Þjóðviljinn - 05.06.1985, Blaðsíða 2
FRETTIR
Hafnarfjörður
Stálskip vill kaupa Maí
Guðrún Lárusdóttir framkvœmdastjóri: Höfum
áhuga. Kom á óvart að gengið var til
samningaviðrœðna við aðra áður en ákveðið var að hœtta
við Útgerðarfélagið. Vinnubrögð bœjaryfirvalda vekja miklafurðu
TORGIÐ
Eitt þeirra útgerðarfyrirtækja
sem sýnt hefur áhuga á
eignum BÚH er Stálskip h/f í
Hafnarfirði sem gerir út togarann
Ými h/f. Á fimmtudag sendi fyrir-
tækið bæjarstjórn Hafnarfjarðar
bréf þar sem óskað var eftir við-
ræðum um hugsanleg kaup á b/v
Maí öðrum af tveimur togurum
BÚH sem eftir eru.
„Við hefðum getað sent okkar
boð fyrir löngu síðan því við höf-
um haft áhuga á því að ræða um
hugsanleg kaup á Maí en við
héidum að það kæmi ekki annað
til greina en að Útgerðarfélagið
yfirtæki rekstur skipsins", sagði
Guðrún Lárusdóttir fram-
kvæmdastjóri Stálskipa h/f í sam-
tali í gær.
„Við stóðum í þeirri trú eins og
sjálfsagt flestir aðrir að eignir
BÚH ættu að ganga til þessa nýja
Útgerðarfélags og við höfðunt
ekki heyrt neitt um að hætt væri
við þann félagsskap. Að því leyti
kom það okkur á óvart að annar
aðili skyldi geta sent inn tilboð í
eignir BÚH áður en nokkurt lá
formlega fyrir um afdrif Útgerð-
arfélagsins", sagði Guðrún.
Enn hafa engin svör borist við
óskum Stálskipa um viðræður við
bæjaryfirvöld en að sögn bæjar-
stjórans í Hafnarfirði verður er-
indið lagt fyrir bæjarráð n.k.
fimmtudag.
Eins og skýrt var frá í Þjóðvilj-
anum í gær hefur bæjarstjórinn
einungis umboð frá meirihluta
bæjarstjórnar til að ganga til
samninga við Samherja h/f um
sölu á eignum BÚH. Hefur öll
málsmeðferð bæjaryfirvalda í
þessu máli vakið mikla furðu en
eins og skýrt hefur verið frá
gengu fulltrúar minnihlutans af
fundi bæjarstjórnar á dögunum í
mótmælaskyni við vinnubrögð
meirihlutans.
-«g-
Fegrum borgina-klippum Davíð!!!
Stangarholt
Ekki sam-
mála
ráðheira
Magnús Skúlason:
Ósáttur við túlkun á
útreikningum um
Ekki vitum við hvort þessi litli snáði heitir Palli en það er engu líkara en hann sé einn í heiminum. Myndin sem
Einar okkar Ólason Ijósmyndari tók í Kópavoginum minnir okkur á að við sem keyrum bíla ættum að hafa fulla gát
á ökulagi okkar nú sem endranær, því nú er vor og börnin fjörmikil eins og kálfar....
r
Eg get ekki fallist á úrskurð fél-
agsmálaráðherra, þess vegna
greiddi ég atkvæði með nýju
byggingarleyfi. Eftir að ýmsar
breytingar voru gerðar á útliti
húsanna og skipulagi á reitnum,
sá ég ekki ástæðu til að leggjast
gegn framkvæmdum þarna, það
var einnig borið í mig á bygging-
arnefndarfundi, að eftir þessar
breytingar ríkti almenn ánægja
meðal íbúanna.
Þetta sagði Magnús Skúlason
fulltrúi AB í byggingarnefnd.
Hann var eini fulltrúi minnihlut-
ans sem lýsti yfir áframhaldandi
stuðningi við byggingarfram-
kvæmdir í Stangarholti.
