Þjóðviljinn - 23.07.1985, Side 6
FLÓAMARKAÐURINN
Ungt par
sem er aö byrja búskap, vantar
gamla, góða og ódýra eldavél, lítið
eldhúsborð og 2-3 eldhússtóla. Vin-
samlegast hringið í síma 30447.
Bókahilla og kommóða
úr furulíki sem sér ekki á og kostar
nýtt kr. 7.000, og selst saman á kr.
4.000. Hringið í síma 13839 eftir kl.
17.
Til sölu
á vægu verði, rörsnitti með lausum
bökkum, dælumótor fyrir miðstöðvar-
dælu og smergilskífur. Uppl. í síma
36935.
Húsnæði óskast
Ungt par með 3 mánaða barn, bráð-
vantar ibúð strax. Sími 686258.
Eldavél
Nýleg eldavel til sölu (ofn með 2 hell-
um) á kr. 3.000.- Sími 13686.
Til sölu
borðstofuhúsgögn
úr teak-viði stórt borð (hægt að
stækka), sex stólar og stór skenkur,
gott verð. Næstum ný Passap-
Automatic prjónavél, ódýr. Lítið notuð
Zerowatt-þvottavél, Philips-
hárþurrka, mjög ódýr. Hansa hillur og
uppistöður. Dönsk leðurreiðstígvél
nr. 42. Ensk kjólföt á grannan meðal-
mann, enskur sextant, „húsun“ sem
nýr. Uppl. í síma 77247.
Timbur og trommusett
Vantar þig útrás, ef svo er þá hef ég
einnota timbur og trommusett handa
þér. Sími 71828.
Barnavagn
Til sölu góður barnavagn á kr. 5.000.
Uppl. í síma 29647.
Tii sölu gömul og lúin
Lada Tópas
bifreið, árgerð 77. Hún fékk skoðun í
vor og hefur reynst eigendum sínum
traustur farkostur undanfarna mán-
uði. Selst ekki yfir kr. 50.000. Uppl. í
síma 93-1205.
Nýsmíði - breytingar - viðhald
T ek að mér smærri og stærri verk fyrir
einstaklinga og fyrirtæki, viðhald,
breytingar og nýsmíði. Húsa- og hús-
gagnasmiður, sími 43439.
Okkur vantar
gott byrjendareiöhjól fyrir 5 ára strák
helst BMX. Einnig vantar á sama
stað píanóbekk. Vinsamlegast hring-
ið í síma 20772.
Halló
Vantar ykkur rúm undir nýja erfingj-
ann? Við höfum eitt til sölu. Upp. í
síma 666709.
íbúð óskast
24 ára reglusöm stúlka í góðu starfi
óskar eftir að taka á leigu 2ja herb.
íbúð. Helst í miðbæ eða Þingholtum
(þó ekki skilyrði). Einhver fyrirfram-
greiðsla möguleg. Upplýsingar í síma
84563 eftir kl. 17.
Kettlingar
Vel vanda kettlinga vantar gott heim-
ili. Uppl. í síma 23076.
Hvítt gólftengt
klósett óskast. Upplýsingar í síma
11949 eftir klukkan 19.
Til sölu
á vægu verði vegna flutninga:
saumavél í skáp, eins manns
svefnsófi, teppi (misbreiðir renning-
ar) á ganga, bónvél, skrifborðsstóll.
Upplýsingar í síma 36421.
Til sölu
Candy ísskápur, stór, selst ódýrt.
Upplýsingar í síma 35263 eftir klukk-
an 19.
Tjaldhiminn
af þriggja manna tjaldi, ásamt súlum
til sölu. Verð kr. 1800. Upplýsingar í
síma 42480.
Týndur köttur - týndur högni
Mjög stór högni, hvítur með svörtum
blettum, tapaðist fyrir hálfum mánuði
frá Njörvasundi 38. Ef einhver telur
sig hafa fundið kisa þá vinsamlegast
hringið í síma 34836.
Til sölu
tjald og svefnpokar, fiskabúr og dæla
og Ijósmyndastækkari. Einnig til sölu
eldavél. Uppl. í síma 19410.
Húsasmið
vantar íbúð 1. ágúst, 3-4ja herb.
Tvennt í heimili. Uppl. í síma 686502.
Barnabílstóll óskast.
Uppl. í síma 39263, eftir kl. 18.
Sjúkraliði
óskar eftir 3-4 herb. íbúð, helst í Ár-
bænum, ekki skilyrði. Til greina kem-
ur húshjálp sem hluti greiðslu. Skil-
vísar greiðslur og alger reglusemi.
Tilboð sendisttil auglýsd. Þjóðviljans
merkt: Leiga XX.
Skrifstofuhúsgögn
óskast keypt á sanngjörnu verði.
Sömuleiðis fundarborð og stólar.
Upplýsingar í síma 13317.
Forstöðumaður Sambýlis
Svæðisstjóm Reykjanessvæðis málefnafatlaðra ósk-
ar að ráða þroskaþjálfa eða mann með hliðstæða
menntun til að veita forstöðu sambýli fyrir fatlaða í
Hafnarfirði.
