Þjóðviljinn - 10.05.1985, Blaðsíða 9
Amnesty International
Fangar
maímánaðar
Landsbyggðin
Ný þjónusta
Mannréttindasamtökin
Amnesty International vilja
vekja athygli almennings á
máli eftirtalinna samvisku-
fanga í maí. Jafnframt vonast
samtökin til að fólk sjái sér
fært að skrifa bréf til hjálpar
þessum föngum og sýna
þannig í verki andstöðu við að
slík mannréttindabrot eru
framin.
beðnir um að hafa samband
við skrifstofu íslandsdeildar
Amnesty, Hafnarstræti 15,
Reykjavík, sími 16940. Þarfást
nánari upplýsingar sem og
heimilisföng þeirra aðila sem
skrifa skal til. Einnig er veitt
aðstoð við bréfaskriftir ef ósk-
að er eftir. Skrifstofan er opin
frá 16:00-18:00 alla virka daga.
Vitund
á
Vatnsberaöld
Á mánudags- og þriðjudags-
kvöld heldur Jeanne de Muras-
hkin fyrirlestra í Fríkirkjunni í
Reykjavík. Fyrra kvöldið verður
fjallað um hærri og lægri skyggni-
gáfu en hið síðara um vitundar-
byltingu á Vatnsberaöld. Jeanne
hefur mál sitt um áttaleytið bæði
kvöldin.
Norræni heilunarskólinn er
fundarboðandi en þann skóla
stofnaði Jeanne árið 1979. Hér á
landi hefur starfað heilunarskóli
frá því í janúar.
Nú stendur fyrirtækjum svo og
einstaklingum úti á landi til boða
að láta Sendibíla h/f útrétta fyrir
sig í Reykjavík. Það sem felst í
þessari auknu þjónustu er m.a.
að hægt er að hringja í Sendibfla
h/f í síma 91-24100 eða 91-11580
og láta sækja fyrir sig smávörur
svo og stærri hluti sem þarf að
koma á BSÍ, flugfragt eða ein-
hverja af vöruflutningamiðstöðv-
unum. Framkvæmdin er þannig
að viðkomandi þarf að vita verð-
ið á þeim hlut sem kaupa skal
síðan hringja í annað ofan-
greindra símanúmera og lætur í té
óskir sínar og fær upp gefinn áætl-
aðan kostnað við akstur sending-
arinnar og leggur síðan heildar-
upphæðina inná reikning Sendi-
bfla h/f með C-gíróseðli.
Allar nánari upplýsingar varð-
andiþjónustuþessa erhægtaðfá
hjá símastúlkum stöðvarinnar.
Stöðin er opin alla daga vikunnar
frá kl. 7.30 - 23.30.
I
Nígería. Dr. Tai Solarin er 63
ára gamall kennari, gagnrýnandi
og blaðamaður. Hann var hand-
tekinn á heimili sínu af lögregl-
unni í Nígeríu 12. mars 1984.
Engin opinber skýring var gefin á
handtökunni en hún er álitin vera
f tengslum við greinar sem Dr.
Solarin hefur skrifað og birtust í
blöðunum Sunday Tribune (26.
feb. 1984) og Nigerian Tribune
(12. maí 1984). f greinunum kom
fram gagnrýni á stefnu stjórnar-
innar. Eiginkona Dr. Solarins
sendi „habeas corpus“ beiðni til
yfirvalda og var handtaka hans
úrskurðuð ólögmæt af Hæstarétti
í Lagos og hann þar af leiðandi
látinn laus. Hann var handtekinn
samdægurs (24. apríl 1984) og
hefur verið í haldi síðan án dóms
,og laga. Yfirvöld segja að hann sé
í haldi af öryggisástæðum. Amn-
esty samtökin álíta Dr. Solarin
vera í haldi vegna skoðana sinna.
Jórdanía. Hashim Gharaibeh
er 37 ára gamall háskólanemi og
ríkisstarfsmaður. Hann afplánar
10 ára fangelsisdóm fyrir þátt-
töku í kommúnistaflokki Jórdan-
íu. Samkvæmt lögum Jórdaníu er
kommúnistaflokkurinn bannað-
ur sem og öll starfsemi og rit sem
að honum lúta. Hægt er að dæma
menn í allt að 10 ára þrælkunar-
vinnu við brot á þessum lögum.
Hashi Gharaibeh var handtekinn
í mars 1978, og dæmdur af her-
rétti í Amman. Hann hefur ekki
rétt til að áfrýja dómnum. Amn-
esty samtökin álíta Hashim
Gharaibeh vera í haldi vegna
stjórnmálaskoðana sinna.
Kúba. Dr. Ricardo Bofill Pagés
er félagsfræðingur og fyrrverandi
prófessor. Hann var handtekinn
24. september 1983 í Havana og
fréttir herma að hann hafi fengið
12 ára dóm. Handtaku virðist
vera í tengslum við fund sem Dr.
Ricardo Bofill Pagés átti við tvo
franska blaðamenn 21. septemb-
er 1983, en þeir voru einnig hand-
teknir og yfirheyrðir. Yfirvöld
segja ástæðuna fyrir handtökunni
vera „andbyltingarlegt athæfi“
Dr. Ricardo Bofill Pagés. Hann
hefur verið handtekinn áður,
1967 fyrir stjórnmálaskoðanir
sínar en þá sat hann inni í 5 ár og
1980, fyrir að eiga erlendan gjald-
eyri en þá sat hann inni í 2 ár.
Honum hefur mörgum sinnum
verið neitað um leyfi til að yfir-
gefa landið og flytja til eiginkonu
sinnar sem býr erlendis. Amnesty
samtökin álíta ástæðuna fyrir
handtöku Dr. Ricardo Bofill
Pagés vera andstaða hans við kú-
bönsku stjórnina.
Þeir sem vilja leggja málum
þessara fanga lið, og þá um
leið mannréttindabaráttu al-
mennt, eru vinsamlegast
h
#K'
7 -18 MA! 1985
HAGKAUP (jEHGUR I LIÐ MEÐ I5LEH5HUM IÐHAÐI
Það er góð stemmning
á /5LEM5KUM DÖGUM í MAGKAUP:
WÖMUMYMMIMCöAM - TÍ5MU5ÝMIMGAM - 5KEMMmmiÐI
NÚ
BOLT/NN
HJæ\
ÞER
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9