikartónleikaávegumTón- listarskóla Njarðvíkur í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Á efn- isskránni eru ítölsk lög og óp- eruaríur ásamt íslenskum lögum. Sigurður Pétur Bragason er ný- kominn úr söngnámi á Ítalíu og hefur sungið á mörgum tón- leikum hérlendis og erlendis. Þóra Fríða Sæmundsdóttir stund- aði nám í píanóleik í Freiburg og Stuttgart í Þýskalandi og tók hún ljóðaundirleik sem sérfag. - ÞH Rússnesk svartlist og lakkmunir Annað kvöld, laugardag, kl. 20.30 verður opnuð í húsa- kynnumMÍRaðVatnsstíg 10 sýning á svartlistarmyndum og handunnum lakkmunum frá Rússlandi. Þessi sýning er liður í Sovéskum dögum 1985 en þeir eru að þessu sinni sér- staklega helgaðir Rússneska sambandslýðveldinu. Á sýningunni eru 63 svart- listar- myndir eftir 20 listamenn, öll unnin á síðustu árum. Flestar myndir á Nikolaj L. Voronkov hreiðurslistamaður Rússneska sambandslýðveldisins en hann kemur til Islands í tilefni sýning- arinnar og verður við opnunina. Einnig eru á sýningunni 27 gripir sem unnir eru með aðferð- um hinnar hefðbundnu og marg- rómuðu rússnesku lakkmunalist- ar. Gripirnir eru eftir 20 lista- menn frá fjórum helstu mið- stöðvum lakkmunalistarinnar: Fedoskino, Palekh, Mstera og Kholui. Við opnunina koma fram þjóð- lagasöngkonan Ljúdmfla Zykina og hljómsveitin Rossía sem eru hér á landi í tónleikaferð þessa dagana. _ ÞH Tryggvi Ólafsson í Listasafni ASÍ Á morgun, laugardag, kl. 14 opnarTryggvi Ólafsson myndlistarmaðursýningu á verkum sínum í Listasafni ASÍ viðGrensásveg. Þarsýnir T lyggvi uþb. 50 málverk og klippimyndir sem hann hefur unnið á sl. tveimur árum. Tryggvi er frá Norðfirði en hef- ur búið í Kaupmannahöfn um tveggja áratuga skeið og gott bet- ur. Þar hefur hann unnið að list sinni en öðru hvoru skroppið hingað upp á skerið til að sýna okkur hvað hann er að gera. Síð- ast var hann á ferð í fyrravor þeg- ar hann tók þátt í samsýningunni „10 gestir á listahátíð" að Kjar- valsstöðum. Sýning Tryggva verður opin virka daga kl. 14-20 en kl. 14-22 um helgar fram til 27. maí. - ÞH Grímur á Mokka Hallgrímur Helgason, „Grím- ur“, opnar nú um helgina sýningu á nýjum veggmyndum í Mokka- kaffi við Skólavörðustíg Reykja- víkur. Þetta er enn ein einkasýn- ing Gríms, og að þessu sinni sækir hann myndefni sín einkum í húð- flúr mannlegrar hegðunar. Verk- in eru öll ný, máluð um helgina og í síðustu viku, með olíu á pappír. Sýningin mun formlega verða opnuð föstudaginn 3. maí kl. 10 f.h., og eru allir þeir, sem áhuga hafa á hinu mannlega myn- s.tri neurtral nektar, velkomnir. Hún mun síðan hanga þar til Jean Luc Godard kemur til lands- ins, en svo skemmtilega vill til að Grímur tileinkar einmitt sýning- una tilvonandi minningu Gor- dards um Gauk á Stöng. (Fréttatilkynning) Föstudagur 3. mai 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 Sigrún Eldjárn sýnir E.ÓI. Ijósmyndara eina af myndum sínum. Listmunahúsinu Sigrún í Á morgun, laugardag, kl. 14 opnar Sigrún Eldjárn mynd- listarmaöursýningu áverkum sínum í Listmunahúsinu við Lækjargötu. Þarsýnirhún teikningar og þrenns konar grafík: messótintu, sáldþrykk og koparstungu. Verkin eru öll unnin á síðustu tveimur árum. Sigrún er liðlega þrítug að aldri og stundaði nám við Myndlista- og handíðaskólann á árunum 1974-77. Árið eftir fór hún til Pól- lands og lærði að beita þeirri tækni sem nefnist messótinta. Hún hefur haldið 4 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga, bæði hér heima og erlendis, þám. í svo fjarlægu plássi sem Kóreu. Sigrún er félagi í Gallerí Lang- brók og hefur auk myndlistarinn- ar fengist við að skrifa bækur fýrir börn. Sýningin er opin virka daga nema mánudaga kl. 10-18 og kl. 14-18 um helgar fram til 19. maí. Kleinukonsert í Langholtskirkju Kór Langholtskirkju efnir á morgun, laugardag, til uppá- komu í Langholtskirkju og hef- ur hún hlotið nafnið Kleinu- konsert. Stendurgleðskapur- innyfiríáttatíma, frákl. 10- 18. Verður þar ýmiss konar tónlistáboðstólum. Framlag kórsins undir stjórn Jóns Stefánssonar verður flutn- ingur laga sem valin verða og kynnt af nokkrum þekktum pers- ónum úr þjóðlífinu, herra Pétri Sigurgeirssyni biskupi, Ólafi Skúlasyni vígslubiskupi, Stein- grími Hermannssyni forsætisráð- herra, Albert Guðmundssyni fjármálaráðherra, alþingismönn- unum Jóni Baldvin Hannibals- syni og Sigríði Dúnu Kristmunds- dóttur, ritstjórunum Ellert B. Schram og Árna Bergmann, Megasi, Sigrúnu Stefánsdóttur fréttamanni og Jóhannesi- Aras- yni þul. Verða óskalögin flutt í þrennu lagi kl. 11, 12.15 og 15. Kl. 13.30-14.30 verður barna- stund þar sem Skólakór Kársnes- skóla syngur undir stjórn Þór- unnar Björnsdóttur, hljóm- sveitin Snúran-snúran kemur fram og Sverrir Guðjónsson skemmtir. Klukkan 16 verða tón- leikar í léttum dúr þar sem fram koma feðgarnir Jón Sigurðsson og Sigurður Rúnar Jónsson, söngflokkurinn Sedró 5, Hálft í hvoru og Jassgaukarnir. Hljómsveit tekur á móti gest- um með lúðraþyt og á milli atríða verða á boðstólum kleinur, kaffi og Svali fyrir börnin. - ÞH Kristjón Hall í Lista- miðstöðinni Á morgun, laugardag, kl. 14 opnar Kristján Hall myndlistar- maður sýningu á verkum sínum í Listamiðstöðinni við Lækjartorg. Þar sýnir Kristján 30 olíumálverk frá sl. tveimur árum en viðfangs- efni Kristjáns er fyrst og fremst íslensk náttúra. Þetta er 7. einka- sýning hans. Hún verður opin daglega frá kl. 14-19 fram til 12. maí. - ÞH

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.