Þjóðviljinn - 08.08.1985, Síða 6

Þjóðviljinn - 08.08.1985, Síða 6
FLÓAMARKAÐURINN ATVINNULÍF Una Einarsdóttir er framkvæmdastjóri, verkstjóri, bílstjóri, gjaldkeri og saumakona á saumastofunni Hrund á Vopnafirði: „Gátum greitt launauppbót á síðasta ári“. Saumastofan í mörgu að snúast Una Einarsdóttir erframkvæmdastjóri, verkstjóri, bílstjóri, gjaldkeri og saumakona á saumastofunni Hrund á Vopnafirði Er með tiltektaræði og því fæst eftirfarandi á gjafverði: Tveir góðir stólar með krómaðri grind og púðum úr ekta nautshúð, þarfnast viðgerðar, Brother prjónavél, 7 ára, lítið notuð, meö borði, 4 rafmagnsþil- ofnar, sem nýir, gamalt 20" Winther drengjareiðhjól, stór og fönguleg barnavagga úr tré, gæti dugað fyrir tvo. Upplýsingar í síma 45663. íbúð óskast Óskum eftir lítilli íbúð á leigu á viðráð- anlegu verði. Uppl. í síma 28257. Ávarp til sanngjarnra og heiðarlegra íbúðaeigenda Ég er 24 ára gömul, reglusöm og í góðu, föstu starfi. Mig langar til að komast úr 4 fermetra herberginu mínu í litla 2 herbergja íbúð, helst í miðbænum eða Þingholtunum, en það er þó að sjálfsögðu ekkert skil- yrði. Ég get borgað einhverja fyrir- framgreiðslu og heiti skilvísum mán- aðargreiðslum. Ef einhver hefur áhuga á að sinna þessu kalli þá vins- amlegast hringið í síma 36718 eftir klukkan 17. Hjólsög í borði til sölu. Verð 6000 kr. Sími 12711 milli kl. 18 og 20 á kvöldin. Telpnareiðhjól Til sölu telpnareiðhjól fyrir 7-10 ára, nýlegt og gott hjól. Upplýsingar í síma 76796. íbúð óskast Kennari og laganemi ásamt bömum óska eftir 3-5 herbergja íbúð. Upplýs- ingar gefur Margrét í síma 24946. Citroén, árgerð 1974 til sölu á krónur 8000. Er í ökufæru ástandi. Upplýsingar í síma 34323. íbúð óskast Reglusamt par í Háskólanum óskar eftir 2-3 herbergja íbúð. Skilvísum greiðslum og góðri umgengni heitið. Sími 76020 og 42169. Eldavél óskast Óska eftir að kaupa góða, notaða eldavél. Upplýsingar í síma 36701 á kvöldin. Atvinna óskast Fertugan mann vantar vinnu nú þeg- ar. Flest kemur til greina. Hefur bíl til umráða. Upplýsingar í síma 621593 eftir kl. 19. Tómt eldhús Ef einhver þarf að losa sig við notaða eldhúsinnréttingu, eldhúsvask, ís- skáp, eldavél og tvær hurðir á mjög vægu verði þá vinsamlega hafið samband sem fyrst í síma 40568. Búslóð til sölu Sjónvarp, hillusamstæða, hjónarúm, fataskápur, stólar og borð og margt fleira. Upplýsingar í síma 17601. Kontrabassi til sölu. Hentugur fyrir unga djassara. Verð kr. 22000. Upplýsingar í síma 82941. ísskápur til sölu. Uppl. í síma 44482. Vantar bráðnauðsynlega 4 eldhússtóla og vandað sófasett, strax. Upplýsingar á vinnutíma í síma 81333. Vilborg. Mjög góður Ford Mercury Comet árg. '74 skoðaður '85 til sölu. Óska eftir Lödu Sport í skiptum. Uppl. í síma 45530 frá kl. 20-24 alla daga. Talstöðvar óskast Óskum eftir að kaupa 3 40 rása CB Benco talstöðvar. Uppl. í síma 45530. Talstöðvarklúbburinn Bylgjan. Dagmamma óskast fyrir 1V2 árs gamlan strák frá kl. 8-16 í Bakkahverfi í Breiðholti. Uppl. í síma 79468 eftir kl. 18. íbúð óskast jslenskur námsmaður búsettur er- lendis vill leigja sér smáíbúð á Reykjavíkursvæðinu í nokkra mán- uði. Gjarnan með síma og húsgögn- um. Hringið í Gunnar, sími 671353. Rest til sölu Vegna flutninga: 3 ára ísskápur (AEG), 4 nýleg negld vetrardekk 13x155, barnatvíhjól (6-8 ára) og svefnbekkur með rúmfatageymslu. Allt selst á mjög góðu verði. Uppl. í síma 39442. Til sölu Gardínur, ýmsar gerðir, 2 vandaðir reyrstólar í sumarbústaðinn eða garðhúsið, vönduð ullardragt númer 40-42, skór númer 39 og töskur. Upp- lýsingar í síma 