Þjóðviljinn - 05.12.1985, Page 5
Bára litia önnum kafin viö aö skera laufabrauðið.
Laufabrauðin
hennar Báru
Bára Sigurðardóttir: „ Það eru engin jól ef við komum ekki saman og
skerum út og steikjum laufabrauðið.” Sama saga er líklega á fleiri
íslenskum heimilum. Búsýslan fylgdist með laufabrauðsskurðinum
í Mosfellssveitinni og birtir uppskriftina hennar Báru sem hún fékk
auðvitað frá mömmu sinni. Einnig eru uppskriftir af öðru meðlæti
sem hægt er að stinga í steikingarpottinn.
Umsjón:
Sigríður
Pétursdóttir
Bára Sigurðardóttir stendur í ströngu við pottinn,
en hún var margra manna maki þennan sunnu-
dag. Ljósm. Sig.
y
Ljósm. Sig.
/
/
Fyrir jólin tíðkast á mörgum
heimilum að steikja laufa-
brauð. Hjá fjölskyldunni í Mos-
fellssveit sem við heimsóttum,
en hún samanstendur af Báru
og maka, sex börnum þeirra,
jafnmörgum tengdabörnum
og barnabörnum, hefur laufa-
brauðasteiking tíðkast fyrsta
sunnudag í aðventu frá því
börnin fyrst mundu eftir sér.
Það var sannkallaður friðar-
blær yfir fjölskyldunni, börnin
skáru út af mikilli innlifun, og
gáfu ímyndunaraflinu lausan
tauminn. Einstaka fullorðinn
fylgdist vel með hvað leið á bunk-
ann, kannski ekki sérlega mikið
gefinn fyrir slíkt stúss, en sagði að
loknum skurði „eigum við ekki
að taka aðra „porsion”!”
„Það eru engin jól ef við kom-
um ekki saman og skerum út og
stekjum laufabrauðið. Ekki eru
allir krakkarnir búsettir í bænum
en athöfnin verður endurtekin
um leið og þau koma í bæinn, nú
og ef þau komast ekki þá er þeim
sendur pakki með laufabrauði.
Við steiktum 120 stykki sem er
náttúrlega ekki upp í nös á ketti
þegar fjölskyldan er orðin svona
stór. Hver fjölskylda tekur með
sér 20 stykki svo þú sérð að það er
ekki miícið eftir. Ætli ég bæti ekki
úr því sjálf. Það er fyrirsjáanlegt
að ég mun halda stórar fjölskyld-
uveislur um þessi jól eins og þau
fyrri, og laufabrauðið er ómiss-
andi á jólaborðið,” sagði Bára að
lokum og hélt steikingunni gal-
vösk áfram.
Laufabrauö
1 kg hveiti
5 matsk sykur
125 gr smjörlíki
250 gr vatn
250 gr mjólk
1 tsk lyftiduft
1 tsk hjartarsalt
11/2 tsk salt
Smjörlíkið, vatn og mjólk er
hitað að suðu, það má alls ekki
sjóða, því þá verður deigið seigt
og óþjált. Blandið þurrefnunum
saman við og hnoðið vel. Deigið
er flatt út í fremur þunnar kökur.
Þegar búið er að skera kökurnar
eru þær stungnar með prjóni, og
síðan steiktar við fremur snarpan
hita. Gott er að nota til helmings
tólg og plöntufeiti. Það sem geng-
ur af af kökunum er svo steikt
síðast við mikinn hita.
En það er sitthvað fleira sem
hægt er að steikja en laufabrauð,
Berlínarbollur eru vinsælar víða
erlendis og nokkur bakarí selja
þessar bollur. Það sem til þarf í
bollurnar er:
30 gr pressuger
eða 3 tsk þurrger
2 dl rjómabland eða mjólk
100 gr smjörlíki
Vá dl sykur
salt á hnífsoddi
1/4 tsk hjartarsalt
1 egg
6-7 dl hveiti
Fylling:
11/2-2 dl eplamauk eða annað
aldinmauk
Til að steikja í:
matarolía eða plöntufeiti.
Fyrst er smjörlíkið brætt við
lítinn hita. Hellið rjómablandinu
samanvið og hellið þessu síðan
ylvolgu saman við gerið. Bætið
síðan sykri, salti, hjartarsalti og
eggi í og síðast hveitinu smátt og
smátt. Hrærið og hnoðið síðan
þar til deigið er orðið samfelit og
gljáandi. Deigið er látið hefast í
ca '/2 tíma. Þá er það hnoðað aft-
ur og flatt út í ferhyrnda köku
sem er ca 30x50 cm. Merkið fyrir
15 hringum á annan helming
kökunnar (um 5 cm í þvermál) og
látið dálítið eplamauk á hvern
hring. Leggið síðan hinn helming
deigsins yfir. Stingið út kökur
með móti eða glasi og þrýstið vel
saman köntunum. Takið deigaf-
gangana milli kakanna og fletjið
þá út á sama hátt og búið til fleiri
bollur. Látið bollurnar hefast þar
til þær hafa stækkað í tvöfalda
stærð. Síðan eru bollurnar
steiktar eins og kleinur í heitri
olíu eða plöntufeiti í ca 5 mínút-
ur. Færið þær upp á eldhúspapptr
svo renni vel af þeim og veltið
þeim síðan upp úr sykri.
Sjálfsagt eiga flestir góða
kleinuuppskrift frá mömmu eða
ömmu, en fyrir þá sem hafa ekki
fengið eina slíka í arf ætla ég að
birta uppskriftina hennar ömmu
sem hefur verið óbrigðul fram að
þessu:
1 kg hveiti
280 gr sykur
100 gr smjörlíki
4 egg
vanilludropar
2 bollar mjólk
6 tsk ger
Fimmtudagur 5. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
Verðkönnun
Hvað kostar í baksturinn?
Á þeim grundvallar bökunar-
vörum sem kannaðar voru mun-
aði 77.65 krónum á dýrasta og
ódýrasta stað.
í vikunni hafði Búsýslan sam-
band við nokkra stórmarkaði til
að kanna verð á bökunarvörum.
Ekki voru teknar með í könnun-
ina vörur eins og rúsínur, möndl-
ur og slíkt, þar sem vitað er að
búðir hafa mismunandi tegundir
sem eru misdýrar á boðstólum,
og myndi það gera könnunina
ómarktæka. En látum tölurnar
tala sínu máli, því ekki þýðir að
flana að neinu þegar pyngjan er
létt og stórhátíð í vændum.
Vörumarkaður Hagkaup Mikligarður Víðir Kostakaup Garðakaup Kaupgarður
Hveiti 46.70 36.90 36.80 39.90 36.85 39.50 39.00
sykur 16.90 16.50 17.20 16.50 18.60 19.95 17.95
smjörlíki 38.50 38.50 39.90 39.90 39.50 39.90 39.00
lyftiduft 71.10 72.90 73.50 73.90 51.50 75.30 71.75
hjartarsalt 29.90 .16.80 18.20 18.90 16.80 19.50 14.00
haframjöl 69.10 72.80 59.90 82.90 69.30 73.70 60.45
kartöflumjöl 59.20 61.80 62.00 59.90 60.75 62.85 53.00
kanill 41.40 43.20 46.80 29.90 18.20 18.30 38.00
negull 73.60 67.20 72.30 38.70 39.20 65.40 57.85
engifer 52.10 33.60 36.40 66.90 78.40 34.15 29.85
498.50 460.20 463.00 467.40 429.10 448.55 420.85