Þjóðviljinn - 23.07.1985, Page 16

Þjóðviljinn - 23.07.1985, Page 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663. DflÖÐVIUIHN Þriðjudagur 23. júlí 1986 166. tölublað 50. árgangur Bíldudalur Engin vinnuþrælkun Fiskvinnslan hf á Bíldudal lœtur togara sinn aldrei koma með meiri afla en vinnslan rœður við. Aldrei unnið eftir kl. fimm. Vinna allt á hagkvœmasta hátt. Jakob Kristinsson framkvœmdastjóri: Óhress með kvótann. Við ákváðum það fyrir um tveimur árum að vinna aldrei eftir klukkan fimm. Ef við höfum þurft að vinna meira en fjörtíu tíma á viku höfum við unnið það á laugardagsmorgnum. Til þess að ná þessu stýrum við veiðum tog- arans, þannig að hann kemur aldrei með meiri afla á land en við komumst yflr að vinna á þessum vinnutíma, sagði Jakob Kristins- son framkvæmdastjóri Fisk- vinnslunnar á Bíldudal þegar Þjóðviljinn sló á þráðinn til hans. „Ég veit ekki annað en allir að- ilar séu ánægðir með þetta, fólk nær ágætum bónus á þessum tíma og afköstin eru góð. f>að er auðvitað tóm vitleysa sem gert er víðast hvar annars staðar, að láta vinnsluna í landi stjórnast af því hversu mikill afli berst á land. Því fylgir alltaf of mikið vinnuálag, afköstin minnka og svo eru menn að vinna fiskinn í einhverjar pakkningar sem seljast fyrir lítið. Með þessu fyrirkomulagi okkar náum við alltaf að vinna aflann á hagkvæmasta hátt. Annars erum við hér afar óhress með kvótakerfið eins og það er a.m.k. hvað okkur við- kemur. Þrátt fyrir að við stjórn- um veiðunum á þennan hátt verðum við búin með kvótann í ágúst og þá liggur ekki annað fyrir en að loka vinnslunni og við getum þá ekki veitt fólki vinnu frá ágúst til áramóta. Ef við vilj- um halda uppi einhverri vinnslu á þessum tíma þurfum við eigin- lega að leggja í 40-50 milljón króna fjárfestingu í öðru skipi bara til að fá meiri kvóta, það er engin skynsemi í því,“ sagði Jak- ob að lokum. gg Thelma Righter er hér á landi ásamt eiginmanni sínum á 11 daga ferðalagi. mynd Ari. Ferðamenn Hringdi í sendiráðið til að panta gott veður Allt kom fyrir ekki. Thelma Richter bandarískur ferðamaður: Lentum í snjókomu ístaðinn fyrir Floridaveðrið. Fjárfestum í mörgum lopapeysum. Útsendarar Þjóðviljans voru staddir niður í Austurstrætinu I straumiðu reykvíska bæjarlífs- ins. Við ætluðum að hremma hinn dæmigerða „túrhest“ þenn- an með bakpokann. Þá svífur á okkur bandarísk húsmóðir sem sagðist heita Thelma Richter og vera í 11 daga ferð um ísland með eiginmanni sínum. „Hæ, mikið var ég undrandi að sjá sólina í morgun þegar ég vaknaði, við hjónin ætlum heim á morgun og verð ég að segja að mig langar ekki til að yfirgefa ykkur. Við erum búin að vera á ferðalagi fyrir austan í kalsaveðri og snjókomu. Jú við vissum að við vorum að fara til íslands en allir ferðabæklingar sögðu okkur að það væri sumar á íslandi. Við vorum líka búin að hringja í sendiráðið og spyrja hvernig veðrið væri og fengum þau svör að hér væri Florida veður. „Við urðum að fjárfest í nokkr- um lopapeysum í Rammagerð- inni til að lifa „veturinn" af!