Sambýlið mun væntanlega taka til starfa í september
nk.
Umsóknarfrestur er til 20. ágúst nk.
Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Svæð-
isstjórnar Reykjanessvæðis á skrifstofu Svæðis-
stjórnar á skrifstofutíma eftir 6. ágúst nk.
Umsóknirskulu sendartil Svæðisstjórnar, Lyngási 11
210 Garðabæ.
Svæðisstjórn málefna fatlaðra
Reykjanessvæði
Kennarar
athugið
Lausar kennarastöður við Hafnarskóla, Höfn, Horna-
firði. Kennslugreinar: almenn kennsla og íþróttir í 1 .-6.
bekk. Góð vinnuaðstaða, gott húsnæði á staðn-
um. Nánari upplýsingar veita skólastjóri í síma 97-
8148 og yfirkennari í síma 97-8595.
Skólnefnd.
AWINNULÍF
leiðslu. Þetta verðum við að vega
allt og meta.
Miðað við fjárfestingarkostn-
að skapar þessi atvinnugrein
mikil verðmæti og afurðin gefur
okkur einnig hreinar gjaldeyris-
tekjur. Loðdýraræktin skapar
einnig umtalsverða atvinnu,
hvert bú heldur uppi tveimur árs-
verkum. Reysla annarra Norður-
landaþjóða sýnir að það gefur
besta raun að hafa búin fremur
smá, best er að láta vinnuaflið á
hverjum bæ ráða stærð búsins.
Hvað með
fóður-
framleiðsluna?
Gert er ráð fyrir að fóðurstöðv-
arnar verði samvinnufyrirtæki
bændanna sjálfra. Þeim verður
komið fyrir þar sem hráefnið fell-
ur til, í sjávarþorpum hvarvetna
um landið. I fóðurstöðvunum
verður hráefnið hakkað og
blandað og síðan flutt með tank-
bílum til bændanna. Ef vel á að
takast til með þetta verður að
byggja á afar góðri skipulagn-
ingu. Búið er að ákveða hvar fóð-
urstöðvarnar verða og um Ieið
hver loðdýraræktarsvæðin verða.
Það eru eða verða fóðurstöðvar á
Sauðárkróki, Selfossi, Borgar-
nesi, Patreksfirði, og á Flateyri.
Hvar eru skinnin svo verkuð?
Það er stefnt að því að koma
upp mörgum verkunarstöðvum
þar sem bændur geta verkað sín
skinn sjálfir. Þekkingin á þessu
sviði kemur frá Danmörku, Nor-
egi og Finnlandi og Samband ís-
lenskra loðdýrabænda, sem var
stofnað árið 1970, er í ágætri sam-
vinnu við danska loðdýraræktar-
sambandið. Það rekur stórt upp-
boðshús í Kaupmannahöfn og
þangað fara öll skinn frá Sam-
bandi íslenskra loðdýrabænda.
SÍL hefur unnið mikið starf allt
frá stofnun þess og í dag rekur
það bæði innkaupa- og sölufyrir-
tæki, sem hefur m.a. tekist að
Iækka mjög verð á alls kyns
rekstrarvörum svo sem vírneti og
innfluttu fóðri.
Loðdýrarækt er ákaflega vand-
asöm búgrein og byggist á góðri
samvinnu milli bændanna sjálfra
og þetta þarf allt að skipuleggja
vel.
Fiskeldi
Það er ekkert því til fyrirstöðu,
að bændur gerist umfangsmiklir
fiskeldismenn. Það sem þeir
þurfa til að geta stundað fiskeldi á
býlum sínum er fyrst og fremst
nægur jarðhiti og þeir þurfa að
hafa aðgang að miklu fersku
vatni. Fjölmargar jarðir á íslandi
uppfylla þessi skilyrði. Bændur
sýna fiskeldi mikinn áhuga og
sumir eru reyndar þegar farnir af
stað, t.d. á Vestfjörðum. Það er
eins og með loðdýraræktina,
þetta þarf að skipuleggja vel og
samvinna milli aðila verður að
vera góð.
Við íslendingar verðum að
taka höndum saman um að gera
fiskeldi að gildri atvinnugrein í
landinu. Það þarf að veita miklu
fé til rannsókna á þessu sviði á
næstu árum, og efla verður allar
þær stofnanir sem stunda rann-
sóknir á fiskeldi. Jafnframt verð-
ur að koma á góðri samvinnu
milli þeirra. Þá vantar mikið upp
á að leiðbeiningarþjónusta við
bændur sé fullnægjandi.
Við erum vel í sveit settir með
fóðurframleiðslu til fiskeldis, því
þar er í grundvallaratriðum notað
sama fóður og til loðdýraræktar.
Það má nýta allan fiskúrgang og
allan úrgangsfisk í fiskeldisfóður
og ef vel er á málum haldið er
hægt að framleiða um 500 þúsund
tonn af því á ári hverju.
