Þjóðviljinn - 10.05.1985, Síða 3
FRETTIR
Landssamband vörubifreiðastjóra
Verið að útrýma stétftinni
Útboð og undirboð grafa undan stéttinni. Lögum um rétt vörubifreiðastjóra ekki sinnt.
Atvinnuleysi og mikilfækkun í stéttinni.
að er verið að útrýma vöru-
bifreiðastjórastéttinni með
útboðum, og undirboðum á
vinnu, auk þess sem lög eru á okk-
ur brotin með útboðum á vöru-
bílaakstrinum einum, eru sam-
kvæmt lögum frá 1970, um leigu-
bfla- og vörubflaakstur, þá eigum
við einir að sitja að slíkri þjón-
ustu. Þetta sagði Herluf Clausen
formaður Landssambands vöru-
bifreiðastjóra í samtali vð Þjóð-
viljann í gær.
Herluf sagði að nú væri allt of
mikið af vörubflum á landinu, og
stórir verktakar, sem hefðu
eignast mikinn flota vinnuvéla í
gegnum stór verkefni hjá ríkinu,
væru að ryðja vörubifreiða-
stjórastéttinni úr vegi. Nú eru um
700 félagar í Landssambandinu.
Við erum aðilar að ASÍ og
eigum okkar samning við Vinnu-
veitendasambandið, þar sem
segir að félagsbundnir vörubif-
reiðastjórar skuli ganga fyrir í öll-
um akstursverkefnum. Þetta er
hins vegar þverbrotið hvað eftir
annað og VSÍ lætur eins og kjara-
samningurinn sé ekki til.
Það er að okkar mati ólöglegt
að boðin séu út verk sem eru ein-
göngu fólgin í vörubflaakstri á
sama hátt og það er ólöglegt að
semja við aðila utan okkar sam-
taka um akstur langt undir taxta.
Við erum ekki á móti verkút-
boðum sem slíkum, en þau verða
að vera innan ramma laganna.
Það er heldur ekki óeðlilegt að
samið sé um afslátt þegar um
stærri verk er að ræða, en þá eiga
þeir samningar að fara í gegnum
viðkomandi vörubflstjórafélag
eða -stöð. Herluf sagði atvinnu-
leysi meðal vörubflstjóra slíkt um
þessar mundir að útilokað væri
fyrir menn að endurnýja bfla sína
og víða væri nú fækkað þeim bfl-
um sem eru í þjónustu. Þannig
hefur vörubílstjórum hjá Þrótti
fækkað úr 200 í 150 á einu ári.
-ólg.
Rœkja
Ný mið
út af Aust-
fjörðum
Mjög góð rœkjuveiði hefur verið undanfarið á
Héraðsflóadýpi. Veiðiútlit víðastmjöggott
nema í Kolluál.
Aðgengi fyrir fatlaða í opinberar stofnanir eru til skammar. En maður líttu þér
nær. Þessi mynd var tekin í gær þegar fatlaður maður var á leið á ritstjórnar-
skrifstofur Þjóðvijjans. Tugir trappa og óyfirstíganleg hindrun nema með að-
stoð. Ljósm. E. Ol.
Fatlaðir
Stofnanir slæmar
Ferlinefndfatlaðra um ríkisstofnanir. Fá að
meðaltali 30 stig afl00 mögulegum. Próunin
þó í jákvœða átt
Ingvar Hallgrímsson fiskifræð-
ingur er nú í leiðangri að leita
nýrra rækjumiða út af Austur-
landi. Vonast er til að þar sé hægt
að finna góð rækjumið. Undan-
farið hefur veiðst mikið af rækju
á Héraðsflóadýpi og sagði Unnur
Skúladóttir fískifræðingur að
það kæmi í sjálfu sér ekki á óvart
þótt mikið væri þarna af rækju.
Hún sagði að all straumþungt
væri víða fyrir Austfjörðum og
því hefði verið erfitt fyrir leiðang-
ursfólk Hafrannsóknarstofnunar
að veiða með 1200 möskva troll.
AJlt öðru mál gegndi fyrir stór
skip með miklu stærri troll og þau
hefðu veitt þarna vel að undan-
förnu.
Unnur sagði að nú væri mikið
af rækju í Húnaflóa, meira en
nokkru sinni áður eftir að rann-
sóknir hófust og sagðist hún telja
þetta afrakstur veiðistjórnunar
undanfarin ár á svæðinu auk þess
sem mikið af 4ra til 5 ára rækju
væri í veiðinni og ekki síst væri
um meiri sóknarþunga að ræða
en áður.
Á Eldeyjarmiðum er útlitið
gott en aftur á móti afar slæmt í
Kolluál. Við rannsóknir fengust
aðeins um 20 kfló á togtíma en
undanfarin ár hafa fengist yfir
100 kfló á togtíma. Þarna voru
veiddar um 2500 lestir af rækju í
fyrra.
Niðurstöður úttektar sem gerð
var á húsakosti ríkisins með
tilliti til þarfa fatlaðra eru þær að
af 100 stigum möguiegum fá hús
þau sem hýsa ríkisstofnanir að
meðaitali aðeins 30 stig, sem sagt
algert fall. Nokkurn veginn á
þessa leið fórust nefndarmönnum
í ferlinefnd orð þegar fylgt var úr
hlaði umfangsmikilli úttekt á
húsakosti ríkisins með tilliti ti)
sérþarfa fatlaðra.
