Þjóðviljinn - 11.09.1985, Blaðsíða 1
Það er engin ástæða til að láta bjóða sér þetta lengur. Vinnuveitendur
hafa talið sig geta treyst á samstöðuleysi meðal fiskverkunarfólks og þá
einkum kvenna í fiskvinnu, en mín reynsla er sú að konur geti staðið enn
betur saman ef þær bara einsetja sér það!
Þetta sagði Guðmundur J. Guðmundsson í ávarpi til starfsfólks Hrað-
frystistöðvarinnar í Reykjavík í gær. Guðmundur fundaði með fiskverkun-
arfólki þar ásamt Rögnu Bergmann formanni Verkakvennafélagsins
Framsóknar og fleirum. -99
Sjá bls. 3.
Það vakti upp gamlar minningar hjá blaðamanni frá því hann var að sullast við fyrirdrátt í Héraðsvötnum í Skagafirði og
Jón á Syðri-Húsabakka óð upp undir hendur í skinnbrókinni, að sjá þá hjá eldisstöðinni við Elliðaárnar vera að góma þar
laxinn í gær. Og þó voru umhverfi, aðstæður og veiðiaðferðir næsta ólíkar. Þarna strengdu þeir net yfir hylina, óðu svo um
ána og ráku laxinn í netið, sem að vonum varaðist ekki þessa hrekki. En veiðin gekk víst þolanlega því þessa stund, sem
Þjóðviljamenn stóðu þarna við, munu hafa verið komnir eitthvað yfir 100 laxar á land. Þeir verða svo hafðir í öruggri
gæslu þar til um mánaðamótin okt.-nóv. að þeir verða rændir hrognunum.
-mhg
Ragnar Júlíusson
Hef ekki séð
biéfið
Segist ekki sjá þörfá að hafa samband við
forráðamenn Kirkjusands
Eg hef heyrt af þessu bréfi en ég
hef ekki séð það og ég get ekki
svarað fyrir borgarstjóra um
hvað hann hugsar.
Þetta sagði Ragnar Júlíusson,
formaður samninganefndar, um
hugsanlega samvinnu og/eða
Kerfið
brást!
Allt útlit er fyrir að tilrauna-
rekstri með hótel í eyðiþorpinu
Djúpuvík á Ströndum verði hætt
innan tíðar og segir hótelstjórinn í
samtali við Þjóðviljann að áhuga-
leysi kerfiskarlanna hafi m.a.
eyðilagt þennan nýja sprota í
ferðamannabransanum.
Sjá bls. 2.
samruna BÚR og ísbjarnarins.
„Það er mitt persónulega mat
að á þessu stigi málsins sé ekki
þörf á því að hafa samband við
forráðamenn Kirkjusands hf.
vegna þeirrar forsendu sem
gengið er út frá. Forsendan er sú
að fiskvinnslan skuli fara fram á
Grandagarði og í Örfirisey. Mér
finnst hins vegar sjálfsagt mál að
haft sé samband við þá aðila sem
stunda fiskvinnslu í Reykjavík,
það er vitað mál að ég er formað-
ur þessarar nefndar og þeir á
Kirkjusandi hafa ekki haft sam-
band við mig. Nú, það er dálítið
erfitt að flytja fiskvinnslu Kirkju-
sands út á Granda, þeir hafa eícki
nein fisköflunartæki, heldur að-
eins vinnslutæki og þeir eru ekki
eigendur að neinum skipum.
Mér þykir því líklegt að borg-
arstjóri hafi ekki talið þörf á að
skoða þetta dæmi miðað við þær
forsendur sem gengið er út frá“,
sagði Ragnar að lokum. -IH
^ Bónus
Samstöðu
er þörf nú
GuðmundurJ. Guðmundsson:
Sýnið þeim samtakamátt ykkar
Leikbrúðuland
Fyrstu verðlaun í Júgóslavíu
Við erum í sjöunda himni yfir
þessum móttökum. Strax og
fréttist um verðlaunin vorum við
beðin að hafa fleiri sýningar hér í
Róm en þessar tvær sem fyrirhug-
aðar eru, sagði Helga Steffensen,
þar sem við náðum í hana í Róm.
Hún er nú á ferðalagi um Evrópu
með sýningu Leikbrúðulands á
„Tröllaleikjum“ og vann sýningin
til 3ja verðlauna á alþjóðlegri
brúðuleikhúshátíð í Zagreb í Júg-
óslavíu.
Á þessari hátíð komu fram yfir
20 hópar og fékk íslenska sýning-
in fyrstu verðlaun sem besta
bamasýningin. Vom það börn
frá þremur þjóðlöndum sem
völdu bestu sýninguna. Þá fékk
sýningin einnig tvenn önnur
verðlaun, fyrir besta temað og
fyrir bestu túlkun.
„Við endurunnum sýninguna
nokkuð frá því við sýndum hana í
Iðnó í fyrra og textann höfum við
á bandi á esperantó, serbókróat-
ísku, ítölsku og frönsku. Við höf-
um leikið í Ljubliana og Belgrad,
auk Zagreb og á morgun verður
fyrsta sýningin hér í Róm. Héðan
fömm við svo til Charleville, þar
sem yfir 100 leikbrúðuhópar
koma fram. Við komum svo heim
30. september", sagði Helga enn-
fremur. Hópurinn fer síðan aftur
út f október til að sýna á brúðu-
leikhúshátíð í Vínarborg, en auk
Helgu eru í þessum hópi þau
Bryndís Gunnarsdóttir, Hall-
gerður Thorlacius og Þórhallur
Sigurðsson.
-þs
Lœknavísindi
Bóluefni gegn
tannpínu!
Melbourne - Vísindamaðurinn
Geoffrey Smith í Melbourne í
Ástralíu segist hafa fundið upp
bóluefni sem draga muni verulega
úr tannskemmdum og geti valdið
byltingu í tannhirðu.
Smith sagðist hafa gert tilraun-
ir með bóluefnið á tíu börnum
sem öll vom með talsvert
skemmdar tennur. Fimm þeirra
fengu bóluefnið og niðurstaðan
varð sú að þau hefðu myndað
þrefalt sterkari vörn gegn tann-
skemmdum en hin sem ekkert
bóluefni fengu. -ÞH/reuter