Þjóðviljinn - 13.12.1985, Side 6

Þjóðviljinn - 13.12.1985, Side 6
BÆKUR ÝMISLEGT Basar Basar Álafosskórsins á Lækj- artorgi. LA: 11.00. Kórinn tekurlagiökl. 11.30. Jólatré Ljós tendruö á jólatrénu viö Þverholt, Mosfellssveit. Álafosskórinn syngur. LA: 14.00. Skák Firmakeppni í hraöskák, fé- lagsheimili TR, Grensásvegi 46. MÁ: 20.00 BHM. Stofu 101, Odda. Frum- mælendur háskólarektor, skólameistari MA, Valdimar K. Jónsson prófessor. LA: 13.30. Fríkírkjan Jólavaka. RæöumaöurGuð- rún Helgadóttir. Söngur, org- elleikur, smásaga. SU: 17.00. Hananú Laugardagsganga Frístunda- hópsins Hana nú í Kópavogi. Lagt af staö frá Digranesvegi. LA: 10.00. Einar Kára Hafnarfjörður Jólavaka við kertaljós í Hafn- arfjarðarkirkju. Ræöumaöur Andrés Björnsson. Verk eftir Hándel og Bach. Fuglar Norrænahúsiö. Fræðslu- fundur Fuglaverndunarfélags fslands. Saga Drangeyjar, lit- skyggnurfrá Drangeyog Skrúö.MÁ: 20.30. Haskoli Fundur um háskólakennslu utan Reykjavíkurávegum Stúdentakjallarinn. Einar Kárason les úr bók sinni Gull- eyjunni. FÖ:21.00. Háteigskirkja Minning um 20 ára vígsluaf- mæli Háteigskirkju. Avarp Sigurbjarnar Einarssonar. Söngur.SU: 20.30. Stjörnuspekifundur Hótel Loftleiöir, Víkingasalur. Stofnfundur Samtaka áhuga- manna um stjörnuspeki. Upp- lýsingar í síma 10377. SU: 13.45. Laus hverfi: Grandar, Seltjarnarnes, Kópavog vesturbæ og Seljahverfi. ÞJOÐVIIJINN KVOSIN ’85. Teikningar og líkan af skipulagstillögunni eru til sýnis í Byggingarþjónustunni, Hallveigarstíg 1, frá kl. 10.00- 18.00, alla virka daga. Fulltrúar Borgarskipulags og hönnuða verða til staðar á miðvikudögum kl. 16.00 - 18.00 Borgarskipulag Reykjavíkur. Frá menntamála- ráðuneytinu: Staöa kennara í tölvufræðum við Menntaskólann viö Hamrahlíð er laus frá næstu áramótum. Til greina kemur hlutastarf eöa stundakennsla. Ennfremur vantar kennara í efnafræði frá sama tíma. Upplýsingar veitir rektor Menntaskólans við Hamrahlíð. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík fyrir 20. desember. Menntamálaráðuneytið. fp Frá Borgarskipulagi: Skrifstofur Borgarskipulags Reykjavíkur eru fluttar úr Þverholti 15 í Borgartún 3,3. hæð, gegnt Skúlatúni 2. Borgarskipuiag Reykjavíkur Lóð og hús til sölu Kauptilboð óskast í eftirfarandi eignir. Skútuvogur 7, Reykjavík, grunnbygging að iðnaðar- húsnæði, þ.e. sökklar og steypt plata að hluta, 4300m2. Stærð lóðar er 11.155m2. Kópavogsbraut 9, Kópavogi, einlyft steinhús með risi og bílskúr. Brunabótamat kr. 3.407.000, - Stærð húss 285m2 til sýnis föstudaginn 13. des. og laugar- daginn 14. des. kl. 13-15:00. Tilboðseyðublöð liggja frammi í ofangreindri húseign og á skrifstofu vorri í Borgartúni 7, Reykjavík. Tilboð verða opnuð kl. 11:00, föstudaginn 20. desember 1985, í Borgartúni 7, Reykjavík. ÍNNKAUPASTOFNUN RIKISINS ' Borgartúni 7, sími 26844 Trölleykiö eftir Desmond Bagley er nú komin út hjá Suðra. Þar er sagt frá gríðarlegum flutningatrukk, sem notaður er til að flytja spennubreyti til Afríku- ríkis. Sú ferð reynist síður en svo ævintýr á gönguför; gerð er stjórnarbylting í ríkinu og verður trölleykið nú sjúkrahús á hjólum, og fara að verða til áætlanir um að flýja á því hörmungar stríðs- ins. Desmond Bagley lést fyrir tveimur árum, og hafði þá gefið út fjórtán sögur, sem allar hafa komið út á íslensku. Hann átti hinsvegar í fórum sínum nokkur handrit nær frágengin, þar á með- al að Trölleykinu, og hefur ekkja hans lokið ritverki eiginmanns síns. Þýðandi er Torfi Ólafsson. Stríðsvindar heitir tveggja binda