Þjóðviljinn - 05.06.1985, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 05.06.1985, Blaðsíða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. Miðvlkudagur 5. júnf 1985 125. tölublað 50. örgangur HIOÐVIUINN BÚH Skuld- breyting? Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra lýsti því yfir í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær að stjórnvöld hefðu tekið vel í máialeitan bæjaryfirvalda í Hafn- arfirði frá því fyrr í vetur varð- andi nauðsynlegar skuldbreyt- ingar við opinbera sjóði og stofn- anir vegna fjárhagserfiðleika Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar. Forsætisráðherra sagði er hann svaraði fyrirspurn frá Kjartani Jóhannssyni um atvinnuástand í Hafnarfirði að ríkisstjórnin hefði viljað leggja sitt afmörkum til að tryggja viðgang BÚH og þar með atvinnulíf í bænum. Ymislegt hefði verið óljóst í þeim gögnum sem borist hefðu varðandi fjár- hagsstöðu fyrirtækisins og beðið hefði verið eftir frekari upplýs- ingum þegar ný staða væri kom- inn upp í málinu með ákvörðun meirihluta bæjarstjórnar að selja BÚH. _|g. Sjá bls. 2 Vegaframkvæmdir sem eru fyrirsjáanlegar á höfuðborgarsvæð- inu á næstunni til að greiða fyrir mesta umferðarþunganum eru gríðar- lega kostnaðarsamar. Brúin yfir Kringlumýrarbrautina sem verið er að steypa upp þessa dagana kostar 47,6 miljónir kr. Mynd - E.ÓI. Landsbyggðin Selfoss Gífurlegur folksflótti Ahverjum degi allt síðast liðið ár flutti einn maður frá Norð- urlandi eystra umfram þá sem þangað komu. Þetta eru þó aðeins flutningarnir innanlands, ef flutningur til og frá útlöndum eru teknir með í reikninginn bætist 41 að hafa verið skráðir í Reykjavík 634 hundar frá því undanþága var veitt frá banni við hundahaldi um síðustu áramót, sagði Oddur Hjartarson fram- kvæmdastjóri Heilbrigðiseftir- litsins þegar Þjóðviljinn innti hann eftir framgangi hundahalds í höfuðstaðnum. „Af þessum fjölda hafa ein- hverjir horfið af skrá, verið aflíf- aðir eða fluttir, svo nú eru eitthvað rúmlega 600 hundar á skrá. Áður en undanþágan var veitt gerðum við okkur háar hug- við, þannig að heildartap þessa eina landsvæðis í fólksflutningum var 406 manns á síðasta ári. Þetta er dæmigert fyrir landsbyggðina í heild, sem aldrei, frá því farið var að skrá fólksflutninga hér 1961, hefur tapað jafnmiklum fjölda myndir um hundaeign borgar- búa en nú erum við á því að þeir séu ekki nema um 800 talsins þótt það sé alger ágiskun. Það þýðir að enn eru eitthvað á annað hundrað óskráðir," sagði Oddur. Hann bætti því við að honum fyndist skráðir hundar vera of fáir. „Við vitum um óskráða hunda en finnum þá ekki.“ Tveir hundaeftirlitsmenn eru að störf- um alla daga og stundum á kvöld- in og nóttunni. Þeir starfa eftir ábendingu fólks, í samstarfi við lögreglu og sjálfstætt. ,rsuður“ og á síðasta ári. í fyrra fluttu 1130 manns til höfuðborgarsvæðisins utan af landi og af Suðurnesjum, um- fram þá sem þaðan fluttu. Að auki tapaði allt landið 269 manns beint til útlanda og virðist sem Hundaeigendur þurfa að greiða 4.800 krónur á ári í hunda- skatt. Að sögn Odds gekk nokk- uð erfiðlega að innheimta þenn- an skatt en þeirri innheimtu er lokið. í reglum um hundahald kveður á um að dráttur hunda- skatts leiði til leyfissviptingar þegar í stað. Að sögn Odds hefur ekki verið þörf á að beita þessu ákvæði af hörku. Hins vegar voru um 30 eigendur óskráðra hunda kærðir eftir að þeir þrjóskuðust við að skrá hunda sína og greiða skattinn. f slíkum tilvikum geta eftirlitsmenn tekið hundana og það færist í vöxt að fólk flytjist til útlanda utan af landi. Heildartap landsbyggðarinnar 1984 var 1357 manns eða um 1,2% af íbúafjöld- anum. Á sama tíma fjölgaði um 1088 á höfuðborgarsvæðinu eða um 0,8%. Hlutfallslega hafa flestir flust frá Vesturlandi, 1,9% af áætluð- um fólksfjölda þar 1. desember sl. Fæstir hafa flust frá Norður- landi vestra eða 55 manns sem jafngildir0,5% afíbúum þar. Það er líka eina landsvæðið sem fékk fleiri aðflutta frá útlöndum en brottflutta. Frá 1971 hefur landsbyggðin tapað 5,8% af íbúum sínum „suður". Rúmlega 5.300 manns fluttu til