Þjóðviljinn - 08.08.1985, Blaðsíða 7
Listdans
Dansinn
á örri
uppleið
Norrœnir danshöfundar og
dansarar á námskeiði í frá-
sagnartœkni og uppbygg-
ingu dansverka.
Það er mikið að gera hjá nor-
rænum listamönnum um
þessar mundir. Hér í Reykja-
Sagg rmannkyns:
Tímabil
tveggja
heims-
styrjalda
Út er komið hjá B’ókaklúbbi Al-
menna bókafélagsins 13.
bindi Sögu mannkyns.
Nefnist bindið Stríð á stríð
ofan og næryfirtímabilið
1914-1945. Má sjálfsagt kalla
þetta tímabil eitthvert það við-
burðaríkastaísögu
mannkynsins. Um kyrrðog
jafnvægi var sannarlega ekki
að tala því að á þessum 30
árumgeisuðutvær
heimsstyrjaldir-einskonar
30 ára stríð með einu löngu
vopnahléi. Af hverju stöfuðu
þessi umbrot? Voru þau ef til
vill vegna misbresta í þeirri
heimsheild sem hafði verið að
byggja sig upp síðan á öld
landafundanna-16. öld?
Samtímis þessu áttu sér stað
þróun og breytingar í lífi fólks
sem jafna má við ævintýri.
Síminn, útvarpið, almennings-
bíllinn, kvikmyndin, allt dreifðist
þetta víðsvegar. Og vaxandi
matvælaframleiðsla fyrir aukna
tækni og þekkingu mettaði fleiri
og fleiri ntunna.
Saga mannkyns verður í 15
bindum og mun útgáfu verksins
ljúka í árslok 1989. Bindin koma
ekki út í réttri röð - næst mun 6.
bindið koma í október n.k. og
síðan munu 3 bindi koma á ári þar
til verkinu er lokið.
Þetta bindi sem nú er nýkomið
er 272 bls. að stærð með miklunt
fjölda mynda, korta og upp-
drátta. Þýðandinn er Gunnar
Stefánsson dagskrárstjóri ríkisút-
varpsins.
vík stendur nú yfir námskeið
fyrir listdanshöfunda og list-
dansara sem Norræna
leiklistarnefndin heldur.
Efni námskeiðsins eru frásagn-
araðferð og tækni í dansverkum.
Hafa ýmsir þekktir kennarar ver-
ið fengnir til þess eins og Ulf
Gadd frá Sviþjóð, Reijo Kela frá
Finnlandi og Bernd Köllinger frá
Austur-Berlín. Emte Stag frá
Noregi er námskeiðsstjóri og
þátttakendur eru 25, þar af fimm
frá íslandi. Mirja Tukianinen frá
Finnlandi byrjar hvern morgun
með þjálfunartíma fyrir þátttak-
endur.
Auk þjálfunartíma Mirju fer
námskeiðið fram í fyrirlestra-
formi. Meðal annars hafa
danshöfundar tekið með sér
myndbönd af verkum sínum sem
verða sýnd og tekin til umfjöllun-
ar.
Fyrirlestrar Köllingers sem er
aðalfyrirlesari námskeiðsins eru
bæði fræðilegir og verklegir. Á
verklegum hluta námskeiðsins
verður leikritið Hafmeyjan eftir
Ibsen tekið fyrir og fjallað urn
það hvernig sækja má efni í
leikritið og gera úr því ballet.
Danshöfundar eru ekki á eitt
sáttir hvort mögulegt sé að búa til
ballett upp úr leikriti né heldur
hvort það sé æskilegt. Að sögn
Köllingers er það tilvalið verk-
efni fyrir danshöfunda að fást við
efni úr menningararfleifð eigin
þjóðar einsog til dæmis Finnar
gera með glæsibrag. „Oft þegar
ég virði fyrir mér verk margra
danshöfunda finnst mér þeir vera
eins og stórt vöruhús og í öllum
vöruhúsum er hægt að kaupa það
sama...“
Þátttakendum verður skipt
niður í smærri hópa sem hver um
sig vinnur með leikrit Ibsens. Síð-
an verða uppástungur hópanna,
kostir og gallar hverrar tillögu og
túlkunar rædd sameiginlega.
Köllinger taldi það fjarstæðu
hina mestu að dans væri á niður-
leið. „Dansinn er sú listgrein sem
er í hvað mestri þróun alls staðar í
heiminum. I dag eru miklu fleiri
sem vilja sjá dans en fyrir 20 árum
síðan og þar er ungt fólk í meiri-
hluta. Skýringar má ef til vill
finna í þeirri staðreynd að dans er
ljóðræn list sem ekki endurspegl-
ar veruleikann beint heldur á
myndrænan hátt. Dans vinnur
með tilfinningar. Dans er sýndur
í sal þar sem sameiginleg upplifun
dansara og áhorfenda skapast og
áhorfandinn tekur þátt í sýning-
unni. Hann sér lifandi manneskju
en ekki hluti og milli dansara og
áhorfenda er alltaf beint sam-
band. Ástæðan fyrir því að dan-
sinn höfðar til ungs fólks er þetta
samband og það að dansarar og
danshöfundar eru búnir að reyna
margvísleg tjáningarform til að
gera list sína vinsælli og þróa
hana. Dans er ekki listform liðins
tíma heldur þess sem koma skal
og því einnig dagsins í dag“.
Hópur dansara úr íslenska
dansflokknum vinnur að undir-
búningi að dansverkum, sem þau
munu flytja á Listahátíð æsku-
fólks í Stokkhólmi síðar í ágúst.
Tveir aðrir dansarar vinna með
þeim, stúlkur úr Kramhúsinu,
eingöngu þjálfaðar í nútíma-
dansi. Hugmyndin er sú, að þessi
hópur dansi þessi tvö nýju verk
fyrir þátttakendur námskeiðsins
og aðra, sem hug hafa á að korna,
í húsi Jóns Þorsteinssonar á föstu-
dagskvöldið 9. ágúst. Þetta á að
vera nokkurs konar „prufu-
keyrsla" og beðið um álit allra
þessara norrænu danshöfunda.
Síðan hafa þau nokkrun tíma til
að breyta og slípa verkið áður en
haldið er til Svíþjóðar. -aró
Fyrirlesarar og starfsfólk námskeiðsins. Frá vinstri: Raja Vuoria, Pétur Einarsson, Emte Stag og Bernd Köllinger.
Steingrímur Gunnarsson og Rejo Kela krjúpa. Ljósm. jis.
Fimmtudagur 8. ágúst 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7