42935. Gólfteppi Hafirðu áhuga á gömlu gólfteppi, þá færðu upplýsingar í síma 34136 eftir kl. 18 næstu daga. Óska eftir atvinnu Ég er 17 ára, rösk og dugleg stelpa í skóla og vantar vinnu á kvöldin og/ eða um helgar strax og í vetur. Uppl. í síma 72034 eftir kl. 17. Anna Soffía. Heimilishjálp - Barnakerra Óska eftir heimilishjálp 3-4 tíma á viku. Barnakerra til sölu á sama stað. Sími 21428 og 17055. Ýmislegt til sölu Til sölu kerra á kr. 3.500,- og regn- hlífarkerra með svuntu og skerm kr. 2.500,- Uppl. í síma 23410. ATH. Við erum vanir gluggaútstillarar, ansi góðir í skiltamálun og hönnun sýning- arstanda. Ef þú ert í vandræðum hafðu þá samband í síma 27007, 26069. Vantar íbúð Ung hjón í háskólanámi vantar íbúð til leigu. Möguleg skipti á nýstandsettri íbúð i Keflavík. Skilvísum greiðslum heitið. Uppl. í síma 92-4099 fyrir há- degi (Ragnar) og 92-4124 á kvöldin. Barnagæsla Barngóð stúlka eða kona óskast til að gæta tveggja barna frá kl. 9-17. Er í gamla vesturbænum. Uppl. í síma 27514. Tímaritið Gestgjafinn Vill ekki einhver selja mér vel með farinn „Gestgjafa” 2. tbl. 1. árg.? Má þess vegna kosta kr. 500. Sími 97- 8886. Ljósmyndastækkari Beseler svart/hvítur stækkari til sölu, fyrir allar stærðir af filmum, 2 linsur fylgja. Uppl. í síma h. 18795 eða í vinnu 81333 Svava. Eldavél Stór amerísk eldavél fæst gefins. Vantar hillusamstæðu í barnaher- bergi. Einnig vantar mig taurullu. Sími j 17087. Skodi120L Mig vantar Skoda 120L til niðurrifs. Má ekki kosta mikið. Sími 30504. Gömul kommóða Óska eftir gamalli kommóðu (ekki tekk). Má þarfnast viðgerðar. Uppl. í síma 13374 eftir kl. 18. Rafmagnshellur á borð Til sölu er lítil borð-eldavél með 2 hell- um. Verð kr. 1.000. Uppl. í síma 33202. Ertu að byrja að búa? Dýnur og púðar í sófa, og eldhúsborð selst mjög ódýrt. Sími 45379. Til sölu gamall ísskápur á kr. 3 þús., furusófasett, 3ja sæta sófi, 2 stólar og sófaborð á kr. 6 þús., gamall stofuskápur 1 þús., stúdenta- bóksöluhillur 2 ein. á 2 þús.. Uppl. í síma 37413. Fuglabúr Hver vill selja mér fuglabúr og fugl (fugla)? Uppl. í síma 92-3542. Þetta gengur ekki lengur Þú verður að koma dótinu þínu fyrir í öruggri geymslu. Til leigu rúmgott upphitað geymsluherbergi með sér- inngangi. Leigist í 6-24 mánuði. Uppl. í síma 41039 í dag og næstu daga. Vagga til sölu Handmáluð dönsk vagga í sveitastíl til sölu, dýna fylgir. Einnig fallegt gamalt fururúm fyrir barn/ungling án dýnu. Sanngjarnt verð. Uppl. í síma 20171. Kvenreiðhjól óskast Óska eftir að kaupa kvenreiðhjól í góðu lagi, má vera gamalt og ódýrt. Uppl. í síma 39598, Guðrún, í vinnu 26710 kl. 8-16. Lífsspursmál Ég er ungur, algjörlega reglusamur kennari við tónskóla hér í bæ og hef ég verið húsnæðislaus síðan í maí. Mig vantar 2 herb. íbúð sem allra fyrst. Uppl. í síma 29000, deild 33c. - Vopnafjörður er mikið sauð- fjárræktarhérað og framleiðir mikið af ull. Mér fannst skelfilegt að við skyldum ekki vinna neitt úr henni sjálf, sagði Una Einarsdótt- ir framkvæmdastjóri, verkstjóri, bflstjóri, gjaldkeri og saumakona á saumastofunni Hrund á Vopna- firði þegar Þjóðviljamenn heim- sóttu saumastofuna nýlega. - Fyrir nokkrum árum spruttu saumastofur upp eins og gorkúlur úti um allt land og urðu yfir 50 þegar mest var. Sumar fóru aldrei af stað og margar hafa helst úr lestinni. Nú eru líklega 30-40 starfandi, sagði Una. Saumastofan Hrund er hlutafélag í eigu Vopnafjarðar-' hrepps, Kaupfélags Vopnafjarð- ar og einstaklinga. Hún var stofn- uð 1977. Hvað varð til þess að þúfórst út í rekstur saumastofu? - Framan af mínum búskap hafði