Hlunnindi
Geta bœndur ekki nýtt hlunn-
indi jarða sinna betur en nú er
gert?
Jú, mikil ósköp. Síðan 1980
hefur verið starfandi á vegum
Búnaðarfélagsins sérstakur
hlunnindaráðunautur og starf
hans er þegar farið að bera tals-
verðan árangur.
Þar má nefna að á síðustu árum
hefur æðarrækt verið efld til
muna. Dúntekja hefur aukist
mikið og nú er dúnninn nýttur
betur en áður. Verð á dúni er gott
um þessar undir og bændur eru
mjög áhugasamir um æðarrækt.
Gert hefur verið átak í að nýta
rekavið, þar sem hann er tii stað-
ar, sem er víða á norðurströnd-
inni og á Ströndum. Rekaviður-
inn er mikið notaður í girðingar-
staura. Sumir hafa jafnvel notað
hann til húsbygginga. Þá er rétt
að geta þess, sem kannski er at-
hyglisverðast í sambandi við
rekavið, að þróuð hefur verið
sérstök tegund upphitunarkatla
fyrir úrgangsrekavið og er þá
hægt að nýta hann til upphitunar
húsa.
Það hefur orðið mikil hreyfing
í því að nýta silungsvötn á landinu
betur. Það sem skeði í því á sínum
tíma var það að silungur var ekki
meðhöndlaður á tilhlýðilegan
hátt. Hann þótti því ekki eftirsótt
verslunarvara. Það leiddi til þess,
að menn fóru að minnka veiðarn-
ar. Þá varð offjölgun í vötnunum
og ekki bötnuðu gæði fisksins við
það, því ef öffjölgun verður í
vötnum verður silungurinn smár
og ekki góður til átu. Nú eru Bún-
aðarfélagið, Veiðimálastofnun
og Landsamband veiðifélaga far-
in af stað með leiðbeiningarþjón-
ustu til að þróa hentugri veiðiað-
ferðir og sína mönnum hvernig
best er að verka silunginn svo
gæði hans verði sem mest. Það
hefur sýnt sig að þegar rétt er að
staðið er silungurinn fyrirtaks-
vara. Áhugi á honum hefur enda
aukist mjög og markaðurinn hef-
ur skánað. Það leiðir til þess, að
framleiðslan verður aukin og
betra verð fæst fyrir fiskinn. Nú
hafa verið stofnsettar sérstakar
móttöku- og pökkunarstöðvar
fyrir silungsveiðibændur, svo
þetta er að verða drjúg tekjulind
fyrir suma bændur.
Heldurðu að ferðaþjónusta sé
vœnlegur kostur fyrir bœndur?
Ég hef trú á að ferðaþjónusta
bænda eigi eftir að verða veruleg
atvinnugrein og hún er þegar
stunduð af fjölda bænda. Hún
gefur þeim nokkurn arð.
Ferðabændur stofnuðu með
sér ferðamálasamtök fyrir nokkr-
um árum og upp úr því réði Bún-
aðarfélagið og Stéttarsamband
bænda einn starfskraft til að
vinna að þeim málum. Það hefur
talsvert verið unnið að þessu und-
anfarin ár, gefnir hafa verið út
kynningarbæklingar o.fl.. Ferða-
þjónustan hefur hlaðið utan á sig
og möguleikarnir til að gera dvöl í
sveitum landsins ánægjulega eru
nánast óendanlegir. Bændur
bjóða gistingu, leigja út hesta,
selja veiðileyfi í ám og vötnum og
svona mætti lengi telja. Það
hlýtur að vera bráðskemmtilegt
bæði fyrir innlenda og erlenda
ferðamenn að komast í nána
snertingu við íslenska náttúru á
þennan hátt, sagði Jónas að lok-
um.
gg
✓
A döfinni:
Handbók um íslensk
útflutningsfyrirtæki
Hafin er vinna við útgáfu á
handbók um íslenskan útflutn-
ingsiðnað og þjónustu, sem koma
mun út með haustinu. Bókin
verður um 200-300 bls. að stærð,
að hluta til litprentuð og upplag
hennar verður 50-60 þúsund ein-
tök. Ætla má að um 40 tonn af
pappír fari í handbókina, svo að
ef símaskráin er undanskilin, má
ætla að ekki hafi önnur bók, unn-
in hér á landi, komið út í stærra
upplagi.
Höfuðáhersla hefur verið lögð
á að tryggja mikla dreifingu
handbókarinnar. Hún er unnin í
samvinnu og samráði við Ferð-
amálaráð íslands, iðnaðarráðu-
neytið, sjávarútvegsráðuneytið,
utanríkisráðuneytið, Útflutn-
ingsmiðstöð iðnaðarins og við-
skiptaráðuneytið. Bókinni verð-
ur dreift gegnum verslunarráð
600 borga í 25 löndum, á alþjóð-
legum vörusýningum, sendi-
ráðum íslands, Útflutningsmið-
stöð iðnaðarins, umboðsskrif-
stofum íslenskra flugfélaga og
skipafélaga erlendis.
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 23. júlí 1985