höfuðborgarsvæðisins utan af landi á þessum 14 árum umfram þá sem þangað fluttu. Sífellt hefur sigið á ógæfuhliðina í þessum efnum frá 1978 þegar 80 fleiri fluttust út á land en „suður“. Þetta kemur m.a. fram í greinargerð með þingsályktun- artillögu tveggja þingmanna Al- þýðubandalagsins um mörkun nýrrar byggðastefnu og stöðvun fólksflóttans utan af landi. Töl- urnar eru frá byggðadeild Fram- kvæmdastofnunar. _ÁI komið þeim fyrir í gæslu á Dýra- spítalanum þangað til gengið hef- ur verið frá umsókn um undan- þágu. Oddur sagði að of snemmt væri að dæma árangur af þessari und- anþágu. „Það sem ég hef furðað mig mest á er að fólk sem búið er að biðja um þessa undanþágu skuli svo þrjóskast við að greiða hundaskattinn. Sá sem ekki telur sér fært að greiða 4.800 krónur á hverju ári fyrir hundinn sinn er ekki fær um að halda hann,“ sagði Oddur. -ÞH Titringur í allan gærdag Hrinan byrjaði um 5 leytið. Stærsti skjálftinn 3.3stigkl. 7. Bœjarbúar hrukku upp afværum blundi. Þorfinnur Tómasson skjálftaeftirlitsmaður á Selfossi: Enginn uggur í okkur Eg var búinn að finna þessa kippi fyrr um nóttina. Þetta stóð alveg frá því klukkan fimm en stærsti kippurinn kom rétt eftir kl. sjö og síðan hafa verið að koma eftirkippir í allan dag. Það er örlítil hreyfing á þessu ennþá , sagði Þorfinnur Tómasson öku- kennari á Selfossi í samtali við Þjóðviljann síðdegis í gær, en Þorfinnur hefur umsjón með skjálftamælum á Selfossi. Flestir Selfyssingar og sveit- ungar í Ölfusi og Flóa hrukku upp við stærsta kippinn um sjö- leytið í gærmorgun en hann mældist 3.3 stig á Richter. Uppt- ök skjálftanna eru talin vera um 5 km vestur af Selfossi eða nálægt Kögunarhól við Ingólfsfjall. „Ég man ekki til þess að upp- tökin hafi verið svo nálægt okkur áður. Þetta hefur yfirleitt verið á Hengilssvæðinu en þessi var ná- lægt Ingólfsfjalli. Nei, það er eng- inn uggur í okkur. Hvað þýðir það. Við verðum bara að taka því sem að okkur er rétt við ráðum ekkert við þetta, það er helst aö fá sér öryggisbelti í bælin“, sagði Þorfinnur Tómasson. Þórunn Skaftadóttir jarð- skjálftafræðingur sagði í gær að aðalskjálftinn hefði ekki verið stór en fundist vel á Selfossi vegna þess hve upptökin voru ná- lægt bænum. Það væri ekki ó- algengt að skjálftar kæmu upp á þessu svæði sem væri samtengt Hengilssvæðinu. Hún sagði ekki ástæðu til að óttast frekari skjálfta á næstunni í framhaldi af hrinunni í gær. -Ig. Fiskverkunarfólk Kaklar kveðjur frá sljómmni Þær eru kaldar kveðjurnar sem ríkisstjórnin ætlar nú áá senda fiskverkunarfólki, sem skilar meirihluta útflutningsverð- mætanna, með því að hafna þessu frumvarpi. Þetta er tillaga um mannréttindi til handa þessu fólki og ég er sannfærður um að þetta fólk mun senda alþingi og ríkis- stjórn sínar kveðjur áður en upp verður staðið“, sagði Guðmund- ur J. Guðmundsson m.a. á al- þingi í gær. Tilefnið var frávísun- artillaga meirihlutans á frumvarp Guðmundar að bæta rétt fisk- verkunarfólks með lengingu uppsagnarfrests í fiskvinnslunnx. Fá þingmál hafa fengið jafn góðar og jákvæðar undirtektir í vetur utan þings og innan. M.a. hafa tugir jákvæðra umsagna borist frá fiskverkunarfyrirtækj- um, byggðarlögum og verka- lýðsfélögum í Iandinu. Fiskverk- unarfólk, sem einmitt í dag fund- ar með VSÍ um sín málefni, hefur aðeins viku uppsagnarfrest, eins þó það hafi starfað í 30 ár eða lengur. „Með afstöðu sinni er ríkisstjórnin að staðfesta að hún stendur með atvinnurekendum á móti verkalýðshreyfingunni“, sagði Guðmundur ennfremur, og bætti við: „Hér verður enginn friður í sumar“. Það var Friðrik Sófusson sem lýsti tillögu meirihlutans um að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar og sagði m.a. að í þeim hóp ríkti „samúð“ með kjörum fiskverk- unarfólks. Auk þeirra Guð- mundar tóku þátt í umræðunni Svavar Gestsson, Guðrún Agn- arsdóttir, Guðmundur Einarsson og Olafur Þ. Þórðarson og lýstu þau öll stuðningi við málið. At- kvæðagreiðslan fer fram í dag, miðvikudag. _ÁI Reykjavík Oskráðra hunda leitað Rúmlega 600 hundar á skrá í borginni

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.