Þjóðviljinn - 24.05.1985, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 24.05.1985, Blaðsíða 9
Þjóðhagsáætlun Framhald af bls. 6 4% jukust útgjöld þjóðarinnar um V/2% (um 6%, ef birgða- breytingar eru taldar með). Þjóð- arframleiðsla jókst um 2Vi% í stað þess að í þjóðhagsáætlun var reiknað með 2Vi% samdrætti. Breytingarnar frá því, sem reiknað var með í þjóðhagsáætl- un, eiga sér í meginatriðum tvenns konar skýringar. Annars vegar þróuðust ytri skilyrði þjóð- arbúskaparins, afli og viðskipta- kjör, með öðrum hætti en við var búist. Hins vegar tókst ekki að fylgja þeirri aðhaldssömu efna- hagsstefnu, sem áætlunin byggð- ist á. Hvort tveggja kemur við sögu í þessum samanburði eins og ræki- lega er skýrt í riti Þjóðhagsstofn- unar, „Ágrip úr þjóðarbú- skapnum Nr.l, 1985“, sem út kom í aprílmánuði síðastliðnum, en þar segir m.a.: * Þjóðarframleiðsla jókst í fyrra, í fyrsta sinn síðan 1981. Aukningin nam rúmlega 2Vi. Ein meginskýring þessarar aukningar var aukinn fiskafli og útflutningsframleiðsla, einkum á síðustu mánuðum ársins. * Mikilvæg skýring vaxandi um- svifa í þjóðarbúskapnum 1984 var mjög aukin innlend eftir- spurn. Utgjöld til neyslu og fjárfestingar fóru verulega fram úr fyrri spám. í heild eru þjóðarútgjöld talin hafa aukist um 3>/2%. * Aukna eftirspurn má einkum rekja til meiri tekjubreytinga á síðasta ári en gert hafði verið ráð fyrir. Að baki þessara breytinga eru meðal annars er- lendar lántökur og útlána- aukning innanlands. Nú er áætlað, að kaupmáttur ráð- stöfunartekna heimilanna í fyrra hafi verið svipaður að meðaltali, reiknaður á mann, og á árinu 1983, í stað þess að búist hafði verið við 3-4% lækkun í fyrri spám. * Útflutningsframleiðslan jókst um nær 12% í fyrra og sjávar- vöruframleiðslan um 11%. * Þótt útflutningur hafi aukist talsvert 1984 frá lægðinni 1983 varð halli á viðskiptum við út- lönd mikill. Viðskiptahallinn 1984 svaraði til 6% af þjóðar- framleiðslu. Hér olli einkum veruleg aukning almenns vöru- innflutnings og mikil vaxta- byrði af erlendum skuldum. Af þessari stuttu lýsingu má ráða, að þótt útflutningsfram- leiðsla 1984 ykist meira en menn þorðu að vona varð verulegur halli á viðskiptum við útlönd. Astæðan var fyrst og femst vax- andi innflutningur í kjölfar aukinna eftirspurnar innanlands. Vaxandi eftirspurn innanlands fylgdi einnig aukin framleiðsla og atvinnutekjur. Sá böggull fylgir þó skammrifi, að viðskiptahalli og verðbólga eru enn meginvand- amál í íslenskum þjóðarbúskap. Þannig virðast horfur á veru- legum viðskiptahalla árið 1985. Af þessu er ljóst, að sé það við- urkennt að draga þurfi úr við- skiptahalla gagnvart útlöndum, verður því ekki jafnframt haldið fram, að ástæðulaust hafi verið að freista þess að halda aftur af útgjöldum þjóðarinnar. Hvernig það skuli gert verður vitaskuld ætíð umdeilt. Spár Þjóðhagsstofnunar um framvindu efnahagsmála eru auðvitað misjafnlega vel heppn- aðar, og því fer fjarri, að hún sé forvitri um fiskgengd og við- skiptakjör. Kjarni málsins er hins vegar sá, að þjóðhagsáætlun ríkisstjórnarinnar á ekki að meta á sama hátt og veðurspá Veður- stofunnar. SJONVORP EIGENDUR ITT SJÓNVARPSTÆKJA ERU EKKI í VAFA. VIÐ ERUM ÞAÐ EKKI HELDUR. T2) H F SJÓNV ARPSDEILD SKIPHOLTI 7 - SÍMAR 20080 8c 26800 Umboðsmenn um allt land. Barnfóstrunámskeið Rauði kross íslands heldur námskeið fyrir barnfóstrur dagana 28., 29., 30. og 31. maí n.k. í Nóatúni 21 Reykjavík. Námskeiðið er ætlað 11 ára og eldri. Kennt verður á tímanum 19-22. Námskeiðsgjald er kr. 600.- Innritun og nánari upplýsingar í síma 26722 frá kl. 9-16 föstudag og þriðjudag. SOVESK BÓKA- SÝNING Sýningamar „Myndlist í Rússlandi11 og ;,Sov- éskar bækur“ verða opnar í húsi MIR að Vatnsstíg 10 um hvítasunnuhelgina (laugar- dag, sunnudag og mánudag) kl. 14-19. Næstsíðasta sýningarhelgi. Aðgangur ókeypis. - M(R_ Aðalfundur Verkamannafélagsins Dagsbrúnar verður haldinn á Hótel Sögu fimmtudaginn 30. maí n.k. og hefst kl. 20.30. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verða kynnt drög að kröfugerð félagsins. Kaffiveitingar. Reikningar liggja frammi á skrifstofu félagsins. Stjórn Dagsbrúnar. Utboð Tilboð óskast í steypuviðgerðir og málun á húsi Landsbankans að Laugavegi 77, Reykjavík. Útboðsgagna má vitja hjá skipu- lagsdeild bankans að Álfabakka 10 (efri hæð) gegn 2.000,- króna skilatryggingu. Til- boð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 4. júní kl. 11:00. Landsbanki íslands Sjúkrahúsið Patreksfirði óskar að ráða hjúkrunarfræðing og sjúkraliða til starfa sem fyrst eða eftir samkomulagi. Einnig vantar hjúkr- unarfræðing og Ijósmóður til sumarafleysinga. Gott húsnæði fyrir hendi. Nánari upplýsingarveitir Sigríður Karlsdóttir hjúkrunarforstjóri í síma 94-1110 eða 94- 1386.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.