ég nú nóg að gera heima, með fimm börn, fædd á átta árum, en ég fór fljótlega að taka heimasaum og saumaði bæði kven- og barnafatnað. Þegar síld- arævintýrið flæddi yfir fór ég að vinna utan heimilis hluta úr ári og seinna í frystihúsi og loks í saltfiski. Það var kaldur vinnu- staður, óupphitaður og við unn- umþarnaoftíhörkufrosti. Égvar komin með liðagigt og þoldi þetta ekki. Ég var þá í hreppsnefnd og hreyfði þar hugmyndinni um stofnun saumastofu og bauðst til að sjá um hana. Með 5 ára lán úr byggðasjóði og iðnlánasjóði fór- um við svo af stað. Byrjunarerfiðleikar? - Við kunnum auðvitað lítið á þetta. En námskeið iðntækni- stofnunar í verkstjórn sem haldin hafa verið í Reykjavík og á Akur- eyri hafa hjálpað mér mikið. Svo fór ég í kynnisferð í Dyngju á Eg- ilsstöðum og til Raufarhafnar. Hver eru verkefnin? - Við höfum saumað langmest fyrir Álafoss, mest jakka úr ofn- um og prjónuðum efnum. Flík- urnar eru hannaðar hjá hönnu- nardeild Álafoss og skipt um ár- lega. Við fáum sniðin tilbúin ásamt sýnishornum af flíkinni. Prjónuðu efnin koma frá Pól- arprjóni á Blönduósi. Álafoss pantar ekki saumaskap á meiru en þegar hefur verið selt og gæða- eftirlitið er strangt. Hvað eru hér margir starfs- menn? - Við vorum sex til átta í fyrstu, en hér hafa verið 17 konur frá áramótum, flestar hálfan daginn. Dagsverkin eru 10 til 11. Sami kjarninn hefur verið hér frá upp- hafi. Þetta eru mjög vel þjálfaðar konur. Þjálfunin skiptir höfuð- máli. Það tekur tíma að þjálfa hópinn í að sauma hverja flík. Við klárum 300 til 400 stykki áður en allar hafa náð tökum á flík- inni. Því veldur það okkur erfið- leikum hve oft er skipt um verk- efni. Við erum hér oftast með fatnað með erfiðum og flóknum saumaskap. Hvernig er afkoman? - Verðið er ákveðið af verðút- reikningadeild Álafoss, en við getum gert athugasemdir við þeirra niðurstöður. Hér er aldrei unnin yfirvinna og enginn bónus. Hann veldur bara úlfúð og leiðinda andrúmslofti á vinnu- stað, þegar hvergi má stoppa hleðst streitan upp og gigtin magnast. Hér er enginn áhugi á slíku. En við gátum greitt launaupp- bót á síðasta ári vegna góðrar af- komu, og margar saumakonurn- ar eru sjálfar hluthafar. Iðjutaxt- arnir sem við förum eftir eru hrikalega lágir og kjörin fara versnandi. Hverjar eru framtíðarhorfur fyrirtœkisins? - Það er skuldugt, en fjárhags- staðan þó ekki slæm. Við erum í eigin húsnæði, með góðan véla- kost og góða vinnuaðstöðu. Okk- ar helsta vandamál er flutnings- kostnaður og svo vitum við aldrei hvort verkefnin verða næg. Nú er ég t.d. uggandi um tímabilið fram í nóvember en þá hefst nýtt fram- leiðsluár. Á milli stærri verkefna vinnum við úr afgöngum og reynum að nýta hverja pjötlu. Flíkur frá okkur eru seldar á þreföldu verði í Reykjavík og enn meira í útlöndum. Mér er sagt að jakki sem við fáum 2.600 fyrir sé seldur f Frakklandi á 12.000 kr.. í okkar verði er innifalið efni, vinna, húsnæði og flutningur. Mér er sagt að þú eigir langan vinnudag Una. - Já, það er í mörgu að snúast, ég vinn trúlega helmingi lengur en þá 10 tíma sem ég fæ borgaða. En ég hef svo gaman af bara að geta rekið þetta, fyrir mér er saumaskapurinn hálft lífið. Mér líður best innan um tuskurnar. Annars fylgir vinnudagur minn útvarpsdagskránni. Ég hlusta mikið á útvarp og finnst meiri- hluti dagskráarinnar skemmti- legur, fræðandi efni hefur aukist og það líkar mér vel, sagði Una Einarsdóttir að lokum. GGÓ 6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN j Fimmtudagur 8. ágúst 1985

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.