Þjóðviljinn - 08.08.1985, Page 2
FRÉTTIR
Japönsku gestirnir Toshio Okamura og Yoshio Niki við komuna til landsins í gær. Þeir eru hér á vegum Samtaka herstöðvaandstæðinga. Samtökin
efndu til móttökuathafnar við aðalhlið bandarísku herstöðvarinnar í Miðnesheiði, Keflavíkurflugvallar, viö komu gestanna.Toshio Okamuraereitteftirlifandi
fórnarlamba kjarnorkuárásarinnar á Hiro sima 6. ágúst 1945, Yoshio Niki er læknir og hefur um árabil annast sjúklinga þá er lifðu af kjarnorkuhörmungarnar
sem og þá er sýkst hafa af völdum geislavirkni, á japönsku nefndir hibakusi. Ljósm. Ari.
Kjarnorkuárásin á Hirosima
Ógnun við tilveru mannkyns
Minningareldur tendraður við hlið herstöðvarinnar í Keflavík
Arásin á Hirosima markaði
nýtt skeið í sögu mannkyns.
Öld kjarnorkuógnunar var runn-
Þröstur Guðbjartsson leikari: Ég hef
tekið þátt í flestum aðgerðum Sam-
taka herstöðvaandstæðinga sl. 10 ár
og hef hugsað mér aö taka fullan þátt
í friðarbúðunum. Ég vonast til þess
að fólk um heim allan taki sig saman
gegn kjarnorkuvopnabrjálæði stór-.
veldanna. Fólk þarf að vakna til bar-
áttu en láta ekki varpa yfir sig
kjarnorkusprengjum í svefnrofunum.
Forystumenn þurfa að verða
áþreifanlega varir við vilja fólksins.
in upp. Rúmlega 10 ferkílómetra
svæði var gereytt á aðeins einni
mínútu. íbúar borgarinnar stikn-
uðu flestir eða krömdust til bana.
Yfir 100 þúsund manns létust
þannig samstundis. Þeirra er eftir
lifðu biðu ólýsanlcgar og langvar-
andi þjáningar vegna brunasára
og geislunar frá sprengjunni.
Fyrir alþýðu hcimsins táknaði
sprengjan ógnun. Ógnun við þá
von að geta lifað í friði og séð
framtíð barna sinna tryggða.
Ógnun við tilveru sjálfs
mannkynsins.
Svo mæltust Ingibjörgu Har-
aldsdóttur varaformanni Sam-
taka herstöðvaandstæðinga orð á
fundi samtakanna við aðalhlið
Keflavíkurflugvallar sl. þriðju-
dagskvöld.
A annað hundrað íslenskra
friðarsinna voru þar saman
komnir í NA-næðingnum, við
hlið herstöðvar Bandaríkjahers
til þess að minnast kjarnorkuár-
ása þessa sama hers á japönsku
borgirnar Hirosima og Nagasaki
fyrir40árum. Viðhliðfjölmargra
hinna 1000 herstöðva Bandaríkj-
anna víðsvegar um heim var efnt
til slíks fundarhalds.
í lok ræðu sinnar sagði Ingi-
björg: „Reynslan frá Hirosima
hefur sýnt að í kjarnorkustyrjöld
verður enginn sigurvegari og
vopnakapphlaupið eykur aðeins
spennuna á milli stórveldanna og
hættuna á því að styrjöld brjótist
út annað hvort af smávaegilegu
tilefni eða af slysni. Hér á íslandi
Ari Tryggvason, vagnstjóri hjá SVR:
Ég tek þátt í friðarþúðunum flesta
daga vikunnar, en hér er ég staddur
ásamt nokkrum vinnufélögum.
Vissulega hefði ég óskað betra
veðurs, hann hangir þó þurr og því
þara að búa sig vel.
höfum við ekki farið varhluta af
þessu kapphlaupi stórveldanna.
Friðarbarátta verður ekki háð
hér á landi án þess að horfst sé í
augu við þá staðreynd sem her-
stöðin hér á Miðnesheiði er.
SHA hafa um langt árabil barist
fyrir því markmiði að bandaríska
herliðið hverfi á brott og ísland
segi sig úr hernaðarbandalaginu
NATO. Barátta okkar hefur
sjaldan verið mikilvægari en ein-
mitt nú.“
Að ræðu Ingibjargar lokinni,
var lesinn þáttur úr leikriti grik-
kjans Aristofanesar, Lysiströtu,
um friðarbaráttu aþenskra
kvenna um 400 f.Kr. Þá flutti
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, fjöl-
brautaskólanemi úr Keflavík,
ávarp. Að því loknu tendraði Jó-
hann Geirdal minningareld sem
loga á til föstudagskvölds 9. ágúst
þá er friðaraðgerðunum lýkur.
