Þjóðviljinn - 05.12.1985, Side 4
LEIÐARI
Burt með bankaleyndina
I nýju lögunum um bankaleynd, sem taka gildi
1. janúar, er frekar hert á leyndinni heldur en
hitt. Þar segir: „Bankaráösmenn, bankastjórar
og aörir starfsmenn viöskiptabanka eru bundnir
þagnarskyldu um allt þaö er varöar hagi við-
skiptamanna bankans, og um önnur atriði sem
þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skulu
fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboöara
eöa eöli málsins, nema dómari úrskuröi aö upp-
lýsingar sé skylt aö veita fyrir dómi eöa lögreglu
eöa skylda sé til aö veita upplýsingar lögum
samkvæmt. Þagnarskyldan helst þótt látið sé af
starfi".
Þessi leyndarlöggjöf á ekki heima í lýðræðis-
landi. Hún er ekkert annaö en kerfisleg yfirhilm-
ing fyrir skuggaleg viðskipti. Viöskipti stórfyrir-
tækja og banka - sem ekki þola Ijós upplýsing-
arinnar - eru óheiöarleg viðskipti. Og í skjóli
þessarar löggjafar hefur veriö legið á upplýsing-
um sem almenningur á siöferöislegan rétt á aö
fá. Þess vegna verða allir lýðræðissinnar á al-
þingi aö sameinast um að hnekkja þessari
leyndarlöggjöf.
Stjórnmálaflokkarnir hafa kallað yfir sig
gagnrýni og grunsemdir vegna þess leyni-
makks sem löggjöfin býöur uppá, bæöi fyrr og
ekki síður í framtíðinni, því meö nýju lögunum er
frékar hert á leyndinni. Til hvers kjósa
stjórnmálaflokkarnir alþingismenn í bankaráð?
Væntanlega er réttlætingin sú, aö nauðsynlegt
sé, aö hinir lýökjörnu fulltrúar fái milliliðalaust
upplýsingar um hvernig fariö er meö fé lands-
manna í bönkunum. En sú réttlæting erfallin um
sjálfa sig, þegar bankaráösmenn mega ekki
veita neinar upplýsingar, hvorki á alþingi né
annars staðar. Þess vegna er óeölilegt sem og
af mörgum öðrum ástæöum, aö alþingismenn
séu í launuðum bankaráðsstörfum.
Þjóöviljinn styöur þær hugmyndir sem fram
hafa komiö einnig á alþingi um aö hætta aö
kjósa alþingismenn í bankaráð. Þjóöviljinn
bendir á aö Útvegsbanka/Hafskipsmálið gefur
tilefni til víötækrar endurskoðunar á lögum og
nýrri lagasetningu til aö styrkja innviöi lýöræö-
iskerfisins. Þjóöviljinn tekur undir meö Svavari
Gestssyni formanni Alþýðubandalagsins sem
sagði á alþingi, aö þaö væri brýn nauösyn fyrir
alþingi íslendinga aö þetta mál yröi gert upp lið
fyrir liö og allir sem tengjast því, bæöi
stjórnmálaaðilar og aörir, geri grein fyrir sínum
samskiptum í þessum efnum. Þjóöin á
heimtingu á aö fá að vita hvernig farið hefur
verið með fé hennar og hverjir þar hafa komið
viö sögu.
Þaö þarf aö setja lög um eftirlitsnefndir, þaö
þarf aö setja lög um upplýsingaskyldu banka og
stórfyrirtækja, þaö þarf aö setja lög um sjálf-
stætt bankaeftirlit, þaö þarf aö setja lög um opið
bókhald, þaö þarf að afnema leyndarlöggjöfina,
og þá lagabálka sem notaðir eru til spilltrar fyrir-
greiöslu viö fyrirtækin í landinu á kostnaö fólks-
ins. Burt meö fyrirgreiðslulög forstjóraveldisins.
Múlbundið dagblað
DV hefur löngum stært sig af því aö vera
„frjálst og óháð dagblaö". Hins vegar hefur
ævinlega veriö Ijóst aö blaðið er og hefur veriö
eitt málgagna Sjálfstæöisflokksins og nokkurra
stóreignamanna í Reykjavík. Fyrstu æviár sín
reyndi hinsvegar Dagblaðið forveri DV aö sýna
nokkra viðleitni til öðruvísi umfjöllunar og efnis-
taka en venjulegt flokksmálgagn.
