Þjóðviljinn - 08.08.1985, Síða 5

Þjóðviljinn - 08.08.1985, Síða 5
Loðdýrarœkt Vaxandi bugrein í Vopnafirði Vantar heildarskipulagningu, ráðgjöfog rannsóknir. Sölusamtökin íeigu bœndanna sjálfra. - Nú er loðdýrarækt stunduð á 10 búm í Vopnafirði, en mætti vera fimm til sexfalt meiri, því markaðir virðast nægir. Við Is- lendingar höfum aðeins innan við 1% af heimsmarkaðnum og höf- um getað selt alla okkar fram- leiðslu. Það eru einungis fóður- öflunarmöguleikar sem hafa ráð- ið fjölda loðdýra í héraðinu, sagði Álfhildur Ólafsdóttir ráðunautur á Akri í Vopnafirði, þegar blaðamaður heimsótti hana og Björn Halldórsson bónda, en þau búa félagsbúi í Engihlíð ásamt foreldrum Björns og bróður. Þau eru með 30 mjólkurkýr, rúmlega 200 fjár og 65 minkalæður. Álfhildur, sem er frá Gerði í Hörgárdal, er búfræð- ikandidat frá Hvanneyri og var í 3 ár yfirkennari á Hólum. Hún er nú einn af fjórum ráðunautum Búnaðarsambands Austurlands. Við spyrjum þau um loðdýra- ræktina. á vegum landbúnaðarráðuneytis- ins, sagði Björn. Mest allt frurn- kvæði hefur verið í höndum nokkurra áhugasamra bænda og ráðunauta. Einnig ætti ríkisvald- ið að beina fjármagni í rannsókn- ir, t.d. á húsbyggingum. Sums staðar eru byggð allt of dýr hús. - Fjárhagslega stendur loðdýr- aræktin höllum fæti, sagði Álf- hildur. Lánsfé liggur ekki á lausu, því þótt bankaútibúin séu öll af vilja gerð, virðast hendur þeirra bundnar og brjálaðir okurvextir og óstjórn í peningamálum í landinu lenda á bændum sem öðrum. - Það er athyglisvert hversu mikið verslunin, en ekki bænd- urnir sjálfir, virðast græða á land- búnaðinum, sagði Björn. - Hér eru seld tæki frá fjölda fyrirtækja en varahlutaþjónusta í miklum ólestri. Nú bíða innflutningsfyrir- tækin eftir því að auka sölu á hinu og þessu til loðdýrabænda. - Það er rekinn linnulaus áróður gegn bændum og lands- byggðinni yfirleitt en enginn horfir i ríkisstyrki til fólks sem fyrir sunnan er að flokka pappíra utan af landi, bætti hann við. Mikilvœgi samstöðunnar Bæði Álfhildur og Björn lögðu mikla áherslu á að loðdýrabænd- ur stæðu vörð um sín eigin sölu- samtök. Þau eru í eigu bændanna sjálfra og greiða arð beint til þeirra. Danir selja nær öll sín skinn gegnum sölusamtök bændanna sjálfra. Þau sögðu bændur verða að gera sér grein fyrir þýðingu þess að standa sam- an og vara sig á áróðri beint gegn samtökum þeirra. Loðdýra- ræktin ætti mikla framtíð fyrir sér og hana þyrfti að stórauka. Að lokum spurðum við Álf- hildi hvernig Vopnfirðingar hefðu tekið því að fá konu sem ráðunaut og hvernig henni líkaði starfið. - Þeir tóku mér ótrúlega vel. Mérfinnst gaman aðöllu sem ég er að vinna að og líður best inni í loðdýrahúsi eða úti í góðu veðri. G.G.Ó. Álfhildur Ólafsdóttir ráðunautur og Björn Halldórsson bóndi á Akri í Vopnafirði ásamt syni þeirra Bergþóri Bjömssyni. Vantar ráðgjöf - Það þyrfti að sinna loðdýra- ræktinni miklu betur en gert er, það vantar mannskap í ráðgjöf, sagði Álfhildur. Þetta eru húsdýr sem bændur þekkja ekkert og það er ekkert hægt að leita til nágrannanna um ráð eða hjálp. Hér er um að ræða uppbyggingu rekstursins almennt, húsin, hirð- ingu dag frá degi, tæknivæðingu og fjármálastjórn. T.d. er pörun á ref sérstaklega vandasöm. Ann- ars er hér mjög góð samvinna milli bændanna. Það eru nokkuð margar ráðunautastöður lausar í