Þjóðviljinn - 23.07.1985, Síða 1
166. tölublað 50. árgangur
ATVINNUUF
MANNLÍF
ÍÞRÓTTIR
Neytendamál
Refsiverðar blekkingar
Víða villandi upplýsingar um innihald svaladrykkja. Rannsókn leiddi
íljós: Vantaði vítamín íHi-C og Gosa-appelsín-drykki. 25 grömm af
sykri í hverri lítillifernu afHi-C og Svala.
að er verið að blekkja kaup-
endur með því að gefa rangar
upplýsingar á umbúðum - og það
tel ég vera refsivert athæfl, sagði
Jóhannes Gunnarsson formaður
Neytendasamtakanna í samtali
við Þjóðviljann í gær í kjölfar
niðurstaðna úr rannsóknum á
appelsíndrykkjunum Svala, Gosa
og Hi-C.
Iðntæknistofnun framkvæmdi
þessa rannsókn og birtist hún í
DV í síðustu viku. Síðan er kom-
ið upp mikið auglýsingastríð á rás
2 í hljóðvarpi. Raunverulegt C-
vítamín innihald reyndist vera
mun minna í Hi-C og Gosa held-
ur en gefið er upp á umbúðum. 25
grömm af sykri reyndust vera í
hverri fernu af Svala og Hi-C.
Viðmælendur Þjóðviljans hjá
Hollustuverndinni og Heilbrigð-
iseftirliti borgarinnar kváðu hér
um lagabrot að ræða. Birgir Guð-
mundsson hjá Mjólkurbúi Flóa-
manna sem framleiðir Gosa-
drykkinn kvað mistök hafa orðið
í framleiðslunni sem hann harm-
aði og kvað vöruna verða kallaða
af markaði.
Pétur Björnsson forstjóri Víf-
ilfells, sem dreifir Hi-C drykkn-
um kvað margt rangfært og upp-
lýsingar villandi í rannsókn Iðn-
tæknistofnunar. Sjá bls. 3.-pv/óg
Það var glampandi sól og blíða við bæinn hennar Önnu á Stóru-Borg, þar sem umfangsmesti fornleifauppgröftur Þjóðminjasafnsins stendur nú yfir áttunda
sumarið í röð. Frá vinstri sjáum við Einar Jónsson, Má Másson, Orra Vésteins son, Mjöll Snæsdóttur og Margréti Harðardóttur. Á innfelldu myndinni er rúna-
pinninn. Ef einhver getur lesiö það sem á honum stendur er það vel þegið. Mynd: -eik-
Fornleifafundur
Bæn eða blautleg vísa?
-Rúnapinni með rúnum sem enginnfœr botn ífinnstá
Stóru-Borg. Trúlegafrál5. öld. -
Við vitum ekki hvað stendur á
þessum rúnapinna, en hann
er trúlega frá 15. öld. Þetta geta
verið bænir, töfraþula eða ein-
hver ósómi.
Rúnirnar eru mjög skýrar og
líklega er þetta eitthvert villu-
letur. Enn hefur enginn getað les-
ið úr þessu, en ég ætla að skrifa
íslenskri stúlku, sem er doktor í
rúnaletri og býr í Svíþjóð og biðja
hana að reyna að ráða í rúnirnar,
sagði Mjöll Snæsdóttir, fornleifa-
fræðingur, þegar blaðamaður og
ljósmyndari hittu hana og lið
hennar austur á Stóru-Borg, þar
sem Mjöll stjórnar nú uppgreftri
áttunda sumarið í röð.
„Við erum búin að grafa hér
upp margskonar bæjarhús, m.a.
kirkju og kirkjugarð með 66
gröfum og á þriðja þúsund muni
frá ýmsum tímum. Það elsta er
frá 14. öld en megnið frá 15. öld
og fram yfir aldamótin 1800.
Hluti af þessu, m.a. kirkjugarð-
urinn er kominn á kaf aftur í
sandinn en það er hver síðastur
að reyna að bjarga úr þessu
lausum munum og sjá hvað hér er
af húsum áður en sjórinn leggur
allt undir sig. Við erum þó aðeins
rúmlega hálfnuð að því er ég tel
og vel má vera að við eigum eftir
að finna enn eldri mannabústaði
hér undir,” sagði Mjöll ennfrem-
ur.
Rúnapinninn sem um ræðir
fannst nýlega og er hann nú í
vörslu Þjóðminjasafnsins. Stefán
Karlsson handritafræðingur var
fenginn til að reyna að lesa það
sem stendur á pinnanum, en
hann fékk engan botn í það.
Mikið hefur fundist af slíkum
trépinnum frá miðöldum á
Norðurlöndunum, en aðeins er
vitað um einn slíkan hér á landi
og fannst hann við Bergþórshvol.
Stundum voru slíkir pinnar not-
aðir sem sendibréf eða að á þá var
ritaður blautlegur kveðskapur.
Nánar verður sagt frá uppgreftr-
inum á Stóru-Borg í blaðinu á
morgun.
-þs
Pingvallavatn
Minkur
stelur
murtum
Galvaskur veiðimaður átti
heldur ósléttar farir úr við-
skiptum við kykvendi marðar-
ættar við Þingvaliavatn nú um
helgina. Hann var að veiðum í
Vatnsvíkinni ásamt sjö ára
gömlum syni sinum, og dró murt-
una grimmt. Þegar hann dró flsk-
ana á land hafði hann þann hátt á
að sleppa þeim í lítinn poll, og
ætlaði síðan að hreinsa úr pollin-
um að loknum veiðidegi. Eftir
nokkra stund, þegar 7 til 8 murt-
ur voru komnar í pollinn, kom
sonur hans með miklu írafári og
sagði að búið væri að stela þeim
öllum. Og mikið rétt, þær voru
allar farnar þegar veiðigarpurinn
leit í pollinn. Syndaselurinn þjóf-
ótti hafði hins vegar skilið eftir sig
slóð, og þegar nánar var að gætt,
þá fundust murturnar í dauða-
teygjunum í holu undir móa-
barði, og öll ummerki bentu til
þess að hér hefði verið minkur á
ferðinni.
-ÖS
Skák
Jólrann og
Helgi efstir
Jóhann þarf2V2 vinn-
ing í viðbót ístór-
meistarann.
Jóhann Hjartarson þarf 2Vi
vinning úr fjórum síðustu
skákum sínum á Norðurlanda-
mótinu til að tryggja sér stór-
meistaratitU. Jóhann gerði í gær
jafntefli við danska stór-
meistarann Curt Hansen og er í
efsta sæti eftir 7 umferðir ásamt
Helga Ólafssyni með 5'/2 vinning
en Helgi sigraði Yrjölá örugglega.
í 5. umferð á laugardag gerði
Jóhann jafntefli við norðmann-
inn Helmers en Helgi vann finn-
ann Westerinen. í 6. umferð á
sunnudag vann Jóhann finnann
Yrjolá og Helgi gerði jafntefli við
Helmers.
í gær fór skák þeirra Agdestein
og Máki í bið og er hún tvísýn en
Agdestein er kominn með 5 vinn-
inga. Hann teflir við Jóhann í 8.
umferð í dag.
-lg