Þjóðviljinn - 10.05.1985, Side 4

Þjóðviljinn - 10.05.1985, Side 4
LEIÐARI Hyllingarsamtök í hrassakaupum ( dag mun að öllum líkindum ráðast á alþingi hvort hrossakaup hyllingarsamtaka Jóns Bald- vins Hannibalssonar verði að lögum í landinu. í umræðu um rýmkun útvarpslaga og nýjar sjónvarps- og hljóðvarpsstöðvar hefur það ver- ið algert grundvallarmál hvort leyfa ætti auglýs- ingar eða ekki. I þeirri þróun sem orðið hefur meðal annarra þjóða í fjölmiðlun hefur þetta grundvallarmál verið aðalatriði umræðunnar og það sem ráðið hefur endanlega afstöðu manna til rýmkunar- heimilda. Nýverið var greint frá því að danska blaðamannasambandið hafnaði algerlega auglýsingaútvarpi og -sjónvarpi og félags- hyggjuflokkar á Norðurlöndum og annars stað- ar hafa spornað við útþenslu auðhringanna og sterkari ítökum þeirra í fjölmiðlun í gegnum auglýsingar. Fram að þessu hefur Alþýðuflokkurinn staðið að nokkru vörðinn með Alþýðubandalaginu á alþingi gagnvart þeirri lýðræðisskerðingu sem felst í auglýsingaútvarpi einsog því sem ís- lenska auðvaldið hyggst og vill koma á laggirn- ar. í fyrradag kom hins vegar í Ijós að það sem einu sinni var Alþýðuflokkur og nú hefur breyst í hyllingarsamtök um Jón Baldvin Hannibalsson. er reiðubúið til að braska með þetta grundvall- armál á alþingi. Jón Baldvin Hannibalsson sjálfur kvað samtök sín tilbúin að styðja að auglýsingar verði leyfðar gegnt því að auglýsingataxtar verði undir verðlagseftirliti og að boðveiturnar verði í eigu sveitarfélaganna. Jafnframt lýsti Jón Baldvin sjálfur því yfir, að samtök hans myndu breyta um afstöðu í efri deild alþingis ef tillögurnar um eftirlitið og boð- veiturnar yrðu felldar í neðri deild þingsins. Þannig er að formsins vegna verða breyting- atillögur við auglýsingaútvarpið fyrst bornar undir atkvæði en síðan tillögurnar um boðveitu- kerfið. Með öðrum orðum hefur Jón Baldvin Hannibalsson lýst því yfir að samtök hans á alþingi séu reiðubúin til að skipta um skoðun Umhverfisvemd í Þjóðviljanum á þriðjudaginn var merk frétt, - gleðifrétt af hugviti íslenskrar alþýðu. Feðgarnir á HREGGSTÖÐUM í Kolbeinsstaðahreppi hafa búið til ofn og mót til að bræða plastpoka utan af áburði. ( mótunum búa þeir til ílát og girðingarstaura. Staurarnir hafa reynst mjög vel; þeir bogna á vetrum undan snjóþunga, en brotna ekki. í hitanum að vori réttist úr staurun- um og þeir eru jafngóðir eftir. Allir vita að í sveitum landsins hafa áburðar- pokar verið til mestu vandræða; það er erfitt að hemja þá og þeir liggja einsog hráviði um landið. Þá eru þeir illa forgengilegir. Með þeirri einföldu og snjöllu lausn feðganna milli deilda á þinginu gangi Sjálfstæðisflokkur- inn og Bandalag jafnaðarmanna ekki að kaupunum. Jón Baldvin hefur með þessu útspili sínu tekið ákveðið frumkvæði í myndun þeirrar „við- reisnarstjórnar", sem margir óttast að stefni í. í öðru lagi hefur hann sýnt þingi og þjóð fram á að pólitíska siðferðið sé ekki meira en svo að hyll- ingarsamtökin eru reiðubúin til hrossakaupa um grundvallarmál þegar þannig stendur í bólið hjá Jóni. og spamaður á Heggstöðum, er því hægt að gera stórátak í umhverfisvernd. Um leið gæti tækni þeirra leitt af sér sparnað fyrir bændur sem leggja töluvert fjármagn í girðingar. Girðingarefni hefur m.a. verið flutt inn í landið og þannig gæti uppfinning- in orðið til að spara gjaldeyri og bæta þjóðar- hag. Um leið og Þjóðviljinn vekur athygli