Þjóðviljinn - 24.05.1985, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 24.05.1985, Blaðsíða 8
GLÆTAN Bjarni Bragason Fer í vinnumennsku „Pað er engin spurning um það hvert ég fer, ég fer í vinnumennsku austur í Hruna í Hrunamannahreppi“, sagði Bjarni Braga- son. „Ég hef dvalið þar öll sumur frá því ég man eftir mér, og myndi alls ekki vilja vera í bænum á sumrin, þegar maður hefur kost á því að dvelja í sveitasælunni. Það er gott félagslíf þarna og mikið af krökkum, annars er aldursskiptingin ekki eins mikil í sveit- inni eins og í bænum“. -sp Gunnlaugur Guömundsson Ber út Moggann „Ég ætla bara að vera heima, jú og ég ætla að bera út Moggann, ég veit eícki hvert straumurinn liggur, ég held bara að hann liggi ekkert! Það er búið að fyrirbyggja flestar útihátíðir um hvítasunnuna með því að loka flestum stöðum“, sagði Gulli. „Þannig að ég slappa bara af um helgina, í sumar ætla ég að leika mér og skreppa til Ítalíu í júlí“. -sp FERÐAVASABOK FJÖLVÍS 1985 . Við höfum meira en 30 ára reynslu í útgáfu vasabóka, og sú reynsla kemur viðskiptavinum okkar að sjálfsögðu til góða. Og okkur hefur tekist einkar vel með nýju Ferðavasabókina okkar og erum stoltir af henni. Þar er að finna ótrúlega fjölbreyttar upplýsingar, sem koma ferðafólki að ómetanlegu gagni jafnt heima sem erlendis. Meðal efnis t.d.: 40 íslandskort - Kort af öllum hringveginum - Heimshluta- kort - Sendiráð og ræðismannaskrif- stofur um allan heim - Ferðadagbók - Ferðabókhald - Öryggiskort - Gjald- eyristöflur - Kaupstaðakort - Evrópu- vegirnir - Neyðar- og viðgerðaþjón- usta - Vegalengdatöflur - Bandaríska hraðbrautakerfið - o.m.fl. sem of langt er upp að telja. Sigurður Pálsson Fresta ferðinni um viku „Ætli ég verði ekki bara heima um hvítasunnuna nema eitthvað verði ákveðið á síðustu stundu. Kannski fer ég uppí sumarbústað með foreldrum mínum“. „Ég hef ekki hugmynd um hvert á að fara eða hvort krakkarnir ætla að fjölmenna eitthvað, allt virðist vera lokað“. „Én við ætlum nokkur í útilegu eftir viku en vitum ekki ennþá hvað kemur út ur því“. Benedikt Baldursson Eitthvað út úr bænum „Nei, ég er ekki búinn að ákveða hvert ég fer en við ætlum vinirnir eitthvað út úr bænum en eigum eftir að koma saman og ákveða hvert. Ég hef ekki hugmynd hvert straumurinn liggur og við ætlum heldur ekki að fylgja honum". „Ég er búinn að fá vinnu hjá Búnaðarbankanum og byrja 3. júní. Verð þar að sendast og hjálpa til“. G\œ'a . \ g\ce\unrrt Jæja krakkar, nú er skólinn úti, og gömlu skruddurnar geta nú rykfallið með góðri sam- visku fram á haustið, undir rúmi eða hvar sem er. Við gerum ráð fyrir að algjört andleysi sé nú framundan hjá flestum ykkar, og fjölmiðla- mötunin í algleymingi. Hvernig væri nú að nota tækifærið og lofa sköpunar- og skáldagyðjunni að hrista fram nokkrar setningar á blað? Krakk- ar, sendið okkur nokkrar línur um allt milli himins og jarðar. Við tökum við hverju sem er, leiðbeiningum og svörum, pælingum, vanda- málum, bömmerum, draumórum - öllu sem er að angra heilastarfseniina og reynum að koma glætu í lífið hjá ykkur, um leið og þið komið glætu í Glætuna. Hristið nú upp í litlu heilasellunum og við munum bjrta. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 24. maí 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.