Þjóðviljinn - 05.06.1985, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 05.06.1985, Blaðsíða 1
MANNLÍF VIÐHORF ÍÞRÓTTIR Dagvistarheimilin Starfsmenn flýja kjörin Byrjunarlaunfóstra20.136kr. ámánuði. Ófaglœrðir starfsmenn með 14.075 kr. á mánuði. Vantar250 fóstrur í Reykjavík einni. Óvissa með rekstur heimilanna í haust. Kröfuganga á morgun Afleiðing lágra launa og mikils vinnuálags er vitaskuld stór- felldur flótti starfsfóiks úr dag- vistarkerfinu. Þetta er einn víta- hringur því álagið eykst við mannaskipti. Á síðasta ári var 62.8% hreyfing, þar sem mestu mannaskiptin voru jafngilti það að 1-1 '/2 umgangur starfsfólks færi í gegn um heimilið á ári. Þetta kom fram á fundi sem Fóstrufclag Islands og Samtök foreldra á dagvistunarheimilum héldu í gær fyrir blaðamenn. „Við öxlum ekki lengur ábyrgð á þessum vítahring, þar sem börnin eru fórnarlömb, okkar hlutverk er að gæta hagsmuna þeirra", sögu talsmennirnir. í Reykjavík eru 8.351 barn á forskólaaldri og eru aðeins 3.201 á leikskólum og dagheimilum á vegum borgarinnar eða 38.3%. 1113 eru á dagheimilum en 2088 á leikskólum. Biðlisti á dagvistar- heimilin telur 1.616 börn. Byrjunarlaun fóstru eru 20.136 kr. og hækkar hún mjög tak- Húsnœðisvandinn jiokast markað því hæstu laun eftir 18 ára starf eru 24.136 kr. Ófag- lærðir starfsmenn eru með 14.075 kr. sem eru lágmarkslaun. 20% forstöðumanna hafa sagt upp störfum frá áramótum, og er vitað að aðeins 1 hefur sótt um starf sjálfviljugur, hinum stöðun- um hefur verið bjargað. Það vantar 50 fóstrur til starfa, ef ná á því lágmarki að hafa eina fóstru á deild. Ef framfylgja ætti laga- ákvæðum um að allir starfsmenn, sem sinna fóstrustörfum séu fóstrumenntaðir vantar 250 fóstr- ur. Algjör óvissa ríkir um hvort hægt verði að starfrækja allar deildir dagheimilanna næstkom- andi haust vegna fólkseklu. Þeg- ar ekki er hægt að manna þau heimili sem nú eru sjá menn ekki hvernig hægt eigi að vera að manna hin nýju heimili sem eiga að bætast við. Starfsfólk og for- eldrar munu afhenda borgar- stjóra hátt á þriðja þúsund undir- skriftir með kröfum um úrbætur í þessum málum nk. fimmtudag kl. 16.45 í Skúlatúni 2. Einnig vilja foreldrasamtökin hvetja foreldra með börnin til að taka þátt í fjöldagöngu niður á borgarskrifstofur þann sama dag, sem hefst við Hlemm kl. 17.55. -*P Þessi ásamt fleirum vöktu í gær athygli á bágum kjörum starfsfólks dagvistar- heimilanna og þeim afleiðingum sem þau hafa á börnin. Neðst Margrét Pála Ólafsdóttir fóstra, Arna Jónsdóttir fóstra, Elín Mjöll Jónasdóttir fóstra, Kristjana Stefánsdóttir fóstra, Katrín Didrikssen frá foreldrasamtökunum, Andrína Jóns- dóttir frá foreldrasamtökunum og Hjalti Þórisson frá foreldrasamtökunum. Ljósm. E.ÓI. Við eigum nú enn eftir að fara í gegnum þetta, - það er greini- lega kominn skriður á húsnæðis- málin vegna þrýstings frá fólkinu, samtakamátturinn hefur þokað þessum málum fram og auðvitað hljótum við að vera ánægðir með það sem unnist hefur, sagði Og- mundur Jónasson talsmaður hús- næðishreyfingarinnar í samtali við Þjóðviljann í gær um tillögur stjórnarinnar til lausnar húsnæð- ismálunum eftir að stjórnarand- staðan hafði þokað þar nokkru Fálkaþjófar RLR kannar f lugferðir Voru íslendingar í vitorði með Christian Krey? „Fæ ekki skilið annað“, segir Haukur Hreggviðsson íMývatnssveit. Tvœrvélarfóru utanfrá Akureyri daginn eftir að Krey yfirgaf landið um. - Á hinn bóginn tökum við undir með ríkisstjórninni sem segir í greinargerð með frum- varpi sínu um tekjuöflun til