á fram- taki feðganna á Heggstöðum, vill blaðið benda á að tækninýjungar og atvinna í framtíðinni þurfa ekki einungis að byggjast á skólalærðri sérfræði. Meðal almennings í landinu býr þekk- ing, reynsla og hugvit sem reynast okkur best í bráð og lengd. -óg. KLIPPT OG SKORIÐ NT kemur með þá skýringu í gær á misheppnuðum fundahöld- um Sjálfstæðisforkólfa um land allt um síðustu helgi, að lands- menn hafi verið límdir við beina útsendingu á Evrópukeppni sjón- varpsstöðva um dægurlög. Þetta eru í sjálfu sér merkileg tíðindi, því þótt þingmenn Sjálf- stæðisflokksins séu hverjir öðr- um líkir og ekki sérlega uppörv- andi í boðskap sínum, þá eru þeir æsispennandi menn í samanburði við þá sem framleiða lög og texta í fyrrnefnda keppni. Breskur blaðamaður sem sendur var til Gautaborgar á dög- unum til að fylgjast með keppni þessari hafði þá sögu að segja, að áður en gamanið hófst hafi allt verið komið í háaloft út af ásök- unum sem fóru á milli manna um hugmyndastuld. Ef klippari man rétt sökuðu Svíar Breta um að hafa stolið frá sér, Bretar sökuðu Þjóðverja og ísraelar Frakka. Sem er ekki nema von, sagði Bretinn, því lög í Evrópukeppni eru svo lík hvert öðru að enginn hefur til þessa fengið greint á milli þeirra. Það hefur líka verið sagt um þessa keppni, að það lag sigri í henni sem er líkast öllum hinum lögunum. Hvað sem því líður: það er þjóðhátíð í Noregi yfir óvæntum sigri norsks dægurlagafólks í þessari keppni. Fróðir menn telja, að hér sé fengin sú uppbót á laskað þjóðarstolt Norðmanna sem þá hefur vantað allar götur síðan íslendingar unnu áróð- ursstríðið um það hvers kyns Leifur sá var Eiríksson, sem fann Ameríku og týndi henni aftur. Gallabuxna- vandi Eins og allir blaðalesendur vita, þá er mikill vandi að vera til í nútímasamfélagi. Hver hópur, hver aldur eiga sér sín vandamál sem virðast helst eiga það sam- eiginlegt að sýnast því torleystari sem fleira er um þau rætt. En hvað um það: við sáum það í Morgunblaðinu í gær að fleiri kunna í vanda að rata en mennsk kind. í grein sem hét því fróðlega nafni „Gallabuxur í vanda”. Greinin segir frá því að stærsti framleiðandi gallabuxna hafi brugðist svo við þessum vanda buxnanna að hann hafi neyðst til að loka útibúum sínum hér og þar. Og eins og þar segir: „En þótt gallabuxurnar haldi enn velli, má telja að stórveldis- tími þeirra sé liðinn, í bili að minnsta kosti. Þetta viðurkennir einn af framkvæmdastjórum Levi Strauss í Bandaríkjunum, Robert Haas, en hann segir að eftir- spurninni sé nú fullnægt í bili.” Það er nefnilega það. Mark- aðsvaran vill gerast mennsk og eiga í vanda. Ekki bara gallabux- urnar. Okkur er til dæmis tjáð að kókakóla sé í miklum vanda. Svo miklum, að það ætli að breyta um formúlu. Eins gott að þorskblökkin komist ekki í vanda líka. Siðferðis- vandi Eins og blaðalesendur hafa tekið eftir, var Reagan Banda- ríkjaforseti gagnrýndur mikið og víða fyrir heimsókn sína í þýskan hermannagrafreit í Bitburg. Stöku raddir reyndu þó að verja karlinn með því, að hann hefði hugrekki til að ganga gegn straumi og viðurkenna að þýskir hermenn, jafnvel í SS-sveitum væru „eins mikil fórnarlömb Hitl- ers eins og fórnarlömb útrýming- arbúðanna” eins og Reagan sjálf- ur komst að orði. Það er ástæða til að minna á það, að með slíkum röksemdum eru menn komnir út á næsta hál- an ís. Það má vel vera rétt að það sé rangt að gera Þjóðverja sem heild samseka Hitler. En