Úttektin var unnin af embætti
húsameistara ríkisins í samvinnu
við ferlinefnd og að undirlagi fé-
lagsmálaráðuneytisins. í niður-
stöðum kemur fram að elstu
byggingar svo sem Stjórnarráðið,
Alþingishúsið og Landsbóka-
safnið eru meðal þeirra bygginga
sem hvað erfiðastar eru fötluð-
um. Er skemmst að minnast lag-
færinga á tröppum Þjóðleikhúss-
ins þar sem ekki var talið fram-
kvæmanlegt að breyta þeim og
gera aðgengilegar fötluðum m.a.
vegna kostnaðar.
Þó segir í niðurstöðum að þró-
unin sé í jákvæða átt þar sem gæði
bygginga hafi almennt aukist.
Meðal annars með tilkomu á-
kvæða í byggingarreglugerð um
hönnun húsnæðis með tilliti til
þarfa fatlaðra og eins því að mál-
efnum fatlaðra er nú meiri
gaumur gefinn en áður var. Þó
vantar mikið á enn að full stiga-
gjöf náist og er það oftast vegna
atriða er varða sérþarfir fatlaðra
og vega snyrtiherbergi þar einna
þyngst.
-aró.
Innrásarskjölin
Leynd eða
ekki leynd?
Þór Whitehead heimilað
árið 1973 að athuga
herlagaboðskapinn án
nokkurra skilyrða.
„Hefði ekki hikað við að
birta“.
Þrátt fyrir tilskipun um leynd
til 8. maí 1985 fékk sagnfræðing-
urinn Þór Whitehead árið 1973
að athuga herlagaboðskapinn í
bögglinum sem losaður var við
innsiglið í Þjóðskjalasafni í fyrra-
dag.
„Þór Whitehead er hérmeð
heimilað að skoða hvað er í
nefndum böggli" segir í bréfi til
safnsins frá þáverandi stjóra í
utanríkisráðuneytinu, Pétri
Thorsteinssyni, „en æskilegt væri
að hann yrði innsiglaður á ný“.
Þór Whitehead sagði Þjóðviljan-
um í gær að leyfið hefði ekki verið
háð neinum skilyrðum. Hann
ætti þessi skjöl í ljósriti, hefði vís-
að til þeirra í doktorsritgerð sinni
óprentaðri og „ekki hikað við að
birta þetta“ ef ástæða hefði verið
til. Skilningur Þórs var að leyndin
hefði verið rofin strax árið 1973.
Böggullinn var sendur frá ráðu-
neyti til Þjóðskjalasafns árið 1965
með fyrirmælum um leynd þartil
40 ár væru frá stríðslokum.
Pétur Thorsteinsson, nú sendi-
herra, sagðist í gær ekki muna
eftir þessu tilviki og sagðist ekki
vita afhverju sérstök fyrirmæli
hefðu verið gefin að loka bögglin-
um aftur. Pétur var spurður hvort
ekki væri þversagnarkennt að
gefa Þór skilyrðislaust athugun-
arleyfi en viðhalda leyndinni.
Pétur sagði þá að skjöl sem utan-
ríkisráðuneytið sendi safninu
ættu ekki að koma fyrir almenn-
ingssjónir nema með sérstöku
leyfi hverju sinni, og hélt að-
spurður að opinber birting her -
lagagagnanna í fyrradag án sér-
staks samráðs við ráðuneytið
hlyti að stafa af misskilningi.
-m
Vorhappdrætti ABR
Dregið
í dag
Vinningsnúmer innsigluð
Gerið skil sem allra fyrst!
-S.dór
Bjórinn
Mútur í stónim stal
ÓlafurP. Pórðarson þingmaður sakar
fréttamenn um mútuþœgni ogflutningsmenn
bjórfrumvarpsins um að vera með umboð
fyrir áfengt öl!
Olafur Þ. Þór'ðarson þingmað-
ur Framsóknarflokks sakaði í
gær fréttamenn útvarps og sjón-
varps um mútuþægni og flutn-
ingsmenn bjórfrumvarpsins um
að vera búnir að útvega sér um-
boð fyrir áfengt öl!
Ólafur sagði ljóst að alls stað-
ar, þar sem áfengi og tóbak væri
selt, reyndu söluaðilar að bera fé
á æðstu starfsmenn í viðkomandi
ríkjum til að fá þá til að breyta
löggjöf eða koma í veg fyrir að
löggjöf væri samþykkt. „Það
skyldi þó ekki vera að einhver af
flutningsmönnum (bjórfrum-
varpsins) hefði búið sig undir það
að þiggja umboðslaun fyrir áf-
engt öl ef það verður selt hér á
landi? Það skyldi þó ekki vera
búið að ganga frá samningum um
slíka hluti?“sagöi þingmaðurinn.
Þá sakaði Ólafur fréttastofu
sjónvarps um að sýna aðeins
glansmyndir af glaumi og gleði,
þegar fjallað væri um bjórinn.
Þar væri aldrei minnst á hina hlið-
ina, afleiðingar áfengisneyslunn-
ar, slysin og afvötnunina. Þá
sagðist hann hafa orðið undrandi
á fréttaflutningi hljóðvarpsins
um stofnun Bjórsamlagsins á sín-
um tíma. Stundum hvarflaði
nefnilega að honum að opinberir
starfsmenn þægju mútur þegar
auglýsingar af þessu tagi væru
fluttar sem fréttir!
Fleiri fengu ekki að taka til
máls um bjórinn að svo stöddu,
en búist var við að málið kæmi
aftur á dagskrá í gærkvöldi.
-ÁI
Föstudagur 10. maí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3