Þjóðviljinn - 24.05.1985, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 24.05.1985, Blaðsíða 13
Þrír og hálfur breti Þjóðleikhúsið frumsýnir Chicago í kvöld í kvöld, föstudag, frumsýnir Þjóðleikhúsið bandaríska söngleikinn Chicago eftir Bob Fosse, Fred Ebb og John Kander. Við uppsetningu hans koma við sögu þrír bret- ar, leikstjórinn og dansahöf- undurinn Kenn Oldfield, tón- listarstjórinn Terry Davies og leikmynda- og búninga- hönnuðurinn Robin Don. Allir hafa þessir menn unnið hér á landi áður. Þetta er annað samstarfsverkefni þeirra Kenn Oldfield og Benedikts Árnasonar í Þjóðleikhúsinu á tveimur árum en þeir stjórnuðu uppsetningu á Gæjum og píum á sínum tíma. Hann hefur dansað í Chicago og sjálfur samið dansa við söng- leikinn fyrir West End í London. Hann hefur unnið bæði sem dans- ari og leikstjóri í fjölda sýninga í Bretlandi og víðar auk þess sem hann hefur dansað í kvikmyndum og sjónvarpsleikritum. Terry Davies stjórnaði og út- setti tónlistina í Gæjum og píum í Þjóðleikhúsinu. Hann hóf feril sinn sem upptökumaður í hljóð- veri í London en fór svo að vinna sjálfstætt við útsetningar og vann þá með ýmsum þekktum tón- listarmönnum, svo sem Jon Anderson úr Yes, Justin Hayw- ard úr Moody Blues og Robin Gibb úr Bee Gees. Síðustu árin hefur hann starfað mikið við leikhús í Hong Kong, Bretlandi, Noregi og Svíþjóð þar sem hann hefur útsett, stjórnað og samið tónlist við leikverk. Robin Don er skoskur og kom við sögu í Þjóðleikhúsinu árið 1981 þegar hann gerði leikmynd og búninga við hótel Paradís eftir Feydeau. Hann er kominn í fremstu röð breskra leikmynda- teiknara og hefur unnið fyrir mörg þekktustu leikhús Bret- Helstu aðstandendur söngleiksins Chicago sem verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Á litlu myndinni er tónlist- arstjórinn Terry Davies en á þeirri stærri er hönnuður leikmyndar og búninga, Robin Don efst til vinstri, síðan koma leikstjórarnir Benedikt Árnason og Kenn Oldfield en fremst sitja prímadonnurnar Carol Nielsen og Sigríður Þorvaldsdótt- ir. lands, svo sem breska þjóðl- eikhúsið, Royal Shakespeare Company og Old Vic en á verk- efnalista hans hafa verið leikrit, óperur og ballettar. Um þessar mundir vinnur hann að verkefn- um fyrir óperur í Sydney í Ástral- íu og New York. Síðast en ekki síst ber að nefna fjórða bretann sem við íslending- ar viljum nú meina að sé meiri íslendingur en breti. Það er söng- konan Carol Nielsen sem ólst að mestu leyti upp hér á landi og gat sér nafn sem söngkona, það nafn var að vísu Janis Carol. Hún er upprennandi stjarna í söngleikja- lífi Lundúnaborgar og hefur farið með stór hlutverk í Evitu og Cats. Hún syngur annað aðalhlutverk- ið í Chicago en í hinu hlutverkinu er Sigríður Þorvaldsdóttir sem er öllum þeim sem sáu Gæja og píur í fersku minni. _j>h Námskeið Dalton Baldwin í dag, föstudag, kl. 14-17 held- ur píanóleikarinn Dalton Bald- win námskeið í Norræna húsinu fyrir píanóleikara og söngvara. Baldwin hefur oft haldið nám- skeið hér á landi og fyrir tveimur árum var hann aðaldriffjöðrin í skipulagningu Sönghátíðar. Aheyrendur eru velkomnir á námskeiðið. -ÞH íslenska hljómsveitin Tónleikar í Eyjum og á Akureyri Um hvítasunnuna veröur ís- lenska hljómsveitin áfaralds- fæti og heldurtvennatón- leika, þáfyrriísamkomuhús- inu í Vestmannaeyjum á hvít- asunnudag og þá síðari í íþróttahöllinni á Akureyri á annan í hvítasunnu. Báðirtón- leikarnir hefjast kl. 14. Efnisskráin er að hluta til sú sama og hljómsveitin flutti í Laugardalshöll fyrr í vetur en þar voru á dagskrá sveifluverk eftir Stefán S. Stefánsson, Vilhjálm Guðjónsson, Ólaf Gauk ofl. Einnig flytur hljómsveitin gítar- konsert eftir Joseph Fung en hann var frumfluttur fyrir skömmu. 