Þjóðviljinn - 30.11.1985, Síða 14
HEIMURINN
Holland
Dregið úr kjam
orkuvígbúnaði
Veröa hollensku Orion-vélarnar á Keflavíkurflugvelli kallaðar heim. Koma
tyrkneskar í staöinn?
Haag — Hollenska ríkisstjórn-
in ákvað í gær að draga úr þátt-
töku sinni í kjarnorkuvíg-
Japan
Lestarsamgöngur lamaðar
Tókíó — Japanskir róttæk-
lingar lömuðu stóran hluta af
járnbrautarkerfi landsins á
mesta annatímanum í gær.
Réðust þeir á aðalbrautarstöð-
ina í Tókíó og kveiktu í henni.
Bæði þar og í fleiri borgum
skáru þeir í sundur fjarskipta-
kapla sem settu merkjakerfi og
sporaskipti járnbrautanna úr
sambandi.
Þetta er talin einhver vogað-
asta en jafnframt best skipulagða
mótmæíaaðgerð sem gerð hefur
verið í Japan í mörg ár. Með
henni vildu samtökin Chukakuha
sem teljast vera yst á vinstrikant-
inum mótmæla áformum
stjórnvalda um að selja ríkis-
járnbrautirnar einkaaðilum. Að-
gerðirnar voru gerðar á sama
tíma og samtök járnbrautar-
starfsmanna í borginni Chiba
ERLENDAR
FRÉTTIR
haraldsson/REUTER
Hyggja
egyptar
á innrás?
Kaíró — Líbýumenn hafa sak-
að stjórnvöld i Egyptalandi um
að hyggja á innrás í Líbýu. Eg-
yptar neita þessum ásökunum
en viðurkenna að talsverður
liðssafnaður sé beggja megin
landamæra ríkjanna.
Mikil spenna hefur ríkt í sam-
skiptum ríkjanna eftir flugránið
um síðustu helgi sem endaði með
blóðbaði á flugvellinum í Valletta
á Möltu en þar fórust 60 manns.
Egyptar halda því fram að líbýu-
menn hafi staðið að baki flug-
ráninu og segjast innan skamms
munu leggja fram ótvíræðar
sannanir fyrir hlutdeild þeirra.
Líbýumenn bera af sér allar
sakir og segja að egyptar séu bara
að leita að átyliu til að fara með
stríð á hendur þeim. Því neita eg-
yptar og segjast ekki hafa hug á
því að berjast oftar við arabaríki.
Mikill kuldi hefur ríkt í sam-
skiptum ríkjanna um langt skeið.
Ferðamenn í Egyptalandi hafa
greint frá miklum herflutningum
í nágrenni við landamæri Líbýu.
Langar bílalestir hlaðnar her-
gögnum hafa stefnt í vesturátt frá
Alexandríu. Um skeið var þess-
um vegi lokað fyrir almennri um-
ferð og fylgdist herlögregla með
því að enginn óviðkomandi færi
inn á hann. Vegurinn hefur nú
verið opnaður að nýju og segja
yfirvöld í Kaíró að heldur dragi úr
spennu á landamærunum.
voru í sólarhringsverkfalli gegn
sömu áformum en talsmenn sam-
takanna segja að engin tengsl séu
á milli þeirra og róttæklinganna.
80-100 róttæklingar með hvíta
hjálma réðust inn á Asakusabas-
hi brautarstöðina í miðborg
Tókíó. Eyðilögðu þeir farmiða-
sjálfsala með járnstöngum,
fleygðu eldsprengjum og kveiktu
eld í stöðinni sem slökkviliðs-
menn voru klukkutíma að kveða
niður. Á annatímum dagsins fara
um þessa stöð miljónir íbúa úr
úthverfum og útborgum austan
við Tókíó. Arásin var gerð um
það leyti sem fólk var á leið til
vinnu og skapaðist gífurlegt um-
ferðaröngþveiti í miðborginni.
500 skólum var lokað vegna þess
að engir nemendur mættu og við-
skipti í kauphöllinni voru lítil því
fáir voru mættir til að höndla.
Verkalýðsleiðtogar og stjórn-
málamenn fordæmdu árásirnar
einum rómi og kröfðust ítarlegrar
rannsóknar. Sú rannsókn mun
einkum beinast að því hvernig
vernda megi fjarskiptakaplana
betur en þeir liggja víðast hvar í
steinsteyptum stokkum meðfram
teinunum og aðgengilegir öllum.
