Þjóðviljinn - 08.08.1985, Page 15
ÍÞRÓTTIR
Knattspyrna
Magnea og Brynja
fá ekki leyfi!
Leika varla meira með Breiðabliki íár. Öxabáck leyfir aldrei
félagaskipti á miðju tímabili
Magnea H. Magnúsdóttir og Brynja Guðjóns-
dóttir, landsliðskonur í knattspyrnu, geta sennilega
ekki leikið meira með Breiðabliki í Islandsmótinu í
sumar. Þær fengu bráðabirgðaleyfi frá KSI til að
leika með Blikunum þar til skeyti hefði borist frá
sænska félaginu Öxabáck um að það myndi sam-
þykkja félagaskipti þeirra yfir í Breiðablik. Þær
náðu að leika gegn ÍA þann 28. júlí en tveimur
dögum síðar barst skeyti frá Öxabáck þess efnis að
félagaskiptin yrðu ekki samþykkt.
Að sögn Magneu samþykkir Öxabáck aldrei fé-
lagaskipti frá félaginu á miðju kcppnistímabili -
þetta er stefna hjá félaginu sem hefur víða mætt
andstöðu, m.a. hjá sænska knattspyrnusamband-
inu. Stjórn Öxabáck mun koma saman á sérstakan
fund í næstu viku og þar fer fram atkvæðagreiðsla
um hvort samþykkja eigi félagaskipti íslensku
stúlknanna. Þær hættu að leika með Öxabáck
snemma í sumar og tilkynntu félagaskipti yfir í
Breiðablik. -VS
Sund
Glæsimet
Bryndísar
Bœtti sig um 5 sek.
Gross með 3 gull, Friedrich með 2
Heimsmet vestra
Bryndís Ólafsdóttir setti glæsilegt
íslandsniet og stórbætti eigin árangur
í 200 m skriðsundi kvenna á Evrópu-
meistaramótinu í sundi í gær. Hún
synti á 2:10,11 mín. en met Guðrúnar
Feniu Ágústsóttur var 2:12,03 nu'n.
Bryndís átti best áður 2:15,40 mín. og
befur því bætt sig um cina 12-13 metra
alls í sundinu. Bryndís varð síðust í
sinum riðli og hafnaði í 25. sæti af 27
keppendum.
Magnús Ólafsson og Ragnheiður
Knattspyrna
Þrenna og
Kína úr leik
Vestur-Þjóðverjinn Marcel
Witeczek skaut gestgjafana, Kín-
verja, útúr heimsmeistarakcppni
drengjalandsliða í gær þegar
hann skoraði þrennu í 4-2 sigri
Vestur-Þjóðverja í Peking.
V.Þjóðverjar niæta Brasilíu í
undanúrslitunum á morgun en
Brasilíumcnn unnu Saudi-Araba
2-1 í gær. Guinca sló Ástrali
óvænt út, vann 4-2 í víta-
spyrnukeppni eftir að staðan
hafði verið 0-0 eftir framlengingu,
og mætir annarri Afríkuþjóð,
Nígeríu, í undanúrslitunum. Ní-
geríumenn báru sigurorð af Ung-
verjum, 3-1, í 8-Iiða úrslitunum í
gær.
-VS/Reuter
England
Channon til
Portsmouth
Mick Channon, sem lék 46
landslciki fyrir Englands hönd,
hefur ákvcðið að leika einn vetur
-^-enn í ensku knattspyrnuuni. Hann
hefur sitt 20. keppnistímabil í
búningi 2. deildarliðs Portsmouth
sem er stýrt af gömlum félaga úr
enska landsliðinu, Alan Ball, og
hefur samið við féiagið til eins
mánaðar til að hyrja með. Chann-
on varð mjólkurbikarmeistari
mcð Norwich sl. vetur.
-VS/Reuter
Cram
Fjórða
heimsmetið?
Stevc Cram, handhafi þriggja
heimsmeta í millivegalengdum,
ætlar að reyna að bæta fjórða
heimsmetinu í safnið á morgun.
Þá tekur hann þátt í 1000 metra
hlaupi í hcimabæ sínum, Gateshe-
ad á Englandi, og þar ætti hann að
fá góðan stuðning áhorfenda.
Cram hefur síðustu þrjár vikurn-
ar sett heimsmet í 1500 og 2000 m
hlaupum og í míluhlaupi.
Knattspyrna
Bommer í
bílslysi
Rudi Bommer, félagi Lárusar
Guðmundssonar og Atla Eðvalds-
sonar hjá vestur-þýska liðinu Ba-
yer Uerdingen, missir sennilega af
fyrstu leikjunt komandi keppnis-
tímabils. Hann lenti í bílslysi fyrir
stuttu og meiddist illa á öxl. Bom-
nter lék við hlið Atla hjá Fortuna
Dússeldorf og Uerdingen keypti
þá báða í sumar.