skáldverk eftir Herman Wouk, og er nú sent á almennan bókamarkað úr Bókaklúbbi Arn- ar og Örlygs. Þetta er söguleg skáldsaga úr síðari heimstyrjöld, um stríð, ást- ir, stórmenni, og bandaríska fjöl- skyldu sem víða drepur niður fæti. Sjónvarpsþættir gerðir eftir sögunni verða teknir til sýningar hér á næstunni. Sterk lyf heitir Bókaforlagsbók eftir Arthur Hailey. Þetta er spennusaga þar sem skyggnst er inní veröld lyfjafram- leiðenda og fylgst með Celiu Jor- dan sem tekst að brjóta sér leið á tindinn í iðnaðinum eftir baráttu við karlrembu og fordóma. Hailey varð metsöluhöfundur vestanhafs fyrir tæpum tveimur áratugum. Hann hætti ritstörfum vegna veikinda fyrir nokkru, en reis aftur uppaf spítalabeði og er þessi bók byggð á reynslu höf- undar af sjúkrahúsum, lækna- og lyfjamálum. Þýðandi er Hersteinn Pálsson. Samsærið heitir ný bók eftir David Osborn, sem gefin er út hjá Prentveri. „Mögnuð spennusaga" segir í forlagsfrétt, „með jöfnum og hröðum stíganda, hraðri at- burðarás og óvæntum endi“. Sögusviðið er Washington og þeir frændur CIA og FBI eru tíðir gestir á síðunum. Þýðandi er Ásgeir Ingólfsson. Scarlatti-arfurinn eftir Robert Ludlum er nýkomin út hjá Set- bergi. Yngri sonur auðkýfings lætur sér ekki nægja föðurarfinn heldur seilist til áhrifa meðal þýskra nas- ista, og svífst einskis. Móðirin fær mann til að rannsaka hvarf sonar- ins og fjármuna af yfirborðsvett- vangi og tekur að æsast leikurinn, og blandast fjölskyldan öll óþyrmilega í málið áður en yfir lýkur. Ludlum er einn helsti spennu- höfundur í Bandaríkjunum og tíðförull á vinsældarlista. Þýðandi er Gissur Ó. Erlings- son. tlNN FREMSTI NÚUfANDI SPENNUSAGNAHÖFUNOURINN Hrossakaup eftir Dick Francis er gefin út af Nótt. Segir þar frá ungum manni á uppleið í banka sem fær yfirmenn sína til að lána til kaupa á veð- hlaupahesti. Fer brátt að ganga allskrykkjótt, og að lokum verð- ur fleira í húfi en framavonirnar og fjármunir bankans. Dick Francis er frá Wales og hefur kynnst veðhlaupabrautinni af eigin raun. Hann þykir meðal betri spennusagnahöfunda breskra og hefur hlotið ýmsa við- urkenningu fyrir bækur sínar. Þýðandi er Þuríður Baxter. HUÓMPLÖTUR Með lögum ska) land byggja eru einkunnarorð Þorgeirs Ljós- vetningagoða, lögreglunnar og hljómplötuútgáfunnar Steina, - og nafn á tveggja platna útgáfu í tilefni áratugs afmælis síðast- nefnds fyrirbæris. Á plötunni geisla helstu stjörn- ur í íslenskri rokksögu síðustu tíu ára, samtals 28 lög flutt af Stuð- mönnum, Mezzoforte, Eiríki Fjalar, Diabolus in musica, Bubba Morthens, Bara-flokkn- um o.s.frv. Á plötunni Rokkfári leiða sam- an hesta sína þrjú gömul brýni úr bransanum, og leika lög frá árun- um 1957 til 1962, þeir Garðar Guðmundsson, Stefán Jónsson og Þorsteinn Eggertsson. Kalla sig Rokkbræður. Upptakan fór fram í heilu lagi og einni töku einsog tíðkaðist fyrir aldarfjórðungi, og hljóð- blöndun er líka með gömlu sniði. Undir söng þeirra bræðra leikur hljómsveitin Babadú. Geim- steinn gefur út. Ástin... heitir ný plata með Jó- hanni Helgasyni og syngur hann þar tíu lög, flest um ástina. Flytjendur auk Jóhanns eru Eyþór Gunnarsson, Gunnlaugur Briem, Skúli Sverrisson, Björn Thoroddsen og Friðrik Karlsson. Utsetningar sáu Eyþór Gunnars- son og Kjartan M. Kjartansson um. Utgefandi er Hugverkaút- gáfan, nýstofnað fyrirtæki Jó- hanns, en Steinar annast dreif- ingu. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. desember 1985

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.