Voru þeir rofnir samtímis á 33
stöðum í 8 héruðum landsins.
búnaði Nató þrátt fyrir harðorð
mótmæli frá bandamönnum
sínum í hernaðarbandalaginu.
Það þýðir ma. að Orion kafbát-
aleitarflugvélarnar sem nú eru
staðsettar á Keflavíkurflug-
velli munu ekki lengur þjóna
viðbúnaði Nató á sviði kjarn-
orkuvígbúnaðar.
Eftir að hollenska stjórnin
samþykkti í síðasta mánuði að
veita viðtöku 48 stýriflaugum
búnum kjarnorkusprengjum
voru verkefni hollendinga á sviði
kjarnorkuvígbúnaðar orðin sex.
Tvö þeirra var búið að ákveða að
hætta við í samráði við Nató en
það var vilji bandalagsins að hol-
lendingar héldu áfram rekstri
Orion-flugsveitarinnar og
tveggja sveita af F-16 orrustuþot-
um sem eru liður í kjarnorkuvíg-
búnaði bandalagsins. Hér eftir
munu þessar flugsveitir einungis
sinna verkefnum sem tengjast
hefðbundnum vígbúnaði.
Ástæðan fyrir þessari ákvörð-
un stjórnarinnar er talin vera sú
að næsta vor fara fram þingkosn-
ingar í Hollandi og hefur stærsti
stj órnarandstöðuflokkurinn,
jafnaðarmenn, stóraukið fylgi
sitt í skoðanakönnunum, einkum
í krafti andstöðu sinnar gegn
kjarnorkuvígbúnaði hollendinga
sem meirihluti hollendinga er
andvígur ef marka má skoðana-
kannanir.
Suður-Afríka
ANC axlar ábyrgðina
Lusaka — yfirlýsingu frá for-
ystu Afríska þjóðarráðsins
sem birt var í Lusaka í Sambíu
Union
Carbide
sýndi
vanrækslu
Nýju-Delhi — Á þriðjudaginn er
liðið ár frá því versta iðnaðar-
slys sögunnar varð í Bhopal á
Indlandi en þá létust 2.500
manns eftir að leki kom upp í
gasverksmiðju í eigu banda-
ríska auðhringsins Union Car-
bide. Þessa verður minnst
með ýmsum hætti og ma. ætla
íbúar Bhopal að brenna 2.500
eftirlíkingar af Warran Ander-
son stjórnarformanni Union
Carbide.
Mikill málarekstur er enn í
gangi vegna slyssins. Indverska
stjórnin hefur höfðað mál á hend-
ur auðhringnum fyrir hönd ætt-
ingja hinna látnu og yfir 2.000
einkamál hafa verið höfðuð á
hendur Union Carbide.
Fylkisstjórnin í Bhopal skipaði
rannsóknarnefnd eftir að slysið
varð og er hún enn að störfum. í
gær lýsti fylkisstjórnin því yfir að
auðhringurinn hefði sýnt van-
rækslu við byggingu og rekstur
verksmiðjunnar. Einnig hefði
fyrirtækið vanrækt að upplýsa al-
menning og yfirvöld fylkisins um
þær hættur sem af verksmiðjunni
gætu stafað. Enn þjást 125 þús-
und manns í héraðinu af völdum
gaslekans.
Fylkisstjórnin lýsti ábyrgð á
hendur auðhringnum sem hefði
átt að tryggja að „hönnun, bygg-
ing, starfræksla og viðhald verk-
smiðjunnar í Bhopal væri byggð á
bestu fáanlegri þekkingu og
kunnáttu til að tryggja öryggi íbú-
anna“. Stjórnin krafðist þess af
auðhringnum að hann lyfti hul-
unni af því hvort öryggisbúnaður
verksmiðjunnar í Bhopal hefði
verið sambærilegur við öryggis-
búnað í samskonar verksmiðju
Union Carbide í Bandaríkjun-
um. Fram til þessa hefur auð-
hringurinn ekki viljað upplýsa
það.
Verksmiðja Union Carbide í Bhopal á Indlandi. Örin bendir á tankinn sem
eiturgasið lak úr.
Kína
Otti við ónæmiS'
tæringu eykst
Peking — Dagblaðið Guangm-
ing sem gefið er út í Kína hvatti
ígærtil þess að ástir samkynja
fólks yrðu stranglega bannað-
ar og sömuleiðis „frjálsar ást-
ir“. Jafnframt krafðist blaðið
þess að útlendingum sem ætl-
uðu sér að giftast kínverjum
yrði gert að sæta blóðrann-
sókn á því hvort þeir væru
haldnir ónæmistæringu.
