Þjóðviljinn - 11.09.1985, Qupperneq 3
FRETTIR
Bónusmálin
Það endar með hruni ef vinnu-
veitendur halda þessari iðju
sinni áfram. Þeir stefna miljarða-
mörkuðum okkar í hættu. Látið
ekki bjóða ykkur þetta lengur,
vinnið í títnavinnu og sýnið þeim
að þið viljið breyta þessu, því það
er vissulega hægt, sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson for-
maður Dagsbrúnar m.a. á fundi
með starfsfólki Hraðfrystistöðv-
arinnar í gærmorgun.
„Það er engin ástæða til að láta
bjóða sér þetta. Vinnuveitendur
hafa hingað til talið sig geta treyst
því að fiskverkunarfólk og þá
einkum konurnar geti ekki staðið
saman, en mín reynsla er sú, að
konur geta staðið betur saman og
verið harðari ef þær bara taka sig
til. Það besta sem frystihúsin
gætu gert núna væri að taka þessu
tilboði okkar. Þeir halda sér uppi
nú með útlendingum og börnum,
en þeir stefna að feigðarósi“,
sagði Guðmundur.
„Við konur ætlum að leggja
niður bónusvinnu þar til leiðrétt-
ingar fást á kjörunum. Konur
verða að vera samhuga um þessar
aðgerðir og ég skora á ykkur að
standa saman í þessari baráttu.
Við erum með gott fólk í samn-
inganefndinni, sumt kemur beint
af frystihússgólfinu og það er
skylda okkar að styðja við þetta
fólk í samningunum“, sagði
Ragna Bergmann formaður
Framsóknar við sama tækifæri.
Félagar í Dagsbrún hefja sam-
úðarvinnustöðvun á hádegi á
morgun og Framsóknarkonur
sólarhring síðar. Greinilegt var á
fólkinu í Hraðfrystistöðinni að
það var ákveðið í að reyna að ná
fram kjarabótum. Allir voru
sammála um að núverandi ástand
væri gjörsamlega óviðunandi.
-gg-
Þjóðviljinn lagði flokksforystuna í hörkuspennandi spurningakeppni á haustfagnaði Æskulýðsfyikingarinnar á
laugardaginn. Þegar fyrirætluðum spurningafjölda var lokið var staðan jöfn, hvoru liði hafði tekist að svara 4 spurningum
rétt, en það voru hinir eitilhörðu fréttamenn Þjóðviljans sem tókst að svara aukaspurningunni rétt og framkvæmdastjórn
flokksins sat eftir með sárt ennið. Myndin hér að ofan var tekin þegar spennan var í hámarki og flokksmenn lögðu
greinilega allt í sölurnar. Ljósmynd: Einar Ólason.
Látið ekki
bjóða yldair þetta!
GuðmundurJ. GuðmundssoníHraðfrystistöðinnií gœr:
Pað besta semfrystihúsin gœtu gert vœri að taka tilboðinu
Bónusverkfall
Sífellt bætist í hópinn
Fiskverkunarfólk á Vopnafirði hófaðgerðir ígœr.
Breiðdalsvíkfrestar aðgerðum
Sífellt bætist nú í hóp þeirra
sem boða aðgerðir i sambandi
við samningaviðræður VSÍ og
VMSÍ um bónusmál fiskverkun-
arfólks. Fiskverkunarfólk á
Vopnafirði fór í bónusverkfall í
gærmorgun og eru félögin sem
þegar eru farin af stað orðin fimm
talsins.
Verkalýðsfélagið á Breiðdals-
vík tók ákvörðun um það á mánu-
dagskvöldið að fresta aðgerðum
sínum þar til síðar í vikunni. En
tala þeirra félaga eða staða sem
annað hvort eru þegar komin út í
aðgerðir eða hafa boðað fyllir nú
annan tuginn. Þjóðviljinn hafði
samband við Skagaströnd,
Vopnafjörð og Breiðdalsvík í
gær.
