Þjóðviljinn - 30.11.1985, Blaðsíða 4
LEtÐARI
1. des. og mál sem ekki fymast
í dag er fyrsti desember, merkur dagur vitan-
lega og minnir á einn mikilvægasta áfanga á
leið (slendinga til fulls sjálfstæðis.
Það er eins og menn hafi verið í nokkrum
vandræðum með þennan dag. Og það er ekki
aðeins vegna þess að þjóðhátíðardagurinn,
sautjándi júní, hljóti að skyggja á
fullveldisdaginn gamla. Það er líka vegna þess,
að mikill hluti þjóðarinnar og enn stærri hluti
þeirra sem forystu hafa í stjórnmálum eins og
fer hjá sér þegar talið berst að fullveldi og sjálf-
stæði. Þær hugsjónir eru óþægilegar þeim sem
hafa staðið í hermangi, í vandræðarnakki við
erlenda auðhringi og mörgu öðru sem er heldur
ókræsilegt.
En það er ekki og verður aldrei úr vegi að hafa
þennan sögulega dag, fyrsta desember, að til-
efni til að minna á það, að fullveldi og sjálfstæði
smárrar þjóðar eru aldrei sjálfsagðir hlutir. Fyrir
þeim verður að berjast dag hvern, því margir
eru þeir óvættir sem það lífstré naga - skamm-
sýn gróðafíkni, vanmetakennd, hræðsla - að
ógleymdu sinnuleysinu.
Fullveldi, sem undir nafni rís, á sér mörg birt-
ingarform. Það er hollusta við fullveldi að sætta
sig aldrei við erlendar herstöðvar á landinu, og
neita ágengni um að sá vígbúnaður verði fyrir-
ferðarmeiri en hann nú er. Það er í anda
fullveldis að menn berjast gegn því, að mikil-
vægar ákvarðanir um íslenskt atvinnulíf flytjist
úr landi og til auðhringa, sem margir hverjir hafa
efnahgaslegt vald á við mörg smáríki. Það er
staðfesting á fullveldi að menn kunni að taka á
móti merkum nýmælum á sviði tækni og vísinda
og hagnýta í samræmi við íslenskar aðstæður.
Það er fullveldisnauðsyn að bregðast á þann
veg við mikið umræddum nýjum möguleikum á
sviði fjölmiðlunar, að við ekki drukknum í hol-
skeflu engilsaxneskra menningaráhrifa. Og svo
mætti lengi áfram telja.
Það erekki síst mikilvægt, að íslendingartaki
fyrst og síðast mið af því við mótun sinnar utan-
ríkisstefnu, að þeir eru smáþjóð sem ber að
sýna málstað smáþjóða og minnihluta og allra
þeirra, sem kúgaðir eru af sterku valdi, virka
samstöðu og samúð;. í stað þess að koma fram
á alþjóðlegum vettvangi sem eilífir taglhnýting-
ar Bandaríkjanna - eins og mönnum sýnist ein-
att að sé orðin einskonar fastahegðun hjá
stærsta stjórnmálaflokki landsins.
Sjálfstæðri afstöðu fylgir og sú kvöð að ís-
lendingar leggi sitt af mörkum til friðarmála í
heimi, sem lifir í skugga atómdauðans. Séu til-
lögugóðir þátttakendur í umræðu um hvert það
skref sem stíga má í átt til að bægja þeirri ógn frá
dyrum. Einmitt núna stendur yfir í Kaupmanna-
höfn þingmannaráðstefna norræn um kjarn-
orkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. Morg-
unblaðið er að vanda að vara við þeirri hug-
mynd í leiðara sínum í gær. En á þeirri ráðstefnu
hélt Svavar Gestsson, formaður Alþýðubanda-
lagsins, ræðu þar sem hann segir m.a.:
„Ákvörðun um Norðurlönd án kjarnorku-
vopna er ekki aðeins spurning um friðarvilja,
það er líka spurt um það hvort Norðurlönd vilji
telja sig sjálfstæð og fullvalda ríki. Eigum við að
bíða eftir því að stórveldin úthluti okkur stríði
eða friði? Að sjálfsögðu eigum við að hafna því
að stórveldin ráðskist með okkur“.
Það er vel við hæfi að taka undir þessi orð
Svavars Gestssonar á fullveldisdegi fyrsta des-
ember. -ÁB
Ó-ÁUT
E6 HELD Þu SERT E»TTH\?AÞ
KALLl MÍNN. ÆTLAK AB FíEYGÓA FTSÁ (4*.
þESSU FlNA HERSERGl S6M f»lÁ RýRf> \
HÓÁ FORELDRUM ÞlMUM OG
FAR.' Aö kAUFA&ÉR '(BtÁfe/
DJÚÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergman, össur Skarphóðinsson.
Rltatjómarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fróttastjórl: Valþór Hlöðversson.
Blaðamonn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Garðar
Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson, Þór-
unn Sigurðardóttir, Þröstur Haraldsson.
Handrlta- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljóamyndlr: Einar ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útllt: Sævar Guðbjömsson, Garðar Sigvaldason.
Símvarala: Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Ágústa Þórisdóttir, ólöf Húnfjörð.
Bílstjórl: Jóna Sigurdórsdóttir.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrlfstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbrelðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjórl: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson,
Olga Clausen.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Innhelmtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Bjömsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, síml 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 35 kr.
Sunnudagsblað: 40 kr.
Áskrtft á mánuði: 400 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN i Laugardagur 30. nóvember 1985