Þjóðviljinn - 13.12.1985, Page 2
FRETTIR
Fiskeldi
Stórbrotnar hugmyndir
Norðmenn með hugmyndir um risavaxna fiskeldisstarfsemi á
Islandi. 20þúsund lesta ársframleiðsla af eldisfiski. 25
miljóna ársframleiðsla afseiðum. Vilja leggja til tœki og
annastsölu afurðanna
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá á
dögunum var hér á ferð hópur
Norðmanna úr fiskeldis-
iðnaðinum norska að skoða allar
aðstæður hér á landi til fiskeldis.
Þessir Norðmenn eru nú uppi
með mjög stórbrotnar hugmynd-
ir um fiskeldi hér á landi og eru
tilbúnir að leggja fram fé til fram-
kvæmdanna m.a. í formi tækja,
fóðurs og eins vilja þeir annast
sölumálin.
Hugmyndir Norðmannanna
ganga út á 20 þúsund lesta árs-
framleiðslu á eldislaxi sem myndi
þýða nærri 6 miljarða króna
framleiðslu og að framleiða ár-
lega 25 miljónir seiða.
Þeir vilja reisa flotkvíar á fleiri
en einum stað á Austurlandi og
raunar víðar um landið. Eldis-
stöðvar í Þorlákshöfn, Sandgerði
og víðar. í norska hópnum eru
bæði fikseldisfrömuðir, fiski-
fræðingar og bankamenn.
Ástæðan fyrir áhuga Norð-
manna er tvíþættur. Þeim líst
mjög vel á allar aðstæður hér, en
aðal ástæðan mun samt vera sú,
að búið er að setja kvóta á fisk-
eldisstöðvarekstur í Noregi og
því lítill möguleiki að færa út kví-
arnar þar.
Alveg á næstunni mun þetta
mál skýrast enn betur.
-S.dór
Menningararfurinn
Leið-
mm
sogn
inn í
Njalu
Leiðsögn um landið gefur
út leiðsögusnœldur um
söguslóðir Njálssögu.
Meðfylgir örútgáfa af
Njálssögu, e.k.pínu-
Njála
Það má eiginlega segja að þetta
sé einskonar leiðsögn inn í
Njálu,“ sögðu aðstandendur út-
gáfufyrirtækisins Leiðsögn um
landið, þegar þeir kynntu
leiðsögusnældur fyrir fólki sem
ferðast í bíl um söguslóðir Njálu.
Á snældunum er leitast við að
veita alþýðlega, alhliða leiðsögn
um helstu söguslóðir Njálssögu,
þ.e. Fljótshlíð, Landeyjar og
Rangárvelli og megináhersla þá
lögð á atburði og frásagnir Njálu.
Þann texta hefur Franz Gíslason
samið og Ævar Kjartansson les.
•?5> 'IX V.ti «itrn
VvftÍN. v
f ». J* SiM
>» > .,
■t ijr-, Ji t ’.
’Letðsögn‘á‘&n
kiuv vi> -w<
'>u* ]
tfcwa* -%t . ____„„
VA^S. y in V nrM*
% !
H** ^
4 tlm ,Í 6L> >.
rn •í*f *”**-*»»* **„
i wt *r f.
!WVU,»>;.%w»*VS-^fe-.---•»
»>!>fl>»5'-
Menningararfurinn í nýjum búningi. Pínu-Njála og snaeldurnar þrjár. Mynd. Sig.
Auk þess les Heimir Pálsson
valda kafla úr Njálu, Hugrún
Gunnarsdóttir les ljóð og Mar-
grét Hjálmarsdóttir kveður rím-
ur.
Það sem eykur svo gildi þessar-
ar leiðsagnar inn í Njálu er að
eintak af Njálu fylgir með í
kaupunum. Leiðsögn um landið
hefur gert samning við Svart á
hvítu sem nú er að gefa út fs-
lendingasögur í tveimur bindunt,
um sérútgáfu á Njálu í örsmáu
broti. Bókin er á stærð við venju-
lega snældu, lófastór og er ekki
vitað til þess að Njála hafi fyrr
verið gefin út í jafn smáu broti.
Bókinni og snældunum, sem
eru þrjár, er komið fyrir í öskju
sem er í líkingu við myndbanda-
öskju. Er því handhæg og með-
færileg í ökuferðinni.
Franz Gíslason, sá er samdi
leiðsögutextann, sagði að auðvit-
að væri þarna ekki að finna ná-
kvæma lýsingu á staðháttum
Njáluslóða, til þess þyrfti ítar-
legri texta en kæmist fyrir á þrem-
ur klukkutíma löngum spólum.
