Þjóðviljinn - 13.12.1985, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 13.12.1985, Blaðsíða 7
Vinnueftirlitið og Námsgagnastofnun Á vinnustað Glætan gluggar í bækling sem nýlega kom út og er ætlaður sem kennsluefni í 9. bekk grunnskólans. Hvað ber að varast á vinnustaðnum? Hvernig á birtan að vera? Hverjir lenda í slysum? Stöðugt er verið að bæta við námsefni handa krökkum sem stunda nám í grunnskólunum og því varia fréttnæmt þótt ein kennslubók bætist við. En ný- lega kom út á vegum stofnunar sem heitir Vinnueftirlit ríkisins og Námsgagnastofnunar bæk- lingur um vinnuvernd sem skólunum gefst kostur á að nota í sambandi við náms- og starfsfræðslu. Er ætlunin að nota þennan bækling í vetur til kennslu í 9. bekk og er ekki að efa að hann ætti að geta orðið til að auka þekkingu krakka á ýmsu því sem hafa ber í huga þegar þeir hefja störf á hinum almenna vinnumarkaði. Bæklingurinn er saminn af Herði Bergmann fræðslu- og upplýsingafulltrúa hjá Vinnueft- irlitinu og gaf hann Glætunni góðfúslega leyfi til að birta efni sem þar er að finna. Vonandi geta sem flestir 9. bekkingar skoðað bæklinginn í vetur. Hverjir lenda í slysum? í bæklingnum kemur m.a. fram að slys eru langalgengust hjá fólki á aldrinum 16-20 ára. Til eru athuganir sem sýna að í þeim aldursflokki séu vinnuslys 4-5 sinnum algengari en á aldrinum 25-60 ára og að flest slys eru til- kynnt á vorin, einmitt þegar krakkarnir eru að koma út í atvinnulífið. Hvaða kröfur á að gera? í einum kafla bæklingsins segir m.a.: „Starfsumhverfi er allt það sem hefur áhrif á líðan fólks við vinnu. Húsnæði, húsbúnaður, birta, loft, hávaði, ryk, efni, vél- ar, skipulag, vinnubrögð og jafnvel vinnutími er því hluti af starfsumhverfi - hefur allt með einhverjum hætti áhrif á líðan og afköst starfsfólks“. í þessum kafla kemur fram að loft þurfi að vera hreint og hæfi- lega hlýtt og rakt, helst 18-22 gráður. Birta verður að vera nægileg en þó ekki of mikil því það getur haft jafnslæmar afleið- ingar og lítil birta. Ekki hægt að lækna heyrnartjón „Heyrnartjón af völdum há- vaða er varanlegt - ekki hægt að lækna. Pess vegna er sérstaklega áríðandi að vera á verði - bæði gagnvart snöggum, miklum há- vaða og allmiklum sem dvalið er í tímunum saman. Heyrnarhlífar gera sitt gagn en hávaðadempun við upptökin er betri“. Sitjið standið rétt! „Fleira en hávaði getur valdið heilsutjóni. Það geta rangar vinn- ustellingar líka gert. Bakverk, vöðvabólgu og fleiri algengar meinsemdir má einmitt oft rekja til þess, að óvarlega var farið í vinnu - eða einhverju var ábóta- vant í starfsumhverfinu". Þannig segir m.a. í kafla bæklingsins um vinnustellingar og þar kemur líka fram að einhvers konar bakverk- ur er meðal algengustu kvilla mannfólksins. Og það er ekki bara nauðsynlegt að sitja og standa rétt, heldur ekki síður mikilvægt að lyfta rétt og bera rétt. Notið hlífar Eins og áður sagði er góð vörn gegn heyrnarskemmdum að nota hlífar gegn hávaða, sem oft er á vinnustaðnum. En fleiri hlífar eru til. Þar má nefna hjálma, hlífðargleraugu og rykgrímur. Nýliði á vinnustað ætti að kynna sér í upphafi hvort persónuhlífar eru notaðar þar og þá tileinka sér þær strax. í lok þessa ágæta bæklings um aðbúnað og öryggi á vinnustað og líkamsbeitingu við vinnu er hollráð: Þú skalt ekki hika við að leita ráða og biðja um upplýsing- ar þegar þú byrjar á nýjum vinnustað. Glætan tekur undir þetta og hvetur alla krakka til að kynna sér vel þennan ágæta bæk- ling, sem vonandi verður til kennslu í öllum 9. bekkjum landsins í vetur. Að standa rétt Oit cr nauösynlegt ;iö standa viö vinnu, s.s. þcgar hún krcfst hrcyfingar og aflbeitingar. Pcgar staöiö cr rcynir mcira á blóörás. mjaöm- ir. hnc. ökkla og ýmsa vööva. Líkaminn þolir árcynsluna bctur cf cftirfarandi cr haft i huga: - Aö drcifa þunganum sc;r! jafnast á báöa fætur. - Aö hafa bakiö bcint. - Aö vcra í góöum skóm. ý^Viðvi áreynsla talsverð hentar lægri borðhæð. 'Loft Birta "" h‘lrj ad vcra hrcin rilk • ,r 1,1,1 vió kvrrsciusiiirf'' C Cr ha',i hui u-ra hcpri „ek; Zt '"".'nhúss. Annur, ............... Birta þarf aö vcra lucgilcg cftir cöli starfsins. ()f mikil birta gctur valdiö jafn-miklum ojucgind- um og of litil. Linnig gctur cndurkast og spcgl- un valdiö óþicgindum. Ilcppilcgt cr aö hafa meiri birtu a því scm. unniö cr mcö cn um- hverfis. / /Við létt nákvæmnisverk ' þarf borðhæð að vera l nokkuð hærri. Folk er ólíkt oq hef..r m.smunnnu,. lel k '0ft er ,69a he,tt- Allirgeta hins að9h rrVenð sammála um aö hafa loftið hreint (ó- mengað) ,0- s V . li iL Sé lýsing á vinnustað lé- leg getur það átt sinn þátt i þreytu i augum, vöðvaspennu og höfuð- verk 'V Tjm margar gerðir lampaN er að velja til að fá góða L_—^ lysingu á það sem unnið/ V . er með _. _ Hæð borðs, sem unnið er standandi við, barf að miðast við eðli starfsins. i L xS^bggarnir 'átnir naeg^ayý Men9að loft hefur vara-. S°m ahr,t a ýmis HUæri ryk' °9 e.nfsögnum eða oppgufun frá9„frænUm teysiefnum , ýmsum malnmga, og hrefns, ' 5 ! íí\ 'A Við innivinnu er heppi- legast að dagsbirta og lýsing komi frá vinstri hjá þeim sem beita eink- um hægri hendi - og öfugt Föstudagur 13. desember 1985 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.