“ sagði Thelma um leið og sýndi mér að hún var klædd í nokkur lög af peysum. -sp Ríkisútvarpið Lista- og skemmtideild lögð niður Leiklistarráðunautur ráðinn aðnýju. Pétur Guðfinnssonframkvœmdastjóri sjónvarps: Vonum að lista- og menningarefni verði ekki undir. Sú breyting hefur verið gerð á deildaskipan í Sjónvarpinu, að báðar dagskrárdeildir þess, Frétta- og fræðsludeild og Lista- og skemmtideild hafa verið lagðar niður. í þeirra stað hafa verið settar upp þrjár deildir, fréttadeild, deild innlendrar dag- skrárgerðar og innkaupa- og markaðsdeild. Hinrik Bjarnason, sem áður var dagskrárstjóri Lista- og skemmtideildar verður nú deildarstjóri innkaupa- og mark- aðsdeildar. Emil Björnsson sem verið hef- ur dagsicrárstjóri Frétta- og fræðsludeildar frá upphafi Sjón- varpsins lætur af störfum hinn 1. nóvember næstkomandi vegna aldurs. Hafa því verið auglýstar til um- sóknar stöður fréttastjóra og deildarstjóra innlendrar dag- skrárgerðar. Þjóðviljinn hafði samband við Pétur Guðfinnsson fram- kvæmdastjóra sjónvarps og spurði hann hverju þetta sætti. „Við teljum að nýting mannafla gæti orðið markvissari ef þjón- ustuaðilar geta snúið sér til eins manns í sambandi við innlenda dagskrárgerð en vissulega viður- kenni ég að það geti orðið mjög yfirgripsmikið starf og krefjandi. Sá aðili sem í þessa stöðu verður ráðinn verður auðvitað að hafa víðtæka reynslu og góða menntun. Við teljum líka að er- lend innkaup gætu orðið hag- stæðari ef einn maður hefur stjórn á þeim og öðrum þræði eru þetta aðgerðir sem miðast við væntanlega samkeppni á þessum markaði.” Þegar blaðamaður innti hann eftir menningar- og listaefni sagði Pétur að fljótlega yrði einnig auglýst staða leik- listarráðunauts og taldi hann fulla þörf á slíkum innan stofnun- arinnar. „Við hægðum á leikrita- gerðinni um tíma, vegna sparn- aðaraðgerða og enginn hefur sinnt þessu starfi undanfarið. Nú er komin reynsla á það og ljóst er að það gengur ekki lengur. Leiklistarráðunautur er nauðsyn- legur og við vonum að lista- og menningarefni verði ekki undir þrátt fyrir þessar skipulags- breytingar,” sagði Pétur að lok- um. -vd Skotgatið í eldhúsglugganum í samanburði við meðalstóra manns- hönd. Ljósm. Ari. Sendiráðið Byssu- maðurinn ófundinn Málið í rannsókn hjá RLR. Alltáhuldu. Enn er á huldu hver skaut úr haglabyssu í eldhúsglugga starfs- mannabústaðar bandaríska send- íráðsins á sunnudagsmorgun. Lögreglan í Reykjavík hefur sent málið til Rannsóknarlög- reglunnar sem vinnur að rann- sókn þess. í sjónvarpsfréttum á sunnu- dagskvöld var sagt að líklegast væri um ameríkana að ræða sem hefði átt í útistöðum við íbúa hússins við Þingholtsstræti. Að sögn Helga Daníelssonar hjá Rannsóknarlögreglunni var þetta misskilningur. Það hefði verið bent á ákveðinn mann sem lík- legan, en sú ábending hefði ekki reynst á rökum reist. Helgi sagði að málið væri í rannsókn og ekk- ert væri hægt að segja um það að svo stöddu. —pv Hagvirki Dökkt framundan Hœtta á stórsam- drætti með haustinu. „Ekki allar sögur sannar umfyrirtœkja- kaup okkar. ” „Nei þetta er ekki rétt en við höfum heyrt þessa sögu. Okkur var boðið að kaupa þetta fyrir- tæki en við afþökkuðum,” sagði Jóhann Bergþórsson fram- kvæmdastjóri Hagvirkis að- spurður hvort fyrirtækið væri búið að festa kaup á matsölu- fyrirtækinu Gæða-Mat í Hafnar- firði. Eigendur Hagvirkis hafa hins vegar nýlega keypt vélsmiðjuna Klett í Hafnarfirði og fyrr í sumar gerðust þeir eignaraðilar að Hvaleyri h/f sem tók við rekstri BÚH. „Nei, það vil ég ekki segja,” sagði Jóhann aðspurður hvort eigendur Hagvirkis væru að losa fé úr fallvaltri verktakastarfsemi. „Það eru núna um 330 manns í vinnu hjá okkur en það er vissu- lega dökkt framundan í haust og vetur ef ekkert nýtt kemur uppá. Ef ekkért gerist þá verðum við að fækka í samræmi við samdrátt í verkefnum og það er sorglegt að þurfa að láta þessi stóru tæki standa hérna eins og togara á beit,” sagði Jóhann Bergþórsson. -lg

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.