Þjóðviljinn - 24.05.1985, Page 2
HVERNIG
ENDAST
LAUNIN?
Halla Jónasdóttir
Algjört
stjórnleysi
„Ég get ekki veitt mér neitt,
maður getur varla þjónað frum-
þörfum sínum, og finnst mér á-
standið sífellt að versna. Megin-
þættirnir í okkar neyslu eru alltaf
að hækka, þetta er algjört stjórn-
leysi.
f nútíma samfélagi finnst mér
til háborinnar skammar þessi
launamismunur kvenna og karla
úti í atvinnulífinu og finnst mér
hlutskipti þeirra kvenna sem
verða að vera heima að gæta
barna hroðalegt, þær sjá aldrei
manninn því hann verður að
leggja á sig tvöfalda vinnu og
bitnar þetta á heimilislífinu, ég
held ég geti sagt að þjóðfélagið í
heild sé í upplausn“. -sp-
Harpa Nordal
Hætt að fara
til tannlæknis
„Það gengur ekki vel, endarnir
ná ekki saman þó maður spari í
hvívetna, gangi í löfrunum allan
ársins hring“, sagði Harpa Nor-
dal.
„Það er míklu erfiðara að lifa
núna en fyrir nokkrum árum, ég
hef ekki efni á að veita mér neitt.
Öll þjónusta hefur hækkað svo
gífurlega og sem dæmi þá er ég
hætt að fara til tannlæknis, hef
hreinlega ekki efni á því.“ -sp.
Þorsteinn Sveinsson
Hækka kaupið,
lækka vörurnar
„Það gengur misjafnlega, ég
þarf barafyrirsjálfum mér aðsjá,
maður hefur fyrir leigu og mat en
ekki meiru, launin endast engan
veginn ef ég ætla að kaupa mér
eitthvað“, sagði Þorsteinn
Sveinsson.
„Það þarf að hækka kaupið og
lækka vörurnar, alla vega að
hækka kaupið í samræmi við
vörurnar.“ _sD.
FRETTIR
Kjörin
Tilboð VSI
8prósent hœkkun áþessu ári. 9prósent hœkkun á næsta.
Hækkun um tvo launaflokkafyrirþá
sem eru neðan við 25. launaflokk. Engin kauptrygging.
Tilboð VSÍ sem lagt var fram í
gær leggur til að eftirfarandi
kauphækkanir verði samkvæmt
samningi, sem á að ná til 31. des-
ember 1986:
Almennar launahækkanir
verði svofelldar:
Hinn 1. júní 1985 5 prósent
Hinn 1. sept. 1985 3 prósent
Hinn 1. janúar 1986 5 prósent
Hinn 1. júlí 1986 4 prósent
Auk þessa verði reiknitala í
bónusi í fiskvinnu og saumaskap
sem hér segir:
Hinn 1. júní 1985 80 krónur
Hinn 1. sept. 1985 84 krónur
Hinn 1. janúar 1986 88 krónur
Hinn 1. júlí 1986 92 krónur
Reiknitala í dag er 74 krónur.
Flokkahækkanir
Auk þessa býr VSf til það sem
það kallar „launajöfnunarbæt-
ur“. Samkvæmt því eiga allir sem
taka laun skv. 24 launaflokki eða
lægri í kjarnasamningi að flytjast
upp um einn flokk fyrst 1. júní á
þessu ári og síðan aftur um einn
flokk 1. september á þessu ári.
Hver flokkur jafngildir 2,4 prós-
enta launahækkun.
Engin
kauptrygging
Engin kauptrygging er inni í til-
boði VSÍ. Hins vegar er tekið
fram að það grundist á eftirfar-
andi spá um þróun vísitölu fram-
færslukostnaðar, miðað við 100
þann 1. febrúar 1984:
1. des. 1985 : 150 stig
1. júní 1985 : 157 stig
Fari vísitala framfærslu-
kostnaðar meira en tveimur stig-
um fram úr þessari spá, þá „telj-
ast forsendur samningsins hafa
brugðist". Jafnframt segir að við
mat á þróun framfærslu-
kostnaðar skuli jafnframt vera
búið að draga frá þá hækkun, sem
kunni að leiða af „tekjuöflun rík-
issjóðs til að mæta kostnaði af
aukinni félagslegri þjónustu eða
aukinni fjáröflun til húsnæðis-
mála“.
Síðan segir jafnframt að
„bregðist forsendur skal taka til
athugunar hvort beinir skattar
hafa lækkað eða muni lækka hlut-
fallslega miðað við atvinnutekj-
ur“.
Opnun -
uppsögn
Hafi forsendurnar, sem að
ofan eru raktar, brugðist á ann-
Og ég sem hélt að menn
leggðu fyrst fram kröfur og
semdu síðan en ekki öfugt eða
þannig sko....
arri hvorri dagsetninganna sem
nefndar eru, þá hafa ASÍ og VSÍ
frest til 29. sama mánaðar til að
ná samkomulagi um úrbætur.
Náist það ekki, þá getur ASÍ sagt
upp samningnum með eins mán-
aðar fyrirvara, og frekari launa-
hækkanir koma þá ekki til fram-
kvæmda.
Guðmundur J.
Uppsagnarákvæðineinskis virði
Viljum lýðrœðislega umrœðu ífélögunumfyrst. Heildsöluformið er
hins vegar allsráðandi hjá VSI.
Vilja semja á einu bretti. Félögin þurrkuð af samningaborðinu.
