Þjóðviljinn - 06.09.1985, Síða 7
ÞJÓÐVILJiNN - SÍÐA 7
Æskulýðsfylking Alþýðu-
bandalagsins eru sósíalísk
samtök sem að forminu til
eru samtök innan AB, þó
svo að ekki sé nauðsynlegt
að vera flokksbundinn til
þess að starfa innan Æsku-
lýðsfylkingarinnar. Æsku-
lýðsfylkingunni (skamm-
stafað ÆF) er skipt niður í
deildir sem starfa víða um
land. Reykjavíkurdeildiner
þeirra stærst. Fólkið í ÆF er
áaldrinum 15-30. Þeirsem
hafa áhuga á að vita meira
um þessi samtök ungs
fólks ættu að halda áfram
að lesa og heyra hvaðfor-
maður Reykjavíkurdeildar-
innar og starfsmaður ÆF,
Hrannar B. Arnarson, hefur
að segja okkur.
Hrannar, nú ert þú starfsmað-
ur ÆF, hvað er á döfinni?
„Það er öflugt starf framund-
an, það er alveg á hreinu. Á
laugardaginn kemur verður hald-
inn hinn árlegi Haustfagnaður
ÆF og verður mun glæsilegri en
nokkru sinni fyrr. Þar koma fram
kunnir skemmtikraftar t.d. Flosi
og Einar Kára les upp úr bók
sinni. Kaffihús verður starfrækt.
Einnig verða heitar umræður um
borgarstjórnarmál og ritstjórnar-
stefnu Þjóðviljans. Þetta hafa
verið umrædd atriði innan vinstri
hreyfingarinnar að undanförnu
og því munum við taka þau fyrir.
Um kvöldið verður dansiball hér
á H-105 (Hverfisgötu 105).
17. sept. hefst fræðslufundaröð
um sósíalismann. Við höfum
áður verið með svona fundaröð
og hún hefur verið mjög vinsæl.
Æskulýdsfylking AB
Eru krakkarnir með þingmanninn í maganum?
Hvað er Birtir? Hvað gerist á föstudagskvöldum í vetur?
Um þetta allt og margt fleira geturðu lesið í viðtalinu við
Hrannar B. Arnarsson 18 ára
formann Æskulýðsfylkingarinnar í Reykjavík.
Það nýjasta nýtt verður svo
kaffihús á hverjum sunnudegi á
H-105. Og þar verða kappræður
milli þekktra vinstri manna.
í sambandi við skemmtanalífið
eru einnig nýjungar. Því við í ÆF
erum heilmikið fyrir það að gera
okkur glaðan dag. Opin hús
verða á hv'erju föstudagskvöldi,
þar sem fólk getur hist og rabbað
saman áður en það fer út á lífið.“
Fastir liðir
Hvað um fræðslu og útgáfu-
mál?
„Jú, jú, það gengur allt saman
ljómandi vel hjá okkur. Við gef-
um út blað sem heitir Birtir og
flestir framhaldsskólanemendur
ættu að kannast eitthvað við, því
við gefum Birti út í 7000 ein-
tökum og dreifunt í framhalds-
skóla. Hins vegar vantar okkur
fleiri tengiliði í skólunum og ég
vil endilega nota tækifærið og
Hrannar B. Arnarsson er 18 ára
nemi í MH. Hann er jafnframt for-
maður Æskulýðsfylkingarinnar í
Reykjavík. „Það er öflugt starf
framundan, það er alveg á
........... i. E. Ól.
Hópurinn sem var að undirbúa
mótmælaaðgerðir gegn stjórn-
völdum í S-Afríku gaf sér tíma til
þess að leggjast flatt fyrir E.ÓI.
Ijósmyndara.