Þjóðviljinn - 24.05.1985, Síða 1
ÞJÓÐMÁL
GLÆTAN
UM HELGINA
VSÍ-tilboð
Engin kauptrygging!
Afstaða Verkamannasambandsins kom hreyfingu á
Vinnuveitendasambandið. Aðeins átta tilþrettánprósent
hœkkun áþessu ári. 9% á nœsta.
GuðmundurJ. Guðmundsson: Uppsagnarákvœði einskis virði. Þeir viljafesta lélega kaupmáttinn
r
Igær lagði VSI fram samnings-
tilboð á fundi með forystu-
mönnum ASÍ. í því er ekki komið
til móts við meginkröfu verka-
lýðssamtakanna um kauptrygg-
ingu, en hins vegar opnað fyrir
mjög þröngan möguleika á upp-
sögn fari verðbólga fram úr
ákveðnu marki. Samkvæmt til-
boðinu yrðu launahækkanir á
þessu ári samtals átta prósent og
níu prósent á árinu 1986. Jafn-
framt er gert ráð fyrir að þeir sem
taka laun undir 25. launaflokki
hækki um tvo launaflokka síðar á
þessu ári. Hver launaflokkur
jafngiidir hækkun um 2,4 prós-
ent. Tilboðið er nánar skýrt á
blaðsíðu 2.
Eins og Þjóðviljinn hefur skýrt
frá eru uppi mismunandi viðhorf
innan verkalýðshreyfingarinnar
um tímasetningu kjarasamninga.
Ýmsir forystumenn hafa viljað
fara í samninga strax í sumar.
Innan Verkamannasambandsins
hafa menn hins vegar haft þá
stefnu, að fyrst bæri að ræða og
móta kröfugerðina í félögunum
og fyrr væri ekki tímabært að fara
í samninga. Margir telja að þessi
afstaða VMSÍ hafi komið hreyf-
ingu á VSÍ. Innan þess hafi menn
viljað gera allt til að forðast átök
við VMSf í haust, og því komið
fram með tilboð sem ýmsir innan
verkalýðshreyfingarinnar töldu í
viðtölum við Pjóðviljann í gær að
væri furðuhátt miðað við upphaf-
stilboð, og kváðu margir það not-
hæft sem umræðugrundvöll, að
minnsta kosti fyrir árið 1985.
„Tilboðið er langt frá því að
færa fólki aftur þann hluta af
kaupinu sem búið er að taka af
því“, sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson í viðtali við Þjóðvilj-
ann. Hann benti jafnframt á, að
Verðhækkanir
Stórhækkun
búvöruverðs
r
Eg vil ekki nefna neinar tölur en
það er ljóst að búvöruverð
kemur til með að hækka verulega
um næstu mánaðamót. Þegar er
vitað um 4,4% hækkun á verð-
lagsgrundvellinum vegna úr-
skurðar yfírnefndar, um hækkun
á launalið bænda vegna launa-
skriðs hjá viðmiðunarstéttunum,
og hækkunar á flutningslið.
Þetta sagði Ingvi Tryggvason
formaður Stéttarsambands
bænda þegar Þjóðviljinn leitaði
álits hans á væntanlegri búvöru-
hækkun sem taka á gildi 1. júrií.
Er jafnvel reiknað með allt að
16% hækkun.
S.G.
það væri engin kauptrygging inni
í tilboðinu, en hins vegar upp-
sagnarákvæði, sem að hans sögn
er einskis virði. Hann kvaðst ekki
heldur sjá betur en með tilboðinu
væri verið að reyna að festa
kaupmáttinn eins og hann var á
fjórða ársfjórðungi 1983, þegar
hann var nánast í lágmarki. „Það
er ekki heldur gert ráð fyrir að
launafólk fái hlutdeild í hinni
auknu þjóðarframleiðslu sem
hefur átt sér stað“, sagði Guð-
mundur ennfremur, „og ég verð
að segja að mér finnst þetta und-
arleg aðferð hjá VSÍ. Þeir vilja
endilega nota heildsöluformið,
semja bara við alla hreyfinguna á
einu bretti og neita svo að semja
um sérmál einstakra félaga".
Hann sagði að tilboðið yrði rætt á
formannafundi VMSI á næsta
þriðjudegi og „þá sjáum við
hvernig framhaldið verður. En
það er urgur í fólki, og það er gott
að sjá það af þessu tilboði að VSÍ
hefur skilist að okkur er alvara".
-ÖS
Brynjólfur Vilhjálmsson fyrir framan fjölbýlishúsið í Álftamýri:
Notuðum 1400 tonnum minna af heitu vatni sl. vetur en áður vegna hlýindanna.
Hlýindin
Viðspöruðum yfir 20 þúsund kr.
32 íbúðafjölbýlishús notaðiMOO tonnum minna afheitu
vatnifrá því í desember til maí en árið áður.
Brynjólfur Vilhjálmsson: Gátum látið Hitaveituna lœkka áœtlunina á okkur
I græða, án þess að taka svo
mjög eftir því. Gróðinn fólst í
hinu hagstæða tíðarfari vetrarins
og vorsins, hann kemur mjög
fram í lægri kyndingarkostnaði
en í venjulegu eða köldu árferði.
Frá 16. desember sl. til 16. maí
notaði fjölbýlishúsið Álftamýri
24-30, samtals 32, íbúðir 1400
tonnum minna af heitu vatni en á
sama tíma í fyrra. Og upphæðin
sem sparast við þetta er 23.800
krónur. Tonnið af hitaveituvatn-
inu kostaði 15 krónur fram að
febrúar en hækkaði þá í 17 krón-
ur.
Brynjólfur Vilhjálmsson sem
býr að Álftamýri 26 sagði í sam-
tali við Þjóðviljann í gær að árið
1981 hefði verið sett stillikerfi á
alla ofna hússins og þá hefði
vatnsnotkunin minnkað úr 24
þúsund tonnum á ári niður í
14091 tonn. Sú aðgerð hefði verið
fljót að borga sig.
Þessi minnkandi notkun á
heitu vatni nú væri eingöngu að
þakka góðu tíðarfari sagi Brynj-
ólfur. Hann sagðist í ljósi þessa
hafa farið á skrifstofu Hitaveitu
Reykjavíkur og látið lækka áætl-
unina. Áætlunin hefði gert ráð
fyrir þremur greiðslum sem eftir
lifir ársins, uppá 33 þúsund krón-
ur hver. Sagðist Brynjólfur hafa
fengið áætlunina lækkaða niður í
tvær 16 þúsund króna greiðslur
og eina 20 þúsund króna greiðslu.
„Það er ástæðulaust að láta
þessa peninga liggja vaxtalausa
inni hjá Hitaveitunni, ekki síst
þar sem við þurfum að láta mal-
bika dálítið hjá okkur", sagði
Brynjólfur að lokum. Þetta atriði
gætu sjálfsagt fleiri athugað.
-S.dór