í seinni tíö hefur borið æ minna á slíkri við-
leitni. Nýlegt dæmi um flokkshollustuna var á
dögunum, þegar nær allar fregnir á útsíöum
blaðsins voru tileinkaöar Sjálfstæöisflokknum.
Svoleiöis smekkleysa hefur ekki sést í nokkru
öðru blaöi um árabil.
í tengslum viö Hafskips/Útvegsbankamáliö
hefur einnig komiö í Ijós aö DV er fráleitt frjálst
og óháö þeim auöjöfrum sem eiga blaðið. Blaö-
iö er notaö blygðunarlaust í þágu þeirra sem
eiga blaöiö.
Þannig hefur DV til dæmis ekki fjallað um þaö
hneyksli hvernig fé Útvegsbankans hefur veriö
ausiö gegndarlaust í hít skipafélags sem er á
hausnum. Hvernig stendur á því að blað, sem
áöur stæröi sig af því aö vilja uppræta spilling-
una í þjóöfélaginu, skuli ekki sýna neinn lit á aö
varpa Ijósi á þetta mál?
Svarið er einfalt: Aðaleigendur DV, þeir Hörö-
ur Einarsson og Sveinn R. Eyjólfsson, eru
stjórnarmenn í Hafskip og stofnendur „íslenska
skipafélagsins". Og þannig fékk blessað blaðið
sem vildi vera svo frjálst og óháö á sig múlinn,
svo þaö þegir og þegir. -óg
KUPPT OG SKORIÐ
Dr Jekyll
og mr. Hyde
Ein þeirra skáldsagnapersóna
sem oft kemur upp í huga manna
er sá góði og gegni l’æknir dr. Jek-
yll, sem varð á stundum tvífari
sjálfs sín, kallaði sig þá herra
Hyde ogframdi mörg fólskuverk.
Þessi tvískipta persóna Ro-
berts Louis Stevensons gengur
aftur í mörgum myndum og nú
síðast gerir hún sig líklega til að fá
sér bólfestu á síðum Morgun-
blaðsins.
Morgunblaðið hefur staðið í
nokkri menningarbarátu að und-
anförnu. I leiðurum og Reykja-
víkurbréfum hefur verið talað
mikið og fagurlega um nauðsyn
þess að efla sem mest má verða
íslenska tungu og menningu og
megi ekkert til spara, enda rói
þjóðin nú lífróður undan „hol-
skeflu engilsaxneskra menningar-
áhrifa'*. Splunkunýr mennta-
málaráðherra, Sverrir Herm-
annsson, tekur undir þetta með
ráðstefnuhaldi í Þjóðleikhúsinu
um verndun tungunnar. Vaka
heldur fyrsta desember hátíð-
legan með kröfum um eflingu há-
skólans. Og svo mætti áfram
telja. Og allt er það nokkuð gott.
Moggakálfur
Svo birtist fjögurra síðna kálf-
ur inni í Morgunblaðinu í gær og
hann geymir tillögur Sambands
ungra Sjálfstæðismanna um það
sem þeir vilja kalla „ráðdeild í
ríkisrekstri.44 Þar eru nákvæm-
lega út færðar og út listaðar til-
lögur þeirra íhaldsmanna sem
munu landið og Morgunblaðið
erfa, hvernig skera megi niður
hið snarasta ríkisútgjöld um svo
sem 2,7 miljarða króna. Þetta
plagg er hið fróðlegasta og
nauðsynlegt að allir kynni sér það
sem best, til að vita hvar þeir
standa í hinu nýja markaðskerfi.
Því hér er á ferð mikill niður-
skurður til heilbrigðismála, líf-
eyrissjóða, stofnkostnaður dag-
vistarheimila skal niður felldur
og útgjöld til margra annarra
mála, sem er meira en nauðsyn
að fjalla um sérstaklega.
En við vorum í menningarsókn
Morgunblaðsins miðri og því er
ekki úr vegi að skoða það sér á
parti, hvaða hlutur henni er ætl-
aður í þessum hugmyndum hinna
ungu fálka Ihaldsins.
Oft er það haft á orði að eitt
helsta sérkenni íslenskrar menn-
ingar sé mikið leikhúslíf, sem
ótrúlegur fjöldi fólks tekur virk-
an þátt í. Þá er og sagt, sem satt
er, að mikil nauðsyn sé okkur að
byggja upp sem öflugasta ís-
lenska kvikmyndagerð. Og dr.
