Þjóðviljinn - 05.06.1985, Síða 9

Þjóðviljinn - 05.06.1985, Síða 9
______________________MENNING_____________________ Augað verður aldrei satf Meistaraþjófurinn frá Hollí snýr aftur Staðgengillinn (Body Double) Bandaríkin 1984 Leikstjóri: Brian De Palma Handrit: Hann og R. J. Avrech Leikarar: Craig Wasson, Melanie GrifTith, Gregg Henry, Dcborah Shelton o.fl. Stjörnubíó MÖRÐUR ÁRNASON Það sem hefir verið, það mun verða, og það sem gjörst hefir, það mun gjörast, og ekkert er nýtt undir sólinni. Sé nokkuð til, er um verði sagt: sjá, þetta er nýtt - þá hefir það orðið fyrir löngu, á tímum, sem á undan oss voru. Predikarinn gæti sem hægast verið lærifaðir kvikmynda- leikstjórans Brian De Palma sem í Stjörnubíó gefur nú kost á StaðgenglinumlBody Double. Það var eiginlega ekki spurningin hvort hann væri að líkja eftir ein- hverju heldur eftir hverju hann væri að líkja; og þegar myndin byrjaði komu fljótt í hugann Hitchcock-myndirnar Vertigo, Rear Window, og gott ef ekki frægt myndskeið úr Notorious. Brjánn frá Pálmholti er góður kunningi hér í sölum, og ekki síst fyrir myndir sem eru annaðhvort nokkurnveginn beinar endur- tökur (Scarface, frá Howard Hawks) eða harla ódulin lán (Dressed to kill, frá Psycho Hitchcocks; Blow Out, frá Blow Up Antonionis). En er þetta ekki bara allt í keiinu? Hvað um Gerplu Laxness eða Paradísar- heimt? Hvað um bók einsog Nafn rósarinnar þarsem farið er í ým- issa fyrri kvikinda líki? Brandur af brandi brennur, og svo fram- vegis? Gallinn við steluþjófinn De Palma er að hann gleymir að bæta nýjum víddum við efnivið sinn, að endurskapa hann í sínu eigin líki. Hann lætur sér nægja að klæða hann í nútímabúning, pikka upp hvikula smartstæla og hotta á fyrirferðarmikinn töku- mann. Það er gaman að horfa á myndir De Palma, en þær þeirra sem eiga sér greinilegasta fyrir- mynd eru stolnar eru ekki mikið meira en dáfallegur þjófnaður, - þar skilur milli hans og til dæmis nóbelskáldsins í listinni að taka að láni. Hið bogna getur aldrei orðið beint. Og hið vantandi verður eigi tal- ið. I fyrirmyndinni að Staðgengl- inum, Hitchcock-myndinni Vert- igo, er lofthræðslan í einu aðal- hlutverkanna. Hér er innilokun- arótti tekinn við, og tekst ekki nógu vel. Kannski það fari eftir því hvaða fóbíum hver áhorfandi er haldinn. Kannski líka er það vegna þess að það næst ekki dýpt í lífshlaup aðalpersónunnar eða þessa fóbíu hennar, og væri þá um að kenna ónógu listfengi leik- stjórans. Onnur aðfinnsla: inní miðja mynd er sett lag með vinsælli hljómsveit. Kvikmyndin breytist þá alltíeinu í Skonrokksmynd- stungu sem rýfur eðlilegan gang þráðar. Þetta er sennilega ekki alveg leikstjóranum að kenna: núna má ekki búa til kvikmynd í Hollywood án þess að geta líka gefið út plötu fyrir vinsældalist- ana. En eitt með öðru gerir þetta Staðgengilinn billegri og ekki eins ágenga og til dæmis Dressed to kill. Aðfinnslurnar gætu verið fleiri og mér er kunnugt um að myndin fékk þriðju stjörnuna í Tjaldinu á bíósíðu blaðsins með semingi og eftirgangsmunum. Stirðlyndi spámaðurinn sem Norrœnt vísna- mót ó íslandi Dagana 28.-30. júní n.k. standa Vísnavinir á íslandi fyrir norrænu vísnamóti hér á landi. Mótiö verður haldið á Laugarvatni, og er þetta í fyrsta sinn sem slík samkoma fer fram hérlendis. Til mótsins koma margir vel þekktir vísnasöngvarar og trúba- dorar frá hinum Norðurlöndun- um, og er ætlunin að nýta krafta þeirra að mótinu loknu til hins ýtrasta. Það mun gert með tón- leikahaldi dagana30. júní-3. júlí hér og þar um landið, og er fólk hvatt til að hafa augun opin fyrir auglýsingum þegar þar að kemur. Craig Wasson sem Jake sem ríkur klámmyndastjóri að ráða Melanie Griffith sem klámdrottninguna Holly Body í nýja klámmynd í plati til að finna út hver sé hvað og hvað sé hvers í Staðgenglinum eftir Brian De Palma. hér hefur verið vitnað til viður- kenndi að þótt allt sé aumasti hégómi verður augað aldrei satt af að sjá og eyrað aldrei mett af að heyra. Og stirðlyndur gagnrýn- andi verður að viðurkenna að Pálma-Brjánn gerir kvikmyndir einsog sá sem valdið hefur. Hon- um tekst dándisvel að ná upp spennu og halda henni, hann nær upp erótík réttu