-VS
Fœreyjar
íslenskum
þjálfurum
gengur vel
Islenskir þjálfarar hafa um
langt árabil verið atkvæðamiklir í
færeysku knattspyrnunni og í
sumar starfa þrír í cyjunum.
Þorleifur Már Friðjónsson,
sem nt.a. hefur þjálfað Magna og
Leikni Fáskrúðsfirði, stjórnar
liði MB sem heyr einvígi við B 36
um sigur í 2. deild og þar með 1.
deildarsæti. B 36 hefur tveggja
stiga forystu þegar fjórum um-
ferðum er ólokið. Guðmundur
Gíslason, sem lék með Þrótti
Reykjavík fyrir nokkrum árum,
þjálfar liðið sem er í þriðja sæti
deildarinnar. Þá er Vestmanna-
eyingurinn Páll Guðlaugsson,
sem lék í marki Þórs Akureyri í
fyrra, við stjórnvölinn hjá VB
sem er með örugga forystu í 3.
deild og fer næsta víst uppí 2.
deild.
Þorleifur Már hefur jafnframt
tekið við stjórn unglingalandsliðs
Færeyja, 16-18 ára, fyrir leikina
tvo við ísland sem fram fara í
Færeyjum 21. og 23. ágúst. Eftir
skellina sem drengjalandslið
Færeyinga fékk hér á landi í síð-
asta mánuði þótti rétt að fá ís-
lending til að sjá um unglingalið-
ið...
_____________________-vs
Svíþjóð
Tvö mörk
Teits
Teitur Þórðarson skoraði 2
mörk þegar Öster sigraði Norr-
köping 4-1 í sænsku 1. deildinni
(Allsvenskan) á sunnudaginn.
Teitur lék mjög vel og fékk frá-
bæra dóma fyrir leik sinn. Öster
rétti því hlut sinn dálítið eftir
slakt gengi undanfarið en liðið er
nú í 5. sæti deildarinnar. Átta
efstu liðin leika útsláttarkeppni
um sænska meistaratitilinn.
-VS
Kvennaboltinn
Sigþór Ómarsson fagnar glæsimarki Sigurðar Halldórssonar (nr. 5) gegn
Aberdeen á Laugardalsvellinum fyrir tveimur árum. Billy Stark er til hægri á
myndinni - við vorum dauöfegnir að komast i 2. umferð, segir hann.
Evrópuleikir
Kaldur straumur
niður skosku bökin
Leikmenn Aberdeen smeykir við leikina gegn
Skagamönnum í haust
„Aberdeen hefur áhlaup sitt á 2. umferð. í fyrri leiknum lentum
Evrópubikarinn með leik gegn
hálfatvinnuinönnunum frá Akra-
nesi á íslandi, leik sem fær kaldan
straum til að hríslast niður bök
skosku meistaranna,“ segir í
grein í nýjasta tölublaði enska
knattspyrnutímaritsins Match.
„Þeir skutu okkur skelk í
bringu,“ segir Billy Stark, einn
leikmanna Aberdeen, þegar
hann rifjar upp leiki liðanna í
Evrópukeppni bikarhafa fyrir
tveimur árum. „Allir reiknuðu
með því að við myndum sigra
auðveldlega, en þegar upp var
staðið vorum við dauðfegnir að
hafa komist í gegnum leikina og í
við marki undir áður en Mark
McGhee bjargaði andliti okkar
með tveimur mörkum. Við vor-
um aldrei í sérstakri hættu um að
tapa síðari leiknum á Pittodrie en
íslendingarnir sýndu frábæra
baráttu og náðu 1-1 jafntefli,"
segir Billy Stark.
Ekki er alveg farið rétt með
staðreyndir þegar Akurnesingar
eru sagðir hálf-atvinnumenn en
það er ljóst að skosku meistar-
arnir eru smeykir við leikina í
haust. Fyrri leikurinn fer fram á
Laugardalsvellinum 18. sept-
ember en sá síðari í Aberdeen 2.
október. -VS
Úrslítaleikur
Úrslitaleikurinn um meistáratitii 2.
deildar kvenna í knattspyrnu fer fram
á Selfossi í kvöld og hefsl kl. Í9-þrátt
fyrir að keppni í deildinni sé ekki lok-
ið. Pað eru Víkingur og Haukar sem
leika til úrslita en bœði lið leika í 1.
deild að ári. Víkingur sigraði í A-riðli
en Haukar i B-riðÍi 2. deildarinnar.
Knattspyrna
Úrslit 5. flokks á
KR-velli í kvöld
Úrslitakeppnin í 5. flokki í
knattspyrnu hefst á KR-
vellinum við Frostaskjól í dag.
