Þjóðviljinn - 05.12.1985, Síða 3
FRETTIR
s
Askorun
Hreinsum til í svínaríinu
Guðrún Helgadóttir skorar á þingmenn að taka til í bankakerfinu.
Alþýðubandalagið með nýttfrumvarp um eftirlitmeð bankastarfsemi.
Amánudag verður lagt fram
nýtt frumvarp Alþýðubanda-
lagsins á alþingi um eftirlit með
bankastarfsemi.
Guðrún Helgadóttir upplýsti í
umræðum um bankamál í gær að
frumvarpið væri nær frágengið en
það gerir ráð fyrir því að banka-
eftirlitið verði sjálfstæð stofnun.
„Það er óviðunandi að Seðla-
bankinn hafi yfirráð yfir banka-
eftirlitinu", sagði Guðrún, „og
það er óviðunandi að bankaeftir-
litið hafi aðeins 5 starfsmenn."
Guðrún sagði nauðsynlegt að
taka málefni bankanna algerlega
til endurskoðunar í ljósi Haf-
skipsmálsins. Þeir væru stjórn-
lausir og ríki í ríkinu. „Banka-
kerfið veður áfram án þess að
spyrja kóng eða prest“, sagði
hún. „Viðskiptaráðherrar botna
ekki neitt í neinu og það er logið
að alþingi. Það er enginn ábyrgur
fyrir neinu og eftirlitið er í mol-
um. Alþingi getur ekki farið heim
í vor nema þingmenn séu búnir
að hreinsa til í þessu svínaríi."
-ÁI
Arnarflug
Enn er
tap á
Amar-
flugi
Rekstrartapið er
17 miljónir á 9fyrstu
mánuðum ársins
Á stjórnarfundi í Arnarflugi í
gær, var kunngert að rekstrartap
félagsins fyrstu 9 mánuði ársins
hefði numið 17 miljónum króna.
Á stjórnarfundi fyrir um tveimur
vikum var kunngert að tapið
fyrstu 6 mánuðina hefði numið
um 60 miljónum króna. Þeir þrír
mánuðir sem nú bætast við eru
bestu mánuðir ársins, aðal ferða-
mánuðirnir og pílagrímsflugið.
Búist er við að útkoma fyrir-
tækisins fyrir allt árið 1985 verði
mjög slæm, því þrír síðustu mán-
uðir ársins eru að jafnaði mjög
erfiðir hjá flugfélögum.
-S.dór
Bankastjórar gengu í gær á fund þeirra Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra og Þorsteins Pálssonar
fjármálaráðherra um hina umdeildu hugmynd Þorsteins að afnema verðtryggingu af skammtímalánum bankanna.
Margir telja að það verði til þess að vextir hækki uppúr öllu valdi þegar þeir verða gefnir frjálsir á næsta ári. Hér á
myndinni kemur Lárus Jónsson bankastjóri Útvegsbankans til fundarins og bankinn hans er í baksýn. Lárus er nýsestur í
stól bankastjóra. Áhyggjurnar leyna sér ekki í svipnum, eða eins og skáldið sagði forðum daga: í svipnum er mörg
hundruð miljóna tap/meitlað í hverjum drætti. Ljósm. - E.ÓI.
Hafskipsmálið
Þetta er alþjóðlegt hneyksli
Páll Pétursson: Þetta eru gamlar syndir.
Guðmundur Einarsson: Þetta ermál Sjálfstœðisflokksins.
Guðrún Helgadóttir: Óviðunandi að þingmenn sitji íbankaráðum
r
Eg ætla að leiða hest minn hjá
Hafskipsmálinu. Hafskips-
málið er ekki mál Framsóknar-
flokksins, en það kann að vera að
einhver annar flokkur taki það til
sín! sagði Páll Pétursson, for-
maður Þingflokks Framsóknar,
m.a. í gær í umræðum um bank-
amál.
Guðmundur Einarsson mælti
fyrir frumvarpi sínu um að við-
skiptaráðherra skipi einhendis í
bankaráð í stað alþingis og að
bannað verði að skipa þingmenn í
ráðin. Guðmundur svaraði Páli
og sagði ljóst að Hafskipsmálið
væri mál Sjálfstæðisflokksins og
kallaði Jón Baldvin Hannibalsson
þá fram í og sagði: „En ef SÍS
hefði keypt?“
Páll Pétursson sagðist ekki
treysta viðskiptaráðherra betur
en alþingi til að gæta „nauðsyn-
legs jafnvægis" í bankaráðunum
en hins vegar væri hann ekki tals-
maður þess að þingmenn sætu í
bankaráðum nema í bankaráði
Seðlabankans. Þar væri nauðsyn-
legt fyrir mótun peningapólitíkur
í landinu að sætu menn sem væru
„hollir stuðningsmenn ríkis-
stjórnar á hverjum tíma“. Páll
mótmælti því sem hann kallaði
ósvífnar aðdróttanir í máli Guð-
mundar um að alþingismenn
væru öðrum borgurum vanhæfari
til setu í bankaráðum. Banka-
ráðum gætu orðið á mistök eins
og öðrum nefndum og ráðum og
þar væri ekki hægt að kenna þing-
mönnum um. Páll sagði að margt
mætti af Hafskipsmálinu læra.