húsn- æðismála, að „enn séu mörg við- fangsefni óleyst í húsnæðismál- um, ekki síst vegna þessa vanda sem skapast hefur vegna mis- gengis launa og lánskjara“. - í verkefnaskrá ríkisstjórnar- innar hefur því nú verið lofað að koma til móts við fólk hvað þetta varðar. Með öðrum orðum þarna er kominn fram eina ferðina enn, sami skilningur stjórnvalda og okkar á vandanum. En nú er lofað úrlausn á þessum grund- velli. Við fylgjumst með því hvernig þessi loforð verða efnd, sagði Ogmundur Jónasson. Milli stjórnar og stjórnarand- stöðu tókst ekki heildarsam- komulag í húsnæðismálum, en stjórnarandstöðunni tókst að færa ýmislegt til betri vegar og þoka stjórninni áfram að vanda húsnæðiskaupenda. -óg Sjá bls. 3 Rannsóknarlögreglan kannar nú ferðir tveggja flugvéla frá Akureyri til útlanda sem farnar voru í byrjun maí, daginn eftir að Þjóðverjinn Christian Krey hvarf af landi brot en hann er á alþjóð- legum lista yflr meinta fálkaeggs- þjófa. í frétt í Víkurblaðinu á Húsavík er því haldið fram að Krey hafl ekki getað athafnað sig á þeim skamma tíma sem hann dvaldist hér á landi án þess að njóta aðstoðar íslendinga. í viðtali við Þjóðviljann stað- festi Hallvarður Einarsson rannsóknarlögreglustjóri að embætti hans hefði að tilhlutan ríkissaksóknara hafið rannsókn á tilteknum þáttum sem tengjast ferðum Christian Krey um landið í byrjun maí. „Það komu upp grunsemdir um að eitthvað hefði slæðst út og við höfum sent tvo menn norður til að kanna þessi atriði og eins til að staðreyna framburð Þjóðverjans sem grip- inn var núna um helgina. Ég hef falið Arnari Guðmundssyni rannsókn þessa máls“, sagði Hallvarður. Að sögn Víkurblaðsins munu tvær flugvélar hafa farið frá Ak- ureyri daginn eftir að Krey fór af landi brott, önnur til Cardiff í Wales en hin til Jótlands. Hafi þetta verið íslenskar einkaflug- vélar og í frétt blaðsins segir: „Sá orðrómur hefur gengið að þek- ktir aðilar úr viðskiptalífinu hafi verið í vélunum tveimur". í blaðinu er einnig rætt við Hauk Hreggviðsson í Mývatns- sveit sem annast eftirlit með fálkahreiðrum nyrðra og segir hann m.a.: „Ég fæ ekki skilið hvernig Krey gat komið hingað til lands og tekið fjögur egg án þess að fá til þess aðstoð. Það fer eng- inn frá Þýskalandi og hirðir fjögur egg og það á jafn- skömmum tíma og hann var hér í landinu. Hér eru 1.200 þúsund krónur í spilinu“. Christian Krey kom hingað til lands 2. maí og fór þá um kvöldið með flugi til Akureyrar en hélt aftur til Reykjavíkur að morgni þess 4. svo hann var ekki nema rúman sólarhring fyrir norðan. -ÞH Silungur Flýr undan kuldanum Veiðin byrjaði vel en kuldakastið seturstrik íreikninginn. Silungsveiðin sem byrjaði mjög vel í upphafl veiðitímans í sl. mánuði datt mjög niður í kulda- kastinu á dögunum og hefur verið hálfléleg veiði í silungsvötnum undanfarna daga. Góð veiði hefur verið í Hlíðar- vatni í Seivogi að undanförnu og þar krækti m.a. heppinn veioi- maður í lax á dögunum. í Kleifar- vatni hefur veiðin verið með besta móti í sunnanverðu vatninu á grynningum, stór og fallegur en eins og víðar er hann flúinn í stór- um hópum úti í djúpið vegna kuldans að undanförnu. í Elliðavatni hefur verið reitingsveiði og stundum dágott á flugu og eins hefur gefið sæmi- lega í Svínadalsvötnunum en þar er veiði nýhafin. Arnarvatnsheiði verður opnuð um miðjan mánuðinn og er það í fyrra lagi vegna óvenju góðs tíð- arfars í vetur og sömuleiðis verð- ur opnað í Veiðivötnum um þar- næstu helgi. -Ig.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.