Þjóðviljinn - 23.07.1985, Side 7
„Okkur þykir ís góður,“ sögðu Austurstrætisdæturnar við Ijósmyndarann. mynd Ari.
Sól og blíða
Mannlífið í Austurstrætinu
Austurstrætið iðaði af lífi
á hádegi í gær. Veðrið var
eins og best var á kosið, og
sá maður hina þrælpíndu
launþega hreinlega fiýja út
af skrifstofunum og nær-
liggjandi búðum til að njóta
blíðviðrisins. Allir voru
sammála um að í svona
veðri ætti að loka „sjopp-
unni“ það ætti að lögbinda
sóiarfrídaga eins og aðra
frídaga, maður lifir jú bara
einu sinni!
Litla Reykjavík vaknar til lífs-
ins um leið og sólin fer að skína og
hinir brynjuðu landar brjótast út
úr brynjunum. Labba brosandi
um, rabba um veðrið við gesti og
gangandi, og gleyma amstri
hversdagsins í klukkutíma, með-
an á matarhléinu stendur.
Gamall þulur situr á bekk og
horfir á lífið þjóta framhjá. Allt í
kringum hann eru annasöm blað-
sölubörn, syngjandi forsíðufrétt-
irnar af mikilli snilld. Stoltar
mæður viðra afkvæmin í góðviðr-
inu og njóta lífsins fram í fingur-
góma í syngjandi rólegheitum.
Enda eru þetta dagarnar sem
mannfólkið man eftir þegar húm-
ar að kveldi og það fer að rifja
upp farinn veg.
Austurstrætisdæturnar skört-
uðu sínu fegursta, og mátti ég
hafa mig alla við að draga ljós-
myndarann inn í hús. Hann vildi
eyða deginum meðal hins fagra
kyns og lái honum hver sem vill.
-sp
Darling hjónin stolt með ungann sinn, hana Þuríði Önnu. mynd Ari.
Austurstrœti
Draumabamið
í sólinni
Ragnheiður ísaksdóttir hélt
stolt á frumburðinum henni Þur-
íði Önnu, 2Vi rnánaða Reykja-
víkurmær, þegar við hittum hana
í sólinni í gær. „Hún er alveg eins
og draumabarnið á að vera, sefur
allar nætur og lætur bara heyra í
sér þegar hún er svöng og blaut.
Þuríður Anna er fædd 2. maí, en
átti að fæðast þann 1. en það er
ekki á allt kosið. Við mæðgurnar
höfum verið mjög heppnar með
veður, það sem af er lífshlaupi
Þuríðar og höfum notið þess út í
fingurgóma. Alvara lífsins tekur
svo við eftir 2 vikur, þá ætla ég að
fara að vinna úti hálfan daginn.
Pabbinn, Robert Darling, sem er
enskur tónlistarkennari sat stolt-
ur hjá kvenpeningnum sagði:
„That’s life!
-sp
Þriðjudagur 23. júlí 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7