25 tónlistarmenn verða með í ferðinni en stjórnandi verð- ur Guðmundur Emilsson. Einleikarar á tónleikunum verða Vilhjálmur Guðjónsson saxófónleikari, Ásgeir Hermann Steingrímsson trompetleikari og gítarleikararnir Joseph Ka Che- ung Fung og Björn Thoroddsen. -ÞH Akureyri Aðalsteinn Vestmann sýnir Um hvítasunnuna heldur Aðalsteinn Vestmann mál- verkasýningu í skála Golf- klúbbs Akureyrar að Jaðri. Verður hún opnuð á morgun, laugardag, kl. 14ogeropinkl. 14-22 fram á mánudags- kvöld. Aðalsteinn lauk námi úr kenn- aradeild MHÍ árið 1951 og er myndmenntakennari í Barna- skóla Akureyrar. Þetta er önnur einkasýning hans á Akureyri en hann hefur einnig sýnt í Reykja- vík og tekið þátt í fjölda samsýn- inga. -ÞH Tónlistartélagið Kanadísk stórsöngkona Á morgun, laugardag, kl. 14.30 verða tíunda og síðustu tónleikarTónlistarfélagsinsá þessu starfsári í Háskólabíói. Þar syngur kandadíska mezzó-sópransöngkonan Janice Taylorviðundirleik Dalton Baldwin píanóleikara. Janice Taylor er reyndar fædd í Bandaríkjunum en hún lagði stund á söngnám í Kanada og hóf þar feril sinn. Hún hefur sungið með flestum stærstu hljómsvei- tum Bandaríkjanna og Kanada og einnig víða í Evrópu, bæði í óperum og óratóríum. Nýlega söng hún aðalhlutverkið í ópe- runni Alessandro á hátíð í Carn- egie Hall þar sem fluttar voru fimm óperur eftir Handel. Þar voru stórstjörnur í öllum aðalhlu- tverkum og má nefna ma. Joan Sutherland, Marilyn Horne, Tat- yana Troyanos og Kathleen Batt- le. Á tónleikunum á morgun syng- ur Janice Taylor gömul spænsk lög auk verka eftir Berloz, Resp- ighi, Debussy og Mahler. Undir- leikarann þarf vart að kynna ís- lenskum tónleikagestum en Dalt- on Baldwin hefur oft komið hing- að til lands með afburðasöng- vara. -ÞH Vignir Jóhannsson Vignir Jóhanns- son f- Listmuna- húsinu Á morgun, laugardag, kl. 14 opnarVignirJóhannsson málverkasýningu í Listmunahúsinu, Lækjargötu 2. Þar sýnir Vignir uþb. 40 olí- umálverk sem hann hefur unnið á þessu og síðastliðnu ári. Vignir er frá Akranesi og út- skrifaðist úr grafíkdeild MHÍ vorið 1978. Hann fór til fram- haldsnáms í grafík til Rhode Is- land í Bandaríkjunum og lauk meistaragráðu árið 1981. Hann hefur síðan verið búsettur í New York þar sem hann vinnur að list sinni. Þetta er önnur einkasýning Vignis í Listmunahúsinu en hann hefur sýnt víða, bæði hér heima og erlendis. Sýning Vignis verður opin um hvítasunnuna frá kl. 14-22, á þriðjudaginn verður lokað en síð- an verður opið virka daga nema mánudaga frá kl. 10-18 og kl. 14- 18 um helgar fram til 9. júní. -ÞH Hannes sýnir í Nýlistasafni Á morgun, laugardag, kl. 15 opnar Hannes Lárusson mynd- listarsýningu í Nýlistasafninu við Vatnsstíg. Þar sýnir hann 20 verk, flest samsett og gerð með ýmsum hætti. Sum eru tvívíð, önnur þrívíð og nokkur eru löguð að staðháttum á sýningarstað en slík verk kallast innísetningar (á ensku Installations). Sýning Hannesar verður opin virka daga kl. 16-20 en kl. 14-20 um helgar fram til 2. júní. -ÞH Steinþór aðHamragörðum Um þessar mundir stendur yfir sýning á 45 olíumálverkum eftir Steinþór Eiríksson frá Egilsstöð- um að Hamragörðum við Há- vallagötu í Reykjavík. Steinþór er einn af frumbyggjum Egilss- taða og rak þar verkstæði um ára- bil. Hann er sjálfmenntaður í list sinni og hefur haldið 19 einkasýn- ingar að þessari meðtalinni. Þetta er í annað sinn sem hann sýnir verk sín að Hamragörðum, fyrra sinnið var 1973 og þá náði hann því takmarki sem flesta listamenn dreymir um: að selja öll verkin á sýningunni. Valdís tók myndina af honum að Hamragörðum. -ÞH ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.