ef slík „hópsekt” er ekki til, þá er enn síður til „hópsakleysi.” Til eru þeir sem voru sekir rétt eins og saklausir eru og voru tii. Þegar reynt er að gera alla að fórnar- lömbum jafnt, eins og Reagan reynir, þá eru engin fórnarlömb til lengur. Og allar siðferðilegar spurningar eins og gufaðar upp úr umræðu um harmsöguleg tíðindi. Menningar- vandi Sigurður Þór Guðjónsson rit- höfundur var í grein í Morgun- blaðinu á dögunum að skammast út í kvikmyndagagnrýnendur sem aldrei gerðu mun á afþrey- ingu og list. I leiðinni minnti hann á þann sannleika, sem ekki verð- ur of oft brýndur fyrir mönnum, að mikið framboð - eins og á 200 myndbandaleigum, segir ekkert um fjölbreytni. Eins víst, að sá sem leitar að afreksverkum kvik- myndamanna finni ekkert annað en „rusl og enn meira rusl.” Sig- urður hefur mörg orð hörð um smekkleysi og gróðafíkn mynd- bandastjóra sem hann telur „eitt af mörgum dæmum um þá menn- ingarlegu úrkynjun sem læst hef- ur sig um þjóðina.” Hann minnist líka á það „öfuga snobb” sem ger- ist æ fyrirferðarmeira í fjölmiðl- um: „Orð eins og menning og list eru nánast skammaryrði í dag- legu tali og í umræðu fjölmiðla. Nú er það talið vitni um hroka og snobb að vilja auðga sálina af feg- urð og fræðslu. Það eru aðeins leiðinlegir menningarvitar sem lesa góðar bækur, njóta fagurra mynda, hlýða á háleita tónlist og horfa á vandaðar kvikmyndir. Það er orðið rækilega úrelt að leitast við að vera þroskaður maður.” Svartagallsraus kynni margur að segja. Já, og því ekki það? Hressilegt svartagallsraus í ís- lenskum menningarmálum er alt- ént kærkomin tilbreyting frá þeim meðvitundarlausa sælu- vaðli um auglýsingafrelsið far- sæla, sem þingmenn og ráðherrar ýmsir láta nú frá sér ganga af lítilli fyrirhyggju í umræðunni um út- varpslög. -áb. DJOÐVHJINN Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis og verkalýöshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans. Ritstjórar: Árni Berqmann, össur Skarphéðinsson. Ritatjórnarfulltrúi: Oskar Guömundsson. Fróttastjórl: Valþór Hlööversson. Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiöur Ingadóttir, Guöjón Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Lúövík Geirsson, Magnús H. Gísla- son, Möröur Árnason, ólafur Gíslason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir). Ljóamyndir: Einar Ólason, Einar Karlsson. Útllt og hönnuri: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Framkvæmdastjóri: Guörún Guömundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Haröarson. Skrlfstofa: Guörún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Útbreiðslustjórí: Sigríöur Pétursdóttir. Auglýsingastjórl: Ragnheiður Óladóttir. Auglýslngar: Anna Guðjónsdóttir, Ásdís Kristinsdóttir, Hreiðar Sigtryggsson. Afgreiðslustjóri: Ðaldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Símavarsla: Margrót Guðmundsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmæður: Bergljót Guðjónsdóttir, Ólöf Húnfjörð. innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Bflstjórl: Ólöf Sigurðardóttir. Útkeyrsla, afgrelðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð (lausasölu: 30 kr. Sunnudagsverð: 35 kr. Áskriftarverð á mánuði: 330 kr. Afgreiðsla blaðsins er opin á laugardögum frá kl. 9 til 12, beinn sími: 81663. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Föstudagur 10. maí 1985

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.