Það væri gert ráð fyrir 60 til 70
km. ökuhraða og á snældunum
væri það helsta og forvitnilegasta
rakið sem þessum slóðum teng-
dist, út frá Njálu.
Söguslóðir Njálssögu kemur til
með að fást í öllum bókaverslun-
um og jafnvel hljómplötuversl-
unum og kostar 1875 kr.
IH.
TORGIÐ,
Nordal sat á upplýsingum,
og ég sem hélt að hann
hefði setið á rassinum.
Ofvöxtur?
29 trygginga-
félög
starfandi
Afl8 almennum
vátryggingafélögum eru
8 með um 90%
markaðarins. HinlOað
meðaltalimeð 1 % hvert.
Prjú ný líftryggingafélög
tóku til starfa á árinu
I dag eru alls starfandi 29
tryggingafélög í landinu. Um síð-
astliðin áramót voru tryggingafé-
lögin 26 en á þessu ári hafa bæst í
hópinn þrjú ný líftryggingafélög.
Af þessum 29 tryggingafélög-
um eru 5 félög sem stofnuð hefur
verið til samkvæmt lögum og
einnig eru starfandi 6 sérstök
bátatryggingafélög í landinu. Það
eru því 18 tryggingafélög sem
sinna almennri vátryggingastarf-
semi. Afþessum 18félögumeru8
langstærst og eru þau með um
90% af öllum iðgjaldagreiðslum,
þannig að 10 félög skipta á milli
sín um 10% almennra trygginga.
Erlendur Lárusson forstöðu-
maður Tryggingaeftirlitsins sagði
í samtalið við Þjóðviljann í gær að
vissulega væri þetta nokkuð
mikið í ekki fjölmennara landi en
það mætti geta þess að á Álands-
eyjum væru starfandi 6 trygginga-
félög fyrir 35 þúsund eyjabúa.
-<g-
Fiskeldi
400
miljónir
á næsta ári
Á næsta ári er líklegt að nær 4
miljónir göngusciða af laxi og
regnbogasilungi verði framleidd.
Mest af því mun verða selt til Nor-
egs. Söluverðmæti þessara seiða
gæti farið yfir 250 miljónir króna.
í slátureldi er áætlað að nær^
450 tonn verði framleidd á næsta
ári. Skilaverð kynni að verða
drjúgt yfir 100 miljónir króna.
Þannig bendir allt til þess að
framleiðsla í fiskeldi geti á næsta
ári farið nælægt 400 miljónum
króna.
(Byggt á Eldisfréttum).
Matador
Dagblaðið/Vísir
í stjóm Hafskips
Sveinn R. Eyjólfsson
r
Ífréttatilkynningu frá Hafskip í
júnímánuði er stjórn fyrirtæk-
isins auðkennd með þeim fyrir-
tækjum, sem stjórnarmenn eru
fulltrúar fyrir.
I leiðara DV í fyrradag segir
Jónas Kristjánsson engin tengsl
vera milli Hafskips og DV,
Frjálsrar fjölmiðlunar. í fréttatil-
kynningu Hafskips í júní, þarsem
sagt er frá aðalfundi fyrirtækisins
eru stjórnarmennirnir nefndir
ásamt þeim fyrirtækjum sem þeir
eru fulltrúar fyrir.
-óg
(Stjórnin kjörin
i einu
eldar eér V'ryUm)
skiptir slóar
Bjarm Magnósson
Finnbog' Kjeld
Guólaugur Berg(nann
, Þ6r ÓiafsB°n
Gunnar vor
Hilmar Fenger
J6n Helgi Guóntundsso
Jón Snorrason
Jónatan Einarsson
öiafur B. Ólafaao"
Pill G- Jón89°n
pétur Bjbrnsson
Ragnar Kjartansson
„ R Ey)ó'f880n
Sveinn K • 7
Vlðir Finnbogason
((slenska Un>boóssaIan hf.)
(Vikur hf.)
(Karnabær bf •)
(Fiskiójan hf.)
. „ L Olsen hf.)
(ByBBÍnB8^—r9)Un K6P‘VOB
(Húsasmiöjan hf.)
(E. Guófinnsson hf .)
(Keflavfk hf •)
(Pólaris hf.)
(Verksmiójan VffUfe"
(Hafsk'p hf •) ðíV,.lr)
(HUmir hf. Da®
(Teppaland hf.)
Ljósrit úr fréttatilkynningu Hafskips
frá 8. júní sl.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. desember 1985