í A-riðli leika KR, Þróttur
Reykjavík, Höttur og FII og í
B-riðli Valur, Þór Akureyri,
Grindavík og Fram.
1 dag kl. 18 mætast KR-
Þróttur og FH-Höttur í A-
riðli og kl. 19.10 hefjast leikir
Fram-Vals og Grindavíkur-
Þórs í B-riðli.
Leikið verður áfram á
morgun og laugardag og úr-
slitaleikirnir fara fram á
sunnudag. Allir leikir fara
fram á KR-vellinum.
KR sigraði í A-riðli 5.
flokks, Fram varð í öðru sæti
og Valur í þriðja. FH vann
B-riðilinn og Grindavík varð
númer tvö. Þróttur sigraði í
C-riðli, Þór í D-riðli og Höttur
frá Egilsstöðum í E-riðli.
-VS
Runóllsdóttir kcpptu einnig í Sofia í
gær. Magnús náði sínum besta ár-
angri í 100 m flugsundi. synti á
1:01.26 mín, en var síðastur í sínum
riðli. Ragnheiður synti 200 m bring-
usund á 2:47,83 mín. og varð síðust í
sínum riðli.
Michael Gross frá V. Þýskalandi
setti mótsmet í 100 m tlugsundi í
undanrásunum, synti á 53,93 sek. en
á mótinu 1983 í Róm synti hann á
54,00 sek. Heimsmet hans er 53,08
sek. Hann sigraði síðan í úrslitasund-
inu á 54,02 sek. en Andrew Jameson
frá Bretlandi varð annar á 54,30 sek.
Annað gull hans á mótinu og þeim
átti eftir að fjölga.
Heike Friedrich frá A. Þýskalandi
náði einnig í sitt annað gull í gær þeg-
ar hún sigraði í 200 m skriðsundi
kvenna á 1:59,55 mín. Hin 15 ára
gamla landa hennar Manuela
Stellmach varð önnur á 1:59,88 mín.
en aðrar voru þeim langt að baki.
Tamas Darnyi frá Ungverjalandi
sigraði í 400 m fjórsundi karla á
4:20,70 mín, en Sovétmaðurinn Va-
dim Yaroschuk varð annar á 4:21,54.
Tania Bogomolova frá Búlgaríu
gladdi hjörtu heimamanna með sigri í
200 m bringusundinu á 2:28,57 mín.
Það voru óvæntustu úrslit gærdagsins
því hún stakk sér framúr hinum sigur-
stranglegu austur-þýsku stúlkum Syl-
viu Gerasch og Silke Horner strax í
byrjun og þær áttu aldrei svar.
Michael Gross hafði ekki sagt sitt
síðasta orð. Hann leiddi sveit V.
Þýskalands til sigurs í 4x200 m boð-
sundinu á 7:19,33 mín. Með honum í
sveitinni voru Alexander Schowtka,
Thomas Fahrner og Dirk Korthals.
A. Þjóðverjar voru dæmdir úr leik og
Svíar urðu þar með númer tvö á
7:25,69 mín. Gross þar með kominn
með 3 gull.
í dag keppa þrír íslendingar í Sofia.
Magnús Ólafsson í 100 m skriðsundi,
Ragnhciður Runólfsdóttir í 100 m
baksundi og Eðvarð Þ. Eðvarösson í
200 m haksundi.
Annars staðar á hncttinum, vestui í
Kaliforníu, var sett heimsmet í gær.
Matt Biondi synti 100 m skriðsund á
49,24 sekúndum og bætti met Rowdy
Gaines, 49,36 sek., sem sett var fyrir
fjórum árum. -VS/Reuter
Golf
Landsliðið
Landsliðið í golfi sem keppir á
Norðurlandamótinu í Finnlandi
síðar í þessum niánuði var til-
kynnt í gær. Ragnhildur Sigurð-
ardóttir, Stcinunn Sæmundsdótt-
ir, Þórdís Geirsdóttir og Ásgerð-
ur Sverrisdóttir skipa kvennalið-
ið, en þeir Sigurður Pétursson,
Ulfar Jónsson, Hannes Eyvinds-
son, Ragnar Ólafsson, Gylfi
Kristinsson og Óskar Sæmunds-
son cru í karlaliðinu.
-VS
Knattspyrna
Fillol
til Spánar
Spænska stórliðið Atletico Ma-
drid keypti í gær argentínska
landsliðsmarkvörðinn Ubaldo
Fillol frá brasilíska félaginu
F’lamengo fvrir 120 þúsund doll-
ara. Fillol er talinn í hópi bestu
markvarða heims og varð
hcimsmcistari með Argentínu-
mönnurn árið 1978.
-VS/Reuter
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15