Þjóðviljinn - 10.05.1985, Page 7
Karl Kristjánsson
15 ára:
Já, ég er sennilega búinn
að fá vinnu í bókabúð, það á
að vera alveg öruggt. Eg býst
við að byrja þegar prófin
verða búin um 20. eða 21.
maí. Ég hef unnið þarna áður,
af og til með skólanum í vetur.
Sigrún Unnur
Einarsdóttir,
16 ára:
Já, já, ég er búin að fá vinnu
í Kirkjugöröum Reykjavíkur-
borgar. Ég vann þar í fyrra-
sumar og sótti um aftur og
fékk strax vinnu. Byrja um
mánaðamótin - þetta er
ágætlega borgað.
Ertu
búin/n
aöfá
vinnu?
Unglingar í
atvinnuhugleiðingum
Nú eru skólarnir alveg að
verða búnir, samræmdu próf-
unum ægilegu allavega lokið
og unglingar komnir í at-
vinnuhugleiðingar. Glætan
brá sér í bæjarferð með Val-
dísi Ijósmyndara og hitti
nokkra fulltrúa ungu kynslóð-
arinnar á förnum vegi. Við
fengum leyfl til að leggja fyrir
þá spurningar um sumar-
vinnu og hér koma svörin:
Þór Víkingsson,
18 ára:
Ég hætti í skóla í vetur þeg-
ar kennararnir sögðu upp en
ætla að byrja næsta haust.
Sem stendur vinn ég í spilasal
og held kannski eitthvað
áfram í sumar en þetta er ekk-
ert framtíðarstarf. Ég geri mér
vonir um að fá vinnu hjá
bróður mínum sem á Ijósritun-
arfyrirtæki.
Kristín Þórsdóttir,
15 ára:
Ég fékk vinnu á (rafossi.
Það er svona unglingavinna á
vegum Landsvirkjunar,
hreinsa í kring og svoleiðis.
Kaupið er 70 krónur á tímann.
Ég á heima fyrir austan og
pabbi vinnur hjá Landsvirkj-
un, svoleiðis frétti ég um
þetta.
Föstudagur 10. maí 1985, PJÓÐVILJINN - SÍÐA 7