- Það er staðreynd að nýting-
arhlutfallið er ekki of hátt, hvort
sem reitnum yrði skipt í tvær lóðir
eða ekki. Þess vegna get ég ekki
fallist á úrskurð félagsmálaráð-
herra hvað svo sem réttmæti
byggingarinnar sjálfrar líður.
sagði Magnús. -SG
Borgarstjóri
Samrnni BUR og tsbjamaríns
Yfirlýsing frá borgarfulltrúum minnihlutaflokkanna:
Borgarstjóri sinnir ekki lýðrœðislegri skyldu sinni
Vegna frétta í dagblöðum að
undanförnu, þar sem m.a. er
haft eftir Davíð Oddssyni borgar-
stjóra, að hann hafi ákveðið að
efna til viðræðna milli Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur og Isbjarnar-
ins um hugsanlegan samruna
þessara fyrirtækja, viljum við
undirritaðir borgarfulltrúar í
Reykjavík taka fram:
1. Rétt eins og aðrir borgarbú-
ar fengu almennir borgarfulltrúar
sínar fyrstu upplýsingar um
ákvörðun borgarstjóra úr Morg-
unblaðinu 27. maí. Það er að vísu
engin nýlunda að borgarstjóri
dragi borgarfulltrúa á upplýsing-
um og kynni þeim ekki mál fyrr
en þau eru því sem næst frágengin
og engu verður um þokað. Slík
vinnubrögð eru hins vegar með
öllu óþolandi og í raun hundsun á
öllum lýðræðishefðum.
2. Það er ekki rétt sem segir í
Morgunblaðinu miðvikudaginn
29. maí, að borgarstjóri hafi
„kynnt borgarfulltrúum hug-
myndir sínar að viðræðum þess-
ara tveggja stærstu sjávarút-
vegsfyrirtækja í Reykjavík.“
Engin slík kynning hefur farið
fram, þó að borgarstjóri hafi sent
borgarráðsfulltrúum bréf sömu
helgi og fréttin í Morgunblaðinu
birtist, sem var efnislega sam-
hljóða henni. Þrátt fyrir ítrekað-
ar tilraunir, hefur öðrum borgar-
fulltrúum ekki reynst unnt að fá
afrit af því bréfi á skrifstofu borg-
arstjórnar, enda bréfið þar
ófinnanlegt.
3. Við drögum ekki í efa form-
lega heimild borgarstjóra til að
hafa frumkvæði að viðræðum
sem þessum, en okkur finnst
löngu tímabært að hann átti sig á
því, að honum ber lýðræðisleg
skylda til að veita borgarfulltrú-
um upplýsingar um mál sem
þetta, áður en hann hleypur með
það í fjölmiðla.
Adda Bára Sigfúsdóttir
Gerður Steinþórsdóttir
Guðmundur Þ. Jónsson
Guðrún Ágústsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Kristján Benediktsson
Sigurður E. Guðmundsson
Sigurjón Pétursson.
Jón Baldvin
Engin
sinfónía
í tilefni af frétt Þjóðviljans um
helgina af fundi Jóns Baldvins í
Laugardalshöll óskar Haukur
Helgason hagfræðingur og
stjórnarmaður í Sinfóníuhljóm-
sveit íslands að þess sé getið að
ekki er rétt að Sinfóníuhljóm-
sveitin hafi leikið á umræddum
fundi. Hitt er rétt að Ámundi
Ámundason fór þess á leit að
hljómsveitin léki á fundinum en
þeirri málaleitan var hafnað.
Hagkaup
Reisir 28
þúsund
fermetra
verslun
Hagkaup hf. standa nú í mikl-
um byggingaframkvæmdum í
Kringlumýri og um helgina var
gengið frá samningi við Byggða-
verk hf. í Hafnarfirði um að reisa
og Ijúka ytri frágangi á verslun-
armiðstöð í nýja miðbænum í
Kringlumýri.
Byggðaverk hf. bauð lægst í
þennan verkhluta, en tilboð voru
opnuð 14. maísl. Gólfflötur húss-
ins er alls 27.800 fermetrar en
rúmmálið 147.000 rúmmetrar.
Byggingin verður stærsta húsið í
Reykjavík. Samkvæmt samning-
um á ytri framkvæmdum við hús-
ið að vera lokið fyrir 1. nóvember
nk.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 5. júní 1985