Þjóðviljinn - 05.12.1985, Síða 1
BÚSÝSLAN
MANNLÍF
HEIMURINN
Utvegsbankamálið
Tapið verður 400 miljónir
1600 króna aukaskattur á hvern landsmann. 5000 krónur áfjölskyldu.
Útvegsbankinn tapar um 400 miljónum króna. Eimskip kaupir á 8-9 miljónir dollara.
Skaftá verður að öllum líkindum leyst út
Viðræður Eimskips og Útvegs-
bankans voru á lokastigi í
gær. Þá var orðið ljóst að Útvegs-
bankinn tapar um 400 miljónum
króna á Hafskips-viðskiptunum.
Þennan skeii tekur ríkissjóður á
sig, sem er það sama og almenn-
ingur í landinu, og nemur skeilur-
inn um 1600 krónum á hvern
mann eða um 5000 krónum á
hverja meðal-fjölskyidu. Ovissu-
þættirnir í máiinu voru enn tveir í
gær; hvort Eimskip greiðir 8 eða
9 miljónir dollara fyrir Hafskip
og hvort Ms. Skaftá, sem kyrrsett
hefur verið í Beigíu, verður Ieyst
út eður ei. Ef hún verður leyst út,
sem allar líkur voru á seinnipart
dags í gær, verður bankinn að
leggja fram 40-50 miljónir krória í
viðbót við þær 760 miljónir sem
Hafskip skuldar Útvegsbankan-
um. Eimskip vill ekki ganga end-
anlega frá kaupunum, fyrr en
þetta liggur Ijóst fyrir.
I Útvegsbankanum eru geymd
hlutabréf í Hafskip uppá 80 milj-
ónir króna. Þetta eru bréf sem
gefin voru út í hlutafjáraukning-
unni sl. vor. Þessi hlutabréf eru til
5 ára, vaxtalaus en verðtryggð.
Þetta metur bankinn sér að sjálf-
sögðu til eigna í málinu. Vafa-
samt er að fullmeta það, vegna
þess að féð er vaxtalaust og eins
liggur ekki fyrir hversu vel þessi
bréf innheimtast á næstu 5 árum.
Þar með má segja að þessu
mikla gjaldþrotamáli sé lokið
hvað Útvegsbankann varðar og
mun þetta vera stærsti skellur
sem bankastofnun í landinu hefur
Sjá síðu 3 og leiðara.
fengið á sig til þessa. Útvegs- inn af hættusvæðinu, því eftir er arflugi reiðir af. Bæði þessi fyrir- með sín fjármálaviðskipti í Út-
bankinn er þó ekki alveg slopp- að sjá hvernig Byggung og Arn- tæki og fleiri standa tæpt og eru vegsbankanum.
- S.dór.
** i
19dagartiljola!
Teiknlng: Drífa Baldursdóttir 5 ára,
Arnarkletti 18 Borgarnesi.
Uppfinningar
Kandknattleiksvél loftknúin
Formaður HSÍ, Jón Hjaltalín Magnússon, hugar að smíði vélar til
æfingafyrir markmenn íhandknattleik. Yrði svipuð tennisbyssu
Formaður Handknattleikssam-
bands íslands, Jón Hjaltalín
Magnússon verkfræðingur, er
með í huga að hanna vél til æfinga
fyrir markverði í handknattleik.
Sagði Jón í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær að hann hugsaði sér
tækið svipað tennisbyssu, sem
tennisleikarar nota til æfinga.
Yrði þá um tæki að ræða sem
spýtir boltunum útum stút og
myndi loftþrýstingur notaður til
að skjóta boltanum að marki. En
hversvegna svona vél?
„Nú orðið fara handknattleiks-
menn í stuttum frístundum, há-
degi eða þegar tími gefst, og æfa
sig einir í einhverju ákveðnu sem
þeim þykir skorta á getu sína, svo
sem tækni, skotfestu o.fl. Mark-
verðir aftur á móti eru bundnir
við að hafa einn eða helst tvo
menn með sér ef þeir vilja æfa
upp snerpu og viðbrögð við
skotum. Þetta er oft erfitt fyrir þá
og þeir sitja oft eftir hvað þetta
varðar. Ef svona vél væri til, gætu
þeir farið einir þegar tími gefst og
æft sig þannig eins og aðrir“,
sagði Jón Hjaltalín.
Hann sagðist ekki vera byrjað-
ur neina hönnun á vélinni, þetta
væri enn sem komið er aðeins
hugmynd, en hann sagðist telja
að ekki yrði erfitt að útfæra þetta
eftirtennisbyssunni. Það stæði þó
enn í sér hvernig gera mætti
skotin fjölbreytt og óvænt, en
sennilega mætti leysa það vanda-
mál. - S.dór.
Greinaflokkur
Sókn markaðshyggjunnar
„Við viljum víðtækt einstak-
lingsfrelsi, þar sem hver og einn
getur óttalaust látið skoðanir
sínar í ljósi“, segir Ásmundur
Stefánsson forseti ASÍ í grein
sinni Sókn markaðshyggjunnar,
sem birtist á bls. 13 í dag. Greinin
er sú fyrsta af þremur sem birtast
munu næstu daga. Greinarnar
voru upphaflega erindi, flutt á
þingum VMSÍ og LÍV.
Sjá bls. 13