Síðan tóku þeir Ari Tryggvason
og Þröstur Guðbjartsson við eld-
vörslu sem fyrsta vakt fram til
miðnættis. Aðrir þátttakendur
héldu heim til friðarbúða við
Samkaup á mörkum sveitarfélag-
anna Keflavíkur og Njarðvíkur,
en þar höfðu þá risið auk sam-
komutjalds á þriðja tug tjalda.
já
Friðarbúðir
Dagskráiní dag
Heilsað upp á SOSUS - Lundaveisla
Idagskrá Friðarbúða segir að
„skuggaaðgerðir“ verði einn af
atburðum dagsins, fjöruferð ann-
ar, síðan grillveisla og kvöldvaka.
Fjörðuferð verður farin milli
Stafness og Ósabotna á suðvest-
anverðu Rosmhvalanesi. Þar á
nesinu, í Þórshöfn, fyrrum versl-
unarhöfn, telja menn neðansjáv-
ar-hlustunarkapalinn SOSUS
liggja í land hvar hann kemur frá
Grænlandi. Fylgst verður með
ferðunt flugvéla og sérfróðir
menn leiðbeina um tegunda-
greiningu.í tjaldbúðunum sjálfurn
hafa fóstrur umsjón með barnatí-
volíi.
I kvöld heimsækja japönsku
gestirnir Toshio Okamura og
Yoshio Niki friðarbúðirnar til
viðræðna við íslenska friðar-
sinna. Þá verður efnt til
grillveislu. Eins og áður hefur
komið fram á síðum Þjóðviljans
verða þá m.a. grillaðir lundar,
veiddir í Drangey. Að sjálfsögðu
verður einnig efnt til kvöldvöku
með ýmsum skemmti- og menn-
ingaratriðum. já
Ungi maðurinn sem heldur á lofti
þessu ágæta kröfuspjaldi heitir Osk-
ar Traustason og er frá Hafnarfirði.
Þó hann sé aðeins 10 ára hefur hann
þegar gengið til liðs við friðarbarátt-
una og útbúið sitt fyrsta kröfuspjald.
Ljósm. Ari.
Það er alltaf verið að banna fá-
tæklingunum að fiska í soðið.
Ferðaskrifstofur
Allt er
til sölu
Prálátur orðrómur
um að
ferðaskrifstofan
Utsýn verðiseld.
Ingólfur
Guðbrandsson:
Reksturinn með
miklum blóma. Ætli
sagan sé ekki komin
frá keppinautunum?
„Allt veraldlegt góss, það
gcngur kaupum og sölum, ef nógu
hátt verð er í boði. Það gæti vel
verið að fengi ég slíkt tilboð í
ferðaskrifstofuna Utsýn mundi ég
hugsa mig um, að selja fyrirtæk-
ið, en til þcss hcfur ekki komið
enn og ekkert verið eftir því
leitað.“
Þetta sagði Ingólfur Guð-
brandsson m.a. í viðtali við Þjóð-
viljann þegar hann var spurður
álits á þeim orðrónri að Ferða-
skrifstofan Útsýn væri til sölu.
„Ferðaskrifstofan Útsýn hefur
hvorki verið boðin né auglýst til
sölu. Rekstur fyrirtækisins er
með miklum blóma á öllurn svið-
um og veruleg aukning frá fyrri
árum. Ég held að farþegar okkar
séu mjög ánægðir með viðskipti
sín við Utsýn. Þeir koma aftur og
aftur. Stundum þurfa þeir að
reka sig á, með því að gera verri
viðskipti með lakari þjónustu
annars staðar. En þeir eru þá
reynslunni ríkari og koma með
viðskipti sín aftur til Útsýnar.
Það hefur verið orðtak okkar að
„forsjáll ferðamaður velur Út-
sýnarferð af því að það þjónar
hans eigin hagsmunum“. Ég hef
eytt ævistarfi í að byggja upp
þessi viðskipti og hef náð hag-
stæðum samböndum um allan
heim. Þau sambönd eru verðmæt
og því viðskiptatrausti sem Útsýn
hefur byggt upp á 30 árum getur
enginn annað aðili státað sig af,
, þeirri reynslu og þeim sambönd-
um sem Útsýn hefur og nýtur.
Viðskiptavinir njóta síðan þessa,
í viðskiptum sínum við fyrirtæk-
ið.
En ætli þessi saga sé ekki kom-
in frá keppinautum, einsog ýmsar
aðrar sögur, í því skyni að reyna
að veikja það traust sem almenn-
ingur ber til fyrirtækisins og lýsir
sér á mörgum sviðum. Ég sé ekki
aðra skýringu á því, að slíkur
kvittur kemur upp.“
I.H.
Nafnaruglingur
Nafnaruglingur varð í frétt unr
laxeldi í Grundarfirði í blaðinu í
gær, miðvikudag. Páll Guð-
mundsson var sagður Kristjáns-
son og Svanur Guðmundsson var
sagður sonur Páls, en þeir eru nú
bræður.
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN ! Fimmtudagur 8. ágúst 1985