Þjóðviljinn - 10.05.1985, Síða 1
GLÆTAN
ÞJÓÐMÁL
UM HELGINA
ÍÞRÓTTIR
Ölfusvatnsland
Dæmalaust jarðarverð
Borgin vill borga erfingjum Sveins Ben 60 milljónir fyrir háhitajörð.
Eigendur halda sumarbústöðum hálfa öld, mega reisaþrjá í viðbót, halda veiðirétti.
Fasteignamat jarðarinnar 400þúsund. Voldugar íhaldsœttir íhár saman útafsilfri Davíðs?
Þetta er svo vitlaust að það nær
ekki nokkurri átt, sagði Árni
Jónasson ráðunautur hjá Búnað-
arfélaginu í gær um það verð sem
Reykjavíkurborg hyggst greiða
fyrir Ölfusvatnsland við Hengil.
„Eg hef ekki heyrt dæmi um
svona hátt verð áður. Ef borgin
þarf á þessu landi að halda er eðli-
legasta leiðin að leita heimildar til
eignarnáms. Mér sýnist að þá
kæmu út allt aðrar og lægri
tölur.“ Samkvæmt fasteignamati
er jörðin 400 þúsund króna virði.
í drögum að samningi, sem
borgin ætlar að gera við eigendur
Ölfusvatnslands og kynntur var í
borgarráði á þriðjudag, segir að
tíu prósent kaupverðsins greiðist
strax og afgangurinn af
milljónunum sextíu á sex árum,
verðtryggt og með 5% vöxtum.
Eigendur Ólfusvatnslands eru
Helga Ingimundardóttir, ekkja
Sveins Benediktssonar, og synir
þeirra, Benedikt lögmaður, Ein-
ar forstjóri Sjóvár og Ingimundur
arkitekt og varaformaður skipu-
lagsnefndar borgarinnar.
Fjölskyldan heldur aðstöðu
sinni allri og hlunnindum í 50 ár,
það er sex sumarbústöðum og
öllum neta- og stangveiðiréttind-
um. Að auki er eigendunum
heimilt að reisa á landinu þrjá bú-
staði til viðbótar með bátaskýl-
um.
Fasteignasalar telja bústaða-
löndin þrjú geta selst á 1,5 - 2,5
milljónir og jafnvel meira þarsem
borgin skuldbindur sig til að leyfa
ekki fleiri sumarbústaði á landinu
í 25 ár. Núverandi eigendur halda
öllum neta- og stangveiðiréttind-
um, sem í fasteignamati eru talin
fjórðungur verðmætis.
í Ölfusvatnslandi er talinn
mikill hiti og segir Gylfi Páll
Kennarar
Hersis jarðfræðingur sem skrif-
aði lokaritgerð sína um jarðhita á
þessum slóðum, að syðst í land-
inu, við Ölkelduháls, sé talin
miðja háhitasvæðisins' kringum
Hengil. Hitaveita Reykjavíkur
sækist eftir landinu vegna
fyrirhugaðrar virkjunar á Nesja-
völlum og nágrenni.
Milli Ölfusvatnslands og Nesj-
avalla er land Hagavíkur. Það
eiga erfingjar Helga Tómassonar
læknis, Helga Þórðardóttir kona
hans, Tómas prófessor og Ragn-
hildur ráðherra. A landi Haga-
víkur mun hins vegar ekki talið
eftir jarðhita að slægjast.
Þeir Sveinn og Helgi keyptu
þessar jarðir í sameiningu á sín-
um tíma en skiptu þeim síðan
með gerðardómi. Samkvæmt
heimildum Þjóðviljans tók sú
skipting ekki til hitaréttinda og
kynni því að koma fram krafa frá
eigendum Hagavíkur um hlut-
deild í milljónunum sextíu verði
af samningum.
- m/ÁI
VélskóflabyrjaðiaðgrafauppolíutankanaviðbensínstöðinaviðFellsmúlaeftir hádegið í gær. Skömmu síðar krafðist Olís lögbanns á verkið. Mynd: E.OI.
Bensínstríð
úrBSRB!
Ný staða í baráttunni
í gær voru talin flestöll atkvæði
í kosningum Kennarasambands
íslands um úrsögn úr BSRB og er
þegar ljóst að úrsögnin hefur
fengið tilskilið fylgi, tvo þriðju.
Olís gegn Hreyfli
Hreyfill lœturgrafa upp tanka Olís. Búnir að gera samning við Esso.
Olís krefst lögbanns
Eftir er að telja þau atkvæði
sem enn hafa ekki borist frá
landsbyggðinni og voru geymd
milli 150 og 200 atkvæði til að
telja með viðbótinni. Lokatölur
úr talningunni í gær voru: úr
BSRB 1484 (68,8%), í BSRB 673
(31,2%). Auðir seðlar voru 143,
ógildur 1. Lokatölur fást á þriðju-
dag.
Sjá baksíðu
Bifreiðastöðin Hreyfill og Olís
eru komin í hár saman um
framtíðarrekstur bensínstöðvar
við Fellsmúla sem Hreyfill hefur
rekið sl. 40 ár í samstarfi við OIís.
f gær lét Olís setja lögbann á
framkvæmdir Hreyfils við að
grafa upp olíugeyma Olís við
stöðina, en Hreyfilsmenn segja
að Olís sé að tefja fyrir því að þeir
geti hafið rekstur stöðvarinnar að
nýju í samstarfi við Esso, með því
að hirða ekki sinn búnað af lóð
stöðvarinnar.
Samstarfssamningi var sagt
upp um áramótin og viðræður
síðustu mánuði hafa ekki borið
árangur. Olís krafðist þess að
Hreyfill gerði upp skuldir 'sínar
við félagið og Hreyfill krafðist
þess á móti að 'olíufélagið tæki
búnað sinn í búrt fyrir hádegi í
gær. Þegar það var ekki gert
sendu Hreyfilsmenn vélskóflu á
staðinn til að grafa upp olíutanka
Olís. Olíufélagið lagði fram lög-
bannskröfu á verkið nokkrum
stundum síðar. Krafan verður
tekin fyrir hjá borgardómara síð-
degis í dag.
„Þeir eru bara að tefja fyrir
okkur og valda okkur tjóni. Við
erum aðeins að framkvæma það
sem þeir buðu okkur að þeir
myndu gera sjálfir", sagði Einar
Geir Þorsteinsson framkvæmda-
stjóri Hreyfils í gær.
Þórður Ásgeirsson forstjóri
Olís sagði að málið væri alls ekki
á því stigi að Olís væri tilbúið að
selja. „Það hefur ekkert tilboð
verið lagt fram af okkar hálfu og
ég vil ekki segja að við séum bún-
ir að missa þessa aðstöðu".
-Ig-