Þjóðviljinn - 23.10.1985, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 23.10.1985, Qupperneq 16
Aðalsími: 81333. Kvðldsími: 81348.,Helgarsími: 81663. Mlðvlkudagur 23. október 1985 233. tölublað 50. örgangur HIOÐVIUINN Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar Fömm ekki úr BSRB Haraldur Hannesson: Legg allt kapp á að verða kjörinnfyrsti varaformaður BSRB. Hvarflar ekki að okkur aðfara úr BSRB að hvarflar ekki að okkur að ganga úr BSRB nú og það hef- ur ekki verið rætt í stjórn Starfs- mannafélagsins, en við munum leggja allt kapp á að ég verði kjör- inn fyrsti varaformaður BSRB á þessu þingi, sagði Haraldur Hannesson formaður Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar þegar Þjóðviljinn spurði hann í gær hvað væri hæft í því að hann ætli að leiða Starfsmannafélagið út úr BSRB nái hann ekki kjöri. Haraldur og Albert Kristins- son, núverandi varaformaður eru enn ákveðnir í að gefa kost á sér til kjörs fyrsta varaformanns á laugardaginn. Sem kunnugt er hefur sú hefð verið ríkjandi í BSRB að staða fyrsta varafor- manns sé í höndum Starfs- mannafélags Reykjavíkur en það breyttist á síðasta þingi banda- lagsins, þegar Albert Kristinsson var kosinn í það embætti, en hann var þá formaður Starfsmannafé- lags Hafnarfjarðar. Búist er við hörðum kosningaslag milli þeirra, sem báðir eru yfirlýstir Sjálfstæðismenn. Þær raddir hafa heyrst að forysta Sjálfstæðis- flokksins hafi reynt að blanda sér í þennan slag þeirra félaga, en án árangurs að því er séð verður. -gg Háskólinn Kosið í dag Kosningar til 1. des.-nefndar stúdenta eru haldnar í dag á fjór- um stöðum í húsnæði háskólans, í aðalbyggingu, Odda, Hjúkrunar- skólanum og húsi VR. Kosið verður frá níu til sex og ættu úrslit að liggja fyrir nokkr- um tímum síðar. Tveir listar eru í kjöri, A-listi Vöku („Öflugur há- skóli”) óg B-listi, Félags vinstri- manna („Háskólann í allra þágu”). Kennarar Alvar- legt ástand 441 réttindalaus kennari viðstörfílandinu. íhaust voru ráðnir ífyrsta sinn 156 réttindalausir kenn- arar. Aðeins 13 réttinda- lausir í Reykjavík Menntamálaráðherra upplýsti á alþingi í gær vegna fyrirspurnar Hjörleifs Guttormssonar alþing- ismanns að alls væru nú 441 rétt- indalaus kennari við störf í landinu. Þar af aðeins 13 í Reykjavík. í haust voru 156 rétt- indalausir kennarar ráðnir til starfa i fyrsta sinn. ' Réttindalausir kennarar í kjör- dæmum landsins skiptast þannig: Reykjavík 13, Reykjanes 61, Vesturland 55, Vestfirðir 61, Norðurland vestra 51, Norður- land eystra 80, Austfirðir 71 og Suðurland 49. Menntamálaráð- herra taldi að eina leiðin til að bæta úr þessu ástandi, sem hann taldi ekki gott, væri að bæta laun kennara og efla Kennaraháskóla íslands. Hjörieifur Guttormsson benti á hve mjög hallaði á landsbyggð- ina í þessu máli og hann benti einnig á hve alvarlegt ástandið væri orðið þegar um það bil 40% kennara í landinu væru án kenn- araréttinda. -S.dór. Veðurguðinn Óveðrið hindraði flug Þessir feðgar voru meðal þeirra fjölmörgu sem fengu að kenna á hörku veðurguðanna í gær, þegar innanlandsf lug lagðist að mestu niður vegna hvassviðris og slæms skyggnis. Flugleiðum tókst að fara tvær ferðirtil Akureyrarfyrir hádegið ígær, en eftir hádegið lagðist allt innanlandsflug niður. Á innfelldu myndinni má sjá þá síðustu sem voru svo heppnir að komast ferða sinna flugleiðis í gær. Ljósm. E.ÓI. Fjármunir 10% tekna stungið undan? ÁsmundurStefánssonforsetiASÍtelurað ríkið verði afmiljörðum króna vegna undandráttar Talið er að allt að 10% tekna sé stungið undan skatti sem gæti þýtt um 6 til 7 miljarðar króna - og ríkið þannig orðið af 3 til 4 miljörðum króna tekjum, sagði Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ m.a. í erindi sem hann flutti á ráðstefnu viðskipta- og hagfræð- inga sem haldin var í gær. Ásmundur benti m.a. á að þeg- ar fjallað væri um aðhald og niðurskurð á fjárlögum mætti ekki gleyma möguleikum til að auka tekjur ríkissjóðs. Hann kvað skattaeftirlitið vera lélegt og alls konar ruglanda gætti í stjórnun efnahagsmála. Hann nefndi sem dæmi okurbúlurnar sem fást við verðbréfaviðskipti og byggju ekki við neina bindi- skyldu eins og aðrar peningast- ofnanir. Þá nefndi forseti ASÍ í erindi sínu á að kreditkortin væru talin hafa valdið hærra verðlagi á vörum sem næmi allt að 1 V2%. Hann taldi að rétt væri að beita sérvirkum efnahagsaðgerðum til að leiðrétta misgengi; þenslu í verslun og þjónustu á kostnað annarra atvinnugreina. Á fundinum í gær fluttu þeir Þorsteinn Pálsson fjármálaráð- herra, Tór Einarsson, Magnús Pétursson og Vilhjálmur Egils- son erindi auk Ásmundar. Að loknum ræðum þeirra voru pall- borðsumræður. -óg Bíldudalur Þrjár aurskriður féllu í gær Tvær aurskriður féllu á Bfldu- dal um 2 leytið í gær. Skrið- urnar féllu yfir aðalgötuna í bæn- um, ollu ekki skaða og engan sak- aði. Síðdegis féll síðan önnur án þess að nokkurn sakaði. Á Vest- fjörðum hefur rignt geysilega síð- asta sólarhring en hefur nú slotað nokkuð. Sem dæmi um úrkom- una má nefna að í Dýrafirði var úrkoman um 150 millimetrar á síðasta sólarhring. 1 Þjóðviljinn hafði samband við Guðjón Petersen hjá Almanna- vörnum í gær og sagði hann að menn á Vestfjörðum væru í við- bragðsstöðu og hefðu ákveðna áætlun til að fylgja ef aurskriður falla. Guðjón sagði að hætta á aurskriðum væri einum 5 til 6 klukkustundum eftir að hætti að rigna. Á Bfldudal voru fimm íbúðar- hús rýmd á meðan mesta vatns- veðrið gekk yfir. Einnig var kennsla felld niður í skólanum. Aurskriður hafa víða fallið á vegi á Vestfjörðum vegna mikilla vatnavaxta og valdið skemmd- um. -IH

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.