Jekyll tekur undir þetta vinsam-
lega í Morgunblaðsleiðurum.
En svo fer mr. Hyde á kreik í
tillögum SUS og segir sem svo:
Kvikmyndasjóð skulum við skera
niður um átta miljónir eða 25%.
Við tökum af fjárlögum öll fram-
lög til eftirtaldinna aðila: Leikfé-
lags Reykjavíkur, Leikfélags Ak-
ureyrar, Bandalags íslenskra
leikfélaga og svo framlög til
„annarar leiklistarstarfsemi",
líka framlög til Islensku óperunn-
ar, dansflokksins og Alþýðuleik-
hússins - alls um tuttugu miljón-
ir. Þá á að drepa þýðingarsjóð
sem hefur mjög stuðlað að því að
þýdd séu á íslensku ágæt bók-
menntaverk erlend. SUS vill líka
að felld sé niður með öllu framlög
til kynningar á íslenskri list, til
tiltekinna myndlistarskóla, lista-
safna ogfleiri stofnana. Þeirungu
fálkar segja í sinni greinargerð að
þeir telji „óeðlilegt“ að ríkið leggi
fram fé til þeirrar starfsemi sem
að ofan greinir og vísa henni frá
sér til áhugamanna og sveitarfé-
laga.
Hér við bætist, að SUS vill gera
þjónustu þeirra stofnana sem
ekki á að slátra í bili dýrari en nú
er, með að skipa Þjóðleikhúsi,
Sinfónuhljómsveit, tónlistarskól-
um og námsgagnastofnun að
selja þjónustu sína 10-25% dýrar
en nú er.
Stúdentar þeir sem voru að
halda upp á fyrsta desember fá
líka sínar kveðjur frá mr. Hyde.
Hann vill afnema útgjöld sem
fara til að jafna námskostnað
með öliu, sömuleiðis fjárveitingu
til Félagsstofnunar stúdenta og
skera framlög til Lánasjóðs ís-
lenskra námsmanna niður um
25%. Háskóli íslands á svo að
auka eigin tekjur (einkum með
því að hækka innritunargjöld)
um svosem 22 milljónir, að því er
SUS vill.
Römm alvara
Það er ástæða til að vekja at-
hygli á því að ungum Sjálfstæðis-
mönnum er full alvara. Meira en
svo - þeir telja hugmyndir af
þessu tagi aðeins vera upphaf
annars og meira. Þeir segja.
„Með þeim (tillögunum) er þó
ekki stigið það fullnaðarskref að
yrði þeim hrint í framkvæmd
væru ungir Sjálfstæðismenn
fullkomlega sáttir við skipan
mála.... Það er enn langt í land.
Hér er einungis fjallað um þá
þætti sem unnt væri að koma í
kring á þeim tíma sem ríkisstjórn-
in hefur til stefnu fram að næstu
kosningum“.
Menn skuli líka hafa það í
huga, að Samband ungra Sjálf-
stæðismanna er engin „húsmóðir
í Vesturbænum“. Formaður
þess. Vilhjálmur Egilsson, er
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins og helsti ráð-
gjafi Þorsteins flokksformanns í
efnahagsmálum.
Að vísu er eitt skrýtið við birt-
ingu tillagnanna: þær eru merkt-
ar sem auglýsing. Dr. Jekyll rit-
stjórastólanna er eitthvað bumb-
ult yfir þeirri ólyfjan sem mr.
Hyde frjálshyggjunnar bruggar
þeim báðum. En mr. Hyde á
alltaf skítnóg af peningum til að
borga fyrir auglýsingar sem ann-
að. Og dr Jekyll veit vel, að það
er ekki hægt að losna við hinn
helminginn af sjálfum sér nema
báðir farist. -ÁB
DJOÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergman, össur Skarphóðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Garðar
Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson, Þór-
unn Sigurðardóttir, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndir: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útllt: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Símvarsla: Sigríöur Kristjánsdóttir.
Húsmæður: Agústa Þórisdóttir, Olöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Utbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýslngar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson,
Olga Clausen.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sfmi 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 35 kr.
Sunnudagsblað: 40 kr.
Askrift á mánuðl: 400 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 5. desember 1985