landinu, en fóður- og vélainn- flutningsfyrirtæki borga mun hærri laun, svo landbúnaðarfræð- ingar vilja frekar vinna hjá þeim. Nú er loðdýrarækt valgrein við báða bændaskólana og loðdýra- ræktarráðunautar ferðast um landið á vegum Búnaðarfélags ís- lands. Álfhildur hefur tvisvar farið til Danmerkur til að læra að flokka refaskinn og velja refi til ásetn- ings og þau Björn hafa bæði sinnt fræðslustarfi m.a. með því að þýða greinar um loðdýrarækt í búnaðarritið Frey. - Hér á landi eru aðstæður til loðdýraræktunnar mjög góðar frá náttúrunnar hendi, sagði hún. Veðurfarið er hagstætt, hitastig hentar vel og við höfum gott drykkjarvatn. Einnig eigum við ódýrt hráefni í fóður, og betra en flestar aðrar þjóðir, t.d. þorsk- og sláturúrgang. Við kaupum að- eins lítilsháttar kornfóður að utan. Heildarskipu- lagningu skortir - Þegar aftur var farið út í loð- dýrarækt hér á landi gleymdust fóðurstöðvarnar, dýrin komu fyrst, og svo var farið að hugsa um fóðurframleiðsluna. Á þessu þyrfti að vera heildarkipulagning Gœsarœkt Uppeldið krefst nákvæmni Karl Sveinsson: Fjallabragðið í bland við alifugla- bragð gerirframleiðsluna frábrugðna verksmiðju- gœsum. - Það tók alllangan tíma að ná tökum á gæsaræktinni. Útungunin og ungauppeldið krefst nákvæmni og meðferð stofngæsa yfir veturinn getur verið vandasöm. Fyrstu árin bar mikið á ófrjósemi og unga- dauða en nú er slíkt úr sögunni. Þetta voru orð Karls Sveinssonar gæsabónda og sláturhússeiganda í Borgarfirði eystra, þegar Þjóðvilj- inn var þar að forvitnast um gæsa- rækt á Austurlandi. - Hér á Austurlandi eru þrjú bú með gæsarækt sem aðalbúgrein, Hólaland og Geitavík í Borgarfirði og Dvergasteinn í Seyðisfirði. Fleiri hafa þetta sem aukabúgrein. Hér slátruðu yfir 20 aðilar í fyrra rúmlega 5000 fuglum en það var annað árið sem við rekurn þetta sláturhús. Varpið fer fram síðari hluta vetrar og er ungunum slátrað 4-6 mánaða gömlum. Fyrstu fimm til sex vikurnar er þeim gefið kjarnfóður með beitinni, en ganga svo sjálfala á fjalli í tvo til þrjá mánuði á sumrin. Svo er þeim gefið í fjórar til fimm vikur fyrir slátrun. Með fjalla- beitinni erum við að sækjast eftir fjallabragði í bland við alifugla- bragðið. Það er það sem skilur okkur frá verksmiðjubúunum. Erfiður markaður - Afurðirnar eru seldar í mat- vöruverslanir á Reykjavíkursvæð- inu og úti um land, einnig í hótel og veitingahús, en markaðurinn var erfiður s.l. ár. Áður gátum við los- að við allt um ieið og slátrað var en nú var helmingurinn eftir um ára- mót og við urðum að selja það undir kostnaðarverði. Stærri aðil- ar, nær Reykjavík eru komnir inn í myndina og kaffæra okkur auðveldlega. Þetta er lítill ntarkað- ur og viðkvæmur. Svo er sláturhús- ið sjálft okkur erfiður baggi fjár- hagslega, þar sem við notum dýrari aðferð við slátrunina en flestir aðr- ir. Við notum svonefnda vaxaðferð sem er seinlegri en gefur af sér betri vöru en hin hefðbundna kaloner- ing, bæði betri hreinsun og fallegra útlit. - Framtíðin er óviss en við erum bjartsýn og vonumst til að geta haidið ótrauð áfram. G..G.Ó. Karl Sveinsson gæsabóndi í Borgarfirði eystra fyrir framan fugla-sláturhús þeirra Borgfirðinga: „Stærri aðilar, nær Reykjavík, eru komnir inn í myndina og kaffæra okkur auðveldlega". Fimmtudagur 8. ágúst 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.