Skagaströnd
„Við byrjuðum á hádegi á
mánudaginn og látum okkur nú
bara líða vel í tímavinnunni. Við
erum ekkert á því að fara yfir í
bónus aftur fyrr en okkar kjör
hafa eitthvað verið leiðrétt",
sagði Erna Sigurbjörnsdóttir
trúnaðarkona í Hólanesi hf. á
Skagaströnd í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
„Þetta eru óskapleg viðbrigði
að vinna svona hægt, ætli það
megi ekki segja að það sé nálægt
því að afköstin hafi minnkað um
helming og þannig verður það
þar til eitthvað gerist fyrir sunn-
an. Við leggjum áherslu á að ná
fram kröfum í sambandi við
fastanýtingu og svo auðvitað
bónusálaginu", sagði Erna.
Landað var eitthvað yfir 100
tonnum á Skagaströnd á mánu-
daginn og var mikið af þorski í
aflanum.
Vopnafjörður
„Við byrjuðum í bónusverk-
falli í morgun. Það eru u.þ.b. 30
konur sem vinna við snyrtingu
núna og þær vinna allar á tíma-
kaupshraða, engin í bónus“,
sagði Kristjana Sævarsdóttir
verkakona í Tanga hf. á Vopna-
firði í samtali við Þjóðviljann í
gær.
„Mér heyrist að við séum allar
óánægðar með okkar kjör. Best
væri auðvitað ef hægt væri að
sleppa bónusnum alveg og tvö-
falda tímakaupið í staðinn. Þetta
er allt annað líf að vinna á þessum
hraða. Við ætlum að halda áfram
eins og þurfa þykir“, sagði Krist-
jana enn fremur.
Á Vopnafirði vantar nú talsvert
af fólki í vinnsluna og stutt er í að
skólafólk hætti þrældómnum og
fari í skólana.
Breiðdalsvík
Fiskverkunarfólk á Breiðdals-
vík hefur ákveðið að fresta bón-
usverkfalli fram á laugardag. Sú
ákvörðun var tekin á fundi á
mánudagskvöldið. Ástæðan er
talin sú að flestir aðrir staðir á
Austfjörðum byrja ekki fyrr en í
lok vikunnar.
„Þrátt fyrir þessa ákvörðun
hefur hugur okkar ekkert breyst.
Það eru allir ákveðnir í að fara út í
þessar aðgerðir, en við byrjum
bara um leið og aðrir“, sagði
Linda Ásbjörnsdóttir verkakona
á Breiðdalsvík þegar Þjóðviljinn
sló á þráðinn þangað austur í gær.
-gg-
Miðvikudagur 11. september 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Ætlar þú
i bónus-
verkfall?
Lilja Sigurðardóttir:
„Bónusinn eins og hann er og hef-
ur verið er ekki heilbrigður. Ég fer í
bónusverkfall eins og hinar, við verð-
um að standa saman í þessu."
Þóra Björk Harðardóttir:
„Ég ætla að vinna á tíma-
kaupshraða á föstudaginn. Það sem
gildir í þessu er samstaðan og að
mínu mati verðum við að halda þessu
til streitu þar til samið verður."
Anna Kristjánsdóttir:
„Ég er alveg ákveðin í því að fara í
bónusverkfall á föstudaginn eins og
boðað hefur verið. Við ætlum að
vinna á íímakaupshraða þar til þeim
tekst að semja. Það er allt hægt ef
viljin er fyrir hendi.“
Hallfríður Friðriksdóttir:
„Auðvitað fer ég niður í tíma-
kaupshraða þegar þar að kemur. Það
verður mjög þægilegt að vinna þann-
ig. Eins og fyrirkomulagið er á þessu
núna er aðeins til eitt orð yfir þaö:
ömuriegt. Og þá á ég við bónus, tíma-
kauþ og álagið sem við erum undir.
Þetta er bara til að eyðileggja mann.
Ég ætla að vera í bónusverkfalli
þangað til þeir semja.“