Blaðið upplýsti að yfirvöld
hefðu stöðvað allan innflutning á
gjafablóði en bætti því við að það
væri engan veginn nóg til að hefta
framrás sjúkdómsins meðal kín-
verja. Enginn kínverji hefur enn
fengið ónæmistæringu svo yfir-
völdum sé kunnugt. Hins vegar
dó bandarískur ferðamaður úr
sjúkdómnum á sjúkrahúsi í Pek-
ing í sumar.
Fyrr í þessum mánuði skýrðu
yfirvöld frá því að þau ætluðu að
opna sérstakar rannsóknar-
stöðvar í stærstu borgum lands-
ins, svo sem Peking og Sjanghai.
Þar er ætlunin að rannsaka ferða-
menn, erlenda námsmenn og
innfædda sem hafa reglulegt sam-
neyti við útlendinga.
þar sem hreyfingin hefur
höfuðstöðvar sínar tekur ANC
alla ábyrgð á eldflaugaárás-
inni á verksmiðjuna í Secunda
í Suður-Afríku svo og á jarð-
sprengjum sem sprungið hafa
í Transvaal nærri landamær-
um Zimbabwe undanfarnar
vikur.
í yfirlýsingu ANC er því jafn-
framt vísað á bug að skæruliðar
hreyfingarinnar sem að þessum
aðgerðum stóðu hafi komið frá
stöðvum í Zimbabwe. Þeir hafi
sínar bækistöðvar innan landa-
mæra Suður-Afríku. Það sé þess
vegna illrætinn áróður hjá stjórn
Botha forseta að halda öðru
fram. Sá áróður sýni aðeins að
„stjórnin í Suður-Afríku ætlar að
halda til streitu þeirri glæpsam-
legu stefnu sinni að grafa undan
sjálfstæði afrísku ríkjanna í
suðurhluta álfunnar".
Á meðan héldu stjórnvöld í
Suður-Afríku áfram að magna
orðaskakið sem þau komu af stað
fyrr í vikunni. Ríkisútvarpið var-
aði stjórnvöld í Zimbabwe við því
að leyfa „hryðjuverkamönnum"
að herja frá landi sínu. „Ábyrgð-
in hvílir því öll á herðum Muga-
bes (forsætisráðherra Zimba-
bwe), hann hefur það í hendi sér
að koma í veg fyrir að leitar-
leiðangur suðurafríska hersins
reynist óumflýjanlegur,“ sagði í
fréttaskýringarþætti sem vana-
lega túlkar viðhorf stjórnvalda.
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. nóvember 1985
Indland
Lifir kvikmyndaiðn-
aðurinn á skattsvikum?
Bombay — Skattalögreglan í
Bombay á Indlandi stóð í
ströngu í gær þegar hún réðst
til atlögu við meint skattsvik
kvikmyndaframleiðenda. Hús-
leit var gerð á heimilum nærri
200 þekktra manna í Bombay
sem nefnd hefur verið Holly-
wood Indlands.
Kvikmyndaiðnaðurinn á Ind-
landi er mikill að vöxtum enda
eru framleiddar 900 kvikmyndir á
ári í landinu sem er meira en í
nokkru öðru landi. Geysileg
velta er í greininni og telja yfir-
völd að þar eigi sér stað mikil
skattsvik. Skattrannsóknarmenn
lögðu hald á reikninga og bók-
haldsgögn fjölmargra kvikmynd-
afyrirtækja.
Þessi atlaga er liður í herferð
Rajivs Gandhi forsætisráðherra
gegn skattsvikum á Indlandi. Þau
eru mjög útbreidd og opinberar
áætlanir hljóða upp á 30 miljarða
dollara á ári sem jafngildir
fimmtungi allrar framleiðslu
þjóðarinnar á vörum og þjón-
ustu. Kvikmyndaiðnaðurinn hef-
ur lengi legið undir grun og sumir
halda því fram að hann eigi til-
veru sína skattsvikum og undan-
drætti að þakka. Er sagt að kvik-
myndaleikarar krefjist þess að fá
laun sín í erlendum gjaldeyri en
ekki rúpíum sem háðar eru ýms-
um gjaldeyrishöftum.