megin við klám- mörkin, hann velur umhverfi og leikara af natni. Og hann stelur það vel að það sér enginn eftir því að sjá Staðgengilinn. Að lokum: Stjörnubíósmenn eiga skilið hrós fyrir prógrömmin sín. Mig grunar að saga bíópró- grammanna sé eitthvað á þá leið að einusinni voru myndir ekki sýndar með íslenskum texta og var þá upp og ofan hvort menn skildu samtöl eða söguþráð, - úr því mátti bæta með prentuðum bláþræði úr kvikmyndinni. Síðan kom texti og vandinn leystist, en prógrömmin héldu áfram í gamla dúrnum og eru flest nauða- ómerkileg. Þeir í Stjörnubíó hafa hinsvegar tekið þann kost að birta auk þráðarins helstu upplýs- ingar um myndina, leikstjórann og leikara með góðum ljósmynd- um á fallegum pappír. Og þetta er meiraaðsegja á sæmilegri ís- lensku sem ekki er sterkasta hlið þeirra sem bíóin fá til að þýða fyrir sig prógrömm og íslenskan texta.-m Tónlist Píanótónleikar Christian Eggen Norræna húsið: Tónleikar 2. júní 1985 Ungir norrænir einleikarar Christian Eggen, píanóleikari. Það er sannarlega vel til fundið af forstjóra Norræna hússins að bjóða ungum norrænum ein- leikurum úr þriðju og síðustu tónlistarkeppni Sambands nor- rænna tónlistarháskóla (Nordisk Konservatorieráds 3. biennale for unge nordiske solister) að halda hér tónleika. Tilgangurinn með þessari tónlistarkeppni er einmitt sá að vekja athygli á ungu tónlistarfólki og kynna það fyrir tónleikaskipuleggjendum, út- varpi, sjónvarpsstöðvum o.fl. Því miður hefir það reynst svo, að undirtektir jressara aðila hafa verið mjög misjafnar, ef ekki dræmar, og hafa orðið nokkur vonbrigði hvað þetta varðar. Það er því mjög hrósvert að forstjóri Norræna hússins, Knut Ödegárd ásamt Jóni Nordal, núverandi formanni sambandsins, skuli hafa skipulagt tónleikaröð með þátttakendum í síðustu keppni. Christian Eggen píanóleikari frá Noregi lék á þriðju tónleikun- um. Eggen er ekki við eina fjöl- ina felldur í tónlistinni. Fyrir utan langt og strangt píanónám, hefur hann einnig lagt stund á hljóm- sveitarstjórn, tónsmíðar og margt fleira. Hann er því alhliða tónlistarmaður, en góður píanisti er hann, á því er enginn vafi. Efnisskráin var skemmtileg. Fjögur Lyrisk stykki eftir Grieg, sem Eggen er greinilega í blóð borið að leika, og svo Sónata í F dúr K. 533-494 eftir Mozart. Fyrstu tveir þættirnir voru samdir árið 1788 en síðasti þátturinn var saminn tveimur árum á undan. Sá þáttur er frekar léttvægur, að undanskildum gullfallegum moll- kafla, en hinir tveir þættirnir eru með því frumlegasta og dýpsta sem Mozart samdi fyrir píanó. Hljómar og polyfonia eru saman- ofin á meistaralegan hátt og jafn- ast þessir tveir kaflar á við síðustu verk meistarans og er þá mikið sagt. Christian Eggen lék sónöt- una mjög fallega, en hljóðfærið, sem er komið til ára sinna, gerði honum erfitt fyrir. En þetta var falleg túlkun á fallegu verki. Eftir hlé lék Eggen hina stór- brotnu „Barcarollu“ op. 66 eftir F.Chopin. „Barcrollan" er mjög erfitt verk í flutningi, og þá sér- staklega að halda því saman. Veiku staðirnir voru heldur dauf- lega leiknir og varð því heildar- svipurinn nokkuð hnökróttur, en hápunktana byggði hann vel með mikilli stígandi, en heildarsvipur- inn komast ekki nægilega vel til skila. Að síðustu lék Christian Eggen Svítu op.45 eftir Carl Niel- sen. Þetta var hápunktur tón- leikanna frá hendi píanistans. Eggen lék svítuna á meistara- legan hátt bæði tæknilega og músikalskt og nú vantaði ekkert á að athygli hlustenda væri vakandi frá byrjun til enda. En meðferð Eggens á Intermezzoi op. 117 nr. 2 eftir Brahms sem Eggen lék sem aukalega, kunni ég ekki að meta. k\^nMistn-eghaniúbít,skbU Isínniís Letur-i mmsmc GunniaugurSí (briemkennirí þrjnr vikur, rnmuÁaqunn 10- júttí tUjóstudaýsins \>ntnQtwtn,,frk níu tUjitnm~+-Vnkte$Ar xfm^ttr jýrstu btjrjindavunÁrceií tiivtí- -Jatuisefna, ntvintuirmtuui. ofc- Nowkn h'brtiípcHM/tetMÍiönnun bókArsmít/WpphteijpteujngfÍHr- tzfirujMr. cÁ-Tutttuju f)j nrLtstmr ttm tetumctkuntrg svga stafrifsins.fi-Iwntivn oijfynr- sf)umir:Sfuifsttrfa Mynd/ttstn - öjj hmdíiMkote jsUvnÁð/Skip- kvíti 1/ Svmi 1 ]ffoo,frá $til 5- ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.