Verkamannasambandið telur
að kröfugerðina og stefnuna í
kjaramálunum þurfi að ræða
innan félaganna sjálfra, áður en
gengið er til samninga. Verka-
lýðshreyfingin má ekki verða
þannig að allt vald sé á hendi ör-
fárra forystumanna sem taka all-
ar ákvarðanir. Það er ekki lýð-
ræði. Það þarf lýðræðislega um-
ræðu í félögunum um hluti einsog
þessa.
Þetta sagði Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður VMSÍ,
í viðtali við Þjóðvíljann.
„Vinnuveitendasambandið vill
hins vegar hafa þetta allt í
heildsöluformi. Þeir vilja semja á
einu bretti við alla hreyfinguna
og neita svo sérsamningum um þá
hluti sem brenna heitt á einstök-
um félögum. Við viljum hins veg-
ar fara lýðræðisleiðina og láta fé-
lögin sjálf móta stefnuna. Af ást
sinni á launþegum vilja þeir hjá
VSÍ hins vegar ekki láta þetta
bíða stundinni lengur. Þeir vilja
semja strax og við alla í einu.“
„Tilboðið er langt frá því að
færa verkafólki þann hluta
launanna sem búið er að taka af
því. í því er heldur engin
kauptrygging sem er ein höfuð-
krafan hjá okkur. Það eru að vísu
uppsagnarákvæði í tilboðinu, en
þau eru einskis virði. Og
kaupmátturinn verður ekki meiri
samkvæmt tilboðinu en hann var
á fjórða ársfjórðungi 1983, sem
var þó einn sá lægsti um langt
árabil. Og uppsagnarákvæðin eru
líka algerlega í höndum ASÍ,
þannig að félögin sjálf eru nánast
þurrkuð út af samningaborðinu",
sagði Guðmundur að lokum,
þungur á brún.
-ÖS
Fyrirlestur um líftækni
Þýskur prófessor í ensímtækni, lesturinn er haldinn á vegum
dr. María Regína Kula frá Braun- Alexander von Humboldt félags-
schweig í V-Þýskalandi, heldur í ins hér á landi, og Háskóla Is-
dag klukkan 16:15 fyrirlestur um lands. Hann verður fluttur á
nýjustu rannsóknir þýskra vís- þýsku, í Odda, Hugvísindahúsi
indamanna á sviði ensíma. Fyrir- Háskóla íslands.
VSÍ-tilboðið
Loftleiðir/Flugleiðir
4 miljónir
til Luxemborgar
Um þessar mundir eru 30 ár
síðan reglubundnar flugsam-
göngur hófust á milli Luxemborg-
ar og Islands en Loftleiðir opnuðu
skrifstofu ytra í byrjun maí 1955.
Alls hefur félagið flutt 4 miljónir
farþega til og frá Luxemborg.
Þegar Luxemborgarflugið
hófst var flogin ein ferð á viku
með Skymaster DC-4 flugvélum.
Á þeim tíma var ekkert flugfélag
starfandi í Luxemborg og flug-
völlurinn þar lítt notaður en yfir-
völd höfðu áhuga á að efla þenn-
an þátt atvinnulífsins og greiddu
götu Loftleiða eftir mætti. Fyrsta
árið flutti félagið 589 farþega til
Luxemborgar en í ár er gert ráð
fyrir að þeir verði 285 þúsund.
-v.
Dýrin kunna ekki umferöarreglur. Þess vegna þarf að sýna aðgæslu
í nánd þeirra. Hins vegar eiga allir hestamenn að kunna umferðar-
reglur og ríða hægra megin og sýna bílstjórum sams konar viðmót
og þeir ætlast til af þeim.
yUMFERÐAR
RÁÐ
Verður rætt
Ásmundur: fá afstöðu sambandanna áður en
heildarsamtökin véla um
Tilboð VSÍ er að áliti Ásmund-
ar Stefánssonar eitt af því scm
sambönd og félög í Alþýðusam-
bandinu þurfa að móta til afstöðu
í framhaldi af umræðunum á
formannaráðstefnunni. Það er
eina skoðunin sem hann lét í gær
uppi við Þjóðviljann um tilboðið.
„Við höfum ekki fjallað efnis-
lega um tilboðið í okkar hópi“
sagði Ásmundur. „Einsog fram
kom í fréttum af formannafundi
okkar á mánudaginn verða málin
nú rædd í hverju sambandi og í
félögunum í ljósi þeirra viðhorfa
sem fram komu á ráðstefnunni.
Mér sýnist augljóst að í þeirri um-
ræðu hljóti að verða fjallað um
tilboð VSÍ og ég minni á í því
sambandi að eitt af þeim atriðum
sem ágreiningur var um á form-
annafundinum á mánudaginn var
hvort rétt væri að freista samn-
i ingaviðræðna í vor eða ekki. Um-
ræðurnar eru því ekki bara um
efni heldur líka um meðferð
máls.“
En hver er þín skoðun á tilboð-
inu frá VSÍ?
„Mín skoðun er sú að það verði
að ræða málin nánar í sambönd-
unum áður en fjallað er um þau
frekar á vettvani heildarsamtak-
anna.“
Telurðu líkur á að verkalýðs-
hreyfingin gangi til samninga á
grundvelli svipuðum þessum?
„Einsog ég sagði: það er uppi
sitthvort sjónarmiðið í hreyfing-
unni um það hvort rétt sé að
freista samninga nú í vor eöa
draga það frammá haustið. Ég
held að það sé ekki tímabært, og
ekki hægt, að leggja niður fyrir
sér hvernig málin æxlast innan
sambandanna og á milli þeirra.“
-m
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 24. maí 1985