Þjóðviljinn - 06.09.1985, Qupperneq 8
GLÆTAN
Æskulýðsfylkingin hefur gefið út 4 tölublöð af Birti (tíðindablaði ungra vinstri sinna). Birti var dreift í framhalds-
skólana. Ljósm. E. Ól.
auglýsa eftir tengiliðum. Þeir
þurfa að taka á móti Birti og
skrifa fréttir úr sínum skóla. Haf-
ið endilega samband við okkur
þið sem hafið áhuga. Sími: 17500.
Svo er annað sem við gerum. Við
erum með bókasafn. Þar geta all-
ir félagar í ÆF fengið lánaðar
bækur um þjóðfélagsmál. Bóka-
safnið er þó nokkuð notað, og
alltaf að stækka.
Ég má ekki gleyma að minnast
á ferðalögin okkar. ÆF fer í 2-3
ferðalög á ári. Má þar t.d. nefna
ferð í Þórsmörk og Flatey. Þær
eru svo vinsælar að einu sinni
kom meira að segja Heimdell-
ingur í ferð með okkur.
Við eigum land undir skála og
það er stefnan að reisa hann einn
góðan veðurdag, helst sem allra
fyrst.“
4 nýir í gær
Er ÆF í lægð?
„Nei, nú erum við í greinilegri
hæð. Við höfum fundið mun
meiri áhuga á okkar starfi að und-
anförnu. Alltaf nýir félagar að
bætast í hópinn. Komu t.d. 4 nýir
í gær.“
Hvað fær 15 ára unglinga til
þessa að ganga í pólitísk samtök
eins og ÆF?
„Flestir hafa einhvern veginn
kynnst pólitísku starfi áður, t.d. í
gegnum fjölskylduna eða fjöl-
miðla. Fundist þetta skemmtilegt
og spennandi viðfangsefni. Þau
vilja kynnast nýju fólki og breyta
þjóðfélaginu í kringum sig. Flest
þetta fólk hefur líka mikinn
áhuga á að sinna félagsmálum.“
Eru krakkarnir í ÆF með
„þingmanninn í maganum“?
„Abyggilega eru einhverjir
með þvílfka drauma en það sem
skiptir meirihlutann máli er að
vasast í félagsmálum og um-
gangast fólk með svipaðar lífs-
skoðanir.“
Gerir ÆF gagn?
„Það tel ég tvímælalaust vera.
Því ef við gæfum ekki út okkar
blað, Birti, myndu stuttbuxna-
drengirnir í Sjálfstæðisflokknum
einoka útáfumálin í framhalds-
skólum. Við látum rödd ungra
vinstri sinna heyrast. Svo gefum
við oft út dreifibréf þegar mikið
er að gerast í þjóðfélaginu t.d. í
verkfallinu í haust, og komum
þannig skoðunum okkar á fram-
færi. Það sem skiptir ekki minna
máli er það að ÆF heldur árlega
námskeið í framsögn og ræðu-
mennsku og undirbúum fólk til
þess að láta skoðanir sínar óhikað
í ljós á fundum o.fl. Þessi nám-
skeið eru öllum opin.“
Hvað gerir þú Hrannar fyrir
utan að vera í ÆF?
„Ég er í MH á eðlisfræðibraut.
í sumar vann ég sem húsvörður
og verkamaður og svo fór ég til
Danmerkur,“ sagði Hrannar að
lokum.
Blm. Þjóðviljans leit inn á H-
105 eitt kvöldið. Þar var hópur
ungmenna að undirbúa aðgerðir
til að mótmæla aðskilnaðarstefnu
stjórnvalda í S-Afríku. Það sem
ÆF ætlar m.a. að gera er að
benda fólki á hvaða vörur eru
framleiddar í S-Afríku. Þannig
getur fólk tekið þátt í því að mót-
mæla kúgun hvíta minnihlutans á
þeim svarta, þ.e. að kaupa ekki
vörur frá S-Afríku.
Blm. Þjóðviljans tók tvo stráka
í ÆF tali.
SA
Ætla mér að stofna
leikhóp innan ÆFR
Daníel Ingi Pétursson vinn-
ur á barnaheimili og er í
Öldungadeildinni. Daníel
starfar einnig með Stúd-
entaleikhúsinu. Hann er 28
ára.
Af hverju ert þú í Æskulýðs-
fylkingunni?
Ég var í bréfberaleikhópnum
Dúfunni, sem berst fyrir bættum
kjörum bréfbera, og það hófst
gott samstarf milli leikhópsins og
Æskulýðfylkingarinnar sem
leiddi til þess að ég gekk inn í
Æskulýðsfylkinguna í gær. Og ég
hugsa mér að stofna leikhóp hér.
Hvað ertu að gera hér í kvöld?
Ég droppaði bara hingað inn
og fékk mér kaffi.
Gísli Þór Guðmundsson: „Við erum
að undirbúa Haustfagnaðinn".
Ljósm. E. Ól.
Daníel Ingi Pótursson: „Ég gekk inn í ÆFR í gær“. Ljósm. E.ÓI.
flokkurinn
Gísli Þór Guðmundsson er
24 ára. Hann er nemi í
Flensborgarskóla í Hafnar-
firði.
Af hverju ert þú í Æskulýðs-
fylkingunni?
Af því að þetta er eini flokkur'
sósíalisma, þjóðfrelsis og
jafnréttis.
Hvað ertu að gera hér í kvöld?
Ég er með í að undirbúa að-
gerðir til að stöðva sölu á s-
afrískum vörum á íslandi í mót-
mælaskyni vegna kúgunar hvíta
minnihlutans á þeim svarta í S-
Afríku. Og einnig erum við að
undirbúa Haustfagnaðinn.
Vinsældalistar Þjóðviljans
Fellahellir (-) 1. Stronger together - Shannon (3) 2. Secret - OND i (-) 3. Animal instinct - Commodores i (-) 4. You can win if you want -Modern Talking (5) 5.1’m a lover (-) 6. We don’t need another hero -Tina Turner (10) 7. Into the groove - Madonna (8) 8. Tarzan Boy - Baltimora (7) 9. You are my heart you are my soul -Modern Talking (2) 10. All fall down - Five star Grammið (1) 1. Low life — New Order (2) 2. Kona - Bubbi Morthens (3) 3. Skemmtun - Með nöktum (7) 4. Theames 2 - Psychic TV 2 (-) 5. True sides of the beast - Gun Club (-) 6. How will the wolf survive - Los Lobos (-) 7. A seacret wish - Propaganda (9) 8. First circle - Pat Metheny (-) 9. Don’t forget that beat - Fats comet (-) 10. The dream of the blue turtles - Sting Rás 2 1. (4) Dancing In the Street - David Bowie/Mick Jagger 2. ( 1) Into the Groove - Madonna. 3. ( 3) Tarzan Boy - Balti Mora. 4. ( 2) We Con’t Need Another Hero -Tina Turner. 5. (18) Rock Me Amadeus - Falco. 6. ( 5) Money for Nothing - Dire Straits 7. ( 2) Shake the Dlsasaese - Depeche Mode 8. ( 8) Peeplng Tom - Rockwell 9. ( 6) Á rauóu IJósi - Mannakorn 10. (11) In to the Deep - Dead or Alive
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. september 1985