Þarna hefðu orðið mannleg mis-
tök. Menn hefðu greinilega ekki
gætt þess að „halda í skottið á
braskarafélögum hvort heldur
þau hétu Hafskip eða eitthvað
annað“. Ekki væri hægt að láta
núverandi bankaráð og banka-
stjóra sitja uppi með ábyrgðina
nema að litlu leyti: Þetta væru
gamlar syndir sem safnað hefði
verið upp til margra ára.
Guðrún Helgadóttir lýsti
stuðningi sýnum við meginefni
frumvarpsins og sagði óviðun-
andi að alþingismenn sætu í
bankaráðum. Það kæmi ekki
heim og saman þegar banka-
leyndin væri annars vegar, enda
sýndi það sig best nú að banka-
ráðsmenn væru ekki fjölorðir á
alþingi um Hafskipsmálið.
Guðrún sagði að þingflokkur
Alþýðubandalagsins hefði í smíð-
um frumvarp um að bankaeftir-
litið yrði gert að sjálfstæðri stofn-
un enda væri óviðunandi að
Seðlabankinn hefði yfirráð yfir
því eins og nú er. Hins vegar
sagði hún að bankakerfið í það
heila væri stjórnlaust og að
ábyrgðarleysi einkenndi stjóm
peningamála. Alþingismenn
hefðu verið blekktir í 10 ár um
viðskipti Hafskips og Útvegs-
bankans og þegar maður hefði
gengið undir manns hönd fyrir
nokkrum árum til að fá samþykki
við 5 miljarða erlendu láni til að
bjarga Útvegsbankanum hefði
skýringin verið að útgerðin gengi
svo illa! „Það var logið að al-
þingi", sagði Guðrún. „Miljarð-
arnir runnu í þessa sömu hít sem
skattborgararnir eiga nú að bera.
Alþingi þarf að læra af mistökum
sínum", sagði hún. „Þingmenn
verða að taka saman höndum
hvað sem flokkspólitík líður og
hreinsa til í svínaríinu! Þetta er
orðið alþjóðlegt hneyksli."
Guðmundur Einarsson lýsti
ánægju með undirtekir við frum-
varpi sínu og sagði að full ástæða
væri til að láta ósvífnar athuga-
semdir falla þegar 1000 miljónir
væru látnar fjúka út í vindinn.
Guðmundur veifaði auglýsingu
frá Útvegsbankanum sem birt var
í Morgunblaðinu í gær. Þar segir
m.a. að „í ríkisbanka er áhætt-
an engin!“ „Hver tekur áhætt-
una?“, sagði Guðmundur.
„Áhættan tekur skattborgarinn
sem situr heima hjá sér. Það er
ærið tilefni til ósvífinna athuga-
semda!“. _ái
Fimmtudagur 5. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Stálvík
Uppstokkun
í rekstri
Jón Sveinsson sér um
nýju dráttarbrautina og
Steinar Viggósson tekur
við skipasmíðastöðinni.
Skipasmíðastöðin Stálvík í
Garðabæ undirbýr nú stofnun
hlutafélags um rekstur dráttar-
brautar sem fyrirtækið festi kaup
á fyrr í sumar og verður sett upp
við stöðina eftir áramótin. Jafn-
framt er samkvæmt heimildum
Þjóðviljans búið að ákveða að
Jón Sveinsson forstjóri Stálvíkur
verði forstöðumaður dráttar-
brautarinnar en Steinar Viggós-
son skipatæknifræðingur taki við
yfirstjórn í skipasmíðastööinni.
„Það er ekki búið að ganga frá
þessum málum, en þetta er allt til
umræðu“, sagði Jón Sveinsson í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Sagði Jón að stefnt væri að því að
dráttarbrautin tæki til starfa
næsta vor. Brautin er sú stærsta
hérlendis og getur tekið upp skip
sem eru allt að 100 m löng og 19 m
breið.
Sl. föstudag fengu allir starfs-
menn Stálvíkur um 80 að tölu
uppsagnarbréf, en unnið er að
uppstokkun á rekstri fyrirtækis-
ins. -Ig.
Ósvífni
„í ríkisbanka
er áhættan
engin“
Útvegsbankinn auglýsir:
Bankinn býður nú
3% hœrri innlánsvexti
en útlánsvextir á
verðtryggðum lánum eru
Útvegsbankinn hefur nú tekið
forystu í hávaxtakapphlaupinu og
yfirbýður aðra banka með 7%
ársávöxtun á 18 mánaða verð-
tryggðum sparireikningum. Aug-
lýsingatrikk bankans um þessa
reikninga er einfalt: í RIKIS-
BANKA ER ÁHÆTTAN ENG-
IN!
í desembermánuði býður Út-
vegsbankinn svokallaða „Önd-
vegisreikninga“ sem eiga að skila
eigendum sfnum „drjúgum arði
án minnstu fyrirhafnar eða
áhættu". Á heilsíðu auglýsingu í
Morgunblaðinu f gær segir að
ávöxtun fjár á þessum reikning-
um sé „örugg og fyrirhafnarlaus"
og klykkt er út með eftirfarandi
setningu: „Miðað við þennan
stutta binditíma sparifjár býður
enginn banki betri ávöxtun - og í
ríkisbanka er áhættan engin.“